Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
9
Ja,hver
þrefaldur!
Þrefaldur
fyrsti vinningur
á laugardag!
Þreföld ástæða
til að vera með!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Gengisfellingin
Vildu miklu meira
Forystumenn ífiskvinnslu heimta um 15% gengisfellingu en segjast faraaf staðsamt. Steingrímur Hermannsson: Gengið
fellt vegna óróa ágjaldeyrismörkuðum. F.fnahagsaOgerOir á ncestunni. Ögmundurjónas son: Mjög óréttlát skattheimta.
Víglundur Þorsteinsson: Morfinsprauta
„Á rauðu ljósi“ — (Jpphaf sameiningar A-flokkana?
JÓN BALDVIN OG ÓLAFUR RAGNAR
í SAMEIGINLEGA FUNDAHERFERD
Jón Baldvim „Endirinn á fortiðinni“ — Viðbrögð forystusveita flokkana neikvœð
Furðulegar forsfður
í Staksteinum í dag verður staldrað við furðulegar forsíður
tveggja stjórnarblaða, Alþýðublaðsins og Þjóðviljans, í fyrradag.
í Þjóðviljanum var rætt um gengisfellinguna undir fagnaðar-
fyrirsögninni: Vildu miklu meira. I Alþýðublaðinu var allt lagt
undir það, að þeir Jón Baldvin Hannibalsson og Ólafur Ragnar
Grímsson ætluðu að efna til sameiginlegra funda.
Fögnuður
Þjóðviljans
Á forsíðu Þjóðviljans á
miðvikudag mátti lesa
þessar fyrirsagnir: Geng-
isfellingin — Vildu miklu
meira — Forystumenn í
fiskvinnslu heimta um
15% gfengisfellingu en
segjast fkra af stað samt.
Steingrímur Hermanns-
son: Gengið fellt vegna
óróa á gjaldeyrismörkuð-
um. Efhahagsaðgerðir á
næstunni. Ogmundur
Jónasson: Mjög óréttlát
skattheimta. Viglundur
Þorsteinsson: Morfín-
sprauta.
Þvi er þessi runa
kennd við fögnuð, að það
sem letrað var með
stærstu letri á forsiðu
Þjóðviljans: Vildu miklu
meira, gefur til kynna
pólitiskt mat málgagns
Alþýðubandalagsins og
Ólafs Ragnars Grímsson-
ar §ármálaráðherra á
þvi hvemig staðið var að
þvi að fella gengið. Al-
þýðubandagalagsmenn
vilja láta lita þannig út,
að þeir hafi staðið gegn
þvi að þeir sem „vildu
miklu meira“ fengju það
sem þeir vildu. En menn
ættu að gera sér i hugar-
lund, hvemig fyrirsögnin
hefði verið, ef Ólafur
Ragnar og félagar hefðu
verið utan ríkisstjómar.
RKisstjómin hefur
meðal annars leitast við
að rökstyðja þessa geng-
isfellingu með þvi, að nú
sé krónan á svipuðu verði
og hún var í lok septem-
ber, þegar ríkissfjómin
settist að völdum. Þá
vom allir sammála um
og engir meira en ráð-
herramir sem vora að
mynda stjóm, að við svo
búið mætti ekki standa
fyrir atvinnuvegina. Nú
em sem sé liðnir rúmir
þrir mánuðir. Rlkis-
stjómin hefur hækkað
allt sem henni er fært
að hækka og svo er grip-
ið til þess ráðs í gengis-
málum að færa klukkuna
til baka, svo að stjómin
fai svigrúm til að grípa
til ráðstafana. Og svo
hrópar Þjóðviljinn: Vildu
miklu meira.
„Súper-
kratar“ á
rauðu ljósi
í gengismálum telur
ríkisstjómin öllu borgið
ef hún færir klukkuna
rúma þrjá mánuði aftur
í tímann. Þeir Jón Bald-
vin Hannibalsson og
Ólafur Raguar Grímsson
gefa hins vegar tíl kynna,
að flokkunum sem þeim
hefur verið trúað fyrir,
Alþýðubandalaginu og
Alþýðuflokknum, verði
best borgið með þvi að
færa klukkuna aftur fyr-
ir 1930, áður en Komm-
únistaflokkur fslands var
stofiiaður. Ætla þeir að
gera það með þvi að efha
til sameiginlegrar fimda-
herferðar sem þannig er
tíl stofiiað, að hún er
einskonar bylting að of-
an, þvi að formennimir
segjast tveir einir boða
til fundanna, flokks-
stjómir eða ráð komi þar
hvergi nærri. Þótt ætlun-
in sé að hefja árið 0 f
þessu rauða samstarfi
helst með þvi hugarfari,
að Kommúnistaflokkur
íslands hafi aldrei komið
til sögunnar, minna tíl-
burðimir við að hrinda
þeirri hugmynd i fram-
kvæmd mjög á þá stjóra-
arhætti, sem tíðkast í al-
ræði kommúnistaland-
anna, þar sem foringjar
fara sínu fram hvað sem
öðrum finnst.
Eftir að Ólafur Ragn-
ar hafði fengið að heyra
það bæði i þingflokki
Alþýðubandalagsins og
hjá formanni fram-
kvæmdastjómar flokks-
ins, að hann stæði ekki
að þessiun fundum með
formanni Alþýðuflokks-
ins eins og flokksbræður
hans kysu, sagði Ólafur
einfiddlega, að óheppi-
lega hefði verið sagt frá
fimdunum i Alþýðublað-
inu! Yfirlætíð sem lýsir
sér í þessum orðum leyn-
ir sér ekki, enda fer ekki
fram hjá neinum að Ólaf-
ur Ragnar telur sig hala
í fullu tré við flokks-
bræður sína, eftir að
hann varð fjármálaráð-
herra og hóf að hækka
skattana.
í Alþýðublaðinu boðar
Jón Baldvin, að þeir Ólaf-
ur Ragnar ætli að svara
spurningum eins og þess-
um á fundum sinum:
„Eins og hvort Stalín
sé ennþá hér? Er Ólafur
Ragnar kratí? Er Al-
þýðubandalagið bara
kratar? Er Alþýðubanda-
Iagið gengið í NATO? Er
Gorbatsjov orðinn kratí?
Var Jón Baldvin marx-
isti? Er Jón Baldvin
hægri krati? Er hann
friðarsinni? Eða er hann
orðinn þjóðnýtingar-
sinni? Er verkalýðshreyf-
ingin dauð? Er fortíðin f
ösku? Er framtíðin súp-
erkrataflokkur?"
Hingað til hafa menn
talaða um „toppkrata",
þegar mikið er i húfi, en
það er kannski engin
furða, þótt Jón Baldvin
vilji láta kalla sig og Ólaf
Ragnar „súperkrata",
þegar framtíð flokka
þeirra ræðst helst af því,
hvemig menn skilgreina
persónulegar skoðanir
þessara tveggja manna
og sjálfs Gorbatsjovs,
sem ef til vill er fyrsti
„súperkratinn"?
Menn sem em komnir
f þessa stöðu þurfii auð-
vitað eklti samþykki eig-
in flokka til að leggja þá
niður.
ÆTTFRÆÐIIXIÁMSKEIÐ
í næstu viku hefjast ný námskeið hjá Ættfræðiþjónustunni í
Reykjavík. Þátttakendur fá fræðslu um ættfræðileg vinnubrögð,
leitaraðferðir, uppsetningu ættartölu og niðjatals o.s.frv. Ákjósan-
leg skilyrði til rannsókna á eigin ættum. Unnið úr fjölda heim-
ilda, m.a. öllum manntölum til 1930, kirkjubókum og öðrum verk-
um. Auk sjö vikna grunnnámskeiðs (18 klst.) er boðið upp á 12
klst. framhaldsnámskeið. Helgarnámskeið verða á nokkrum stöð-
um sunnan- og vestanlands á næstu mánuðum.
Skráning þátttakenda er að hefjast.
Ættfræðiþjónustan tekur einnig að sér að semja ættartölur fyrir
einstaklinga og fjölskyldur, m.a. 4-6 kynslóða ættartré á tilboðs-
verði. Geymiö auglýsinguna!
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN - SÍMI 27101
verður á skeiðvelli Fáks íVíðidal laugar-
daginn 7. janúar og hefst kl. 16.30.
AÍIir velkomnir.
Álfar og tröll verða á svæðinu.
Veitingar verða seldar í félagsheimilinu.
Dansleikur verður um kvöldið ífélags-
heimilinu og hefst hann kl. 22.
Skemmtinefndin
Sj ómannafélag
Reykjavíkur:
Smíðað verði
nýtt alhliða
varðskip
Á sfjórnarfundi Sjómannafé-
lags Reykjavíkur sem haldinn
var þann 30. desember sl. var
eftirfarandi tillaga samþykkt:
„Fundur í stjóm Sjómannafélags
Reykjavíkur 30/12 ’88 skorar á
ríkisstjóm og Alþingi að tryggja
fjármagn til áframhaldandi rekst-
urs þriggja varðskipa á vegum
Landhelgisgæslu íslands.
Nú þegar verði hafist handa hér
innanlands um byggingu nýs alhliða
varðskips sem geti gegnt þeim fjöl-
mörgu störfum sem Landhelgis-
gæslunni er að ætlað að gegna.
Stjóm SR undirstrikar enn einu
sinni hinn þýðingarmikla þátt sem
skip Landhelgisgæslunnar eiga í
öryggi sjómanna við strendur lands-
ins og á úthafinu."
í fréttatilkynningu Sjómannafé-
lags Reykjavíkur er þess getið að
skip Landhelgisgæslunnar séu:
Varðskipið Óðinn, smíðaár 1959,
aldur 30 ár. Varðskipið Ægir,
smíðaár 1968, aldur 21 ár. Varð-
skipið Týr, smíðaár 1975, aldur 14
ár.