Morgunblaðið - 23.03.1989, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
4
Mmnisblað lesenda
MORGUNBLAÐIÐ veitir les-
endum sínum að venju upplýs-
ingar um heilsugæslu, sérleyf-
isferðir, strætísvagna og aðra
þjónustu um bænadaga og
páska.
Slysadeild
Slysadeild og sjúkravakt Borg-
arspítalans er opin allan sólar-
hringinn. Sími þar er 696600.
Læknaþjónusta
Helgarvakt lækna er frá
klukkan 17 á miðvikudegi fyrir
páska til klukkan 8.00 á þriðju-
dagsmorgni eftir páska. Síma-
númer vaktarinnar er 21230.
Veittar eru upplýsingar um
læknavakt og lyfjabúðir í síma
18888, sem er símsvari Læknafé-
lags Reykjavíkur.
Tannlæknavakt
Á skírdag, fostudaginn langa og
laugardaginn fyrir páska verður
tannlæknastofa Sigurgísla Ingi-
marssonar, Garðatorgi 3
Garðabæ, sími 656588, opin frá
kl. 10-12. Á páskadag verður
tannlæknastofa Hannesar
Ríkharðssonar, Ármúla 26, sími
685865, opin frá klukkan 10-12,
og á annan í páskum verður tann-
læknastofa Sæbjöms Guðmunds-
sonar, Þingholtsstræti 11, sími
10699, opin frá klukkan 10-12.
Upplýsingar um neyðarvakt
Tannlæknafélagsins eru veittar í
síma 18888.
Slökkvilið
Slökkviliðið í Reykjavík hefur
símann 11100, slökkviliðið í
Hafnarfirði 51100 og slökkviliðið
á Akureyri 22222.
Lögregla
Lögreglan í Reykjavík hefur
símann 10200, en neyðarsími
hennar er 11166 og upplýsing-
asími 11110. Lögreglan á Akur-
eyri er í síma 23222, í Kópavogi
41200 og Hafnarfírði 51166.
Sjúkrabifreiðir
í Reykjavík er hægt að leita
aðstoðar sjúkrabifreiða í síma
11100, í Hafnarfírði 51100 og
Akureyri 22222.
Lyflavarsla
Á skírdag er Borgarapótek
opið til klukkan 8.00_ að morgni
föstudagsins langa. Á föstudag-
inn langa, páskadag og annan í
páskum verður Holts apótek opið
allan sólarhringinn, en á laugar-
daginn verður Laugavegs apótek
opið til kl. 22.00.
Bilanir
Bilanir í hitaveitu, vatnsveitu
og gatnakerfí tilkynnist til Véla-
miðst-ðvar Reykjavíkur í síma
27311. Þar verður vakt allan
sólarhringinn frá skírdegi til ann-
ars í páskum. Símabilanir er
hægt að tilkynna í síma 05 frá
klukkan 8.00 til 24.00 alla daga.
Rafmagnsveita Reykjavíkur er
með bilanavakt allan sólarhring-
inn í síma 686230. í neyðartilfell-
um fara viðgerðir fram eins fljótt
og auðið er.
Guðsþjónustur
Tilkynningar um guðsþjón-
ustur eru á bls. 32 og 33 í C
blaði. Skrá yfír fermingarböm
er á blaðsíðum 10, 11 og 12 í C
blaði.
Dagskrár útvarps- og
sjónvarpsstöðva
Dagskrár útvarps- og sjón-
varpsstöðvanna, ásamt efnisúr-
dráttum nokkurra dagskrárliða
eru á bls. 1-12 í B blaði.
Afgreiðslutími verslana
og söluturna
Leyfílegt er að hafa verslanir
opnar frá klukkan 9.00 til 16.00
laugardag fyrir páska, en að öðru
leyti verða þær lokaðar um pásk-
ana. Sölutumar mega vera opnir
á skírdag, laugardag fyrir páska
og annan í páskum til klukkan
23.30, en verða að venju lokaðir
á föstudaginn langa og páska-
dag.
Afgreiðslutími
bensínstöðva
Á skírdag og annan í páskum
verða bensínstöðvar opnar frá
klukkan 12.00 til 16.30, en á
laugardag fyrir páska frá klukk-
an 7.30 til 20.00. Þær verða hins
vegar lokaðar á föstudaginn
langa og páskadag.
Bifreiðastjómm er einnig bent
á sjálfsala sem eru á bensíntöðv-
um víðs vegar um borgina og á
landsbyggðinni.
Strætisvagnar
Reykjavíkur
Á skírdag verður ekið eins og
á sunnudögum, föstudaginn
langa hefst akstur um klukkan
13.00 og verður ekið samkvæmt
sunnudagstímatöflu. Á laugar-
dag fyrir páska hefst akstur á
venjulegum tíma og verður ekið
samkvæmt laugardagstímatöflu.
Á páskadag hefst akstur um
klukkan 13.00 og verður ekið
samkvæmt sunnudagstímatöflu
og á annan í páskum verður ekið
eins og á sunnudögum.
Strætisvagnar Kópavogs
Á skírdag verður ekið eins og
venjulega á sunnudögum, föstu-
daginn langa hefst akstur um
klukkan 14 og eftir það verður
ekið eins og á sunnudögum, laug-
ardaginn fyrir páska verður ekið
eins og á venjulegum laugar-
degi, páskadag verður ekið eins
og föstudaginn langa og annan
í páskum verður ekið eins og á
sunnudögum.
Mosfellsleið
Á skírdag og annan í páskum
verður ekið samkvæmt sunnu-
dagsáætlun. Engar ferðir verða
á föstudaginn langa og páska-
dag.
Langferðabifreiðir
Gera má ráð fyrir því að um
þessa páska ferðist um 5000
manns með sérleyfísbifreiðum. Á
skírdag verður ekið á öllum leið-
um samkvæmt áætlun, en á
föstudaginn langa og páskadag
eru engar ferðir á lengri leiðum,
en ekið á styttri leiðum sam-
kvæmt stórhátíðaráætlun. Á
annan í páskum er ekið sam-
kvæmt sunnudagsáætlun á flest-
um sérleyfum og __ aukaferðum
gjarnan bætt við. Áætlanir sér-
leyfísbíla um páskana kynnu að
breytast vegna ófærðar og óveð-
urs, og eins má búast við sein-
kunum ef færð á vegum landsins
er erfíð. Allar upplýsingar um
sérleyfísferðir veitir BSI í síma
91-22300.
Vegaeftirlit
Símsvari Vegaeftirlitsins veitir
upplýsingar um færð á helstu
vegum í símum 91-21000,
91-21001 og 91-21002. Vegaeft-
irlitið verður einnig með vakt frá
kiukkan 8.00 til 12.00 á skírdag,
laugardag fyrir páska og annan
páskadag.
Tilkynningarþjónusta
fyrir ferðamenn
Ferðamenn geta hringt í síma
91-686068 allan sólarhringinn
og látið vita um ferða- og tímaá-
ætlun sína, þannig að hægt sé
að gera viðeigandi ráðstafanir
komi þeir ekki fram á réttum
tíma. Eru ferðamenn hvattir til
að notfæra sér þessa þjónustu
hvort heldur sem um er að ræða
stuttar eða langar ferðir. Þjón-
usta þessi er rekin af Landssam-
bandi hjálparsveita skáta og
Landssambandi flugbjörgunar-
sveita í samvinnu við vaktfyrir-
tækið Securitas, ferðafólki að
kostnaðarlausu.
—1\: l^\ o9
Ski,darta4'"'K'-uV V?o0 23 30
Gledilega páska
(LO'
Hraórétta veitingastaóur
í hjarta borgarinnar
JK/úWíngastaóurínn
SOUTHERN FRIED
CHICKEN
á horni
Tryqgvagötu og Pósthusstrætis
Suui 16480
Surniutmdur seldi
í Bremerhaven
Djúpavogi.
TOGARINN Sunnutindur seldi á mánudag í Bremerhaven 128
tonn fyrir 14,8 milljónir króna. Meðalverð var tæpar 116 krónur
fyrir kílóið. Um var að ræða blandaðan afla, mest karfa, smá-
lúðu og ufsa. Fyrir kílóið af karfá fengust mest 178 krónur.
Afli Djúpavogsskipa er nú orð-
inn tæp 1200 tonn frá áramótum.
Þar af hefur Sunnutindur veitt 563
tonn, Stjömutindur 390 tonn og
Geir ÞH 131 tonn. Minni bátar
hafa veitt 119 tonn. Vinna hefur
verið nokkuð jöfn frá áramótum
og mikið hefur verið að gera í
SNYRTIVÖRU-S
KYNNING
miövikud. 29. mar;
kl. 10-16
\Xj
JbtAys
PARIS
SNYRTIVÖRUR
SEM FAGFOLKIÐ VELUR
MARÍA
snyrtivörudeild
STYKKISHÓLMI
marsmánuði. Tíðarfar hefur verið
ryssjótt en stillt það sem af er
mánuðinum.
Ingimar.
IJtgáfufyrirtækin Gramm hf.
og Smekkleysa sm. hafa gert
samning við Steina hf. um að
sjá um alla heildsöludreifingu á
þeim hljómplötum, kassettum
og geisladiskum sem fyrirtækin
gefa út eða flytja inn. Einnig
verður skv. samningunum unnið
að því að ná sem mestri hag-
kvæmni í markaðssetningu út-
gáfiia og innflutnings fyrir-
tækjanna.
Það skal sérstaklega tekið fram
að Steinar hf. munu engin af-
skipti hafa af ákvörðunum
Grammsins og Smekkleysu um
útgáfu og mun samningurinn
væntanlega styrkja þessa og aðra
þætti fyrirtækjanna, þar sem betri
tími mun gefast til að sinna þeim
eftir en áður.
Steinar hf. hefur að undanfömu
lagt aukna áherslu á þann hluta
rekstrarins, sem er sérhæfíng sem
dreifíngaraðili á hljómplötum fyrir
aðra útgefendur. Hefur fyrirtækið
flárfest í tölvu- og hugbúnaði til
að geta sinnt þessu hlutverki enn
betur.
Gramm og Smekkleysæ
Steinar sjá
um heildsölu-
dreifingu
(Fréttatilkynning)