Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
27
Fijálst framtak:
Framkvæmdir í Smára-
hvammi heijast senn
Á ÞRIÐJA þúsund manns munu stunda atvinnu á svæði því sem
Fijálst framtak skipuleggur í Smárahvammslandi. Vinna við gatna-
gerðarframkvæmdir hefst í byijun þessa árs, markaðssetning hefst
1990, en svæðið á að vera fiullbyggt árið 1995. Þegar það verður
fúllgert er reiknað með að þar verði 5—10% &amboðs atvinnuhús-
næðis á höfúðborgarsvæðinu. Fijálst framtak flytur sína starfsemi
í Smárahvamminn, en að auki er reiknað með Qölda fyrirtækja á
þetta svæði.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu samdi Fijálst fram-
tak við Kópavogskaupstað um að
fyrirtækið sjái um alla gatnagerð á
Smárahvammslandi, auk skipu-
lagningar á þeim hluta landsins sem
fyrirtækið hefur keypt. Gatnagerð-
arsamningurinn hljóðar upp á rúm-
lega 200 milljónir króna, sam-
kvæmt kostnaðaráætlun. Fijálst
framtak á 17—18 hektara í Smára-
hvammslandi og hyggst fyrirtækið
nýta hluta svæðisins sjálft, en ann-
ars ýmist selja lóðir eða byggja
atvinnuhúsnæði og selja það. Hönn-
un svæðis Fijáls framtaks hefur
Sýningar á Ævintýrum
Hoffmanns falla niður
SÝNINGAR á óperunni Ævintýri
Hoffmanns, sem vera áttu annað
kvöld, föstudagskvöld og sunnu-
dagskvöld, falla niður af óviðráð-
anlegum orsökum, segir f frétta-
tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.
Uppselt var á báðar sýningarnar
og eru sýningargestir orðnir á
tólfta þúsund eftir 21. sýningu.
Tvær mannabreytingar hafa orðið
á einsöngvaraliðinu í „Ævintýrun-
um“. Ingibjörg Marteinsdóttir tók við
hlutverki Rannveigar Fríðu Braga-
dóttur sem Nicklausse, förunautur
Hoffmanns, í nóvember og á næstu
sýningu tekur Kristinn Sigmundsson
við hlutverki Lindorfs, leyndarráðs,
í stað Guðjóns Óskarssonar, sem far-
inn er utan. Kristinn syngur jafn-
framt þijú önnur einsöngshlutverk í
sýningunni, Coppelíus í 1. þætti,
Dapertutto í 2. þætti og Doktor
Miracle í þeim þriðja.
Þeir sem áttu aðgöngumiða á sýn-
ingamar á föstudags- og sunnudags-
kvöld eru vinsamlegast beðnir að
snúa sér til miðasölu Þjóðleikhússins
fyrir fimmtudaginn 12. janúar.
Næstu sýningar á Ævintýrum Hoff-
máns verða 13., 21., 22., 27. og 28.
janúar.
Öndum léttar“:
Námskeið fyrir þá sem
vilja hætta að reykja
NÁMSKEIÐ fyrir þá sem vilja
hætta að reykja hefst á vegum
Islenska Bindindisfélagsins mið-
vikudaginn 11 janúar. Námskeið-
ið, sem kallast „Öndum léttar“,
er kvöldnámskeið og stendur
yfir í átta kvöld, tvær stundir í
senn.
í fréttatilkynningu frá íslenska
bindindisfélaginu segir að nám-
skeiðið eigi sér 30 ára sögu erlend-
is, en hafi verið haldið hér á landi
undanfarin 20 ár, og sé nú end-
umýjað og stóraukið að leiðbein-
andi efni og upplýsingum.
Námskeiðið verður haldið í Lög-
bergi, stofu 201, og á því verða
sýndar fræðslukvikmyndir og lit-
skyggnur, auk þess sem fjöldi
lækna leiðbeinir þátttakendum.
Stjómandi og aðalleiðbeinandi verð-
ur Jón Hjörleifur Jónsson, en hann
mun halda samskonar námskeið
víða um land í vetur.
Þátttaka og innritun á námskeið-
ið tilkynnist á skrifstofu aðventista,
Skólavörðustíg 16, en einnig er
hægt að láta skrá sig við upphaf
námskkeiðsins.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 4. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Engin sala var í gaar. ( dag verður selt m.a. úr Stakkavík og
Guðrúnu Björgu.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur c
lægður
Ýsa óslægð
Samtals
Seldur var netafiskur. ( dag verður sömuleiðis seldur fiskur frá
netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(óst) 59,00 46,00 55,28 14,120 780.520
Ýsa(ósl.) 125,00 110,50 122,50 1,900 232.750
Samtals 63,25 16,020 1.013.270
Selt var úr Happasæli GK, Eldeyjarboða GK og Reyni GK. I dag
verður selt úr Baldri KE og úr dagróðrabátum.
Haasta verð Lwgsta verð Meðal- verð Magn (lestir) Halldar- verð (kr.)
60,00 50,00 57,33 6,361 364.700
136,00 113,00 129,17 60,85 0,327 6,688 42.239 406.939
Arkitektastofa Ormars Þórs Guð-
mundssonar og Ömólfs Hall séð
um, í samvinnu við Mark R. Mac
Farlane landslagsarkitekt, hjá
Sígrænni umhverfishönnun.
Hallgrímur Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri bygginga Frjáls
framtaks, sagði að strangar kröfur
yrðu gerðar um frágang á svæðinu.
„Væntanleg atvinnustarfsemi í
hverfinu er sambærileg við atvinnu-
starfsemi í Múlahverfi í Reykjavík,"
sagði Hallgrímur. „Þess verður hins
vegar gætt að gengið verði frá
húsum og lóðum jafnóðum, en til
samanburðar má nefna að um 40%
lóða í Múlahverfi em enn ófrá-
gengnar. Þá verða bflastæði um
helmingi fleiri á þessu svæði. Fyrir
nokkmm ámm var gerð umferðará-
ætlun á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og miðað við niðurstöður hennar
verður Smárahvammur nánast á
miðju svæðinu. Reykjanesbraut
verður breikkuð og ýmist byggðar
yfír hana brýr eða gerð undirgöng,
svo hún verður greiðfær. Þá má
nefna að um helmingur íbúa höfuð-
borgarsvæðisins er innan við 10
mínútna akstur frá Smárahvammi.
Við skipulagið var leitað fanga í
Bandaríkjunum og við viljum gera
svæðið að mannlegum vinnustað,
m.a. með því að hafa þar græn
svæði. Þá má nefna að í hjarta
svæðisins verður veitingahús og
bamaheimili,“ sagði Hallgrímur.
KÓPAVOGUR
Hugmyndir Frjáls framtaks um skipulag þess svæðis, sem fyrirtæk-
ið á í Smárahvammslandi.
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar frumflytur Sinfóníu nr. 6 eftir Mahler
í Háskólabíói á laugardag.
Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar flytur verk Mahlers
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
flytur á laugardaginn Sinfóniu
nr. 6 eftír Mahler, undir stjórn
Pauls Zukofskys. Þetta verður
í fyrsta skipti, sem verkið er
flutt hér á landi.
Þessir tónleikar eru afrakstur
námskeiðs hjá Sinfóníuhljómsveit
æskunnar, en hljómsveitin hefur
áður frumflutt viðamikil verk hér-
lendis. Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar er nemendahljómsveit fyrir
tónlistamemendur af öllu landinu
og hefur starfað síðan á ári æsk-
unnar 1985.
Á námskeiðinu nú em 100 tón-
listamemendur sem æft hafa
sleitulaust síðustu 10 daga og mun
námskeiðinu ljúka með tónleikum
í Háskólabíói, laugardaginn, 7.
janúar kl. 14.30.
(Úr fréttatilkynningu)
Norræna húsið:
Ný íslensk
djasslög
Laugardagínn 7. janúar verða
haldnir djasstónleikar í Norræna
húsinu. Þar verða leikin 10 lög
eftir Tómas R. Einarsson og éru
8 þeirra samin á liðnu ári. Um
er að ræða frumflutning flestra
laganna, en við samningu þeirra
naut höfúndur styrks úr Tón-
menntasjóði Rásar tvö.
Tómas er þekktur sem kontrabas-
saleikari, en hann samdi einnig flest
lögin á hljómplötunum „Þessi ófétis
jazz og Hinsegin Blús“.
Fyrir lög sín á þeirri síðamefndu
fengu þeir Tómas og Eyþór Gunnars-
son góða dóma og danski gagnrýn-
andinn Boris Rabinowitch sagði m.a.
um þau í plöturýni sinni í Politiken
í fyrra: „Þessar tónsmíðar eru mörg-
um gæðaflokkum ofar þeim lögum
sem menn eru vanir að heyra frá
djassmúsfköntum".
Þeir sem spila á tónleikunum f
Norræna húsinu eru auk Tómasar;
Birgir Baldursson trommur, Ásgeir
Steingrfmsson trompet, Eyþór Gunn-
arsson pianó, Sigurður Flosason altó-
og barítónsaxófón og Össur Geirsson ■
á básúnu.
Tónleikamir hefjast kl. 16.00.
(Fréttatilkynning)
Varmahlíð:
Leikfélag Skagfirðinga
sýnir „Uppreisn á Isafírði“
Varmahlíð.
Leikfélag Skagfirðinga frum-
sýndi á miðvikudagskvöld sjón-
leikinn, „Uppreisn á fsafirði",
eftir Ragnar Arnalds.
Húsfyllir var á sýningunni og
komust færri að en vildu. Þetta er
viðamikil og vönduð sýning og gekk
hún vel í alla staði. Voru leikarar
og leikstjóri, hylltir lengi í lok sýn-
ingarinnar, svo og höfundurinn, en
hann fer sjálfur með hlutverk í
leiknum og hefur verið með í ráðum
við þessa uppfærslu.
Næstu sýningar hafa verið
ákveðnar helgina, 6.-8. janúar og
a.m.k. þijár sýningar helgina,
13.—15: janúar.
- P.D.
Tómas R. Einarsson bassaleikari
og tónskáld.