Morgunblaðið - 23.03.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1989
Yfirdráttur
nkissjoðs í
Seðlabanka
11,3 milljarðar
STAÐA ríkissjóðs hjá Seðla-
banka versnaði um 2,4 miHj-
arða frá áramótum til febrú-
arloka, og var þá óhagstæð
um 11,345 miiyarða króna. Á
sama tima batnaði lausa^ár-
staða innlánsstofnana um 4,1
milljarð króna og var 8,2
milljarðar í febrúarlok.
Höfðu innlán þá aukist um
2,6% en útlán staðið í stað.
Eiríkur Guðnason aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans sagði
að breyting á innheimtu sölu-
skatts hefði haft áhrif, bæði á
lausafjárstöðu innlánsstofnana
og ríkissjóðs. Nú er söluskattur
innheimtur nokkrum dögum eft-
ir mánaðamót, til samræmis við
uppgjör greiðslukorta. Reglum
um lausafjárbindingu banka var
auk þess breytt um sfðustu ára-
mót og við það batnaði lausafj-
árstaða nokkurra banka.
Innlánsstofnanir eru bankar,
sparisjóðir, kaupfélög og Póst-
gíróstofan.
Sendiráð losna
við söluskatt
af áfengi
beint úr tolli
SENDIRÁÐ hafa getað feng-
ið áfengi, þar með talinn bjór,
beint frá tollvörugeymslu.
Hefúr áfengið þá ekki farið
um sölukerfi Áfengis- og tó-
baksverslunar ríkisins og
söluskattur hefúr ekki verið
greiddur af þvf. Höskuldur
Jónsson forstjóri ÁTVR hefúr
ritað fjármálaráðherra bréf
og tjáð honum að hann álíti
þetta óviðunandi og er málið
nú f athugun í Qármálaráðu-
neytinu.
Höskuldur Jónsson segir að
lögum samkvæmt þurfí að
sækja um heimild til ÁTVR til
að geyma áfengi í tollvöru-
geymslu. Honum sé ekki kunn-
ugt um að slíkt erindi hafí bo-
rist ÁTVR, að minnsta kosti
ekki í sinni forstjóratíð þar.
ÁTVR hefur hins vegar einnig
selt sendiráðum áfengi og þá
þurfa þau að greiða söluskatt
af því.
Fór lóan
aldrei burt?
LÓUR virðast hafa sést af og
til í vetur við Sundin f
Reykjavík. Ólafúr Oddsson
verktaki segist hafa séð yfir
30 lóur f hóp f Kleppsvfk, þann
3. desember, og að star&menn
skipaafgreiðslu Sambandsins
á Holtabakka hafi einnig séð
lóuhóp í janúar. Ævar Peters-
en fúglafræðingur segir ólík-
legt að lóuhópar séu hér yfir
vetrarmánuðina, en vill þó
ekki fortaka það.
Lóa sást í Viðey á þriðjudag,
og sagði Ævar Petersen að á
þessum tíma mætti vel fara að
búast við lóunni, þótt flestar
kæmu þær í aprflbyijun.
Hann sagði að fyrir kæmi að
ein og ein lóa yrði strandaglópur
á íslandi, þegar félagar hennar
fara til Evrópu til vetrarsetu.
Slíkt væri þó sjaldgæft og hann
vissi ekki tfl að heilir hópar hafi
dvalist hér á landi yfír veturinn.
Áskriflt Stöðv-
ar 2 hækkar
ÁSKRIFTARGJALD Stöðvar
2 hækkar um 330 krónur, eða
22,5%, um næstu mánaða-
mót. Gjaldið er nú 1.465
krónur en verður 1.795 eftir
hækkun.
25 milljónir í
snjómokstur
SNJÓMOKSTUR f Reykjavík það
sem af er vetrar hefúr kostað
borgarbúa um 25 milljónir og víða
eru umferðarmerki og önnur
umferðarmannvirki illa farin þar
sem snjóruðningstæki hafa farið
um.
„Götur borgarinnar eru víða mjög
illa famar og er það fyrst og fremst
vegna aukins umferðarþunga undan-
farin ár,“ sagði Ingi U. Magnússon
gatnamálastjóri. „Með aukinni vel-
meg^un komu fleiri bílar en svo hafa
nagladekkin líka sín áhrif. Við höfum
dreift rúmlega 4.000 tonnum af salti
og hefur ekki verið dreift jafn miklu
síðan snjóaveturinn mikla 1983 til
1984 en því er við að bæta að gatna-
kerfíð hefúr lengst síðan auk þess
sem við höfum aukið þá vegalengd
sem er söltuð. Þannig að saltmagn
á hvem fermetra er minna nú en
var. Þetta er því enginn saltaustur
heldur dreifíng í hóflegu magni því
minna getur það ekki verið."
Ingi sagðist verða var við minnk-
andi notkun nagladekkja og telur
hann að hún hafi dregist saman um
15% og sparað borginni um 10 til
15 millj. „Saltið hefur slæm áhrif
að vissu leyti. Það leysir ekki upp
malbikið en heldur götunum lengur
rökum en ella og þá verður yfirborð
þeirra viðkvæmara fyrir þeirri áraun,
sem notkun nagladekkja veldur. Að
því leyti er það skaðvaldur," sagði
Ingi.
Morgunblaðið/Bjarni
Götur eru víða illa farnar eftir veturinn eins og sjá má á þessari
mynd sem tekin var á Miklubraut neðan við Ártúnshöfða.
Samræmd próf fara fram síðustu viku aprílmánaðar:
Verkfall kemur mis-
jafnt niður á skólum
RÚMLEGA íjögur þúsund nemendur i 9. bekk grunnskólans eiga
að gangast undir samræmd próf i Qórum námsgreinum, íslensku,
stærðfræði, ensku og einu norðurlandamálanna, síðustu viku april-
mánaðar. Hrólfúr Kjartansson, deildarstjóri skólarannsóknardeildar
menntamálaráðuneytisins, segir ekki fyrirsjáanlegt að breytt verði
neitt prófáætlun, þó til boðaðs verkfalls Hins íslenska kennarafélags
komi hinn 6. april næstkomandi og það standi enn þegar samræmdu
prófin eiga að fara fram, prófúnum verði ekki frestað. Um Qórðung-
ur félaga í HÍK kennir í grunnskólunum eða rúmlega 300 af um
1.200, þar af langflestir í 7.-9. bekk.
Hrólfur sagði erfítt að segja til
um hvaða áhrif verkfallið hefði í
grunnskólunum, það væri mjög
mismunandi eftir skólum og jafnvel
frá einum bekk til annars innan
sama skólans. „Grunnskólamir
stöðvast ekki út af þessu einu sér,
en óhjákvæmilega hlýtur kennsla
að falla niður í þeim bekkjum og
þeim fögum sem þetta fólk kennir.
Þegar kennsla fellur niður í þeim
greinum sém prófað er í samræmt,
þá hljóta þeir krakkar sem verða
fyrir barðinu á því að verða illa úti
svona síðasta mánuðinn fyrir próf,“
sagði Hrólfur.
Aðspurður um reynsluna af hálfs
mánaðar verkfalli HÍK vorið 1987
sagði hann að því hefði verið aflýst
í tíma fyrir samræmdu prófín og
erfitt væri að meta hvort og þá
hvaða áhrif það hefði haft á útkomu
prófanna. Reynt hefði verið að
bæta inn aukakennslustundum fyrir
þann tíma sem glataðist í verkfall-
inu og það hefði bætt að einhvetju
leyti upp þá kennslu sem féll niður.
Röskunin og rótleysið sem verk-
fallið hefði haft í för með sér hefði
að líkindum verið einna verst.
Hrólfur benti einnig á að óljóst
væri með aðrar aðgerðir en verk-
fall, til dæmis af hálfu Kennarasam-
bands íslands. Hann væri ekki að
ætla því eitt eða neitt, en það.væri
vitað mál að kennarafélögin stæðu
saman í svona baráttu, þó þau
væru ekki bæði í verkfaili.
Hann sagði óljóst hvaða staða
kæmi upp í sambandi við sam-
ræmdu prófín, ef meirihluti kennara
í skóla væri í verkfalli, þ.e. hvort
yfirseta annarra en viðkomandi
kennara væri verkfallsbrot eða
ekki. Á það hefði aldrei reynt. Eng-
ar reglur segðu til um að það yrðu
að vera kennarar sem sætu yfir.
Samræmdu prófín færu algjörlega
fram á vegum ráðuneytisins. Út frá
því sjónarmiði mætti segja sem svo
að hver sem ráðuneytið kysi gæti
iagt prófín fyrir.
Halldór Ásgrímsson:
Vísinda-
áætlunin
verður ekki
endurskoðuð
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, segir að það
standi ekki til að endurskoða
visindaáætlun fslendinga þótt
markaðir tapist erlendis vegna
andstöðu við vísindaveiðar á
hvölum. Nú siðast lýsti banda-
ríska veitingahúsakeðjan Red
Lobster því yfir. að enginn fiskur
yrði keyptur af íslendingum fyrr
en vísindaveiðum yrði hætt.
Forráðamenn General Mills, sem
reka Red Lobster, létu í ljósi
áhyggjur yfír hvalveiðum íslend-
inga og vöruðu við því að svo gæti
farið, sem fór, þegar þeir áttu fund
með sjávarútvegsráðherra í vetur.
Ráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fulltrúar General Mills
hefðu sagt að þeir vildu ekkj taka
áhættu á mörgum sviðum. Önnur
vandamál, til dæmis umtal um
mengun, öngruðu fyrirtækið líka.
„Við munum ljúka okkar
vísindaáætlun næsta sumar og ég
á von á að þetta fyrirtæki haldi
áfram viðskiptum við okkur. Það
kom fram hjá þeim að þeir hafa
fullan hug á að skipta við íslend-
inga og hafa ekki undan neinu að
kvarta. Hins vegar virðast einhveij-
ir í fyrirtækinu hræðast hótanir,"
sagði ráðherra. „Ég er þeirrar skoð-
unar að við getum ekki látið undan
svona hótunum, og ég harma að
ábyrg fyrirtæki skuli gera það, en
ég býst við að þeir muni endur-
skoða afstöðu sína þegar okkar
vísindaáætlun verður lokið."
Forráðamenn Sambandsins og
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
telja heillavænlegast að reyna að
ljúka vísindaáætluninni án þess að
fleiri hvalir verði veiddir, og hefur
þeirri skoðun ítrekað verið komið á
framfæri við stjórnvöld óbeint, þótt
ekki hafi verið farið formlega fram
á slflct.
„Ég tel að ef hægt væri að ljúka
vísindaáætluninni án þess að taka
fleiri hvali, væru meiri líkur til þess
að hægt væri að ná skynsamlegri
samstöðu meðal þeirra þjóða, sem
hlut eiga að máli, og viðkomandi
hagsmunaaðila, að nýta öll sjávar-
dýr miðað við langtímahagsmuni,"
sagði Friðrik Pálsson, forstjóri SH.
„Það er líklegra til árangurs en að
beijast í andstöðu við stóra hópa.
Það eru deildar meiningar um þetta,
og menn jeggja mismunandi mat á
stöðuna. Ýmsir aðrir eru á algerlega
andstæðri skoðun og telja að ef
gefíð væri eftir hið minnsta hvað
varðaði vísindaáætlunina væri mál-
ið endalega tapað. Þar er ég aftur
á móti ósammála."
Nýr útflutningur til Rússlands:
Kaupa Lödur til
niðurrifs úti á sjó
SVO vfrðist sem ný útflutningsgrein sé komin til sögunnar hér
á landi. Nokkuð hefúr borið á því undanfarið að sovéskir sjó-
menn, sem koma til hafnar í Reykjavík, kaupi gamlar Lödur, sem
íslendingar hafa fleygt, og hafi þær með sér um borð í skip sín.
Þeir hafa keypt bílhræin hjá Vöku og einnig hafa þeir fengið
að rífa bfla hjá Sindra hf. Þeir hafa sagst ætla að rífa bilana í
hafi og hirða það sem nýtilegt er úr þeim og hafa með sér heim
til Sovétríkjanna.
„Það komu hingað nokkrir
Rússar um daginn þegar ísbijót-
urinn var héma og þeir keyptu
af okkur þijú flök,“ sagði Steinar
Gunnsteinsson hjá Vöku hf. „Við
mundum nú ekki kalla þetta ann-
að en hræ, en það virðist vera
gull í þeirra augum." Steinar
sagði að Rússamir hefðu keypt
bílflökin á fimm, sjö og tíu þúsund
Morgunblaðið/Sigurður Rúnar Gislason
Gömlum Lödum skipað út i sovéska ísbijótinn Otto Schmidt i
Reykjavíkurhöfii á dögunum. Þrjár eru á hafnarbakkanum og
ein er komin um borð. Sovétmennirnir sögðust ætla að rífa bílana
úti á sjó og taka nýtilega hluti með sér heim.
Sindra hf. „Þegar skipin koma
þá sækja þeir mikið til okkar.
Þetta sýnir hvað er mikill skortur
hjá þeim. Þetta em verðmæti fyr-
ir þá sem við erum að grafa.“
krónur. Bflamir voru af árgerðun-
um 1980 og 1981, „alveg verð-
lausir bflar," sagði Steinar. „Þeir
eru að hirða hér alveg ótrúlegustu
hluti, þurrkublöð og þéttikanta til
dæmis. Það hefur verið straumur
af þeim hingað þegar þeir hafa
verið í höfn og þeir hafa verið
dijúgir að hreinsa hluti sem okkur
þykir lítil verðmæti í.“
„Það komu Rússar til okkar og
fengu Lödu sem þeir rifu í spón
í portinu hjá okkur. Svo bám þeir
hlutina um borð,“ sagði Ásgeir
Einarsson framkvæmdastjóri