Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 Utgerðarfélag Akureyringa hf: Kvótar að klárast og stöðvun blasir við „ÞAÐ HEFUR lítið gengið,“ sagði Sverrir Leósson stjórnar- formaður ÚA aðspurður um hvort Útgerðarfélaginu hefði tekist að kaupa viðbótarkvóta fyrir togara félagsins. Skipin eru langt komin með kvóta sína og fyrirsjáanleg stöðvun þeirra og vinnslunnar í landi ef ekki rætist úr. „En maður gefiir aldrei upp vonina, lifir alltaf í voninni um að eitt- hvað gerist. Það er auðvitað verið að reyna að ná í kvóta og hefiir verið töluvert lengi. En það er ljóst að það er verulega minna framboð á þessu ári heldur en I fyrra.“ Sverrir segir minna framboð stafa af samdrætti í afla og að nú má flytja 10% af kvóta á milli ára. „Ég held að ég megi segja það, að Útgerðarfélag Akureyringa hf hafi alltaf reynt að haga því svo að það væri mjög sterk samtenging á milli veiða og vinnslu. Skipin hafa ekki verið í þungri sókn á árinu 1988, sem stafar af því að menn sáu að kvótinn var svo lítill að miðað við viðunandi árferði þá voru vissir erfiðleikar fyrirsjáan- legir þegar liði fram á árið,“ sagði Sverrir Leósson, stjómarformaður Útgerðarfélags Akureyringa. Sverrir kvaðst gera ráð fyrir að skýringar þess, hversu erfíðlega gengur að fá viðbótarkvóta, séu líklega minnkandi heildarafli. „1986 voru veidd 390 þúsund tonn af þorski, á þessu ári verða veidd 355 til 360 þúsund tonn og það er verið að tala um á næsta ári að veiða 330 þúsund tonn af þorski og samdrátt í karfa, grálúðu og rækju. Þetta þýðir auðvitað minna framboð og ég held að skýringin liggi í því. Og svo mega menn nú asiPte' HÓTEL KEA o Dansleikur laugardagskvöld Kristján Guðmundsson leikur fyrir matargesti. Hljómsveitin Kvartell leikur fyrir dansi. Hótel KEA. færa tíu prósent aflans á milli ára. Ég geri ráð fyrir því, ef maður lítur í eiginn barm, að maður sem á einhverjar eftirstöðvar af kvóta, hann mundi færa þessi tíu prósent yfír á árið 1989 frekar en að selja. Ég get að vísu ekki alhæft um það, en mér fínnst það liggja í hlut- arins eðli þegar verið er að tala um samdrátt á næsta ári.“ Sverrir sagði rekstrarstöðvun fyrirsjáanlega. „Það stefnir allt í það já. Það er verið að skoða þessa hluti og einhvem veginn reyna menn að taka á því en það er ljóst að það stefnir í ákveðna erfíðleika að þessu leyti. Það þarf ekki að koma neinum á óvart, hvorki okk- ur né öðrurn." Hann kvað alveg ljóst að kvótar togara ÚA yrðu upp veiddir fyrir áramót og sagði að mjög lítið væri eftir. Morgunblaðið/Rúnar Þór Finnur Friðriksson formaður Nemendaráðs 9. bekkjar í fyrra af- hendir Rakel Bragadóttur starfsmanni á Sólborg 100.000 krónur sem renna eiga til sundlaugarbyggingar. Hjá þeim stendur Vilberg Alex- andersson skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyrar. 9. bekkur Gagnfræðaskóla Akureyrar: Sundlaugin við Sólborg fékk afgangmn af ferðapeningunum O INNLENT Blaðbera vantar í Arnarsíðu - Keilusíðu - Kjalarsíðu - Vesiursíðu. Óskum sérstaklega eftirfólki, sem getur borið blaðið út um leið og það kemur. - Hressandi morgunganga! Hafnarstræti 85, Akureyri. S. 23905. Sundlaugarbyggingu við vist- heimilið Sólborg barst í vikunni góð gjöf frá 16 ára unglingum, sem voru í 9. bekk Gagnfræða- skólans á Akureyri í fyrravetur. Eins og venja er, söfiiuðu krakk- arnir í ferðasjóð í fyrra til að fara i skólaferðalag um Suður- land að afloknu grunnskólaprófí og þegar heim var komið eftir fímm daga ferð áttu krakkarnir eftir afgang af ferðasjóðnum. Krakkarnir voru sammála um að gefa peningana til góðs mál- efiiis og var ákveðið að láta 100.000 króna tekjuafgang renna til sundlaugarbyggingar- innar. Finnur Friðriksson, þáverandi formaður Nemendaráðs, afhenti peningana áhugamannahópi starfsfólks sem tók sig saman um að standa fyrir lokaátaki sundlaug- arbyggingarinnar, en byggingar- saga sundlaugarinnar hófst suma- rið 1983. Rakel Bragadóttir tók við peningunum fyrir hönd hóps- ins. Rakel sagði að lokaáfanginn kostaði um tvær milljónir króna. Síðustu vikumar hafa safnast um 1,4 milljónir kr. Rúmar 600.000 krónur vantar svo hægt sé að bjóða verkið út, en reglur kveða á um að útboð megi ekki fara fram nema til framkvæmda séu nægir ijár- munir. Rakel sagði að stofnaður hefði verið póstgíróreikningur, sem hægt væri að leggja fé inn á, og væri hann númer 544655. „Vinna við útboðsgögn stendur þó yfír og ef söfnunin gengur vel á næstu dögum, getum við boðið verkið út á næstunni," sagði Rakel. Vilberg Alexandersson skóla- stjóri Gagnfræðaskólans sagði að 9. bekkur í fyrra hefði verið stærsti árgangur, sem útskrifast hefði frá skólanum frá upphafi, alls um 200 manns. „Það er ánægjulegt að vita til þess að þetta er verk unglinga því oft vilja heldur spinnast upp neikvæðar umræður og frétta- flutningur um unglingana. Hug- myndin um að gefa þessa peninga til Sólborgar er algjörlega komin frá krökkunum sjálfum og voru þau öll samstiga í þeirri ákvörðun sinni." Finnur sagði að fjáröflunarleiðir hefðu verið ýmsar. Ein milljón króna safnaðist í ferðasjóð í fyrra meðal annars með dansleikjahaldi, verslunarrekstri og með áheitum vegna maraþonkennslu, sem einni bekkjardeildinni datt í hug að standa fyrir. Þau fengu kennara í lið með sér og sátu í skólastofunum yfír bókum í heilan sólarhring og gátu einstaklingar og fyrirtæki heitið á þau í leiðinni. I\IÝR SKEMMTISTAÐUR 0PNARí KVÖLD KL. 10.00 BLEIKI FILLINN HAFIMARSTRÆTI 100, AKUREYRI. Allirvelkomnir Myndvika í Borgarbíói - í tileftii af 80 ára aftnæli Eð- varðs Sigurgeirssonar ljósmyndara KVIKMYNDAVIKA verður haldin á Akureyri dagana 12. til 20. nóvember í Borgarbíói í tilefhi af áttræðisafinæli Eð- varðs Sigurgeirssonar ljós- myndara á sl. ári. Myndvikan er haldin á vegum menningar- málanefiidar Akureyrarbæjar og leggur megináherslu á sögu og þróun íslenskrar kvik- myndagerðar. Myndvikan hefst á morgun, laugardag, kl. 16.00 með opnunar- hátíð fyrir boðsgesti. Þar verður m.a. sýnd syrpa af myndum Eð- varðs og einnig myndir úr sam- keppni, sem efnt var til í sumar. Um leið verða tilkynnt úrslit í þeirri samkeppni og afhentar við- urkenningar. Þessar sömu myndir verða síðan aftur sýndar almenn- ingi á sunnudaginn að loknu erindi Hrafns Gunnlaugssonar kvik- myndagerðarmanns um sögu og þróun íslenskrar kvikmyndagerð- ar. Hin nýja mynd Hrafns Gunn- laugssonar, „í skugga hrafnsins", verður frumsýnd á Akureyri annað kvöld, laugardagskvöld, og verður myndin sýnd út myndvikuna, alls tólf sinnum. Aðrar íslenskar kvikmyndir, sem sýndar verða á myndvikunni eru: Útlaginn, 79 af stöðinni, Land og synir, Stella í orlofí, Húsið, Á hjara veraldar, Með allt á hreinu, Punkt- ur punktur komma strik, Foxtrott, Síðasti bærinn í dalnum, Skamm- degi og Jón Oddur og Jón Bjarni. Eðvarð Sigurgeirsson Ijósmynd- ari Þá verður Eyfírska sjónvarpið með dagskrá, tengda myndvikunni, sunnudaginn 13. nóvember, kl. 17.15. Myndsyrpa Eðvarðs verður einnig sýnd í dvalarheimilum og í framhaldsskólunum meðan á myndvikunni stendur. Á liðnu ári var í sjónvarpi brugð- ið upp myndefni frá Eðvarð Sigur- geirssyni, sem hann hafði tekið á mismunandi tímum á löngum starfsferli. Rifjaðist þá upp fyrir mörgum að hann hafði komið víða við í kvikmyndagerð á fyrstu árum kvikmyndanna hér á landi og þá ferðast víða með ýmsar myndir sínar. Þegar við bættist að ævifer- ill Eðvarðs var orðinn heil 80 ár, fannst ýmsum við hæfí að nýta tækifærið og koma á fót myndviku á Akureyri, segir í frétt frá undir- búningsnefnd um tildrög myndvik- unnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.