Morgunblaðið - 11.11.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
Noregur:
Atvinnuleysi eykst og gjald-
þrotamálum Qölgar
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritar Morgnnblaðsins í Noregi.
AFLEIÐINGAR efnahagsaðgerða norskra stjórnvalda á síðasta
ári eru nú að koma í ljós í norsku efnahagslífi. Utanríkisverslun
landsins er nú 10% minni en í fyrra og atvinnuleysi eykst stórlega.
Búist er við að allt að 100.000 Norðmenn verði atvinnulausir í vetur.
Verðfall á olíu og hrunið á kaup-
hallarmörkuðum haustið 1987 hef-
ur haft alvarlegri afleiðingar fyrir
Norðmenn en aðrar Evrópuþjóðir.
Þar við bætist að mörg fyrirtæki
og einkaaðilar verða nú að standa
skil á óhagstæðum lánum sem veitt
voru um miðjan níunda áratuginn.
Að meðaltali verða tíu fyrirtæki eða
einstaklingar gjaldþrota á degi
hveijum í Noregi.
Verslun er einnig í mikilli lægð
í Noregi og hefur bflasala ekki ver-
ið minni lengi. Fyrir tveimur árum
seldust 167.000 nýir bílar árlega í
Noregi en í ár er reiknað með að
aðeins 70.000 bflar seljist.
Fjöldi atvinnugreina á í miklum
fjárhagserfiðleikum og á það ekki
síst við um bankastarfsemi. Bank-
amir hafa tapað gífurlegum fjár-
hæðum sem þeir hafa lánað til fyrir-
Færeyjar:
Verkföll hjá útvarpinu
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Síðastliðinn föstudag fóru tmflunum á dagskrá
flestir starfsmenn hjá færeyska
útvarpinu, alls 20 manns, í verk-
fall. Aður höfðu þeir sent lands-
stjórainni bréf þar sem þeir mót-
mæltu áformum um skipulags-
breytingar hjá útvarpinu. Starfs-
mennirair kröfðust þess einnig
að Jógvan Arge, dagskrárstjóri,
yrði rekinn.
Starfsmennimir kvarta yfir því
að landsstjómin hafi reynt að draga
samningaviðræður um skipulags-
breytingar á langinn. Landsstjómin
hafði áður lagt til að Arge yrði
lækkaður í tign og gerður að frétta-
stjóra. Komið yrði á fimm deildum;
fréttadeild, dagskrárdeild, tækni-
deild, leiklistardeild og loks sameig-
inlegri bama- og : unglingaþátta-
deild. Stjómandi dagskrárdeildar
yrði næstráðandi hjá útvarpinu.
Starfsmenn samþykktu tillöguna
en stjóm útvarpsins með föður Arg-
es, Niel Juel Arge útvarpsstjóra í
broddi fylkingar neitaði að sam-
þykkja breytingar á stöðu Jógvans
Arge. Síðan hefur staðið í stappi
milli deiluaðila.
Verkfallið hefur valdið miklum
útvarpsins.
Einn af starfsmönnum þess, er ekki
vildi láta nafns síns getið, sakaði í
blaðaviðtali Jógvan Arge um vald-
níðslu og skipulagsleysi. Arge hefur
svarað því til að ekki hafi allir
starfsmenn tekið þátt í verkfallinu
og hægt verði að halda í horfinu
um hríð. Hann segist ekki munu
sætta sig við áðumefndar manna-
breytingar.
tækja og einstaklinga síðastliðið ár
og á þessu ári. Fjárhagsstaða
stærsta banka Noregs, Den norske
Creditbank, er svo slæm að ákveðíð
hefur verið að segja upp þriðjungi
starfsfólks bankans. Rúmlega
1.200 starfsmenn bankans munu
því hverfa frá störfum.
Hið slæma efnahagsástand kem-
ur einnig við kaunir norskra dag-
blaða því að auglýsingatekjur blað-
anna hafa minnkað. Undanfama
daga hafa tvö stór dagblöð í Noregi
hætt að koma út. Osloavisen, sem
hóf göngu sína fyrir átta mánuðum,
varð fyrst til að leggja upp Iaupana
en eigendur blaðsins, Schibsted-
félagið, sem einnig á dagblöðin VG
og Aftenposten, töpuðu 60 milljón-
um króna (tæpum 420 milljónum
ísl. króna) á útgáfu blaðsins. Á
þriðjudag varð málgagn Verka-
mannaflokksins, Vestfold Arbeider-
blad, gjaldþrota.
Atvinnuástand var með ágætum
í Noregi frá árinu 1984 og skráð
atvinnuleysi aðeins 2% af mannafla
undanfarin ár. En nú kemur það
til með að aukast. í vetur er búist
við 3% atvinnuleysi og svartsýnar
raddir gera ráð fyrir að það nái 5%
í vetur. Í nokkmm landshlutum, til
dæmis í Norður-Finnmörku og
austurhluta Agder, hefur skráð at-
vinnuleysi þegar náð fimm prósent-
Reuter
Ataturks minnst
Klulckan 9.05 námu vegfarendur á Galata brúnni í Istanbúl staðar
í eina mínútu þegar þess var minnst víða um landið að 50 ár era
liðin frá dauða Mustafa Kemals Ataturks, sköpuðar Tyrklands
nútímans. í fyrsta sinn frá árinu 1938 var ekki um opinberan
sorgardag að ræða í Tyrklandi. Yfirvöld afléttu áfengisbanni sem
verið hefúr í gildi á þessum degi og kvikmyndahús og skemmti-
staðir voru opnir. I baksýn er Yeni Cami (Nýja moskan).
Jarðhræringiim
linnir ekki í Kína
Vmnuborð
og vagnar
i í;.'
ipí
Iðnaðarborð, öllsterkog
stillanleg. Meðog án hjóla. Hafðu
hvern hlut við hendina, það léttir
vinnuna og sparartímann.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVEfíSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍML6724 44
Tala látinna
nálgast 1000
Peking. Reuter.
TALA látinna á jarðskjálfta-
svæðunum í suðvesturhluta Kina
nálgast nú eitt þúsund. Allar
horfiir eru á því að jarðhræring-
ar haldi áfram næstu tvo mán-
uði. Sterkur jarðskjálfti reið yfir
strandhérað Suður-Kína i gær
sem er þriðja landsvæðið þar sem
jarðhræringa verður vart í þess-
ari viku.
Jarðskjálftinn í Yunnan-héraði á
mánudag var 7,6 stig á Richter-
kvarða og björgunarmenn hafa ekki
enn tölur yfír alla þá sem hafa far-
ist í afskekktum bambuskofaþorp-
um nálægt búrmísku landamærun-
um. Um 200.000 manns eru nú
heimilislausir og óttast er að far-
aldrar breiðist út.
Fréttastofan Nýja Kína sagði að
björgunarstarf gengi erfíðlega
vegna þess hve landslag er fjöllótt
og skógi vaxið á þessum slóðum.
Skriða féll á 900 m kafla á þjóðveg
sem tengir Lancang-sýslu við um-
heiminn og vatnsból hafa spillst.
Óttast er að kólera og blóðkreppu-
sótt breiðist út.
Talsmaður kínverska almanna-
varnaráðuneytisins sagði á þriðju-
dag að vitað væri að 939 hefðu
farist en kínversk dagblöð segja að
tala látinna sé 689. Að sögn emb-
ættismanns hjá Sameinuðu þjóðun-
um er vitað að 2.800 manns hafa
slasast í jarðhræringunum.
í gær greindi kínversk útvarps-
Skólastúlkur leita í húsarústum að bókum sínum.
Reuter
stöð frá því að skjálfti hefði fundist
í Guangxi-héraði við strönd Suður-
Kína. Skjálftamiðjan var úti á hafi
en jarðhræringar fundust á 700 km
löngu landssvæði.
Fréttastofan Nýja Kína hafði það
eftir jarðslqálftafræðingi ríkis-
stjómarinnar, Chen Yong, að senni-
legt væri að annar kippur, um 6
stig á Richterskvarða, fylgi í kjöl-
farið á næstu dögum og jarðhrær-
ingum myndi ekki linna í Kína
næstu tvo mánuði.
Um tvö hundruð skjálftar hafa
riðið yfir Lancang-sýslu í Yunnan-
héraði frá því á mánudag.
Indíánar fá greiddar bætur
6.500 indíánum bætur að upphæð
u.þ.b. 200 milljónir dollara (um 9,2
milljarðar ísl. kr.) og eignarrétt á
41.400 ferkílómetmm í Yukon, sem
er þekkt fyrir gullæðið í Klondike.
Samningurinn krefst formlegrar
samþykktar Kanadastjómar og hér-
aðsstjómarinnar í Yukon og þrettán
indíánaættflokka, sem em fjórð-
ungur íbúa á þessum slóðum.
Vancouver. Reuter.
TALSMAÐUR Indiána í Norður-
Kanada sagði siðastliðinn mið-
vikudag, að þeir hefðu gert sögu-
legan samning við kanadisku
stjóraina sem leyfir þeim að
halda aldagömlum rétti á landi
þeirra.
Viðmælandi Reuters-fréttastof-
unnar sagði að samningurinn færði
Noregur:
Bannað að
flytjaút
þungt vatn?
Ósló. Reuter.
NORSK stjórnvöld hafa í
hyggju að stöðva útflutning
þungs vatns, sem unnt er
að nota við framleiðslu
kjarnorkuvopna. Að und-
anfórnu hefur komið á dag-
inn, að sumar þungavatns-
sendingar til annarra landa
hafa hafnað annars staðar
en í fyrstu var ætlað.
Thorvald Stoltenberg ut-
anríkisráðherra skýrði frá
þessu á þingi í gær og sagði,
að alþjóðlegar samþykktir um
bann við sölu þungs vatns
hefðu ekki komið í veg fyrir
hana og þyrfti því að herða
þær og allt eftirlit. Norska
stjórnin er nú að reyna kom-
ast að því hvernig þungt vatn,
sem selt var til ísraels og
Rúmeníu, hafi verið notað og
þá hafa Indveijar verið beðnir
að upplýsa hvers vegna
þungavatnssending til Vest-
ur-Þýskalands skaut upp koll-
inum í Bombay.
ísraelar gera hvorki að játa
né neita, að þeir eigi kjam-
orkuvopn og hafa ekki enn
gefið Norðmönnum fullnægj-
andi svar við fyrirspuminni
um þunga vatnið. Þá neita
Rúmenar að hafa selt þunga
vatnið, sem þeir keyptu frá
Noregi, til ísraels.
1 i\iý 3r rétti tíminn til að versla Fyrir vini og ættingja ERLENDIS Við höfum mikið úrval af vandaðri ullarvöru. Pökkum og tryggjum kostnaðarlaust. Höfum einnig til sölu hið vinsæla bókaljós „Litia ljósálfSnnu. Opnunartími mán. - fös. frá kl. 9~18, lau. frá kl. 9-13. \ Hilda Ltd. MCELAND Hilda hf.f Borgartúni 22, sími 91-681699.