Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 HANDKNATTLEIKUR / SJÓNVARP „Leggjum til að samið verði við báðar stöðvarnar“ segir Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSI. Stjórn HSI sam- þykkir ekki samning félaganna í 1. deild við Stöð 2 „STJÓRN HSÍ heldurfund í fyrramálið (innsk. í dag, föstu- dag) þar sem samningi sam- taka fyrstu deildar félaganna við Stöð 2 um einkaleyfi stöðvarinnar á sýningum leikja í fyrstu deild karla og bikarkeppni HSÍ verður hafn- að. {stað þess munum við leggja til að samiö verði við báðar sjónvarpsstöðvarnar um mun hœrri heildar upp- hæð,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, við Morgunblaðið í gærkvöldi. Greint var frá umræddum samningi á miðvikudag og viðbrögð fólks hafa ekki látið á sér standa. „Símalínur hafa verið rauðglóandi. Fólk alls staðar að af landinu hefur hringt og lýst yfír megnustu óánægju með þenn- an samning," sagði Guðjón Guð- mundsson á skrifstofu HSÍ. Marg- ir hafa hótað að hætta ijárstuðn- ingi við HSÍ og beðið um að fá ekki fleiri happdrættismiða senda. Háværustu raddimar koma frá stöðum, þar sem sendingar frá Stöð 2 sjást ekki eins og á Vest- fjörðum og á skipum á hafi úti. Þá hafa ummæli Sigurðar Tómas- sonar, formanns handknattleiks- deildar Fram, hleypt illu blóði í fólk. „Ég held að íþróttahreyfing- in eigi miklu meira inni hjá skatt- borgurunum en skattborgaramir hjá okkur,“ sagði hann m.a. á blaðamannafundinum, þar sem sagt var frá samningnum. Hvorki talsmaður iþrótta- hreyflngarlnnar né HSÍ „Það er hugsanlegt að formað- urinn sé eingöngu að hugsa um að fjármagna eigin deild en ekki útbreiðslu handknattleiksins og það sem er að gerast úti á landi í því efni. Hann er ekki talsmaður íþróttahreyfingarinnar og alls ekki talsmaður HSÍ,“ sagði Jón Hjaltalín um ummæli Sigurðar. „Eg harma ummæli hans og tel sjálfur að landsliðið í handknatt- leik skuldi þjóðinni að vinna sig upp í a-flokk í B-keppninni í Frakklandi,“ bætti hann við. „Viðbrögð fólks sýna hins veg- ar að handknattleikurinn nýtur mikilla vinsælda úti um allt land og stjóm HSÍ hefur ávallt kunnað vel að meta þann mikla stuðning, sem raun ber vitni. Við í stjórn HSÍ erum talsmenn allra hand- knattleiksliða iandsins, bæði í karla- og kvennaflokkum, og vilj- um efla útbreiðsluna enn meir. Við erum ánægðir með að sann- gjamt verð hefur loks verið boðið fyrir sjónvarpssendingai- frá leikj- um í 1. deild en óánægðir með að ekki var samið við báðar sjón- varpsstöðvamar varðandi bikar- keppnina og því munum við ekki staðfesta samninginn. f fyrsta lagi taka öll félög landsins þátt í bikarkeppni og því viljum við semja við báðar stöðv- amar um sýningar frá bikarleikj- um í karla- og kvennaflokki fyrir. Tilboð Stöðvar 2 í bikarleiki var fimm hundruð þúsund, en réttlát greiðsla er helmingi hærri. í öðm lagi munum við leggja til að sami háttur verði hafður á varðandi leiki I fyrstu deild karla, en sá liður heyrir reyndar undir samtök fyrstu deildar félaganna. í þriðja lagi viljum við beina þeim tilmælum til stöðvanna að þær sinni innlendum íþróttagrein- um meir en verið hefur og þá sérstaklega unglingunum." KR-Stjaman 24 : 23 Laugardalshöllin. íslandsmótið í hand- knattleik, 1. deild. Fimmtudagur 10. nóvember 1988. Gangur leíksins: 0:1, 3:3, 6:5, 7:8, 9:9, 11:9, 12:10, 12:11. 13:11, 13:13, 16:14, 18:16, 20:17, 20:21, 21:22, 22:22, 23:22, 23:23, 24:23. KR: Páll Ólafsson 7, Konráð Olavson 4, Alfreð Gíslason 4/1, Stefán Kristj- ánsson 3, Sigurður Sveinsson 2, Þor- steinn Guðjónsson 2, Jóhannes Stef- ánsson 1, Guðmundur Pálmason 1, Ámi Harðarson, Guðmundur Alberts- son, Páll ólafsson. Varin skot: Leifur Dagfinnsson 22. Utan vallar: Átta mínútur. Stjaman: Gyfli Birgisson 8/3, Haf- steinn Bragason 7, Sigurður Bjamason 4, Skúli Gunnsteinsson 2, Axel Bjöms- son 2, Óskar Friðbjömsson, Magnús Eggertsson, Þóroddur Ottesen, Sigur- jón Bjamason, Hilmar Hjartarson, Valdimar Kristófersson. Varin skot: Brynjar Kvaran 13/1. Utan vallar: 8 mín. - ein útilokun. Áhorfendur: 678. Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli Olsen, höfðu ekki nægitega góð tök á leiknum. Herrakvöld Víkings Hið árlega herrakvöld Víkings verður haldið í Domus Medica í kvöld og hefst klukkan 19.30. Þorsteinn Pálsson verður ræðumað- ur kvöldsins og fagnaðinum stjóm- ar Ómar Valdimarsson. Boðið er upp á sjávarréttahlaðborð. Miðar eru seldir við innganginn. KÖRFUKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ Spenna í lokin Lokasekúndumar í leik KR og Tindastóls voru æsi spennandi. KR-ingar höfðu eins stigs forskot þeg- ar 18 sekúndur voru eftir. Þá fengu þeir innkast og áttu möguleika á að halda knettinum út leiktímann ^^■■■i en tnisstu hann. Valur Ingimundarson Guðmundur reyndi langskot en hitti ekki og KR- Jóhannsson ingar fögnuðu sigri. skníar KR-ingar söknuðu greinilega ívars Webster í vöminni, sem var hriplek í fyrri hálfleik. Gestimir fóru oft á kostum í sókninni og náðu 12 stiga forskoti á tímabili. Eftir það fóru KR-ingar að rétta úr kútnum og jöfnuðu snemma eftir hlé. Síðan var leikurinn í járnum allt til leiksloka. Leikurinn var góð skemmtun, spennandi og mikið skorað. UMFT er greinilega að komast í góða samæf- ingu og getur unnið hvaða lið sem er. KR-ingar eru hins vegar með jafnara lið og gerði það gæfumuninn. KR - UMFT 94 : 93 Hagaskóli. íslandsmótið í körfuknattleik, fímmtuaagur 10. nóvember 1988. Gangur leiksins: 4:2, 8:16, 13:23, 24:29, 28:40, 38:43, 46:52, 57:61, 63:63, 67:67, 71:71, 76:74, 82:82, 89:84, 90:86, 92:91, 94:91, 94:93. Stig KR: Birgir Mikaelsson 30, Ólafur Guðmundsson 19, Jó- hannes Kristbjömsson 16, Lárus Valgarðsson 11, Lárus Áma- son 8, Matthías Einarsson 6, Gauti Gunnarsson 4. Stig UMFT: Eyjólfur Sverrisson 30, Valur Ingimundarson 26, Haraldur Leifsson 24, Sverrir Sverrisson 7, Bjöm Sigtryggsson 4, Kári Marísson 2. Áhorfendur: 150. Dómarar: Leifur Garðarsson og Bergur Steingrímsson dæmdu vel í fyrri hálfleik en voru fremur slakir eftir hlé. Haukarnir steinlágu Eg er að vonum ánægður með sigur i leiknum. Við náðum að leika góða vörn því það er ekki á hveijum degi sem Haukaliðið nær aðeins að skora 70 stig í leik,“ sagði Lee Nober þjálfari ÍBK eftir öruggan sigur ÍBK gegn Haukum í Bjöm Keflavík í gærkvöldi. Einar Bollason Blöndal þjálfari Hauka var ekki eins ánægður v með sína menn. „Þetta var ömurlegt hjá okkur , var það ema sem hann vildi segja eftir leikinn. Haukar höfðu eins stigs forystu í hálfleik eftir góða byrjun ÍBK, en í síðari hálfleik var Nökkvi M. Jónsson, ungur leikmaður í liði ÍBK, settur til að gæta Pálmars Sigurðssonar. Pálmar skoraði ekki stig meðan Nökkvi var inná, en skoraði þijár 3ja stiga körfur í röð undir lokin. Þá var forysta ÍBK 22 stig og allt orðið um seinan. IBK - Haukar 89:71 íþróttahúsinu í Keflavfk, fslandsmótið í körfuknattleik, fimmtu- daginn 10. nóvember 1988. Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 6:6, 17:8, 24:10, 24:16, 28:22, 28:29, 33:34, 39:40, 43:40, 60:44, 56:46, 60:42, 65:56, 76:57 83:61 89:71. Stig ÍBK: Sigurður Ingimundarson 32, Guðjón Skúlason 22, Magnús Guðfinnsson 18, Jón Kr. Gtslason 14, Nökkvi M. Jóns- son 2, Einar Einarsson 1. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 22, Reynir Kristjánsson 10, ívar Ásgrfmsson 9, Ingimar Jónsson 9, Jón A Ingvarsson 8, Henning Henningsson 6, Tryggvi Jónsson 5, Eyþór Amason 2. Áhorfendur: 150. Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi Bragason. KNATTSPYRNA Baez til Rapid Vín Rapid Vín ákvað í gær að kaupa Enrique Baez, 23 ára sóknar- leikmann og landsliðsmann Uruquay. Knattspymusamband Uruquay tilkynnti í gærkvöldi að kaupverðið væri 5,4 millj. ísl. króna. Baez skoraði eitt af þremur mörk- um Uruquay, sem vann, 3:1, Chile í vináttulandsleik, sem fór fram í Montevideo í gærkvöldi. KNATYTSPYRNA Galli hetja AC Mílanó Giovanni Galli, markvörður AC Mílanó, var hetja ítalska meistaraliðsins, sem sló Rauðu Stjömunna út úr Evrópukeppni meistaraliða í Belgrad í gær. Galli varði tvær vítaspyrnur í vitaspymu- keppni - skot frá Mitar Mekela og Dejan Savicevie. AC Mílanó vann vítaspymukeppnina, 5:3. Eftir venjulegan leiktíma og fram- lengingu var staðan, 1:1. Marco Van Basten skoraði mark AC Mílanó á 35. mín., en Dragan Stoj- kovic jafnaði fjórum mín. síðar. ■Real Madrid tryggði sér rétt til að leika í 8-liða úrslitum Evrópu- keppni meistaraliða með því að vinna, 3:2, pólska liðið Gomik í Madrid í gærkvöldi. Real vann einn- ig í Póllandi, 1:0. Hugo Sanchez 2 og Emilio Butragueno skomðu mörk liðsins. 2. DEILD Sigur ÍR-inga IR-ingar lögðu Armenninga að velli, 28:21, í 2. deildarkeppninni í handknattleik í gærkvöldi í Laug- ardalshöllinni. Eyjólfur Sverrisson, UMFT, Birgir Mikaelsson, KR og Sig- urður Ingimundarson, LBK. Jóhannes Kristbjömsson og Ólafur Guðmundsson, KR. Haraldur Leifsson og Valur Ingimundarson, UMFT. Nökkvi M. Jónsson og Magn- ús Guðfinsson, ÍBK. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Páll tryggði KR sigur Páll Ólafsson skoraði sigurmark KR beint úr aukakasti á elleftu stundu PÁLL Ólafsson var hetja KR- inga. Hann skoraði sigurmark þeirra, 24:23, gegn Stjörnunni þegar leiktíminn var að renna út. Þegar tvœr sek. voru eftir fengu KR-ingar aukakast tveimur metrum fyrir utan punktalínu. Stjörnumenn reikn- uðu með skoti frá Alfreð Gísla- syni, en öllum að óvörum lét Páll Ólafsson sig falla til hœgri og skoraði með lúmsku skoti í hægra hornið - fram hjá Brynj- ari Kvaran, sem vissi ekki hvað- an á sig stóð verðrið. Dæmi- gert mark fyrir Pál og dæmi- gert fyrir óheppni Stjörnu- manna, sem töpuðu sínum öðr- um leiknum f röð með einu marki. Það var sárt að tapa eftir að hafa verið með unnin leik und- ir lokin. Það sem réði úrslitum var reynsluleysi okkar og leikreynsla ^■■i Páls og Alferð í lok- Hörður in,“ sagði Gunnar Magnússon Einarsson, þjálfari skrífar Stjömunnar. Leikurinn var æsispennandi frá uppphafí. Liðin skiptust á að hafa forustu í fyrri hálfleiknum. KR-ingar voru yfír, 12:11, þegar flautað var til hvfldar. KR-ingar höfðu undirtökin lengst af í seinni hálfleiknum, en Stjömu- menn vom aldrei langt undan. Þeg- ar tíu mín. voru til leiksloka var staðan 20:17 fyrir KR. Hlutimir gerðust hratt og skoruðu Stjörnu- menn næstu ijögur mörkin. Þeir nýttu sér að KR-ingar vom tveimur færri. Páll jafnar, 21:21, en Sigurð- ur Bjamason kom Stjömunni yfír, 21:22. Páll gafst ekki upp og jafn- ar, 22:22. Jóhannesi Stefánssyni var vísað af leikvelli og Stjömumenn voru með knöttinn. Gylfi Birgirsson átti skot, sem Leifur Dagfinnsson varði vel. KR-ingar brunuðu fram og Konráð Ólafssonm skorar úr þröngu færi, 23:22. Allt er á suðupunkti. Skúli Gunnststeinsson jafnar fyrir Stjömuna tíu sek. fyrir leikslok. KR-ingar halda í sókn og Páll skor- aði sigurmar þeirra eins og áður er sagt frá. „Þetta var sætt. Við vorum heppnir í lokin, en við áttum sigur- inn skilið. Stigin tvö voru mjög Páll Ólafsson mikilvæg," sagði Páll Ólafsson eftir leikinn. „Við sýndum gott keppnisskap undir lokin. Stjaman er með gott lið. Leikmenn liðsins eiga fram- tíðina fyrir sér. Ýmislegt þarf enn að laga hjá okkur, en næsti leikur okkar - gegn KA á Akureyri verð- ur erfíður," sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari KR. Leikurinn hafði upp á að bjóða allt það besta sem hægt er að sýna í handknattleik. Spennu, góðar vamir, góða markvörslu og skemmtilegar sóknir. Jóhann Ingi er á réttri leið með KR-liðið. Þegar leikkerfí liðsins eru komin í lag verður KR-liðið illsigranlegt. Leifur Dagfinnsson og Páll Ólafsson, KR. Hafsteinn Bragason, Stjörnunni. Alfreð Gíslason, KR. Brynjar Kvaran, Sigurður Bjamason og Gylfí Birgisson, Stjörn- unni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.