Morgunblaðið - 11.11.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
Krafta-
Jackson
fer á kreik
Kvikmyndir
Weathers og Vanity í myndinni um Krafta-Jackson.
Arnaldur Indriðason
í greipum óttans
(„Action Jackson“).
Sýnd í Bíóhöllinni.
Bandarísk. Leikstjóri: Craig
R. Baxley. Framleiðandi: Joel
Silver. Helstu hlutverk: Carl
Weathers, Vanity, Craig T.
Nelson og Sharon Stone.
Carl Weathers leikur „Action
Jackson" (Krafta-Jackson á
íslensku) í samnefndri mynd sem
sýnd er í Bíóhöllinni og minnir
mest á gömlu svertingjahasar-
myndimar sem óðu hér um kvik-
myndahúsin á miðjum áttunda
áratugnum og voru um hetjur
eins og Slaughter og Shaft og
Kleópötru Jones. Núna er það
LAction Jackson“ og þótt hasar-
Iinn sé meiri í dag og myndimar
séu hraðari, sleipari og smartari
er gamli B-mynda-stíllinn ósvik-
inn.
Það þarf ekki nema fimm
mínútur til að sjá að við erum á
kunnum slóðum hörkutólamenn-
ingarinnar. Ekkert er gert til að
koma manni á óvart, formúlunni
er fylgt út í æsar með regluleg-
um bílaeltingaleikjum og spreng-
ingum. Persónumar eru eins
staðlaðar og söguþráðurinn og
endalokin eins augljós og hlöðu-
dyr í tveggja metra fjarlægð.
Jackson er þessi velkunna lögga
hasarmyndanna sem á að baki
útistöður við yfírmenn og ónýtt
hjónaband en hann er bestur í
iiðinu og barátta hans við spill-
inguna er mjög hatrömm og per-
sónuleg. Carl Weathers fer létt
með að sýna nauðsynlega karl-
mennsku en það er samt alltaf
meira gaman að Craig T. Nel-
son, sem silfurhærður leikur ill-
mennið af sérstökum óþokka-
skap.
Það vantar ekki að hasarinn
er oft vel útfærður og handritið
er blandað kaldhæðnislegri
kímni eins og siður er núorðið —
hvom tveggja em einkenni fram-
leiðandans Joel Silver sem full-
komnaði blönduna í hinni frá-
bæm „Die Hard“ (sýnd í Bíó-
borginni) með óstöðvandi hasar
og eiturbeittri fyndni — en„Acti-
on Jackson" líður mjög fyrir lé-
legt handrit og ófrumlega leik-
stjóm, sem missir oft,sjónar af
aðalatriðinu, sérstaklega um
miðbikið. Söngkonan Vanity
leikur t.d. tilvonandi kæmstu
Jacksons og hún fær að syngja
tvö heil lög sem klippt em inní
myndina úr algjöm samhengi við
atburðarásina.
„Action Jackson" er formúlu-
afþreying í meðallagi. Þið hafið
séð þær mýmargar svona áður
og eigið sjálfsagt eftir að sjá þær
miklu fleiri.
Athugasemd
Hafnarfirði, 7. nóvember 1988.
Guðmundur Ámi Stefánsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Guð-
mundur J. Guðmundsson, formað-
ur Dagsbrúnar í Reykjavík, báðir
aðalstjómarmenn í fangahjálpinni
Vemd, óska birtingar á eftirfar-
andi:
Vegna umræðna og umfjöllunar
á opinbemm vettvangi um málefni
fangahjálparinnar Verndar, álita-
mál sem uppi hafa verið í samtök-
unum og hlutdeild okkar undirrit-
aðra í því sambandi, viljum við
koma eftirfarandi á framfæri:
Við, undirritaðir, höfum um ára-
bil átt sæti í aðalstjóm fangahjálp-
arinnar Verndar og reynt eftir
mætti að leggja þeirri mikilvægu
starfsemi lið. Starfsemi Verndar á
að miða að því að aðstoða fanga
og fyrmm fanga á hvem þann
hátt sem unnt er, auk þess að
auka skilning almennings á nauð-
syn víðtækrar fangahjálpar.
Margt hefur áunnist í þessum
málum á langri leið. Enn er þó
ýmislegt ógert og mikilvæg verk-
efni framundan á vettvangi fanga-,
hjálparinnar Verndar.
Af þeim sökum hefur okkur
þótt það miður að uppi em deilur
um form og forystu hjá Vernd;
ágreiningur sem varð á aðalfundi
samtakanna og vaxið hefur í kjöl-
far hans. Hvomgur okkar átti
þess kost að sitja umræddan aðal-
fund. Þegar hins vegar var til
okkar leitað og við beðnir að leita
sátta hjá deiluaðilum og reyna að
koma starfsemi Vemdar á vitræn-
an gmndvöll á nýjan leik, þá hlut-
um við að verða við slíkum óskum.
Því miður hafa tilraunir í þá
vem ekki tekist. Þrátt fyrir ítrek-
aðar óskir okkar hefur formaður
Vemdar ekki ljáð því máls að við
fengjum tækifæri til að ræða við
framkvæmdastjóm Verndar um
stöðu mála. Þetta er undarleg af-
staða. Um það tjáir þó ekki að
fást. Hins vegar er ljóst að tilraun-
ir okkar til að koma á sáttum inn-
an Verndar ná ekki fram að
ganga. Það er deginum ljósara,
þegar við aðalstjórnarmenn
Vemdar um langt árábil og engir
hlutdeildarmenn í aðsteðjandi
deilumálum, náum ekki einu sinni
eyram framkvæmdastjómar, hvað
þá meir.
Við lítum því svo á að sátta-
tilraunum af okkar hálfu sé lokið.
Það er okkar einlæga ósk að
fangahjálpin Vemd komist í gegn-
um þau innanmein er nú hetja á
og afleiðingar þeirra verði ekki
Þrándur í Götu framtíðarinnar í
starfsemi samtakanna. Er það von
okkar að Vemd eflist við raunir
þessar og muni um ókomna tíð
vera skjól þeirra ógæfusömu
manna og kvenna er komast á
svig við lög samfélagsins.
Með vinarkveðjum til allra hlut-
aðeigandi,
Guðmundur J. Guðmunds-
son,
Guðmundur Árni Stefáns-
son.
/
/I/HÓIŒIJS
þOrsc/bhé
Brautarholti 20,
símar: 23333 & 23335.
Á stuðvaktinni niðri:
Benson
Skyldi Lykla-Pétur mæta???
20ára + 700 kr.
J