Morgunblaðið - 11.11.1988, Side 1

Morgunblaðið - 11.11.1988, Side 1
72 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 259. tbl. 76. árg. FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Grænlafidliy J, \ f Island Olfusklp sekk- ur, 27 saknab Noröur- Atlants- haf Nyfundnaland Fundur Gorbatsjovs og Bush í uppsiglingu? Búdapest. Reuter. GENNADÍJ Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagðist í gær ekki útiloka fund George Bush og Míkhaík Gor- batsjovs Sovétleiðtoga áður en hinn fyrrnefiidi tekur við embætti forseta Bandarikjanna 20. janúar. „Við erum þeirrar skoðunar að ekki ætti að gera ónauðsynlegt hlé á viðræðum leiðtoga risaveldanna," sagði Gerasímov. „Við erum núna að velta því fyrir okkur hvort tíminn fram að 20. janúar sé slíkt ónauð- synlegt hlé.“ Gerasímov neitaði að segja til um hvar og hvenær næsti leiðtogafund- ur gæti átt sér stað og ekki er held- ur ljóst hvort Ronald Reagan, frá- farandi forseti Bandaríkjanna, myndi taka þátt í fundinum. Sjá fréttir af úrslitum þing- og ríkisstjórakosninganna í Bandaríkjunum á bls. 20. Erfið sljórnar- mynduní Færeyjum FÓLKAFLOKKURINN, stærsti Qokkurinn á færeyska Lög- þinginu eftir kosningarnar á þriðjudag, hefúr tekið frum- kvæðið í stjórnarmyndunarvið- ræðum. Flokkurinn hóf fyrst viðræður við jafiiaðarmenn en Atli Dam, lögmaður og leiðtogi þeirra, hefúr lýst sig andvígan stjórn þar sem FólkaQokkurinn og Kristilegi fólkaQokkurinn kæmu saman. Leiðtogar Fólka- Qokksins hyggjast þvínæst ræða við formenn annarra Qokka. Úrslit kosninganna eru túlkuð þannig að mjög erfitt verði að mynda nýja samsteypustjóm en stjóm Jafnaðarflokksins, Þjóð- veldisQokksins og Sjálfstýris- Qokksins missti meirihluta sinn í kosningunum. Pauli Ellevsen, formaður Sambandsflokksins, sagði í útvarpsviðtali í gær að hann sæi fyrir sér fjögur mismun- andi stjömarmynstur. í fyrsta lagi samstarf Fólkaflokksins, Sam- bandsflokksins og Sjálfstýris- flokksins. Það væri sama stjórn og árin 1980-84 og hefði 17 þing- menn af 32. Skilyrði fyrir þátttöku Sambandsflokksins er þó að hann fái lögmannsembættið. Annar möguleiki felst í stjóm þeirra flokka sem vilja sjálfstæði Fær- eyja. Það era Fólkaflokkurinn, Þjóðveldisflokkurinn, Sjálfstýris- Qokkurinn og Kristilegi fólka- Qokkurinn, sem samanlagt hafa 18 þingmenn. Þriðji möguleikinn er stjórn FólkaQokksins, SambandsQokks- ins og ÞjóðveldisQokksins en sterkasta stjómin yrði að mati dagblaðsins Dimmalætting stjóm SambandsQokksins, Jafnaðar- Qokksins og ÞjóðveldisQokksins en hún hefði 20 þingmenn af 32 innan sinna vébanda. Krístalsnæturinnar minnst í V-Þýskalandi: Afsagnar þing- forseta krafist Hneykslaðir þingmenn yfírgáfii þing- sali undir ræðu Philipps Jenningers Bonn. Reuter. Daily Telegraph. PHILIPP Jenninger, forseti þings Vestur-Þýskalands, olli miklum pólitiskum óróa og almennri hneykslan þegar hann hélt ræðu í þinginu í gær í tilefiii þess að fimmtiu ár eru liðin frá Kristalsnóttinni, mestu ofsóknum nasista á hendur gyðingum fyrir stríð. Um það bil fimmtiu þingmenn yfírgáfú þingsalinn i mótmælaskyni undir ræðu Jenningers og voru menn úr öllum flokkum sammála um að þvi fyrr sem Jenning- er segði af sér því betra. Jenninger er einn af áhrifamestu stjómmálaleiðtogum Kristilegra demókrata, stærsta flokks Vestur- Þýskalands, og hefur verið nefndur sem hugsanlegur arftaki Helmuts Kohls kansiara. Jenninger var eini ræðumaðurinn við minningarathöfn- ina og kom ræða hans flatt upp á viðstadda því hún nálgaðist það að vera réttlæting á nasismanum og var full af orðatiltækjum sem rekja má til hugmyndafræði Þriðja ríkisins. Sagði hann m.a. að Þjóðveijar hefðu sætt sig við Hitler því hann hefði gert landið að stórveldi eftir niðurlægjandi ósigur í fyrri heims- styrjöldinni. „Arin milli 1933 og 1938, skoðuð úr íjarlægð með fullu tilliti til þess sem á eftir fylgdi, eru heillandi vegna þess að í sögunni fínnast vart hliðstæður stjómmála- legra sigra Hitlers á þeim árum,“ sagði Jenninger. Þegar hann velti fyrir sér orsökum Kristalsnæturinnar sagði hann: „Hvað gyðinga varðar, höfðu þeir ekki hreiðrað um sig í óverðskulduðum sessi?.. . Áttu þeir ekki jafnvel ráðningu skilda? Var ekki áróður nasista, burtséð ffá fár- anlegum stóryrðum, sem ekki þarf að taka alvarlega, f samræmi við grunsemdir og sannfæringu manns?" Undir lok ræðunnar höfðu 30 þingmenn jafnaðarmanna, sex þing- menn Ftjálsra demókrata og flestir þingmanna græningja yfirgefíð salinn. Meðal þeirra sem sátu náfölir undir ræðu þingforsetans var Heinz Galinski, leiðtogi gyðingasamfélags- ins í Vestur-Þýskalandi. „Eg yfírgaf þingfund í hræðilegu uppnámi," sagði Hildegard Hamm- Braecher, þingmaður Fijálsra demó- krata. „Mér leið mjög illa undir þess- ari málsvörn nasismans," bætti hún við. Þingflokkur jafnaðarmanna sendi Jenninger bréf þar sem „notk- un nasistaorðalags" var mótmælt og hann sakaður um „hneykslanlega smekkleysu". Jafnaðarmenn töldu að Jenninger hefði ekki ætlað sér að réttlæta gyðingaofsóknir með ræðu sinni en með klaufalegu orðavali og með því að reyna að setja sig í spor forfeðra sinna hefði hann skotið langt yfír markið. Heimsráð gyðinga sendi þýskum stjómvöldum harðorð mótmæli í gær vegna ræðu Jenningers. Helmut Kohl ráðfærði sig við samflokksmenn sína í gærkvöld um hvað til bragðs skyldi taka eftir ræðu þingforsetans sem átti að vera hámark minningarat- hafna vegna Kristalsnæturinnar. Reuter Um það bil fimmtíu þingmenn yfirgáfú þingsal í Bonn í Vestur- Þýskalandi í gær í mótmælaskyni við ræðu Philipps Jenningers þing- forseta. Ungveijaland: Ríkisstjórnin undir- býr fjölflokkakerfi Búdapest. Reuter. UNGVERJUM verður heimilað að stofiia stjórnmálaflokka samkvæmt nýju stjórnarfrumvarpi sem afgreitt verður frá þingi landsins í næsta mánuði, að þvf er Kalman Kulcsar, dómsmálaráðherra Ungverja- lands, sagði í gær eftir fund í ríkisstjórn landsins. Kommúnistaflokk- ur Ungveijalands hefúr verið eini leyfilegi flokkur landsins frá árinu 1948. „Framvarpið um félagafrelsi felur í sér að einstaklingar og lögaðilar megi stofna stjómmálaflokka, verkalýðsfélög, hagsmunasamtök og annan félagsskap," hefur ungverska fréttastofan MTI eftir Kulcsar. Ann- að lagaframvarp er í bígerð sem ákvarða á hlutverk stjómmálaflokka og verður það hluti af nýrri stjómar- skrá sem á að vera tilbúin árið 1990. „Samþykki þingið lögin þá má túlka það sem viðurkenningu á fjölflokka- kerfí,“ sagði Kulcsar við fréttamenn. Hann sagði að framvarpið hefði ver- ið til almennrar umræðu í landinu undanfama mánuði og hefðu hvorki meira né minna en 50 þúsund manns gert athugasemdir við upphaflega útgáfu þess. Vestrænn stjórnarerindreki í Búdapest sagði að þessi tilkynning væri Jákvæð og spennandi" en bætti því við að rétt væri að bíða og sjá til með framkvæmdina. Hann sagði að ekki væri ljóst hvort allir þeir sjálfstæðu hópar og samtök sem skotið hafa upp kollinum að undan- fömu fengju að stofna stjómmála- flokka. Slíkir hópar hafa blómstrað síðan Karoly Grosz, forsætisráð- herra, tók við flokksformennsku af Janos Kaaar í maí síðastliðnum. Þar á meðal er Lýðræðisbandalagið, samtök menntamanna, sem boðað hefur framboð í þingkosningum árið 1990. Stjómvöld hafa lagt blessun sína yfír starfsemi bandalagsins en eru ekki eins sátt við Samband ungra lýðræðissinna, FIDESZ, og Samtök um fijálst framtak, sem saman- standa af nokkram þekktum andófs- mönnum. Ahafhar Odyssey saknað Reuter 27 manna áhafnar breska olíuskipsins Odyssey er saknað. Skipið, sem áður hét Oriental Phoenix, bratnaði i tvennt í ofeaveðri og í því kviknaði 900 mílur austur af Nýfimdnalandi. Að sögn björgun- arsveitarmanna leggur 10 mílna langa olíubrák frá skipinu en 1 milljón tunna af hráoliu var um borð í skipinu. Af skipveijum á Odyssey voru 15 Grikkir og 12 frá Hondúras. Skipið, sem var 65.000 lestir, var á leið frá Hjaltlandi til Nýfúndnalands þegar neyðarkall barst frá því á miðvikudag. Þetta er í annað skipti á þessu ári sem olíuskip ferst á hafinu milli Nýfúndnalands og Bretlandseyja. í april brotnaði griskt olíuskip í tvennt á svipuðum slóðum og fórust 29 manns með því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.