Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 11

Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 11
M0PGUNBtAí)I9, SUNNUÐAGUR 5. ÁGÚST 3988 B li Rætt við Corneliu Schubrig, konsúl íslands í Vínarborg p kveðju til íslands Það var vel við hæfi að heim sækja Schubrig og spjalla við hana er blaðamaður Morgunblaðsins var á ferð í Vínarborg fyrir skömmu. Hún býr í smáborginni Krems skammt frá höfuðborginni og þar rekur fjölskylda hennar stórt bygg- ingafyrirtæki. Schubrig er virt og dáð í þessari litlu borg sem ól upp snillingana Franz Liszt og Schu- bert . Tók við konsúlatinu er eig- inmaður hennar lést „Maðurinn minn tók við íslenska konsúlatinu fyrir 18 árum en ég tók við því þegar hann lést árið 1980,“ segir Schubrig. „Hann þekkti fyrrverandi konsúl og fékk þannig áhuga á íslandi. Hann hafði lengi haft áhuga á að verða kons- úil. Honum var boðið að taka að sér ýmis lönd en hann neitaði öllu þar til honum var boðið að taka við íslandi. Þá ferðaðist hann til landsins, varð strax hrifinn og ákvað að taka boðinu." Að sögn Schubrig var starfið ekki mikið í fyrstu en jókst ár frá ári. „Maðurinn minn var vandvirk- ur og sendi ekkert verk frá sér nema hann væri fullkomlega ánægður með það. Þannig stýrði hann íslenska konsúlatinu. Ég stóð í bessu með honum og þekkti fólk- ið sem hann hafði samskipti við sem konsúll. Þegar hann féll frá var því leitað til mín og ég fengin til að taka við.“ Stofnaði sjóð fyrir íslenska námsmenn í Vín Nú er starfið orðið svo viðamik- ið að Schubrig hefur ritara á skrif- stofu konsúlatsins sem sinnir venjulegum skrifstofustörfum. Sjálf hefur hún ákveðna við- talstíma í viku hverri ef fólk á við hana persónuleg erindi. íslending- um í Vínarborg er auðvitað heim- ilt að hringja í hana hvenær sem er og leita aðstoðar hennar. „Starf konsúls er margþætt. Ég þarf að svara spurningum Aust- urríkismanna um ísland og ef þeir vilja landvistarleyfi á íslandi fer sú umsókn um mínar hendur. Ég tek á móti öllum íslendingum sem vilja hitta mig og hjálpa þeim ef erfíðleikar steðja að; til dæmis varðandi vegabréf. Ég læt mér annt um þá Islendinga sem hér eru við nám og utankjörstaðakosning- ar fyrir þá fara fram hjá mér. Síðast en ekki síst er ég oft millilið- ur í viðskiptum Austurríkismanna við íslendinga sem hafa vaxið ár frá ári.“ Þess má geta að Schubrig starf- rækir sérstakan sjóð fýrir íslenska námsmenn í Austurríki. Sjóðinn stofnaði maður hennar á sínum tíma og hlutverk hans er að hjálpa námsmönnunum út úr tímabund- um fjárhagserfiðleikum. Það er líklega einstakt að útlendingar setji á stofn slíka sjóði upp á sitt ein- dæmi. Vigdís er frábær land- kynning Schubrig segir að á árum áður hafi fáir Austurríkismenn vitað nokkuð um ísland. Þetta hafi þó breyst mjög á undanfömum árum. „í dag vilja allir ferðast til ís- íands. Allir kannast við Vigdísi forseta og leiðtogafundurinn í Reykjavík er enn í fersku minni flestra. í sjónvarpi eru náttúra- myndir frá íslandi og fólk hér hrífst af óspjallaðri fegurð landsins og öryggi einstaklingsins sem ekki þarf að óttast líkamsárás þótt hann sé einn á gangi í höfuðborginni um nótt. Morgunblaðið/Helgi Þór Ég tel að Vigdís Finnbogadóttir sé besta landkynning sem ísland hefur fengið. Hún hefur unnið ómetanlegt starf með ferðalögum sínum um heiminn og fáguð og vinaleg framkoma hennar ásamt frábærri tungumálakunnáttu hafa komið íslandi á landakortið. Sjálf er ég ákaflega hrifín af Vigdísi og á þá ósk heitasta að hún komi í heimsókn til Austurríkis." Þoli ekki að vera iðjulaus Schubrig á fjölmarga vini á ís- landi sem komið hafa til Vínar- borgar og notið þar fyrirgreiðslu hennar og hjálpsemi. Til dæmis var Sinfóníuhljómsveitin þar á ferð fyrir sjö áram og Lúðrasveit Mos- fellssveitar nú í vor. Minnisstæðust er henni samt heimsókn Kórs Langholtskirkju fyrir þremur áram. „Heimsókn þeirra var frábær. Mörg hundrað manns komu á tón- leikana og allir voru yfir sig hrifn- ir. Segðu Jóni Stefánssyni söng- stjóra að allir bíði eftir annarri heimsókn Kórs Langhotskirkju til Vínar.“ Mitt í spjallinu hringir síminn hjá Schubrig. Austurrískir sjón- varpsmenn biðja hana að finna fyrir sig heimilisfang íslenska Ríkissjónvarpsins. „Þetta er dæmi- gert,“ segir Schubrig. „Það er mik- ið hringt út af svona málum og ég þarf að vera vel inni í því sem er að gerast á íslandi t.il að geta svarað spurningum sem þessari. Þetta er mikið starf en ég hef gaman af því.“ Þó Schubrig sé orðin 65 ára gömul og komin á eftirlaun fyrir 5 áram er hún hvergi nærri iðju- laus. „Ég hef mikið að gera og ekki bara í sambandi við ísland. STUNDUM gera gamansamir íslendingar grín að því að útlendingar megi vart stíga fæti sínum á landið án þess að hljóta nafnbótina íslandsvinir. Ef frægur útlendingur á hér stutta viðdvöl og lætur hafa eftir sér falleg orð í blöðum um landið þá er hann umsvifalaust dæmdur maður um alla framtíð. Dæmdur til að vera kallaður íslandsvinur þegar á hann er minnst í fjölmiðlum. Raunverulegir íslandsvinir eru þó vissulega til. Víða um heim er fólk sem ber sterkar taugar til landsins og færir margar fórnir til að geta orðið Islendingum að liði. Einn þessara íslandsvina er konsúllinn okkar í Vínarborg, Cornelia Schubrig. Skilaðu Ég þarf að sinna bömunum mínum og fjölmörgum vinum mínum. Enn er ég að garfa í viðskiptum þó sonur minn sé að fullu tekinn við rekstri byggingafyrirtækisins. Ég verð að hafa mikið áð gera, það er nauðsynlegt fyrir mig að vera alltaf á ferðinni." Margir sækja um landvist- arlejrfi á íslandi Að sögn Schubrig er mikið um að fólk sæki um landvistarleyfi á íslandi. „Mikill fjöldi fólks vill flytja til íslands. Sérstaklega er mikið um Tyrki, Pólveija og jafiivel Egypta sem sækja um þetta en því miður er þetta oft fólk sem vill bara búa á íslandi og ekki vinna. Stundum vill þetta fólk nota ísland sem stökkpall í önnur lönd. Oft kemur fólk með sérfræðiþekk- • ingu til mín og notar það sem rök- semd fyrir umsókn sinni um land- vistarleyfí. Við þetta fólk segi ég að það geti dvalist á íslandi í þrjá mánuði eins og aðrir ferðamenn og á þeim tíma reynt að sannfæra íslenska ráðamenn um ágæti sitt. Ég held að íslendingar ættu að fara varlega í að veita mörgum útlendingum landvistarleyfí. Aðrar þjóðir hafa fallið í þessa gryiju og oft hafa af því hlotist mjög slæm vandamál, ekki síst fyrir útlending- ana sem erfítt eiga með að samlag- ast nýjum þjóðfélögum. Hefur oft ferðast . til Islands Schubrig hefur oft komið til ís- lands. Hún hefur ferðast um landið þvert og endilangt og sennilega séð meira af því en margir íslendingar. „Ég hef komið níu sinnum til íslands. Ég hef leigt bíl eða ferð- ast með vinum mínum. Stundum hef ég líka farið í rútuferðir. Ég er því búin að sjá mikinn hluta af landinu. Landið ykkar er frábært og ég held að allir sem þangað ferðast hljóti að hrífast af því og þjóðinni sem þar býr. Þið eigið besta loft í heimi, besta vatn í heimi og besta mat í heimi. Sérstaklega er ég hrifín af lambakjötinu og fískinum enda fær maður sjaldan góðan fisk í Austurríki." Af þeim stöðum sem Schubrig hefur heimsótt á íslandi er hún sérstaklega hrifin af Vestmanna- eyjum. „Eftir gosið 1973 sendi maðurinn minn flugvél fulla af blómum til Vestmannaeyja. Þau vora gróðursett á sérstökum stað sem var kallaður Vínargarðurinn. Fyrir nokkrum áram er ég var á ferð í Vestmannaeyjum sá ég að blómin gróa fremur hægt. Mér líkar vel í Vestmannaeyjum og þegar ég hætti að vinna ætla ég að flytja þangað og opna Vínar- kaffihús," segir Schubrig og hlær. Skilaðu kveðju til Islands Siðast kom Schubrig til íslands fyrir tveimur áram og ferðaðist þá meðal annars til Akureyrar og Vestmannaeyja. „Mig langar til íslands í sumar en ég veit ekki hvort ég kemst. Ég veit af fólki sem er að koma frá íslandi til Vínar seinna í sumar og mér finnst ég geti varla farið héðan vitandi þetta. Ég vil hafa allt á hreinu varðandi konsúlatið. Skilaðu kveðju minni til íslands og ég vona svo sannarlega að ég komist þangað í sumar!" Nú er mál til komið að kveðja þessa merkilegu konu sem eytt hefur dagstund í spjall við íslend- ing á ferð í Austurríki. Að lokum fylgir hún blaðamanni að dyram lestarinnar sem flytur hann til Vínarborgar og veifar brosandi er lestin heldur af stað. Þetta var lærdómsrík ferð. Nú er blaðamaður öllu fróðari um sanna íslandsvini og hann gerir sér betri grein fyrir því en áður hve Island á gott að eiga slíka vini í útlöndum. TEXTI: HELGI ÞÓR INGASON.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.