Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 24

Morgunblaðið - 07.08.1988, Side 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988 „ er e.kJci reiSur Ég v/íl barrv íá. vitcÁ VivwB þií» íktt \Ji& m«5 , þríburar.' '* * Ast er... . .. þegar bæði hjörtun slá sem eitt. TM Reg. U.S. P«t Off.—aU riflhu r**«rv*d • 1987 Los Angsta T«n«« SyndicsU TV Er hægt að kveikja á þessu ???? án þess að komi íþrótta- fréttir? HÖGNI HREKKVÍSX /, pETTA ER GREIUIUE-GA EKKI LVKU.OR£>lE>.'' Meira af upplýsinga- útvarpi Umferðarráðs Til Velvakanda. Mig langar til þess að lýsa yfir þakklæti fyrir ágætar upplýsingar og þarfar ráðleggingar, sem við ferðalangar fengum að njóta um verslunarmannahelgina. Á þessum síðustu og verstu tímum veitir ekki af öllum þeim áróðri, _sem hægt er að koma á framfæri. Ég tók einnig eftir því, að þetta beina útvarp Umferðarráðs var sent út á öllum útvarpsrásunum í einu þannig að að allir hlustendur fengu að njóta góðs af, án tillits til þess á hvaða stöð þeir voru að hlusta þá stundina. Ég vildi gjarnan heyra oftar í upplýsingaútvarpi Umferðarráðs, en ekki bara um verslunarmanna- helgina eins og verið hefur. Gaman væri að fá svar vjð því hvort það væri mögulegt. Ég hafði einnig gaman af að heyra til Jónasar og fjölskyldu aftur, en mikið skelfing var mikill auglýsingabragur á þátt- unum. Ég hefði heldur viljað hafa þættina í sama dúr og gömlu þætt- ina, þar sem Jónas og hans fólk var fyrst og fremst að tala um akstur og umferð. En tilgangurinn er góður og það er fyrir mestu. Með kveðju, Útvarpshlustandi. Þessir hringdu . . . Embættistakan ekki sýnd beint María hringdi: „Hvers vegna var embætti- stöku forsetans ekki sjónvarpað beint? Nú eru íþróttir og hljóm- leikar sýndir beint, en ekki emb- ættistakan að nýafstöðnum kosningum. Þetta er ekki beint lítilsvirðing, en það er eins og fólki komi þetta ekki við.“ Reiðhjóli stolið Fyrir um það bil þrem vikum síðan var Kalkoff drengjáreið- hjól tekið, þar sem það lá við göngustíg við Stekkjabakka. Hjólið er rautt að lit með BMX púðum á stöng og stýri, skreytt með límmyndum. Eigandinn, 7 ára gamall drengur, skildi hjólið þar eftir í stutta stund á meðan hann fór yfir í Mjóddina og það var horfið þegar hann kom til baka. Þeir sem geta gefið upp- lýsingar um reiðhjólshvarfið eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 76923. Sólgleraugu í óskilum Vönduð sólgleraugu í brún- leitri umgjörð fundust fyrir utan Domus medica 3. ágúst síðast- liðinn. Upplýsingar í síma 686174. Yíkverji skrifar Ritstjórum Morgunblaðsins hef- ur borist bréf frá Heimi Páls- syni, sem Víkveiji telur ríka ástæðu til að birta. Bréf Heimis fer hér á eftir og þarf ekki að hafa um það fleiri orð. XXX eykjavík 22. júlí 1988. Gamanbréf til kunningja minna og samverkamanna í mál- garðinum Matthíasar Johannessen og Styrmis Gunnarssonar. Heilir og sælir. í Morgunblaðinu ykkar, sem þið kallið stundum „blað allra lands- manna" stóð á sunnudaginn var ágætis ferðasaga eftir greindan pilt sem á Sturlungaöld hefði verið kall- aður höfðingjasonur og hinn ágæsti maður. Hann sagði frá reiðtúr sínum og annarra og komst svo að orði um viðurgeming við hestana: Hestasveinamir og mæmar tóku svo út úr þeim og beisluðu aðra. Ég er svo einfaldur í sálinni að ég var dálitla stund að skilja frammi fyrir hverskonar heimstíðindum ég stæði þegar ég las þessa merkilegu orðmynd af því sem í nf.et. heitir mær. Svo skildi ég að nú var þrí- heilagt og höfðu birst þrenn tíðindi samt eins og segir á fomum bókum. Primo — það er í fyrsta lagi — var hér staðfest að ekki er lokið garðyrkjunni sem forðum hófst með fjólupabba og Sigurður heitinn orti um að „bláfjólur eru í blaði Týra“. Secundo — það er í annan stað — hafði beygingaflokkur, sem á síðustu öldum hefur aðeins talið tvö orð og heitir á máli Heuslers (eins og við Matthías lærðum í háskóla) „Wurzelnomina", stækkað um 50%. Málsmetandi málverðir höfðu reyndar óttast um örlög þessa beyg- ingaflokks eftir að fleiri og fleiri fóru að tala um rollur og beljur í staðinn fyrir ær og kýr. Það munar því ekki smálítið um aukninguna. Tertio — það er í þriðja lagi — hafði sannast að málbreytingar lúta einatt náttúmlögmálum með ein- hverjum hætti. Hér hafði nafnorðið „mær“ skipt um beygingaflokk og færst í flokk með merkingarskyld- um orðum og mátti nú segja að loks væri kvenkynið sameinað í ein- um flokki — sem hér með er lagt til að heiti einfaldlega kvenflokkur. Eru þá í honum þijú orð: ær, kýr og mær (að fornu hefði sýr, þ.e. gylta, líka gist þennan flokk). Nú þykir mér engar heimildir um mál nokkurs virði nema þær séu rímaðar. Þetta lærðum við Matthías báðir hjá Halldóri Halldórssyni og ég þó einkum hjá Hreini Benedikts- syni sem skrifað hefur innblásnar greinar um rím fomskáldanna. Ég hef því, ykkur til lofs og dýrðar, blaðinu ykkar líkasvo og höfundi ferðasögunnar, sett saman vísukom þau (með liðstyrk fyrri skálda) sem hér fara á eftir og er ein vísa til að rímbinda hvert fall eintölu og fleirtölu af nýyrðinu í kvenflokkn- um. Vísumar eru sorglegar eins og vísur eiga að vera og ykkur er heim- ilt að gera við þær það sem þið viljið. Fyrst var þetta: Nf.et. Daglangt hefur drengurinn dorgað með bæði færin uns burtu er flúinn fiskurinn og farin að sofa mærin. Þf.et. Ekkert fékk hann í aðra hönd allur tekinn að blána og leiddist bið á lífsins strönd langaði sárt í mána. Þgf.et. Allur sveinninn iðar hér ólgar og kvelst af þránni til að gleyma og gamna sér í glöðum leik hjá mánni. Ef.et. með stúf. Ekki er fagurt útlitið né ástarstjaman skær: Drengur mun ekki finna frið í faðmi þessarar mær. Og svo kvað hann: Nf.flt. Kvölda tekur, sest er sól, senn ég rek upp tærnar, kemur ei meir á kvíaból kýmar, féð og mærnar. Þf.flt. Senn er komið sólarlag sofnaðar á mér flæmar. Líður á þennan dýrðardag. Drottinn blessi mæmar. Þgf.flt. Bráðum verður komið kvöld, kólnar mér ört á tánum; dagsbirtunnar dvína völd; Drottinn hjálpi mánum. Ef.flt. Dregur nú af mér, Drottinn minn, dofna ég milli tánna; einatt skríður eyminginn upp í ból til mánna. Bið ég svo góðar vættir að geyma ykkur, ritstjórana, og hjálpa ykkur við blómaræktina. Bestu kveðjur, Heimir Pálsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.