Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 5
MÓRÍáÚkBLAÖIÐ FÖ&TUDÁGUR6. JAlíúAR 1989
5
Keflavík:
Aðalvíkin
og Drangey
skiptast á
nöfnum
Bergvík heitir nú
Skagfirðingnr
Grindavík
NÝJA Aðalvíkin KE, áður
Drangey SK, fór frá Sauðár-
króki til Keflavíkur á miðviku-
daginn. Aðalvíkin, sem áður var,
heitir nú Drangey, og Bergvík-
in, sem áður var, heitir nú Skag-
firðingur SK.
Að sögn Ingólfs Falssonar fram-
kvæmdastjóra Hraðfrystihúss
Keflavíkur á Skagfirðingur SK,
sem nú er í eigu Fiskiðjunnar á
Sauðárkróki, að selja fljótlega á
einhveijum markaðanna hér sunn-
anlands, en fara síðan í siglingu á
Þýskaland og eftir það í lagfæring-
ar um miðjan mánuðinn. Nýju eig-
endumir eru að vinna í tilboðum
varðandi lagfæringarnar.
„Sama er að segja um nýju
Drangeyna. Hún fer út fyrir helg-
ina í siglingu á Þýskaland og síðan
í lagfæringar, en nýju eigendurnir,
Utgerðarfélag Skagfirðinga, eru
að skoða tilboð í verkið. Nýja Að-
alvíkin, sem er hálffrystitogari, er
lögð af stað suður til Keflavíkur
og verður gerð út sem ísfisktogari
þangað til grálúðuveiðarnar hefj-
ast í vor, þar sem útlit er dökkt á
markaði fyrir frystar afurðir. Grá-
lúðan verður fryst og síðan fer
skipið í breytingar í sumar og verð-
ur breytt í alfrystiskip,“ sagði Ing-
ólfur og bætti við, að enn hefði
ekki verið tekin ákvörðun um
rekstur frystihúss HK, en verið
væri að skoða hann í þessu tilliti.
Kr.Ben.
Mýrdalssandur:
Stórt skarð í
nýja veginn
Vík í Mýrdal
NÝI vegurinn á Mýrdalssandi
skemmdist vegna vatnavaxta
um áramótin og kom 20—40
metra breitt skarð í veginn um
5 km fyrir vestan Skálmarbrú.
Viðgerð er nú lokið og vegurinn
fær að nýju.
Vegurinn um Mýrdalssand, sem
tekinn var í notkun sl. haust, byij-
aði að skemmast í vatnavöxtum á
gamalársdag og skemrndist þá á
um 100 metra kafla. Á þriðjudag
hafði svo myndast skarð í veginn
og var hann því með öllu ófær.
Fjöldi röra var lagður í gegnum
veginn og áttu þau að koma í veg
fyrir skemmdir af völdum vatns,
en þau voru víða stífluð af völdum
snjó- og sandfoks og átti vatnið
því ekki greiða leið í gegnum þau.
Víterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Leikritasamkeppni LR:
51 leikrit barst
FRESTUR til að skila verk-
um í leikritasamkeppni Leik-
félags Reykjavíkur í tilefni
af opnun Borgarleikhússins
er runninn út. Alls barst 51
verk til keppninnar. Bæði var
óskað efltir verkum fyrir
börn og fullorðna.
Þátttaka í leikritasamkeppn-
inni var mun meiri en reiknað
var með. Því ér ljóst að dóm-
nefnd keppninnar mun ljúka
störfum nokkru seinna en
áformað var. Stefnt er að því
að nefndin ljúki störfum um
næstu mánaðamót.
TVOFALDUR
POTTUR!
/
I
Nú er til mikils aö vinna í Islenskum Getraunum. •
í síðustu viku kom enginn seðill fram með 12 réttum. '')
Þessvegnaertvöfaldurpottur ;
- og tvöföld ástæða til að vera með! '
HjáokkurkostarröðinaðeinslOkr. \ ~
Láttu nú ekkert stöðva þig.
Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. >