Morgunblaðið - 06.01.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
13
Sinfóníiihljómsveit æskiuinar
eftirBaldur
Símonarson
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
heldur tónleika laugardaginn 7.
janúar kl. 14.30. Á efnisskrá er
eitt verk, sjötta sinfónía Mahlers,
og mun það vera í fyrsta sinn sem
hún er flutt hérlendis.
Um nokkurra ára skeið hefur
Paul Zukofsky haldið námskeið
fyrir unga íslenzka tónlistarnem-
endur. Námskeiðunum hefur lokið
með hljómsveitartónleikum, en
þátttakendur í námskeiðunum
hveiju sinni hafa myndað heila
sinfóníuhljómsveit, Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar. Zukofsky þykir
kröfuharður og nákvæmur stjórn-
andi. Ekki hafa unglingarnir sett
aga og aðhald fyrir sig. Þvert á
móti hafa þau farið eftir því sem
forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, minnti okkur á í ávarpi
sínu á nýársdag: „Við skulum
muna að menning er að gera hlut-
ina vel, hvert sem verkefnið er.“
Við sem komin erum á miðjan ald-
ur, megum taka okkur æskufókið
hér til fyrirmyndar. Er skemmst
frá því að segja að Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar hefur skilað ótrú-
legum árangri, bæði fyrir þá sem
á hana hafa hlýtt og ekki sízt fýr-
ir félaga í hljómsveitinni. Hljóm-
sveitin hefur ævinlega færzt mikið
í fang og oft flutt verk sem sjald-
an eða aldrei hafa heyrzt áður
hérlendis. Satt að segja finnst mér
að „stóri bróðir“, Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, mætti sýna sama
frumleika og hugdirfsku í verk-
efnavali, enda held ég að velunnar-
ar Sinfóníuhljómsveitar íslands
séu vel undir það búnir að hlýða
á slík verk. Tónleikar Sinfóníu-
Paul Zukofsky
hljómsveitar æskunnar hafa ævin-
lega verið með ánægjulegustu og
eftirminnilegustu tónleikum hvers
árs. Ánægja og leikgleði skín af
andliti hvers hljóðfæraleikara, og
leikur hljómsveitarinnar gefur at-
vinnumönnum lítið eftir.
Flestir félagar í Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar eru nemendur í
framhaldsskólum. Oft hafa þeir
þurft að fá leyfi úr skóla, meðan
á námskeiðinu stendur. Mun það
yfirleitt hafa verið auðsótt mál,
enda skilst mér að nemendur sem
taka þátt í tónlistarlífi, skili yfir-
leitt betri námsárangri en aðrir.
Tónlistarnám er vissulega tímaf-
rekt, en vonandi mætir þátttaka
barna í skólakórum og skólahljóm-
sveitum sama skilningi stjórnenda
grunnskóla. Æfíngar hafa verið
haldnar í Hagaskóla, og ber að
þakka þann stuðning og skilning.
Skipulagning Zukofsky-nám-
skeiðanna kostar tíma, vinnu og
peninga. Fyrstu árin sá Rut Magn-
ússon um þá hlið, en nú hefur
Hulda Birna Guðmundsdóttir tekið
við því starfí. Á undanförnum
árum hafa aðstandendur nám-
skeiðanna sent út gíróseðla til
stuðningsmanna. Satt að segja
hafa fáir gíróseðlar verið mér
kærkomnari sending, og hef ég
reynt að sjá sóma minn í að greiða
styrktargjaldið sem fyrst, en því
hefur ævinlega verið mjög í hóf
stillt. En nú er mér því miður tjáð
að undirtektir séu orðnar svo
dræmar að útsending gíróseðlanna
svari ekki kostnaði, og hafa þeir
því ekki verið sendir út að þessu
sinni. Hefur þó nýlega verið leitað
til ýmissa sem aflögufærir eiga
að heita og hafa nokkurt orð á
sér_ fyrir tónlistaráhuga.
Eg vona að enn sé til fólk og
fyrirtæki sem ekki eru svo að-
framkomin af hátíðarhaldi og
krepputali að þau geti ekki látið
einhveija upphæð af hendi rakna
til styrktar Sinfóníuhljómsveit
æskunnar. Auðvelt er að verða sér
úti um gíróseðla eða leggja fram-
lagið beint inn á reikning hljóm-
sveitarinnar. Áritun hennar er:
Sinfóníuhljómsveit æskunnar,
Laxakvísl 4, 110 Reykjavík, nafn-
númer 8126-7014. Reikningur
hennar er nr. 10025 í Árbæjarúti-
búi Landsbanka íslands, banka-
númer 113. Á gíróseðli eru fylltar
út tölurnar 0113 og 26 í reitinn
sem merktur er Stofnun Hb.
Höfundur er dósent í lífefnafræði
við læknadeild Háskólans og hefur
ánægju af tónlist.
12,7% rýmun kaupmáttar
Miðstjóm ASÍ og BHMR mótmæla efiiahagsráðstöfunum stjómvalda
SKERÐING KAUPMÁTTAR ALMENNRA LAUNA
FRÁ JÚNÍ 1986
FRAMF - OPINBER TEKJU-
VÍSITALA GJÖLD SKATTUR
Y////Z//Á i-v..-;.-.
„KAUPMÁTTUR almenris
launafólks rýrnar um 6% vegna
nýafstaðinna ráðstafana ríkis-
stjórnarinnar til tekjuöflunar.
Áður en til þeirra kom hafði
kaupmáttur rýrnað um 6,7% frá
því í júní. Bráðabirgðalög
tveggja síðustu ríkisstjórna
hafa bannað allar kauphækkan-
ir á undanförnum mánuðum."
Svo segir í frétt frá Alþýðusam-
bandi Islands, en miðsljórnar-
fundur ASÍ á miðvikudag fjall-
aði um kaupmáttarskerðing-
una. Samráðsfundur aðildarfé-
laga BHMR sem haldinn var í
fyrradag mótmælir harðlega
gengisfellingu og öðrum efria-
hagsráðstöfunum ríkisstjórnar-
innar.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ sagði eftir miðstjórnarfundinn
að ekki væri búið að ákveða á
vettvangi ASÍ hvernig staðið yrði
að samningagerð og kröfugerð.
„Við höfum verið að ræða þetta
innbyrðis í Alþýðusambandinu,
menn hafa rætt þetta innan sam-
bandanna og það eru fundir hjá
ýmsum aðilum núna á næstu dög-
um, þar sem fjallað verður um
hvemig eigi að standa að verki.
Ég geri ráð fyrir að við fáum end-
anlega niðurstöðu í því fljótlega.“
Ásmundur sagði nærri láta að
staða fólks á lágmarkslaunum sé
svipuð nú og hún var fyrir desem-
bersamningana 1986. „Kaup-
hækkanir hafa verið bannaðar frá
því í júní þannig að það tímabil
sem er tekið fyrir í útreikningum
Hagdeildarinnar hafa allir orðið
fyrir þeirri breytingu sem þar er
verið að tala um,“ sagði hann.
Bráðabirgðalögin banna kaup-
hækkanir og aðgerðir til að knýja
þær fram þar til 15. febrúar.
Samningar allmargra félaga eru
bundnir lengur og óheimilt að
segja þeim upp. „Það getur verið
mjög erfitt að ganga til sam-
ræmdra aðgerða vegna þess að
gildistími samninga er mislangur.
En það er auðvitað hægt að sam-
ræma vinnubrögðin ef menn velja
að fara slíkar leiðir og það er auð-
vitað engan veginn útilokað að það
gæti tekist að semja áður en samn-
ingar renna út. Slíkt eru engin
eindæmi, það hefur oft verið gert
áður.“ Ásmundur var spurður
hvaða aðgerðum ASÍ gæti beitt
án þess að fara út fyrir ramma
laga og samningsákvæða. „Ég
held að það sé fyrst og fremst
almennur þrýstingur. Atvinnurek-
endur standa auðvitað frammi fyr-
ir því augljósa að óbreytt kjör
standa ekki endalaust og ef þeir
tregðast við og reynast ekki reiðu-
búnir til að ganga til samninga, .
þá auðvitað eykst reiðin og ólg-
an,“ sagði Ásmundur Stefánsson.
í greinargerð Hagdeildar ASI
segir að kaupmáttur hafi rýrnað
um 6,7% frá júní á síðasta ári til
desember. Sér tekið mið af áætl-
aðri hækkun framfærsluvisitölu
vegna nýafstaðinna ráðstafana
stjómvalda sé rýrnunin frá júní
1988 orðin 10,2% og að viðbættri
hækkun tekjuskatts sé rýrnunin
12,7%. „Þar að auki á kaupmáttur
eftir að rýrna enn frekar vegna
annarra verðhækkana sem kunna
að mælast í janúarmánuði," segir
í greinargerðinni.
BHMR mótmælir
Á samráðsfundi aðildarfélaga
BHMR var samþykkt samhljóða
að mótmæla harðlega „ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að fella gengi
íslensku krónunnar og reka þannig
enn einu sinni erindi útflytjenda á
kostnað launafólks." í ályktun
fundarins segir ennfremur: „Ný
tekjuöflunarfrumvörp ríkisins og
afnám samningsréttar frá maí á
síðasta ári hafa skert kaupmátt
launafólks stórlega. Aðildarfélög
BHMR stefna að því að hrinda
þessari árás í komandi samning-
um.“
DANSSKÖLI
Mnii n wi\v iniii
Kennslustaðir:
Ath. 2 nýjir kennslustaðir:
Heilsugarðurinn, Garðatorgi 1,
Garðabæ og Ártún v/Vagnhöfða
Reykjavík:
Skeifan 17, (Ford-húsið),
Gerðuberg, Breiðholti,
KR-heimilið v/Frostaskjól.
Innritun í símum 656522
og 31360 frá kl. 13-19alla
virka daga.
E ]
■LmOCAMD
Kennsla hefst mánudag
inn 9. janúar.
Keflavík:
Hafnargata 31.
Innritun í síma 92-13030
frá kl. 14-19 alla virka
daga.
Skírteini afhent sunnudag-
inn 8. janúar frá kl. 16-18.
Afhending skírteina:
Afhending fyrir alla staði
er í Skeifunni 17 sunnu-
daginn 8. janúar frá kl.
14-18.
ÁUtoAR NAKA i 05