Morgunblaðið - 07.08.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.08.1988, Blaðsíða 3
morgúníílaðÍð' ' SUNNUDAGÚR 7A agÍjst 1988 B 3 Hinir óvæntu hljómleikar Jójós og Bruce Springsteens á Strikinu voru ekki ljósmyndaðir, en voru festir á myndband. Myndin er tekin af sjónvarpsskjá. Goðið Springsteen í ham á hljómleikum í Idrætsparken tveimur dögum eftir uppákomuna á Strikinu. ekki af því að hann er þessi súper- stjarna, að hann gerði þetta. Það var það sem hann gaf mér, og ég þurfti ekki meira.“ Niðurleið og uppleið Jón „Jójó“ Magnússon er senni- lega þekktastur á íslandi fyrir að hafa verið hljómsveitarstjóri í Pöbb-inum sáluga á Hverfisgötunni í Reykjavík. Það var fyrir 4—5 árum þegar bjórlíki og krármenning komst í tísku, en Pöbb-inn var ein- mitt einn af fyrstu og vinsælustú veitingastöðunum í þessum stfl. Jójó varð minniháttar stjama á þeim árum; sex kvöld vikunnar spil- aði hann og söng — og drakk. Nið- urleiðin varð líka brött og næstu árin var hann ýmist á leið úr eða í meðferð. „Svo var það í byrjun júlí síðastliðið sumar,“ segir hann og leggur frá sér kaffibollann, „að ég var orðinn svo yfir mig þreyttur á öllu þessú rugli, að ég ákvað að drífa mig bara út og reyna að fá botn í sjálfan mig uppá eigin spýt- ur. Ég vildi jafnframt fara að gera eitthvað raunhæft til þess að þróa mig áfram sem tónlistarmann. Ég hef alltaf verið sannfærður um að leiðin til þess að ná langt í rokktón- listinni sé sú að fara sem víðast og spila fyrir sem flesta, kanna sjálfur á götunum hvaða möguleika maður hefur, hvernig maður fellur í kram- ið. Þannig hafa líka flest stóm nöfn- in farið að því — án þess ég sé eitt- hvað að halda því fram aðég eigi eftir að verða stórt nafn í þessum bransa. Ég fór fyrst til Noregs, kom svo fljótlega hingað til Kaupannahafnar og stofnaði hljómsveit sem ferðaðist suður um Evrópu til Hollands. En á þessum tíma reykti ég mikið hass og hálfbrotnaði saman í Amsterdam og ákvað að fara aftur heim. Ég fór heim og byijaði að spila þar, en lenti svo í leiðinda peningamáli, mikilli skuld, sem ég ákvað að redda með því að fara á sjóinn. En eftir að ég kom svo af sjónum fór ég á hið hrikalegasta fyllerí, eitt af mínum frægu, og rankaði við mér um borð í flugvél á leið til Amster- dam. Það var í byijun desember og síðan hef ég ekki komið heim. Ég hef verið á flakki um Evrópu og lifað af spilamennskunni. Og það hefur gengið mjög vel. Á þessum tíma hef ég sjálfsagt spilað með hátt í 200 manns, leikið allskonar tónlist og auk þess unnið talsvert með leikhópum við götuleikhús, brúðuleikhús og fleira. En mér fínnst ekki mikið að því að standa bara við einhveija fjölfarna götu og spila þar allan daginn á sama staðnum. Ég hef meira verið í því að fara á milli veitingahúsa og taka nokkur lög og láta svo hattinn ganga. Það er ekki leyfilegt alls staðar, en mér hefur þó tekist að bijóta þá múra á nokkrum stöðum, til dæmis hér í Kaupmannahöfn. Best hefur mér verið tekið í Þýska- landi og er þar reyndar kominn í ágætis sambönd, get fengið að spila þar á mörgum góðum stöðum. En mér liggur ekkert á og ég vil endi- lega undirstrika það að ég geng ekki um og er að fara að „meikaða big“ á morgun. Það sem skiptir mig mestu máli er að þroska sjálfan mig og mína músík. Ég þéna nógu vel á spiliríinu til að hafa í mig og á, sef hjá vinum og kunningjum, á hótelum eða undir berum himni þegar veðrið er gott. Ég hef valið þetta líf, sem ég lifi núna, vegna þess að ég hef í mörg ár reynt að lifa einsog flestir gera heima á ís- landi en það hefur bara ekki tekist, það hefur einungis fært mér vanlíð- an. Allur þessi hraði, allt þetta kapphlaup við að eignast húsnæði, bíl og myndbandstæki gerir mig einfaldlega ruglaðan. Þegar maður er svo þar að auki lentur í alkóhól- isma-geggjuninni heima er þetta orðið algert helvíti. En ég vil ekki fara nánar út í það mál núna.“ Jójó stendur upp til að fá sér ábót í kaffibollann, segir svo þegar hann kemur aftur að borðinu: „Ég vil alls ekki að fólk haldi að ég sé bitur og heldur ekki að ég sé á einu flippinu enn. Mér finnst ég standa með báða fætur á jörðinni, en samt sjá góða tíma framundan. Og svo máttu ekki gleyma að skila góðri kveðju til allra vina minna og óvina heima á Fróni.“ Texti: Páll Pálsson Myndir: Elsa María Ólafsdóttir FLUGLEIDIR TILKYNNA BROTTFÖR: frönsku rivierunni 4. - 7. september. Verð frá kr. 19.425/ Hótel Don Gregoris - Beaulieu 3ja stjörnu. Hótel Savoy - Cannes 3ja stjörnu. Hotel Du Parc - Juan Les Pins 4ra stjörnu** Innifalið: Gisting (i 2ja manna herbergi), morgun- verður, dagsskoðunarferð til St. Tropes, hálfs dags skoðunarferð til Monaco. Fyrirgesti á Hotel Don Gregoris hálfs dags skoðunarferð til St. Paul De Vence (fyrir gesti Hotel Savoy og Hotel Du Parc). Brottförfrá Keflavík 4. sept. kl. 08.30. og lent í Nice kl. 14.30. að staðartíma. Brottförfrá Nice 7. sept. kl. 05.00. Lent í Keflavík kl. 07.00 að íslenskum tíma. * Auk flugvallarskatts kr. 900,- ** Hotel Du Parc kostar 3.245 kr. aukalega. Allar nánari upplýsingar gefa Ferðaskrifstofur og Flugleiðir í síma 690100 eða 25100. FLUGLEIDIR i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.