Morgunblaðið - 23.03.1989, Síða 16
‘16
kÓkGÚNBLÁÐÍÐ mm»Ah\Íká: itlik 1989
' ■
^ i
’ ; ' ■
Eitthvad fyrir
#;
: ■.■• . , :' .
■■ ■■■ ■'■,:•
r- ■
Fimm þús-
und norræn
ungmenni á
leið til Sov-
étríkjanna
Undirbúningnr að þátttöku
íslenskra ungmenna í hópferð
5000 norrænna ungmenna til
Sovétríkjanna í september er
nú hafinn. Ferðin er skipulögð
af hreyfingu sem nefiiir sig
Næsta skref Sovét (Next Stop
Soviet) sem varð til í framhaldi
af hliðstæðu ferðalagi til
Bandaríkjanna vorið 1987, sem
nefndist Næsta skref Nevada,
og um 60 dönsk ungmenni tóku
þátt í.
Fyrirkomulag þessarar ferðar
er þannig að áhugahópar á ýmsum
sviðum hafa þriggja vikna dvöl í
Sovétríkjunum og tengjast viðlíka
hópum þar. Meðal þeirra sem taka
þátt í undirbúningi ferðarinnar hér
á íslandi eru þrjár hljómsveitir,
leikhópur úr fjölbrautaskóla, ljóð-
skáld, myndlistarmenn og áhuga-
fólk um mótorhjól. Er talið líklegt
að um hundrað manna hópur fari
héðan.
Morgunblaðið tók tali þær Þó-
runni Óskarsdóttur og Sigríði
Richards, sem sæti eiga í fram-
kvæmdanefnd. Þær sögðu að gist
yrði á sovéskum einkaheimilum
og hefðu þeir aðilar í Danmörku
sem bæru hitann og þungann af
skipulagi ferðarinnar unnið að því
að fínna hópa og einstaklinga inn-
an Sovétríkjanna sem vildu taka
á móti fólki er hefði svipuð áhuga-
mál og það sjálft. Einn megintil-
gangur ferðarinnar sögðu þær
vera að auka skilning milli þessara
mismunandi menningarsvæða og
losna við fordóma sem tengdust
hugtökum á borð við „austur og
vestur“. Þetta eru tvíhliða skipti
því í maí kemur stór hópur sov-
éskra ungmenna til Norðurland-
anna í sama tilgangi og sögðust
þær vona til þess að fá sovéska
hljómsveit hingað til lands.
Hver hópur verður með sína
ijármögnunarstarfsemi og sögðu
þær Þórunn og Sigríður að famar
yrðu úölbreittar leiðir til að fjár-
magna ferðina. Ýmsar uppákomur
yrðu skipulagðar, s.s. tónleikar og
götuleikhús, en einnig yrði beðið
um opinberan styrk. Það dýrasta
í þessu dæmi væri flugið til Dan-
merkur en þaðan héldu menn
áfram á mjög mismunandi vegu,
sumir færu með flugi, lest eða
rútu en einnig á óhefðbundnari
hátt svo sem seglskútum og hjóla-
skautum. Einnig myndu fimm
víkingaskip sigla frá Kaupmanna-
höfn til Leníngrad.
LÍKAMSRÆKT SEM LÍFSSTÍLL
Á hverjum degi bætastfleiri í hóp þeirra, sem
stunda líkamsþjálfun reglulega. Þetta fólk er
sammála um það, að fljótlega fer kroppurinn
að breyta um lögun, styrkjast og mótast. - Þol
og kraftur eykst og almenn vellíðan batnar til
muna.
Er ekki kominn tími til
að þú slúist
í hópinn?
Hugsaðu
um heilsuna
í dag,
þá hugsar
heilsan
um þig
á morgun.
leiöin tii arangurs
★ Magi, rass og læri
★ Þrekhringur
★ Púltímar
★ Eróbikk
★ Karlatímar
★ Barnshafandi
GLEÐILEGA PASKA
Barnagæsla
og svo auðvitað Ijós og sauna.
Frábærir kennarar með þekkingu, reynslu og
hressilegt andrúmsloft
STÚOlÓ J Ó NIN U & ÁGÚSTU
SKEIFUNNI7 SÍMI: 68 98 68
ÓSKUM VIÐSKIPAVINUM OKKAR
opib alla páskahelgina 10:00 til 21:00
ath. babhúsíb hefur verib stækkab
og bílastœbum fjölgab
jlAA LOf
töfrandi baðstaður
jafht sumar
sem vetur