Morgunblaðið - 11.11.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Mti
iu mAV 'D lt
inn að finna kvittunina. Ég fór
svo með hana til lögfræðingsins.
Þar var krafan að vísu þegar dreg-
in til baka en alls ekki beðist af-
sökunar á mistökunum eða þeim
óþægindum sem ég varð fyrir af
þessu. Ég vil benda fólki á að
halda kvittunum sem þessum til
haga því þeir sem standa að inn-
heimtunni virðast ekki telja sér
skylt að hafa hirðu á þessum hlut-
um.“
Gullúr
Kvengullúr fannst í Esjubergi
fyrir skömmu og getur eigandi
vitjað þess í afgreiðlunni þar.
Þessir hringdu . .
Ljósin í ólagi
A.J. hringdi:
„Mér ofbýður dálítið hversu
mörgum bílum maður mætir sem
' hafa ljósin ekki í lagi og er þetta
enn meira áberandi núna eftir að
farið er að skyggja síðdegis.
Margir bílar eru eineygðir og aft-
urljósin eru ekki í lagi á fjölda
bíla. Ég er ekki að hvetja til að
ökumenn séu endilega eltir uppi
og sektaðir en það þyrfti að benda
þeim á að koma þessu í lag hjá
sér. Ljósin eru mikilvægt öryggis-
atriði og þýðingarmikið að þau
séu í lagi.“
Of hægur akstur
Stefán hringdi:
„Það er mikið talað um hrað-
akstur en sjaldan minnst á að of
hægur akstur getur líka verið
hættulegur. Sumir ökumenn tíðka
að aka löturhægt og fjöldi öku-
manna tekur áhættu með því að
komast framúr þeim. Það ætti að
sekta menn fyrir slíkan hægakst-
ur. Þá er orðið áberandi hversu
margir bílar eru eineygðir í um-
ferðinni og virðist ekkert gert í
því máli. Einnig stunda sumir að
hafa einungis stöðuljósin á að
deginum og virðast komast upp
með það.“
Undarlegar
innheimtuaðgerðir
Sigurður hringdi:
„Mig langar til að vekja at-
hygli á undarlegum innheimtuað-
gerðum hjá skrifstofu lögfræðings
hér í bæ. Ég fékk harðorða kröfu
frá lögfræðingnum þar sem ég
var krafínn um greiðslu á stöðu-
mælasekt er ég hafði fengið fyrir
tæplega þremur mánuðum.
Reiknaðir höfðu verið dráttar-
vextir og var þetta orðin töluverð
upphæð. Ég mundi eftir því að
ég hafði greitt sektina á sínum
tíma og var svo einstaklega hepp-
Breyting-
ar og
náttúru-
hamfarir
Kæri Velvakandi.
Undanfarin ár hafa stórir samn-
ingar verið gerðir milli stórveldanna
í austri og vestri. Nú á dögum er
mönnum ljóst að slíkir samningar
geta haft verulegt gildi fyrir mann-
kynið því mistök geta leitt til mik-
illa náttúruhamfara. Sögur fara af
miklum náttúruhamförum í fyrnd-
inni, þegar heimsflóðið mikla gekk
yfir jörðina. Um þær hamfarir eru
til sögur ýmissa þjóða um víða ver-
öld. Það var þá þegar Guð kom til
Nóa og aðvaraði hann um aðsteðj-
andi hættu, hinar miklu náttúru-
hamfarir.
Guð vildi þarna bjarga mannkyni
jarðarinnar, sem við höfum byggt
í þúsundir ára, því sköpun sína vildi
hann varðveita og Noi trúði Guði.
í dag stendur mannkynið enn einu
sinni á miklum tímamótum, því
framundan eru miklar breytingar
sem ’óðum styttist í og margir menn
eru þegar farnir að undirbúa sig
fyrir þessar miklu breytingar, sem
verða munu bæði á jörðinni sjálfri
og lýsa sér í náttúruhamförum og
þrengingum og hörmungum, sem
þó munu verða mannkyninu til mik-
illar blessunar eftir á. Éinnig verður
um stórkostlega hugafarsbreytingu
að ræða og er hún þegar farin að
sjást hjá ýmsum mönnum. Þessi
hugarfarsbreyting kemur gjarnan
fram í auknum skilningi á því að
mannkynið er „eitt". Einstaka
menn eru farnir að tala um einingu
mannkynsins. Þeir sýna með þess-
um skilningi aukinn þroska. Þeir
geta sett sig í spor annarra, glaðst
með réttlátum gleðjendum og syrgt
með syrgjendum. Þeir geta fundið
til með öðrum og hafa ávallt hug-
föst hin fleygu orð: Allt sem þú
vilt að aðrir menn gjöri þér, það
skalt þú og þeim gjöra.
Þetta eru viss þroskamerki, mað-
urinn er kominn af villimennsku-
stiginu þegar hann er farinn að ala
með sér slíkar hugsanir. Hann er
auðmjúkur, miskunnsamur, vitandi
um einingu og bræðralag allra íbúa
alheimsins og tilbúinn að eiga við
þá samskipti eftir árþúsunda útlegð
á þessari válegu plánetu sem senn
mun verða hættulaus á ný þegar
stríðsvinda mannshugans lægir og
eyðandi haturslogar hjartans deyja
út.
í dag er þorri manna fullur af
metorðagirnd, stolti, metingi, fíkn
í efnisleg gæði og eigingirni sem
eru meðal frumstæðustu og villi-
mannlegustu hvata í samfélagi ábú-
enda þessarar jarðar. Guð vill ekki
þetta ástand. Hann og annað mann-
kyn annarra plánetna bíða breyt-
inganna sem eru framundan þegar
við, mannkyn þessarar jarðar, verð-
um tekin í sátt. Því mannkynið,
maðurinn, er eitt og því fyrr sem
allir eða nógu stór hópur manna
skynjar það og skilur og breytir
samkvæmt því má búast við batn-
andi heimi.
Einar Ingvi Magnússon
Síðdegisfundur
ÁÆTLANAGERÐ FYRIRTÆKJA
Stjómunarfélag íslands mun efna til síðdegisfundar um áætlanagerð
fyrirtækja í fundarsal félagsins, Ánanaustum 15, miövikudaginn 16.
nóvember nk., og hefst hann kl. 16.00.
Fyrirlesari á fundinum verður Ron Sandler, rekstrarráðgjafi.
Ron Sandler er framkvæmdastjóri fyrirtækisins O.C. Sandler Association
í London, en það fyrirtæki sérhæfir sig i ráðgjöf um áætlanagerð og
stefnumótun.
Ron Sandler hefur starfað sem rekstrarráðgjafi í 12 ár, fyrst sem fram-
kvæmdastjóri Boston Consulting Group í Los Angeles í Bandarikjunum
og siðarsem framkvæmdastjóri hjá Booze Allen & Hamilton i Lundúnum.
Þátttaka í fundinum verður takmörkuð og eru þátttakendur beðnir um
að tilkynna þátttöku til skrifstofu Stjórnunarfélags íslands i síma
621066. A
Stjórnunarfélag íslands
5 Ananaustum 15 Simi: 6210 66
SjÖLUFÓLK
OSKAST
SALA OG DREIFING
JÓLAKORTA SPOEX
Óskum eftir fólki á öllum helstu þéttbýliskjörnum
landsins til aö dreifa og innheimta jólakort hjá
félagsmönnum SPOEX.
Jólakortin eru einnig til sölu á frjálsum markaði.
Mjög góð sölulaun.
Hafið samband við skrifstofu SPOEX Baldursgötu
12 Reykjavík. Sími 25880 eftir hádegi alla virka
daga.
STYÐJIÐ GOTT MÁLEFNI.
ÖKKLASKÓR
Verð kr.
1.995,
Stærðir: 36-41 - Litur: Svart - Efni: Skinn
toetJ|
^1212
KRINGWr
KI5IM0NM
S. 689212
Póstsendum samdægurs
5% staðgreiðsluafsláttur
SKORIBÍN
VELTUSUND11
LjóðaArbók AB:
Fróðleg1 ritdeila
Til Velvakanda.
Fróðleg ritdeila er nú hafín í
Mbl. um Ljóðabók, sem AB gaf út
sl. vor.
Þar segir Guðmundur Guðmund-
arson hispurslaust skoðun sína á
bókinni og birtir nokkur sýnishorn
af efni hennar máli sínu til stuðn-
ings. Sjá Mbl. 5. okt. bls. 39.
Svar kom frá ritnefnd Árbókar
AB 13. okt. bls. 16. Nefndin er að
vonum ósátt við umsögn Guðmund-
ar. Lítið fer þó fyrir rökum um
ágæti téðrar bókar en því meira
ber á vafasömum fullyrðingum um
vanþekkingu Guðmundar á bók-
menntum.
Nú hefur Guðmudnur sent rit-
nefndinni kveðju sína í annað sinn
í Mbl. 26. okt. Kemur hann þar
með fleiri ljóðadæmi og ítrekar fyrr-
nefnda umsögn.
Margir bíða með nokkurri vænt-
ingu eftir nánari rökum og útskýr-
ingum frá ritnefnd á efni Ljóðabók-
ar, sem er næsta torráðið almenn-
um lesendum.
E.E.
Opið daglega frá kl. 13-14, laugardaga frá
kl. 10-20.
Félagsnúmer Fram er 108.
Símaþjónusta í síma 680342.
5 nn þjónusta.
Aðstoð við útfærslu á kerfum.
Framheimilið.