Morgunblaðið - 18.08.1988, Síða 13

Morgunblaðið - 18.08.1988, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988 13 Morgunblaðið/PPJ Frá kvartskalamóti Flugmódelfélagsins Þyts á Sandskeiði. Erlendur Einarsson aðstoðar Ásbjörn Björnsson við fifansrsetnintru á Piper J-3 Cub. Kvartskalamót Flugmódel- félagsins Þyts á Sandskeiði HIÐ árlega kvartskalamót Flugmódelfélagsins Þyts var haldið á Sandskeiði laugardaginn 13. ágúst sl. Þar mœttu flugmódeimenn með um fimmtán flugmódel, sem voru flest öll smækkaðar eftirlík- ingar raunverulegra flugvéla og voru stærðarhhitföllin einn á móti fjórum ríkjandi. Kvartskalamót flugmódelmanna er ekki hugsað sem keppnismót heldur sem „flug- koma“ þar sem módelmenn hópa sig saman, sýna sig og sin módel og sjá aðra og þeirra módel. Hvar- vetna mátti sjá merki um vönduð vinnubrögð og greinUegt að hvergi var kastað til höndunum við smíði á þeim gripum sem til sýnis voru. Fjölbreytni flugmódelanna á kvartskalamótinu var mikil en mest áberandi voru listflugmódel. Var oft á tíðum erfitt fyrir áhorfendur að gera sér gein fyrir því að þeir voru ekki að fylgjast með flugi list- flugmeistara heldur voru það menn á jörðu niðri, sem með aðstoð fjar- stýringa, létu flygildin sín fram- kvæma hinar erfiðustu listflug- kúnstir. Mannmargt var á Sandskeiði meðan á mótinu stóð og komu margir forvitnir áhorfendur á öllum aldri að fylgjast með því sem fram fór. Módelflug er ein þeirra flugí- þróttagreina sem allir geta stundað jafnt ungir sem aldnir. Módelflug er reyndar tilvalin fjölskylduíþrótt sem sást best á því að feðgar voru margir mættir á kvartskalamótið og erfitt var að gera sér grein fyr- ir því hverjir voru áhugasamari, feðurnir eða synimir. Það er nú svo að módelflug er ekki bara flugið sjálft því margir eyða mestum sínum frítíma að vetri til smíða á módelum sínum. Það er á mótum sem þessum sem afrakstur vetr- arsmíðinnar fær að njóta sín. PPJ Meðal flugmódelmanna er Einar Páll Einarsson þekktur sem „Palli flugvélapabbi“. Einar Páll hefur stundað módelflug og smíði frá því hann man eftir sér, en faðir hans var einn frumkvöðlanna í módelflugi hérlendis. Nú er þriðja kynslóðin einnig mætt til leiks, þvi sonur Einars er að nema íþróttina. Hér sjást þeir feðgar, Einar Páll og Erlendur, undirbúa módel af gerðinni Farichild PT-19 til flugs. tíl kommn Okkur fannst vera kominn tími til að gera eldhúsinu og baðinu jafn hátt undir höfði og öðru rými heimilisins. Þess vegna höfum við opnað verslun sem sérhæfir sig í valinni vöru fyrir eldhús ogbað. í versluninni kynnum við nýjatímann í innrétting- um frá Poggenpohl og Ármannsfelli (hannaðar af Finni Fróðasyni), tækjunum frá Gaggenau, hreinlætistækjunum frá Ideal Standard, flísum, matarstellum, eldhúsáhöldum...—öllu sem viðkemureldhúsi og baði. Velkomin. FAXAFEN 5, SÍMI: 68 56 80

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.