Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 7
88fif
mo'MjnbEaðið,
tnmip. -jgiQ a. mviuoHOM
SUNNUDAGUR 7. AGUST 1988
7
Notkun vermi-
ljómunar til ald-
ursgreiningar
Vísindi
Sverrir Ólafsson
A undanfömum árum og ára-
tugum hafa vísindamenn þróað
hugvitsamlegar aðferðir til að ald-
ursgreina foma muni sem eru
áhugaverðir fyrir nútíma fom-
leifafræði. Þekktust á meðal al-
mennings er án efa geislakolsað-
ferðin svokallaða, en hún byggist
á því að mæla geislavirkni kolefn-
issamsætunnar Ci4 í trjám, bein-
um, ösku eða öðru lífrænu efni.
Þar sem vitað er hvemig geisla-
virknin rýmar með tímanum er
hægt að áætla aldur viðkomandi
hluta með því að bera geislavirkni
þeirra saman við geislavirkni
lífræns efnis í dag. Þessi aðferð
er ekki alveg gallalaus, þar sem
einungis er hægt að beita henni
á menjar sem hafa að geyma tals-
vert magn kolefnis og eins og
aðrar aldursgreiningaraðferðir er
nákvæmni hennar takmörkuð.
Aldursgreiningaraðferð sem
nokkuð hefur rutt sér til rúms á
undanfömum árum byggist á svo-
kallaðri vermiljómun. Efnafræð-
ingurinn Robert Boyle lýsti verm-
iljómun í grein sem hann birti
fýrir rúmum 300 ámm, en það
var ekki fyrr en eftir 1953 að
vísindamenn við Wisconsin-
háskólann bentu á að hægt væri
að nota vermiljómun til aldurs-
greiningar. Síðan hefur þekking
manna á fyrirbærinu. aukist og
notkun þess til aldursgreiningar
í fomleifafræði ogjarðfræði hefur
tekið stórstígum framfömm.
Vermiljómun er eiginleiki gler-
og kristalkenndra efna að senda
frá sér ljós ef þau em hituð upp
í 200—450°C. I slíkum efnum em
ytri rafeindir nokkurra atóma í
nánd við kristalveilur í örvuðu
ástandi. Við upphitun tapar efnið
orku, en hún ummyndast í ljós
sem efnið sendir frá sér. Styrkur
ljóssins er háður fjölda kristalveila
sem margar hverjar em til komn-
ar vegna álags sem efnið hefur
orðið fyrir af völdum geislavirkra
ísótópa sem í því em. Eldri efni
hafa orðið fyrir meiri geislaáreitni
en yngri efni og þar af leiðandi
er vermiljómun þeirra meiri. Það
er þessi gmndvallarstaðreynd sem
notkun vermiljómunar til aldurs-
greiningar byggist á.
Einn jákvæðasti eiginleiki
vermiljómandi efna, sem gerir þau
sérstaklega vel hæf til aldurs-
greiningar, er tilvist sk. „núll-
punktsviðburða" sem eyða heild-
aráhrifum geislavirkni fyrri tíma
og því marka þeir upphafspunkt
nýs tímaskala. Annað mikilvægt
atriði er tilvist geislavirkra efna,
eins og úrans og þóríns, sem búa
yfír helmingunartíma sem er
langur í samanburði við þau tíma-
bil sem fomleifarannsóknir ná tii.
A jörðinni hefur mikið magn ver-
miljómandi efna orðið til fyrir
mörgum milljónum ára. Efni þessi
eru annaðhvort í jarðlögum eða
gömlum hlutum og verkfærum og
því er hægt að nota vermiljómun
þeirra til aldursgreiningar á hvoru
tveggja.
Viðburðir sem helst geta um-
kvarðað tímaskalann eru eldur,
bæði af manna og náttúru völd-
um, og eins áhrif sólarljóssins, ef
viðkomandi efni kemst í beina
snertingu við það. Eldur sem
kveiktur hefur verið af manna-
völdum getur því markað upphaf
tímaskala sem er gagnlegur til
aldursgreiningar fomra byggða-
svæða. Mæling á vermiljómun
hefur reynst vel til aldursgrein-
ingar á ýmsum pottkenndum ílát-
um frá því á steinöld. Þessi að-
ferð er sérlega hagstæð þegar um
er að ræða illa farin eða grófgerð
flát sem eru ekki einkennandi fyr-
ir það tímabil sem þau vom gerð á.
Vermiijómandi efni hafa einnig
reynst mjög gagnleg til áætlunar
þeirrar geislavirkni sem ákveðin
svæði hafa orðið fyrir af sérstök-
um ástæðum, eins og til að mynda
japönsku borgimar Hirosihma og
Nakasakí af völdum kjamorku-
sprengjanna sem varpað var á
þær í síðari heimsstyijöldinni eða
Nevada-svæðið þar sem Banda-
ríkjamenn hafa sprengt flestar
tilraunakjarnorkusprengjur sínar.
Hér er helst um margskonar múr-
steina og flísar að ræða sem hafa
verið notaðar til byggingar húsa
og annarra mannvirkja á svæðinu.
Ef aldur byggingarefnisins er
þekktur er hægt að áætla þau
geislaáhrif sem það hefur orðið
fyrir yfir ævina. Allar viðbótar-
skemmdir, sem koma fram í auk-
inni vermiljómun, eru líklega til
komnar vegna áhrifa kjarna-
sprengjanna.
Japanir, ásamt vísindamönnum
frá mörgum öðrum löndum, hafa
stundað umfangsmiklar rann-
sóknir á þessu sviði og hafa með-
al annars gert nákvæmar mæling-
ar á vermiljómun múrsteina sem
voru í mismunandi fjarlægð frá
miðpunkti sprengjanna sem
sprungu yfír borgunum tveimur.
Niðurstöður þeirra benda eindreg-
ið til þess að geislavirknin á svæð-
inu hafi verið talsvert meiri en
venjulega hefur verið gert ráð
fyrir. Þetta er í samræmi við ný-
legar niðurstöður sem hafa fund-
ist með öðrum aðferðum.
Sem stendur er lágmarksóvissa
vermiljómunar til aldursgreining-
ar 5% af mældum tíma og því
geta aðrar aðferðir, eins og geisla-
kolsaðferðin, stundum boðið upp
á meiri nákvæmni. Vermiljómun
hefur reynst best til aldursgrein-
ingar hluta frá jámöld og miðöld-
um og hún hefur reynst mjög
gagnleg til flokkunar gripa og
verkfæra frá þessum tíma. Telja
má víst að með auknum rannsókn-
um á þessu sviði muni hlutur ver-
miljómunar til aldursgreiningar
gamalla menja stóraukast á kom-
andi ámm.
aaaa
DRÁTTARVÉLAR
Mest seldar í V-Evrópu
G/obusp
LÁGMÚLA 5. S. 681555.
ÍSÍ:
Ragnar Arn-
alds sæmdur
heiðursorðu
RAGNAR Arnalds alþingismaður
og fyrrverandi fjármálaráðherra
var sæmdur heiðursorðu íþrótta-
sambands íslands á fundi fram-
kvæmdastjórnar sambandsins
28. júlí síðastliðinn.
Sveinn Bjömsson forseti sam-
bandsins flutti ávarp við afhending-
una og sagði meðal annars að
Ragnar hefði ávallt sýnt áhuga og
skilning varðandi íþróttamálefni í
þingmannsstörfum sínum og sem
ráðherra. Ragnar var á yngri ámm
keppnismaður í sundi.
(Úr fréttatilkynningu)
Við afhendingu orðunnar; Ragnar Arnalds alþingismaður og Sveinn
Björnsson forseti íþróttasambandsins.
A HRINGFERÐ UM LANDIÐ
Innréttingahúsið hf. stendur fyrir sýningarferð um landið.
Til sýnis verða eldhús-, bað- og fataskápar frá HTH og heimilistœki
frá Blomberg. Glœsilegur sýningarbíll með uppsettum innréttingum
fer um landið og hefur stutta viðdvöl á hverjum stað, þaðer því
mikilvœgtað leggja vel á minnið hvenœr hann er í nágrenni þínu.
Verið velkomin.
lin.
VIÐKOMUSTAÐIR:
BORGARNES
ÓLAFSVÍK
STYKKISHÓLMUR
BLÖNDUÓS
SAUÐÁRKRÓKUR
AKUREYRI
ÓLAFSFJÖRÐUR
DAlVÍK
AKUREYRI
11. ÁG. 10.00-13.00
11. ÁG. 16.00-18.00
11. ÁG. 20.30-22.00
13. ÁG. 16.00-20.00
14. ÁG. 13.00-18.00
15. ÁG. 13.00-22.00
16. ÁG. 11.00-13.00
16. ÁG. 14.00-16.00
16.ÁG. 18.00-22.00
HUSAVIK
EGILSSTAÐIR
ESKIFJÖRÐUR
BÚÐIR
DJÚPIVOGUR
HÖFN HORNAFIRÐI
VÍK I MÝRDAL
HVOLSVÖLLUR
HELLA
ÞORLÁKSHÖFN
VESTMANNAEYJAR
SELF0SS
17. AG. 13.00-21.00
18. ÁG. 14.00-22.00
19. ÁG. 11.00-19.00
19. ÁG. 15.00-17.00
19. ÁG. 19.00-21.00
20. ÁG. 13.00-19.00
21. ÁG. 12.00-14.00
21. ÁG. 16.00-18.00
21. ÁG. 19.00-21.00
22. ÁG. 11.00-13.00
22. ÁG. 18.00-22.00
23. ÁG. 16.00-19.00
SJA AUGLYSINGAR A HVERJUM STAÐ UM TÍMASETNINGU,
EINNIG TILKYNNINGAR í ÚTVARPI.
innréttíngahúsíð
Háteigsvegi 3, Reykjavik. Síml 27344
Blownlierq
r,
Metsölublað á hverjum degi!