Morgunblaðið - 06.01.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989
31
Minninff:
Karítas R. Péturs-
dóttirfrá Dröngum
í dag, föstudag, kveðjum við
ömmu okkar Karítas Ragnheiði
Pétursdóttur, er lést á fyrsta degi
nýárs. Amma var vel að hvíldinni
komin. Hún varð 96 ára í septem-
ber í haust er leið. Hún fæddist á
Veiðileysu á Ströndum 11. sept-
ember 1892.
Hún var dóttir hjónanna Péturs
Söbeck og Ágústínu Benedikts-
dóttur og var þriðja bam þeirra
en systkinin voru 7 talsins. Amma
Karítas giftist afa okkar Eiríki
Guðmundssyni frá Dröngum í
Strandasýslu árið 1917. Þar
bjuggu þau búi sínu til ársins
1947, en þá fluttust þau til Akra-
ness. Aftur fluttu þau norður árið
1950. Voru þar næstu þijú árin.
Þá fluttu þau í Kópavog. Þar reistu
þau reisulegt hús við Kópavogs-
brautina. Þar bjuggu þau uns afi
okkar dó árið 1976.
Þá flutti amma til dóttur sinnar,
og síðan á Hrafnistu, en þar var
hún vistmaður uns hún lést. Amma
og afi eignuðust átta börn og þau
eru: Guðmundur, kvæntur Val-
gerði Jónsdóttur. Aðalsteinn, hann
lést ungur. Anna Ágústa gift
Magnúsi Jónssyni. Anna Jakobína
gift Kára Kárasyni. Lilja Guðrún
gift Friðbert Elí Gíslasyni. Hann
lést árið 1980. Elín gift Aðalsteini
Örnólfssyni. Pétur kvæntur Svan-
hildi Guðmundsdóttur og Álfheið-
ur gift Þóri Kristinssyni. Barna-
börn ömmu eru 29, bamabömin
49 og barnabarnabörnin 3.
Alls em niðjar ömmu og afa
okkar 89. Hun hafði mikla ánægju
af að ferðast. Þrátt fyrir háan ald-
ur fór hún norður á Strandir í
sumar til að taka þátt í ættar-
móti. Þar hittist stór hluti afkom-
enda hennar og átti góða stund
saman. Amma var mjög ljúf kona,
sem hafði sig lítið í frammi. Okk-
ur, bamabörnunum hennar, þótti
ætíð gott að koma til hennar.
Ævi ömmu er lokið. Við geym-
um minninguna um hana í hjarta
okkar. Þær verða ófáar sögurnar
sem við getum sagt okkar bömum
af ömmu og afa, merkishjónunum
frá Dröngum.
Guð blessi ömmu okkar.
Hafsteinn, Ómar, Frið-
bert, Elín, Anna, Þor-
björg og fjölskyldur.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Breytt símanúmer
Mánudaginn 9. janúar nk. flytur tekju- og
lagasvið fjármálaráðuneytisins í Arnarhvol
við Lindargötu (inngangur um austurdyr,
áður húsnæði ríkisféhirðis). Beint símanúmer
tekju- og lagasviðs verður frá og með sama
tíma 91-609230.
Viðtals- og símatími skattadeildar er frá kl.
9.00 til 10.30 alla virka daga.
Viðtalstími tolladeildar er frá kl. 9.00 til
10.30, símatími frá kl. 10.30 til 12.00 alla
virka daga.
Fjármálaráðuneytið,
5. janúar 1989.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar at-
kvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðar-
mannaráðs og endurskoðenda í Verzlunar-
mannafélagi Reykavíkur fyrir árið 1989.
Framboðslistum eða tillögum skal skila á
skrifstofu félagsins, Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi
mánudaginn 9. janúar 1989.
Kjörstjórn.
DAGSBRUN
Tillögur
Tillögur uppstilllingarnefndar og trúnaðar-
ráðs um stjórn og aðra trúnaðarmenn verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar fyrir árið 1989,
liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og
með 6. janúar 1989. Öðrum tillögum ber að
skila á skrifstofu Dagsbrúnar fyrir kl. 17.00
þriðjudaginn 10. janúar 1989.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
| fundir — mannfagnaðir \
13. gleði Sinawik Reykjavík
Okkar árlega jólatrésskemmtun verður haldin
í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 7. janúar
frá kl. 14.00-17.00.
Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Jólatrésskemmtun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jóla-
trésskemmtun fyrir börn félagsmanna sunnu-
daginn 8. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi.
Miðaverð fyrir börn kr. 400,- og fyrir full-
orðna kr. 100,-.
Miðar eru seldir á skrifstofu V.R., Húsi versl-
unarinnar, 8. hæð.
Upplýsingar í síma 687100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Rússneskunámskeið MÍR
Síðdegisnámskeið fyrir byrjendur í rússnesku
hefjast nú í janúar, ef næg þátttaka fæst.
Upplýsingar veitir kennarinn, Rúslan
Smirnov, í síma 17928 næstu daga.
MÍR.
húsnæði óskast
Félagasamtök
Gamalgróið virt veislueldhús vantar sali til
mannfagnaða o.fl. í öllum stærðum til leigu
og/eða til að vísa á. Eldunaraðstaða, borð-
búnaður og önnur eldhúsáhöld óþörf.
Tilboð sendisttil auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Veisla - 8105“.
Notuð járnsög (hjakkari)
Viljum kaupa notaða járnsög (hjakkara).
Vinsamlegast hringið í síma 93-47740 (Þorgeir).
Þörungaverksmiðjan hf.
atvinnuhúsnæði
Skrifstofuhúsnæði
80-100 fm óskast helst með aðgangi að
þjónustu, svo sem fundaraðstöðu, símaþjón-
ustu, Ijósritun og póstfaxi.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„H - 2611“.
Til leigu
verslunarhúsnæði
Ca 100 fm verslunarhúsnæð við Hlemm til
leigu. Laust strax.
Upplýsingar í símum 680510 og 686535.
Borgnesingar
- Mýramenn
Egill, félag ungra sjálfstæöismanna Mýrasýslu, heldur aðalfund sinn
laugardaginn 7. janúar kl. 14.001 Sjálfstæöishúsinu við Brákarbraut.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík
verður haldinn miðvikudaginn 11. janúar
nk. kl. 21.00 í Átthagasal Hótels Sögu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins verður Friörik Sophus-
son, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
3. Önnur mál.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
Akranes
- bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn i Sjálfstæðis-
húsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
8. janúar kl. 10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Áramótaspilakvöld Varðar
Landsmálafélagið Vörður heldur áramóta-
spilakvöld sunnudaginn 8. janúar í Súlnasal
Hótel Sögu. Húsið opnað kl. 20.00. Glæsi-
legir vinningar, þ.á m. flugferð til Glasgow,
bækur, matarkarfa o.fl. Miðaverð er kr.
600,- og gildir miðinn sem happdrætti-
smiði, sem er veglegur vinningur.
Þorsteinn Pálsson flytur ávarp. Jóhannes
Kristjánsson, eftirherma, skemmtir.
- Mætið timanlega -
Landsmálafélagið Vörður.