Morgunblaðið - 07.08.1988, Síða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988
Séra Helgi Hróbjartsson
kristniboði í Senegal.
Helga Hróbjarts-
son kristniboða
í Senegal
Séra Helgi Hróbjartsson var
lengi kristniboði i Eþíópíu,
vígðist prestur til Hríseyjar-
prestakalls árið 1984 og er nú
kristniboði í Senegal. Hann
starfar í Nioro, 250 km austur
af Dakar. Kristniboðsstöðin er
rekin af Norðmönnum og þar
starfa 6 kristniboðar að kristni-
boði meðal múhameðstrúar-
manna.
Breyttar aðferðir
í kristniboði
Kristniboð byggist sem áður á
boðun Guðs orðs, læknishjálp og
kennslu, segir séra Helgi. En nú
er það breytt frá því sem áður
var, af því það tengist lika þróun-
arhjálp. Við erum að bora eftir
vatni og höfum öll tæki til þess.
Þróunarhjálp erýmist neyðarhjálp
eða langtímahjálp. Þegar borað
er eftir vatni er það langtímahjálp
og breytir lífi fólksins algjörlega
og til frambúðar.
Norðmenn styðja þetta starf á
vegum Norad, sem er þróunar-
samvinnustofnun Noregs. Þeir
styðja þannig kristniboðið um all-
an heim af því að þeir sjá að það
fer vel með peningana. Kristni-
boðar vinna af hugsjón en fá lág
laun sjálfir.
Stöð fyrir fatlaða
og lamaða
Samstarfsmaður séra Helga og
borgað það, sem sett er upp fyrir
læknishjálp á ríkissjúkrahúsunum
og er vísað frá af þeim sökum,
leitar oft tii kristniboðsins. Herdís
María græðir sár, sem fólk hefur
kannski haft í 10 ár, og hún hef-
ur lag á að uppörva fólk á einstak-
an hátt með vinsemd sinni.
Mikill mismunur
á umhyggju
í landi múhameðstrúarmanna
nokkrir ungir menn frá Nioro.
er samverjahugsunin, svo við
höldum okkur að biblíulega orða-
lagi, í lágmarki. í svona stóru og
mannmörgu landi eins og Seneg-
al, þykir það stórmerkilegt að
ókunnugt fólk skuli vera að sækj-
ast eftir því að hjálpa manneskj-
um, sem það veit ekkert um. Það
er oft sagt við okkur á kristniboðs-
stöðinni: Hvers vegna hafið þið
áhuga á okkur, .bláókunnugu
fólki?
Eg get sagt þér sögu af höfð-
ingjanum í einu þorpinu, sem við
komum til. Okkur var sagt að
hann væri veikur og við fórum til
hans, tvær hjúkrunarkonur voru
með mér. Þær skoðuðu hann og
gáfu honum lyf og ráð til að ná
bata. En þegar við komum næst
var hann enn veikari. Við spurðum
hvort við mættum biðja fyrir hon-
um. Við báðum og fundum hvað
mikil helgi og friður hvíldi yfir
A DROnTNSMGI
Umsjón:
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Séra Kristján Valur Ingólfsson
Þorbjörg Daníelsdóttir
Hvers veg*na berið
þið umhyggju fyrir
bláókunnugu fólki?
Rætt við séra
staðnum. Höfðinginn bað okkur
að tala við fólkið í þorpinu og við
höfðum helgistund á torginu,
sungum, báðum og töluðum.
Við þrengjum aldrei boðun okk-
ar upp á nokkra manneskju. Við
höldum ekki samkomur fyrr en
við höfum komið nokkrum sinnum
í þorpið og kynnzt fólkinu. Þegar
við svo komum í næsta skipti í
þetta þorp var höfðinginn orðinn
heill heilsu og fólkið spurði, eftir
sínum hugsanagangi, hvort við
værum nýir töframenn. Það var
undrandi á því að við skyldum
bera umhyggju fyrir því, blá-
ókunnugu fólki.
Það á að boða kristna trú
Kristið fólk spyr okkur kristni-
boða oft hvers vegna við séum
að boða þessu fólki kristna trú,
hvers vegna við látum það ekki í
friði með sína eigin trú. Þau, sem
spyija svona, vita ekki hvað þau
eru að segja. Þau vita ekki hvað
þeirra eigin kristna trú býður upp
á og hafa enga hugmynd um hvað
múhameðstrúin boðar. Þau geta
ekki ímyndað sér hvað það er að
búa við trú, sem býður ekki þá
umhyggju, sem kristin trú býður.
Múhameðstrú gefur hjartanu
heldur engan frið af því að hún
er fyrir utan manninn. Við kynn-
umst ekki Guði föður okkar nema
fyrir Jesúm Krist, son Guðs, eins
og við lesum í Matt. 11.27.
Safnaðarstarf og
lestrarskólar
Starf mitt í hópi kristniboðanna
á kristniboðsstöðinni er að bera
ábyrgð á öllu safnaðarstarfínu.
Mikill hluti af starfí raínu er
stjórnun, 2 prédikarar starfa með
mér og 2 aðrir aðstoðarmenn. Nú
um páskana tóku 14 manns skím.
í múhameðstrúarlandi er það stór
hópur. Ég er núna að gefa út
helgisiðabók fyrir starfið og byggi
á reynslu minni frá Eþíópíu. Lestr-
arskólaherferð er einnig komin
af stað í rtokkrum þorpum. Hug-
myndin er að færa allt yfír á mál
þeirra innlendu. Það er nýtt. Áður
var allt ritað mál á frönsku. Mál-
ið, sem við notum, wolof, er eitt
af 5 málum, sem em viðurkennd
sem aðalmál í landinu. Fyrir 3
mánuðum kom Nýja testamentið
út á wolofmáli. Það er þýtt af
enskura kristniboða, sem vann við
þýðinguna í 10 ár. Nú njótum við
þess starfs í okkar starfí og safn-
aðarfólk okkar getur lesið Nýja
testamentið á sínu eigin máli.
Við emm líka að byggja upp
stöð fyrir fatlað og lamað fólk.
Norad styður það starf líka og
önnur norsk hjálparst'ofnun sömu-
leiðis. Það er Strömmestiftelsen,
sem er sjálfstæð hjálparstofnun
og líkist hjálparstofnunum kirkn-
anna. Strömme var norskur prest-
ur, sem vann að því að afla ýms-
um góðum málefnum fylgis og
fjár og gekk svo vel að þessi stofn-
un vinnur nú um allan heim.
Bygging stöðvarinnar er komin
svo langt að á þessu ári verður
lokið við fyrsta áfangann. Fyrsti
hópurinn er kominn inn, það em
30 fatlaðir og starfsfólkið sem
hefur þá sérþjálfun, sem þarf til
að annast þá. Lífíð og sálin í þessu
starfi verður norskur kristniboði,
sem heitir Herdís María Petersen.
Hún hefur sérstaklega góð tök á
þessu starfí. Fólk, sem getur ekki
ERU ÖLL TRÚARBRÖGÐ JAFN GÓÐ?
★ Á að reka kristniboð meðal heiðingja-
þjóða?
★ Er orðið heiðingjaþjóð úrelt? Em engin
trúarbrögð heiðin? Em kristnar þjóðir
ekki til?
★ Er kristin trú aðeins ein af mörgum leið-
um til Guðs?
★ Alkirkjuráðið og Lúterska heimssam-
bandið hafa lagt mikla áherzlu á við-
ræður við önnur trúarbrögð á undan-
fömum 10 ámm. Þessar viðræður hafa
verið umdeildar og verða enn umdeild-
ari á næstu 10 ámm.
★ Emilio Castro framkvæmdastjóri Al-
kirkjuráðsins segir að samskipti okkar
við fólk af öðrum trúarbrögðum hvetji
okkur nú til róttækra spurninga um
það hvernig við sýnum trú okkar og
bemm henni vitni. Þetta er mikill hvati
til endurlífgunar, enduruppgötvunar og
endurnýjunar trúar okkar og vitnis-
burðar um hana í heiminum. Okkur er
þröngvað til að leita til róta okkar eig-
in trúar. Kristin trú er trú á Jesúm
Krist og vitnisburður okkar er um það,
sem Guð hefur gert í honum. Þegar
við mætUni sannfæringu annarra verð-
um við að vera-viss um okkar sannfær-
ingu. Við wjrðum að lifa trú okkar og
vitna uni liana í samfélagi við fólk
annarra trúarbi'agðu og í þeim sam-
skiptum verður að ríkja gagnkvæmt
traust og Wðurkenning.
SÚ mest selda íS TÉKK, Lágmúla 5. S. 84525.
Grægum
Græoum
ÁTAK (LANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105 REYKJAVlK
SlMI: (91)29711
Hlauparelknlngur 261200
Búnaðarbanklnn Hallu
ro «o
, w ftj
E “
*©