Morgunblaðið - 18.08.1988, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1988
Gildruplata
og tónleikar
Ljósmynd/Karl Óskarsson
Gildran tók upp plötu fyrr á
árinu, en ekki varð af útgáfu á
þeim degi sem stefnt var að.
Platan er nú loks að koma út
og Gildran heldur tónleika í
kvöld í Duus til að kynna hana.
> Platan, sem verður önnur
plata sveitarinnar, fyrsta platan
Huldumenn kom ut í maí í fyrra,
kemur líklegast út öðru hvoru
megin við helgina og eru það
Gildrumenn sem gefa hana út í
samvinnu við Steinar. í upphafi
var ætlunin að gefa plötuna út
á því sem næst ársafmæli
Huldumanna, en það gekk ekki
upp af ýmsum ástæðum.
Eins og áður sagði verður
Gildran með útgáfutónleika í
kvöld kl. 22.00 í Duus, en sveit-
in mun einnig leika í Zeppeiin á
föstudag og laugardag.
Gaman að byrja
aftur á núlli
Bubbi Morthens, platan 56 og sænskiráheyrendur
Bubbi Morthens er í þá mund að fara að senda frá sér nýja
plötu, plötu sem á eru fimm lög og ber heitið 56. Þetta verður
þó ekki eina platan sem frá Bubba kemur á árinu, því f næsta
mánuði er væntanleg frá honum plata með enskum textum, sem
sænska fyritækið Mistlur gefur út í Svíþjóð, auk þess sem fregn-
ir herma að hann muni taka upp plötu með Megasi innan skamms
sem kemur út fyrir jól.
Ljósmynd/BS
Bubbi er nú staddur í Svíþjóð
í tónleikaferö með sænsku
hljómsveitinni Imperiet. Imperi-
et er að kveðja Svía, því hljóm-
sveitin hættir í haust og eru all-
ar líkur á að Christian Falk, sem
starfað hefur með Bubba að
plötugerðinni ytra, stofni sveit
með Bubba sem myndi þá fylgja
eftir plötunni hans. Fyrir stuttu
kom út í Svíþjóð smáskífan
Moon in the Gutter, sem á er
lagið Skapar fegurðin hamingj-
Fimmtudagskvöldið 28. júlí
spiiuðu á Zansibar hljómsveit-
irnar Síðan skein sól og Ipan-
ema. Zansibar er, einsog sjáf-
sagt flestir vita, Casablanca á
fimmtudagskvöldum, þar sem
boðið er öllu jafnan uppá lif-
andi tónlist. Þótt Zansibar
hafi starfað stutt hefur strax
skapast þar sérstakt og
skemmtilegt andrúmsloft.
Mikið er leikið af þessu bless-
aða hip hoppi sem öllu tröllríð-
ur um þessar mundir og ekki
nema gott eitt um það að
segja. A svæðið var mættur
góður hópur fólks, enda er
öllu jafnan vel mætt á Zansi-
bar, betur en á aðra tónleika-
staði. ________
Tónleikar á þrælaeyjunni
x
w f
Morgunblaöið/BAR
AIK í sóma í Zansibar
„The girl from Ipanema" er
þekktur djassstandard sem
margir frómir djassarar hafa
brúkað. Hljómsveitin Ipanema
spilar ekki, svo að ég viti þetta
lag, en láta sér nægja að nefna
sig eftir heimabæ stúlkunnar.
Ipanema hefur hefur í sumar
æft upp nokkuð sterka dagskrá
sem þau frumfluttu þetta kvöld
fyrir hálf áhugalausum gestum
Zansibar. Hljómsveitin er í
flesta staði ágæt. Létt popp án
alls brodds — hlutlaust en vel
áheyrilegt. Af hljómsveitarmeð-
limum var það helst söngkonan
unga sem heillaði útsendara
Rokksíðunnar með sterkri rödd
og kraftmiklum flutningi. Eins
var gaman og óvenjulegt að sjá
svo örugga og hispurslausa
sviðsframkomu hjá óvanri
söngkonunni.
Blautar varir, Bannað o.sv.fr.
Síðan skein sól eru nokkuö
góðir, nokkuð skemmtilegir og
töff á sviði. Er hægt að fara
fram á meira? Ég spái þeim
bláeygur, frægð og frama í
framtíðinni. Þeir kunna þetta
allt og vita nákvæmlega hvað
þeir eru að gera. En, einhvern-
vegin entist ég ekki til að hlusta
á þá til enda.
V.
una? með enskum texta, og fékk
þær viðtökur gagnrýnenda að
vera með bestu smáskífum árs-
ins. Rokksíðan sló á þráðinn til
Bubba til Svíþjóðar.
Sænskir syngja Leadbelly
Hvernig hefur gengið að
spila fyrir sænska áheyrendur?
Það hefur gengið mjög vel og
það hefur verið mjög gaman.
Það er gaman að vera að byrja
aftur á núlli, sem einhver sem
enginn þekkir og að ná tökum á
áheyrendum sem vita ekkert við
hverju þeir eiga að búast. Það
hefur gert mér gott að koma
fram fyrir svo stóran hóp ókunn-
ugra; það er svo langt síðan það
hefur gerst. Ég hef verið að
spila svipaða dagskrá og ég hef
spilað heima, reynt að þreifa
mig áfram og líka valið lög eftir
því hvernig skapi ég hef verið
hvert kvöld; látið áheyrendur
syngja með mér í Leadbelly-
lögum og þessháttar. Mistlur-
menn hafa verið að kvarta yfir
því að ég spili ekki nóg af plöt-
unni og að ég spili ekki Moon
in the Gutter, þannig að kannski
ég fari að gera meira af því.
Bubi, af hverju 56?
Mér fannst það bara svo gott
nafn.
Við fyrstu hlustun finnst
manni sem lögin séu hvert úr
sinni áttinni.
Þetta er kannski ekki alveg
rétt. Mér hefur til að mynda allt-
af fundist Foxtrot og, Klóak-
krossfarar vera tengd þó á öðru
þeirra sé einskonar Crazy
Horse-hljómur. Eina lagið sem
kannski er öðruvísi, fönklagið
Freedom for Sale, setti ég á
plötuna til gamans, til þess að
kanna hvaða viðbrögð það fengi.
Varð það lag til um leið og
lögina á Frelsi til sölu?
Já og þá í þessari útsetningu.
Við tókum það einnig upp í
reggítakti og við reyndum að
gera úr því rokklag, en það gekk
ekki upp. Það var of mikið af
hröðum gítargripaskiptingum og
það var því geymt.
Enskar raddir
í laginu eru bakraddirnar á
ensku.
Já, fólk á líklega eftir að mis-
skilja það, en ég nota bakradd-
irnar til að undirstrika það sem
ég er að syngja um. Undanfarið
hefur dunið yfir okkur straumur
af engilsaxneskri tónlist úr út-
varpsstöðvunum og mig langaði
til að hafa raddirnar á ensku til
að sjá hvort fólk tæki yfirleitt
eftir því og þá hvort það áttaði
sig á því sem ég væri að segja.
Það er kannski of langsótt, en
enski textinn er í fullu samræmi
við það sem ég er að segja í
laginu og það var ætlunin frá
upphafi.
Dylan eða Zappa?
Snúum okkur að kassagítar-
hliðinni. Lengra lagið minnir
nokkuð á sitthvað sem Dylan
var að gera á sínum tíma, t.d
Desolation Row.
Textarnir sem ég geri eru yfir-
leitt í kringum tíu til tólf erindi
og ég sker þá niður; suma allt
niður í þrjú. Þessi texti var upp-
haflega tuttugu og tvö erindi og
ég gat ekki skorið hann meira
niður en í átján erindi og sat því
uppi með texta sem þurfti átta
til tíu mínútna lag. Mig langaði
líka til að brjótast út úr þriggja
mínútna munstrinu; að gera eitt-
hvað sem væri ekki sölulegt.
Hvað Dylan áhrifin varðar, þá
held ég að þú gætir eins sagt
að ég sé undir áhrifum frá
Zappa.
Þarft þú ekki samt að semja
söluleg lög til að fylgja á eftir
plötunni sem kemur út í næsta
mánuði?
Ég held það varla. Það eru
að vísu á plötunni lög sem eru
kannski söluleg, lög eins og
Moon in the Gutter, en ég held
að ég sé bara svo lélegur söngv-
ari að ég geti ekki sungið 100%
sölutónlist, ég verð alltaf að
setja minn persónuleika í lögin;
ég hef bara ekki topp-tíu rödd-
ina. Kannski er það einmitt út
af því sem menn eru að eyða
peningum í mig hérna úti, þeir
heyra kannski að ég hafi eitt-
hvað fram að færa annað en
topp-tíu moð.