Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.11.1988, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 fclk f fréttum Ljósmynd/Jón Sig HÚNAVALLASKÓLI í A-HÚNAVATNSSÝSLU „Svmavatnið“ flutt með tílþrifum Fyrir skömmu héldu nemendur Húnavallaskóla hátíð með litríkri dagskrá. Meðal annars döns- uðu nokkrir nemendur ballettinn „Svanavatnið" sem mikla athygli vakti meðal áhorfenda. Útfærsla nemenda á þessu fræga verki hefur eflaust aldrei áður komið fyrir augu manna en hjá þeim höfðu svín náð yfirhöndinni og „Svanavatnið" varð „Svínavatnið". Útfærsla þessi hafði eflaust ákveðna tilvísun en skólinn stendur við vesturenda Svínavatns. Á myndinni má sjá litla grisi, svín og aðra þátttakendur verksins, í þann mund að hneigja sig. Skólakstur er snar þáttur í lífi nemenda í dreifbýlinu og því þótti eðlilegt að bömin lýstu reynslu sinni á því sviði. Á myndinni má sjá nokkra augljóslega með hugann við akstur- nemendur í „skólabflnum" veifa til inn. áhorfenda meðan „bilstjórinn“ er ÍTALÍA Fyrirsætan reyndist vera karlmaður Lisa, eða Vincenzo eins og hún/hann heitir réttu nafni. Þvi verður ekki neitað að hún tekur sig vel út í kvenhlutverkinu. Um heim allan ganga stúlkur og piltar til fyrirsætukeppni. Ein slik var einmitt haldin á Italíu fyrir skömmu. Var þátttaka bundin við stúlkur, eða átti í það minnsta að vera það. Mörg hundruð stúlkur frá flestum borgum landsins tóku þátt í fyrirsætukeppninni, og kom- ust 38 þeirra í lokaúrslit. Þegar úrslitin lágu fyrir, nokkr- um mínútum áður en kynnirinn ætlaði að tilkynna þau fyrir mörg þúsund áhorfendum, kom blaða- maður nokkur askvaðandi bak við tjöldin þar sem stúlkumar í efstu sætunum biðu þess að vera kallaðar fram á svið. Blaðamaður þessi hafði heyrt að sigurvegarinn væri karl- kyns, klæðskiptingur, og heimtaði að fá staðfestingu á þessum orð- rómi. Lisa, en það var stúlkan nefnd, var í fyrsta sæti á blöðum dómnefndarinnar, var látin hátta sig og orðrómurinn reyndist sann- ur. Lisa var ekki stúlka, heldur klæðskiptingur. Hún hefur verið í hormónameðferð og látið gera stækkunaraðgerð á bijóstum sínum. „Þetta er ótrúlegt, við lifum á 20. öldinni, en hugsunarháttur fólks er líkur því sem viðgekkst á miðöld- um,“ segir Lisa. „Svo vann einhver smástelpa keppnina í minn stað. Hún er ágæt greyið, en hefur enga kyntöfra. Mér líður eins og konu, ég klæði mig eins og kona, ég hegða mér eins og kona og öllum finnst ég glæsileg og kvenleg kona! Hvers vegna í ósköpunum má ég ekki vinna fyrirsætustörf sem kona?“ segþr Lisa sem heitir reyndar Vin- cenzo Visconte. Lisa er ákveðin, hún vill vekja athygli á málstað kynskiptinga og hefur því komið fram í ótal viðtölum í blöðum og sjónvarpi. Hun talar hispurslaust um málefni samkyn- hneigðs fólks. „Það er eina leiðin til að breyta almenningsálitinu," segir hún. Ég tók upphaflega þátt í fyrirsætukeppninni í gamni, en svo gekk mér mjög vel og átti að vinna keppnina. Ef þessi heimski blaða- maður hefði ekki komið og eyðilagt allt á síðustu stundu." Antonello Siano skipulagði keppnina sem fór fram í Napólí. „Lisa kom afar vel fyrir, hún gekk örugg um sviðið og var áberandi kvenleg og aðlaðandi. Hvemig átti nokkrum manni að detta í hug að hún væri karlmaður og væri skráð Vincenzo í þjóðskránni. Við höfum aldrei farið fram á að þátttakendur sýndu persónuskilríki, en eftirþessa reynslu verður þess farið á leit við þá sem vilja taka þátt í keppninni." „Lisa hefur unnið á mörgum stöðum frá því hún kom norður til Tórínó þar sem hún býr nú. Hún fæddist á Suður-Ítalíu, en „ég mætti svo miklum fordómum því ég var hommi svo ég ákvað að flytj- ast til annarar borgar," segir hún. Lisa hefur unnið lítillega við fyrir- sætustörf, og er vel efnuð. Líklega á hún eftir að fá ótal tilboð eftir keppnina, þó að sigurinn hafi verið dæmdur af henni. Því verður ekki neitað að hún tekur sig vel út í kvenhlutverkinu, þó að hún heiti Vincenzo. Hús Liberace á uppboð Dora Liberace, mágkona skemmtikraftsins Liberace heitins, er hér að sýna gestum hús hans í Las Vegas. Eign þessi er metin á 1120 milljónir ísl. króna. Húsið sem er 14 herbergja verður selt á uppboði þann 10. desember næstkomandi. Myndin er tekin í baðherbergi Liberace en loftið prýðir risastór mynd af skemmtikraftinum. Janni Spies barnshafandi? Nú velta menn því fyrir sér hvort hin danska milljónamær, Janni Spies, sé bamshafandi. Hún gekk í hjónaband fyrir þremur mánuðum með lögfræðingnum Christian Kjær, 45 ára. Nýlega afboðaði hún komu sína í matar- boð þar sem maður hennar hafði verið útnefndur „Pípureykingarmaður ársins" af vín og tóbaksframleiðendum í Kaup- mannahöfn. Starfsfólk Janniar á ferða- skrifstofunni segir það boða gott, afsök- unin hafí að minnsta kosti verið góð og gild en Janni hefur kvartað yfir svima og flökurleika síðustu daga. Sjálf hefur Janni sem er 25 ára gömul lýst því yfir að hún óski þess að verða móðir. Það er því aldrei að vita nema þessi kunnug- legu einkenni bendi til þess að sú ósk rætist innan tíðar. EVRÓPUDROTTNING 1988 Vikan sendir fulltrúa * Islands til keppni Síðastliðinn miðvikudag hélt Karen Kristjánsdóttir til Finnlands til keppni um titilinn Evrópudrottningin eða „Queen of Europe" eins og hann heitir á ensku. Verður keppnin haldin um borð í ferjunni MS Mariella. Er þetta í fyrsta skipti sem keppt er um þennan titil og eru þátttakend- ur tuttugu og fimm, víða að úr Evrópu. Að þessari keppni standa sömu aðilar og um titilinn Heims- drottningin eða „Queen of the World" sem haldin var síðastliðið sumar, en Vikan valdi þá eins og nú fulltrúa fyrir íslands hönd. Karen, sem er 24ja ára gömul, var kosin „ungfrú Suðurland" 1988. Hún stundar nám í hjúkrun- arfræði við Háskóla íslands. LjÓ8mynd/Páll Kjartansson Karen Kristjánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.