Morgunblaðið - 23.03.1989, Síða 47

Morgunblaðið - 23.03.1989, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989 47 Ávarp á Alþjóða leik- húsdeginum 27. mars eftirÆvarR. Kvaran Ekki þykir þeim sem þetta skrif- ar óveiðeigandi að líkja listgrein við fagurt blóm. Þeir sem best þekkja lífsskilyrði blóma segja okkur, að ekki skipti litlu máli í ræktun þeirra að fijómoldin sé góð og næringar- rík. Úr hvers konar jarðvegi hefur íslensk leiklist vaxið? Því er fljót- svarað. Hún er vaxin úr þeim jarð- vegi, sem óþreytandi störf áhuga- manna í þessari listgrein hafa árum saman lagt fram _af ósérplægni og miklum dugnaði. Ég hygg, að áhugi íslendinga á leiklist sé almennari en hjá nokkurri annarri þjóð. Við unnum öll leiklistinni. Ekki einung- is þeir sem við hana starfa, heldur allur almenningur. Allir helstu leikarar íslands á efri árum og miðaldra eiga upphaf sitt sem slíkir á sviðum leikhúsa áhugamanna. Til dæmis voru allir þeir, sem fyrstum gafst tækifæri til þess að vinna fyrir sér með leiklistarstörf- um hjá Þjóðleikhúsinu, komnir beint úr áhugamannaleikhúsinu við Tjörnina, Leikfélagi Reykjavíkur, sem nú er að vísu skipað atvinnu- mönnum í þessari listgrein. Sjálfur var sá sem þetta skrifar einn úr þeim gæfusama hópi. Eftir hálfrar aldar starf við leiklist eru þó feg- urstu og dásamlegustu minningarn- ar bundnar við starfið sem ungur maður hjá leikfélaginu við Tjörpina. Meðal þeirra, sem átt hafa heilla- vænlegan þátt í því að halda íslenskri leiklist lifandi, eru til dæmis ýmsir framhaldsskólar, sem margir standa fyrir árlegum leik- sýningum, sem jafnan er mjög vel tekið. Sá sem þetta skrifar er einn þeirra, sem þannig komst fyrst í kynni við þessa listgrein. Ég gleymi aldrei fyrstu kynnum mínum af leiklist áhugamanna víða um land, þegar ég eftir nám erlend- is var beðinn að aðstoða við slíkar leiksýningar. Þar tel ég mig fyrst hafa kynnst áhuga á listgrein, sem lýsti sér í endalausri fórnfysi, óeigingimi og dugnaði. Þetta þekkja allir, sem borið hafa gæfu til þ>ess að stjóma leiksýningum útum land. Meðal þeirra, sem við leiklist fást víða um land, ber því Ævar R. Kvaran mikið á mannkostum, sem allir gætu tekið sér til fyrirmyndar. Þetta er jarðvegurinn, sem íslensk leiklist er vaxin úr, og er hann góður. Ég taldi þess vegna skyldu mína (sjálfur orðinn leikari að atvinnu) að reyna að gera eitt- hvað að gagni fyrir þetta dásamlega áhugasama fólk og stofnaði í þeim tilgangi Bandalag íslenskra leik- félaga, sem síðan hefur vaxið og blómgast, íslenskri leiklist til heilla. Þeir, sem nú geta haft atvinnu af leiklistarstörfum, mega aldrei gleyma því úr hvaða jarðvegi þessi listgrein er sprottin. Hagstætt verð Borðstofuborð og 4 stólar Verð kr. 58.000 afb. kr. 52.000 stgr. Greiðslukortaþjónusta VALHÚSGÖGN ÁRMÚLA 8, SfMI 82275 Höfúndur er leikari. HÖLDUM TAKTI MEÐ HÆKKANDI SÓL!! Nú er vor í lofti og við hvetjum alla til að mæta sól og sumri í fínu formi. Fátt reynist betur en 9 vikna vornámskeið í Kramhúsinu, sem hefjast 3. apríl, og úrvalið er við allra hæfi: □ MÚSÍKLEIKFIMI (þol - teygjur - dans) Kennarar: Hafdís, Elísabet og Agnes. Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar. ATH!: Sérstakir karlatímar í hádeginu. □ JASSDANS FYRIR BYRJENDUR Kennari: Agnes Kristjánsdótir. □ KLASSÍSKUR BALLET Kennari: Hany Hadaya. □ NÚTÍMA DANS Kennari: Hany Hadaya. □ BLUES Kennari: Hany Hadaya. □ „KARNIVAL" hressir og fjörugir leikfimitímar með suður-amerískum púlsi. Kennari: Joan Da Silva frá Brasilíu. □ LEIKLIST FYRIR BÖRN 7-12 ára. Kennari: Sigríður Eyþórsdóttir. □ LEIKIR OG SPUNI FYRIR BÖRN 4-7 ára, laugardaga frá kl. 12-13. á sama tíma geta foreldrar verið í músíkleikfimi. □ ANGENTÍNSKUR TANGÓ □ FLOTT FORM 7 bekkja æfingakerfið fyrir fólk á öllum aldri. Styrkir - liðkar - grennir og veitir slökun. ATH.: Stórlækkað verð Innritun alla daga frá kl. 9.30-18.00. Símar: 15103 og 17860.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.