Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
Yfirlýsing forsætisráðherrafundar EFTA-ríkjanna:
Meira samstarf EF
EB eflir hagsæld E1
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
MagnúsFinnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið.
Birta
páskahátíðarinnar
Margir hafa líklega rekið
upp stór augu, þegar
þeir lásu það í Morgunblaðinu
sínu í gær, að blessuð lóan
væri komin. Hún sást spíg-
spora í fjörunni í Viðey á vor-
jafndægri, 21. mars. Undrun-
in stafar ekki af því, að þessi
vorboði sæki okkur heim,
heldur hinu að hann skuli
koma svona snemma í því
tíðarfari sem hefur hrellt okk-
ur frá jólum.
Koma lóunnar á alhvíta jörð
minnir okkur á andstæðumar
í náttúrunni. Hún er gleðileg
áminning um að veturinn fer
að hörfa fyrir vorinu og síðan
tekur sumarsólin að skína í
allri sinni dýrð. Kristinn boð-
skapur páskanna er svipaður.
Hinn krossfesti Kristur rís upp
frá dauðum, ljósið sigraði
myrkrið. Unnt er að brjóta
af sér hlekkina og öðlast fyrir-
gefningu syndanna.
í vestrænum þjóðfélögum
hefur þeim félagsskap manna
vaxið fiskur um hrygg á und-
anfömum árum og áratugum,
sem sameinar þá er berjast
daglegri baráttu til að sigrast
á neyslu vímuefna, einkum
áfengis. Innan AA-samtak-
anna er unnið fórnfúst starf
í kyrrþey sem hefur orðið
mörgum einstaklingi og
margri fjölskyldu til bjargar
og gefið jafnt börnum sem
fullorðnum nýja trú á lífið.
Það er táknrænt fyrir þessi
samtök, að þau efna jafnan
til almenns stórs fundar í
Háskólabíói á föstudaginn
langa; daginn sem krossfest-
ingarinnar er minnst og fyrir-
heitið var gefið um að syni
Drottins væri fórnað til að
mennimir fengju syndaaf-
lausn. Um þessa páska verður
þess minnst, að íslensku AA-
samtökin voru stofnuð fyrir
35 ámm.
Inntakið í boðskap AA-
samtakanna samrýmist vel
viðhorfum kristinna manna,
sem eiga hver um sig að vera
ábyrgir gagnvart sjálfum sér
og bogna ekki undan þunga
daglegs lífs og sækja styrk
sinn til Guðs. í dag starfa 190
deildir AA-samtakanna um
land allt og þar af era í
Reykjavík 90 deildir, erlendis
era 5 íslenskumælandi deildir.
Hver þessara deilda heldur að
minnsta kosti einn fund í viku,
og er fundarsókn allt frá 5-10
manns og uppí 150 manns á
fundi. Af þessum tölum má
sjá, að í viku hverri hittast
hundrað manna innan vé-
banda AA-samtakanna í því
skyni að vinna bug á veikleika
sínum gagnvart víni eða öðr-
um vímuefnum. Víða er þetta
göfuga og mannbætandi starf
unnið í tengslum við kirkjur
og í húsakynnum þeirra.
Viðhorf okkar íslendinga
til baráttunnar gegn áfengis-
bölinu hefur vakið athygli út
fyrir landsteinana. Öll þekkj-
um við störf SÁÁ, en sá fé-
lagsskapur starfar í anda
AA-samtakanna. Þeir sem
hafa gengið áfengi eða fíkni-
efnum á hönd og sigrast síðan
á því böli lýsa oft eigin lífí á
þann hátt, að þeir hafí fæðst
á nýjan leik. Eða eins og
AA-samtökin segja sjálf:
„AA-samtökin lofa ekki nein-
um bata, en benda má á, að
mikill fjöldi fólks hefur öðlast
nýtt viðhorf til lífsins eftir að
hafa kynnst AA-samtökunum
og fengið að njóta þess að
komast úr myrkri ofdrykkj-
unnar yfír í ljós og birtu eðli-
legs mannlífs, án áfengis."
Páskamir era fyrirheit um
birtu og yl, um að við fáum
að njóta þeirrar blessunar
Guðs að sjá náttúrana lifna
og blómgast á nýjan leik. Lóan
er lifandi staðfesting á því nú
í vetrartíðinni að vorið er á
næsta leiti. Umbreytingin
þarf þó ekki aðeins að vera
bundin við tíðarfarið og jörð-
ina sem við þurfum að hlú að
af sífellt meiri nærgætni,
heldur getur hún einnig náð
til okkar sjálfra, ef við viljum
það hvert og eitt eins og
AA-samtökin hafa sýnt og
sannað með starfi sínu. Nái
hinn kristilegi boðskapur
páskanna að festa rætur í hug
og hjarta mannanna leggst
ekki myrkur á sál þeirra, þótt
í móti blási heldur ýtir birta
upprisunnar áhyggjum og
kvíða á braut.
Morgunblaðið óskar lesend-
um sínum og landsmönnum
öllum gleðilegra páska,
Morgunblaðið birtir hér í
heild, í þýðingu íslenskra stjórn-
valda, lokaályktun fundar for-
sætisráðherra EFTA-landanna.
1. Við, forsætisráðherrar ríkis-
stjóma aðildarríkja Fríverslunar-
samtaka Evrópu (EFTA) hittumst
í Osló 14. og 15. mars 1989 til að
ræða framlag EFTA til samruna
Evrópu, samskipti EFTA-ríkjanna
og aðildarríkja Evrópubandalagsins
(EB) og markmið EFTA í heimsvið-
skiptum.
2. Við ítrekum skuldbindingar
ríkja okkar varðandi samruna Evr-
ópu. Við teljum að stefna og sam-
vinna EFTA-ríkjanna á alþjóðavett-
vangi stuðli að pólitísku og félags-
legu jafnvægi í Evrópu. Við erum
þar af leiðandi sannfærð um að
meiri samræming efnahagslífs
EFTA-landanna og Evrópubanda-
lagsins styrki Evrópu og auki hag-
sæld hennar.
3. Við lýsum ánægju okkar með
framlag Evrópubandalagsins til
meiri samræmingar með því að
koma á einum innri markaði árið
1992. Grundvöllur að samvinnu
okkar við Evrópubandalagið er
sameiginlegur menningararfur,
sameiginlegar hugmyndir um
grundvallargildi lýðræðis og mann-
réttinda, landfræðileg nálægð og
hversu háðar þjóðimar eru hver
annarri á sviði iðnaðar, viðskipta
og tæknilegrar þróunar. Við erum
sammála um að óhindruð viðskipti
og opnir markaðir séu mikilvægir
til að stuðla að efnahagsþróun og
fullri atvinnu. Við erum reiðubúin
til að taka höndum saman við ríki
Evrópubandalagsins til að bæta
velferð ríkisborgara okkar.
4. Við ítrekum markmið Stokk-
hólmssáttmálans og fríverslunar-
samninganna við EB svo og sameig-
inleg markmið með Evrópubanda-
laginu eins og þau birtast í Lúxem-
borgaryfirlýsingunni árið 1984 um
að koma á fót samræmdu og virku
evrópsku efnahagssvæði (EES),
sem nær til allra aðildarríkja EFTA
og EB.
5. Við lýsum ánægju með þann
árangur sem náðst hefur í að af-
Hér birtist í heild ræða
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra á fundi EFTA-
landanna í Osló 14.-15. mars:
Leyfist mér, frú forsætisráð-
herra, að hefja mál mitt með þv!
að þakka fyrir íslands hönd það
frumkvæði yðar að kveðja saman
þennan fund. Fundur í þessu fagra
umhverfi hér á Holmenkolen í Osló
hvetur til jákvæðrar niðurstöðu af
viðræðum okkar.
Við höfum kosið að koma saman
til fundar á mjög mikilvægum tíma-
mótum í sögu samstarfs okkar inn-
an EFTA. A þessum fundi höldum
við áfram þeirri viðleitni að sam-
ræma skoðanir okkar og aðlögun
að þróun mála í Evrópu. Það er
ekki nýtt. Þetta hefur verið sam-
felld þróun margra ára, mörg mikil-
væg skref hafa verið stigin til þess
að styrkja samstarf EFTA-ríkj-
anna.
nema hindranir í vöruviðskiptum
með iðnaðarvörur. Tollar og magn-
takmarkanir hafa verið felldar niður
og uppruna- og tollmeðferð hefur
verið einfölduð. Verulegur árangur
hefur náðst á sviði tæknilegra
reglugerða svo og varðandi örygg-
is- og heilbrigðiskröfur. Þessi þróun
hefur styrkt tengsl EFTA og EB
enn frekar og stöðu EFTA og EB
sem mikilvægustu viðskiptaaðila
hvors annars.
6. Samstarf okkar hefur aukist
á sviði rannsókna og þróunar og
samningar eru fyrirhugaðir til að
auðvelda hvers konar þjónustuvið-
skipti. A sviði menntamála og um-
hverfísvemdar miðar starfínu
áfram og hefur smám saman náð
til fjármagnshreyfinga og nokkurra
þátta er snerta óhindraðan flutning
fólks á milli landa. Á vissan hátt
hefur þessi víði samstarfsvettvang-
ur þó að öllu leyti verið í samræmi
við metnað okkar og væntingar.
7. Við þurfum að takast á við
sömu hindranir og EB í uppbygg-
ingu hins evrópska efnahagssvæðis.
Sú leið sem við ákváðum að fara í
hinni sameiginlegu Lúxemborgar-
yfírlýsingu skilar okkur á rétta leið.
Við stefnum hins vegar að því að
styrkja okkar sérstæða samband
við EB á grundvelli jafnvægis á
milli réttinda og skuldbindinga. Með
hliðsjón af því viðurkennum við að
leggja þarf fram aukið starf og
nýjar hugmyndir og viljum þannig
kanna þá möguleika sem við höfum
til að ná þessu markmiði.
8. í þessu sambandi lýsum við
ánægju okkar með yfirlýsingu frá
fundi æðstu manna Evrópubanda-
lagsins sem haldinn var á Rhódos
þar sem bandalagið óskaði eftir
nánari og auknum samskiptum við
ríki EFTA og yfirlýsingu Spánvetja,
sem nú fara með formennsku í
EB-ráðinu þess efnis að þeir lítið á
samskipti EFTA og EB sem helsta
forgangsverkefni sitt. Á sama hátt
lýsum við ánægju okkar á frum-
kvæði forseta framkvæmdastjómar
bandalagsins, Jacques Delors, á
Evrópuþinginu þann 17. janúar þar
sem hann lagði til að teknar yrðu
upp ítarlegar viðræður um umfang
EFTA hófst sem fríverslunar-
svæði fyrir iðnaðarframleiðslu ein-
göngu. Nú er EFTA samstarfsvett-
vangur meðlimaríkjanna á íjöl-
mörgum sviðum. Öll þessi starfsemi
er í þeim yfirlýsta tilgangi að und-
irbúa EFTA-löndin fyrir náið sam-
starf við Evrópubandalagið.
Tíminn heftir liðið hratt. Við
nálgumst það óðfluga að innri
markaður Evrópubandalagsins
verði að raunveruleika. Enginn virð-
ist efast um að þessu markmiði
verði náð í lok ársins 1992. Auk
þess hefur töluvert áunnist á hinum
þremur svonefndu frelsissviðum,
fjármagnsins, þjónustunnar og
vinnuaflsins.
Með víðtækan samruna Evrópu
á næsta leiti geta mikilvægar
ákvarðanir ekki lengur beðið. Sér-
hvert land verður að taka sínar
ákvarðanir.
Við erum öll Evrópubúar. Við
viljum samvinnu Evrópuþjóða,
og stofnanlegan ramma nánari
samvinnu við EFTA-ríkin.
9. Við svörum frumkvæði Delors
á jákvæðan hátt og lýsum yfír vilja
okkar til að kanna með EB að-
ferðir og leiðir til að ná fram kerfís-
bundnara samstarfí með sameigin-
legri ákvarðanatöku og stjómstofn-
unum til þess að samstarf okkar
verði árangursríkara.
10. Við gerum ráð fyrir því að
fyrirhugaður ráðherrafundur EFTA
og EB sem haldinn verður í Bruss-
el 20. mars leggi grunninn að því
að hefja viðræður um framtíðar-
form og umfang samvinnu milli
EFTA-ríkja og bandalagsins í ná-
inni framtíð.
11. Við gerum ráð fyrir því að
samningaviðræður leiði til sam-
komulags, að svo miklu leyti sem
það er mögulegt, um óhindraðan
flutning á vöru, þjónustu, fíármagni
og fólki, með það að markmiði að
koma á einu samræmdu evrópsku
efnahagssvæði. Við erum því reiðu-
búin til að kanna ýmsa möguleika
og leiðir til að styrkja formleg
tengsl milli EFTA-ríkjanna og EB.
Við myndum ekki útiloka neinn
valkost innan ramma framtíðarvið-
ræðna okkar við EB.
12. Við sjáum verulegan gagn-
kvæman hag í að þróa samstarf
okkar á öðrum sviðum, en þeir sem
tengjast beint áæluninni um innri
markaðinn. Við höfum sérstakan
áhuga á að stefna að:
— víðtækri þátttöku þeirra aðila
innan EFTA sem stunda rannsókn-
ir og iðnþróun í rannsókna- og þró-
unaráætlunum bandalagsins og
leggja þannig fram verulegan skerf
til að bæta samkeppnisstöðu evr-
ópsks iðnaðar.
— auknu samstarfí á sviði
menntamála til að auðvelda óhindr-
uð skipti á nemendum, kennurum
og vísindamönnum og veita gagn-
kvæmar viðurkenningar prófskír-
teina.
— finna lausn á svæðisbundnum
og alþjóðlegum umhverfísvanda-
málum með því að leggjast á eitt
og samræma starfsemi á þessu sviði
um alla Evrópu. Við erum sammála
þeirri skoðun að markmiðið með
efnahagslega sterka sameinaða
Evrópu, Evrópu sem afl jafnvægis
og friðar í heiminum. En við erum
vissulega einnig, og e.t.v. fyrst og
fremst, skulum við viðurkenna, í
leit að betri lífskjörum fyrir eigin
þjóð. Það er óbifanleg sannfæring
mín, að aðeins sterk, sjálfstæð og
fullvalda þjóð fái þjónað bæði hinu
sameiginlega evrópska markmiði
og sínum eigin svo að vel megi fara.
Því verður sérhvert land að meta
sjálft hverju það getur fómað og
hvað það muni fá. í fáum orðum
mun ég Ieitast við að lýsa stöðu
íslands.
Eins og þið vitið er mannfjöldi á
íslandi aðeins 250 þúsund manns.
Landið er því það langminnsta að
fólksfjölda af EFTA-löndunum.
Auk þess, þó að ísland tilheyri
vissulega Evrópu, er það staðsett
Ijær meginlandinu en nokkur annar
meðlimur. Fjarlægðin gerir fá-
mennri þjóð erfitt að taka af krafti
Stemgrímur Hermannsson á EFTA-fiindi:
Islendingar sjálfír hafí
stj ó rn náttúruauðlinda