Morgunblaðið - 23.03.1989, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
a'
{ ’
AF INNLENDUM
VETTVANGI
FRIÐRIK INDRIÐASON
Fríverslun með físk í EFTA-löndunum:
MÁLINU LOKIÐ MEÐ
SIGRIÍSLENDINGA
NÍTJÁN ára gömlu baráttumáli
íslendinga innan EFTA,
fríverslun með fisk, er nú lokið
með sigri þeirra. Leiðtogafimd-
ur EFTA i Osló samþykkti
óvænt, í ályktun sinni, að sam-
þykkja fríverslun með fisk frá
1. júlí 1990. Sá fyrirvari er þó
gerður að Finnar mega áfram
setja tolla á lax og Eystra-
saltssíld en verða að leggja
fram áætlun um afiiám þessara
sérréttinda sinna fyrir 1. jan-
úar 1993.
Fríverslun með fisk var ekki á
dagskrá þessa leiðtogafundar sem
sérstakt mál heldur átti að ræða
það á utanríkisráðherrafundi
EFTA í júní n.k. Þá átti að liggja ,
fyrir álit háttsettrar embættis-
mannanefndar um málið en nefnd
þessi var skipuð að tillögu
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra á EFTA-fundinum
í Tampere í fyrra.
Fulltrúi íslands í embættis-
mannanefndinni er Hannes Haf-
stein ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins. Hann segir að
nefndin hafí enn ekki lokið störf-
um, að minnsta kosti einn fundur
er áformaður á hennar vegum
áður en utanríkisráðherrafundur-
inn verður haldinn. Hann vill því
lítið tjá sig um málið utan að vit-
að var að það strandaði á afstöðu
Finna.
Það sem gerðist á leiðtogafund-
inum í Osló hinsvegar, og hjó á
hnútinn í þessu máli, var þrýsting-
ur af hálfu íslendinga. Þeir neit-
uðu á síðustu stundu að skrífa
undir lokaályktun fundarins nema
ákvæði um fríverslun með fisk
væri þar inni.
Afstaða íslendinganna á leið-
togafundinum um þetta efni var
ljós en samkomulag um málið
náðist ekki fyrr en á skyndifundi
forsætisráðherrana skömmu fyrir
blaðamannafund þann sem lokaá-
lyktunin var kynnt á. Steingrímur
Hermannsson sagði í samtali við
Morgunblaðið eftir blaðamanna-
fundinn að hann hefði tilkynnt
hinum leiðtogunum að íslendingar
myndu ekki standa við lokaálykt-
unina nema frjáls verlsun með
fisk fengist viðurkennd.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra Svía gaf þá'eftir í afstöð-
unni til Finna og hjó þannig á
hnútinn. Norðmenn voru þá orðn-
ir þungir á brúnina vegna þessar-
ar uppákomu og töldu að íslend-
ingar væru að eyðileggja fundinn
fyrir gestgjafanum Gro Harlem
Brundtland.
Afnám viðauka E
Það sem þetta mál hefur snúist
um er viðauki E í sáttmála EFTA
landanna. í honum er að finna
þær sjávarafurðir sem ekki njóta
tollfríðinda eða fríverslunar innan
EFTA. Afurðir þessar eru ferskur
og heilfiystur fískur, saltfiskur,
þurrkaður og reyktur fiskur og
nokkrar tegundir krabbadýra.
Frosin fiskflök og rækjur falla
hinsvegar ekki undir viðaukann.
Allt frá því að íslendingar
gengu í EFTA árið 1970 hafa
þeir barist fyrir afnámi viðauka
E. Ekki af því að miklir viðskipta-
hagsmunir væru í húfi heldur
hafa þeir talið að um grundvallar-
atriði væri að ræða, að fá al-
þjóðleg samtök á borð við EFTA
til að fallast á þá meginreglu að
verslun með fisk ætti að vera
fijáls. Slíkt væri svo hægt að
nota sem röksemd í samningum
íslendinga við önnur alþjóðleg
samtök um fiskverslun.
Það sem einkum hefur staðið í
vegi fyrir því að viðauki E fengist
afnuminn er hörð andstaða Svía.
Þeir hafa ætíð sagt að skoða ætti
málið í heild og fella niður öll
gjöld og styrkveitingar í sjávarút-
vegi áður en viðauki E væri af-
numinn. Þetta beinist einkum að
Norðmönnum sem eru stærstu
seljendur fisks á markaði í
Svíþjóð. Norðmenn hafa styrkt
mjög sjávarútveg sinn og notað
til þess hagnaðinn af olíuvinnslu
sinni. Þetta gera Norðmenn undir
merkjum byggðastefnu en örygg-
ismál koma einnig inn í dæmið.
Norðmönnum finnst nauðsynlegt
að halda nyrstu landsvæðum
sfnum í byggð af öryggisástæð-
um. Þar er vart um aðra atvinnu-
vegi að ræða en sjósókn og fisk-
vinnslu
Svíar hafa bent á að ef viðauki
E yrði afnuminn, án þess að Norð-
menn létu af styrkveitingum
sínum, hefði það í för með sér að
sænskur sjávarútvegur myndi
hreinlega leggjast af. Svíar gætu
ekki keppt á innanlandsmarkaði
við niðurgreiddan físk frá Noregi.
í ár hafa Svíar svo linast í and-
stöðu sinni og virtust geta sætt
sig við afnám viðauka E með skil-
yrðum. Þá kom óvænt fram and-
staða frá Finnum sem sögðu að
þeir gætu ekki fallist á fríverslun
með tvær fisktegundir, lax og
Eystrasaltssíld. Svíar svöruðu því
til að þetta væru einu tegundimar
sem þeir gætu selt á markað í
Finnlandi og hnútur hljóp aftur á
málið. Þennan hnút hefur emb-
ættismannanefndin verið að reyna
að leysa.
Islendingar hafa aldrei legið
undir sömu gagnrýni og Norð-
menn í þessu máli, það er að hafa
styrkt sinn sjvarútveg af hálfu
ríkisins. Enda er ekki litið á milli-
færslukerfi það sem hér hefur
verið við lýði sem styrkveitingar
heldur tilfærslu á fjármunum inn-
an sama iðnaðarins.
Tvíhliða samkomulag- við
Sviss
Hin háttsetta embættismanna-
nefnd er ekki sú fyrsta sinnar
tegundar sem reynir að leysa
þetta mál. Önnur slík var starf-
andi á árinu 1984 en árangur af
því starfí var takmarkaður. Þá
hafði verið í gildi um þriggja ára
skeið tvíhliða samningur milli ís-
lands og Sviss um fríverslun á
öllum sjávarafurðum milli land-
anna. Fyrri nefndin athugaði m.a.
hvort það samkomulag gæti legið
til grundvallar afnámi viðauka
E. I ljós kom að slíkt var ekki
hægt samkvæmt EFTA-sáttmá-
lanum þar sem sú þjóð sem afsal-
aði sér fríðindunum, í þessu til-
felli Sviss, varð að gera slíkt hið
sama gagnvart öllum öðrum
EFTA-löndum. Þannig hafa Norð-
menn til dæmis, jafnt sem íslend-
ingar geta selt sinn fisk tollfijálst
til Sviss.
Þótt Sviss sé spennandi mark-
aður í ljósi þess að þar er að finna
einn sterkasta gjaldmiðil í heimi
er athyglivert að íslendingar hafa
aldrei reynt að nýta sér hann að
ráði, og lítil sem engin markaðs-
setning hefur farið þar fram af
hálfu Islendinga. Sem dæmi um
lítinn útflutning íslendinga til
Sviss má nefna að þangað voru
flutt innan við 100 tonn af fryst-
um flökum árið 1987. Vitað er að
í Sviss er ágætis markaður fyrir
rækju og spuming hvort íslenski
lagmetisiðnaðurinn geti nýtt sér
hann í kjölfar hrunsins á V-
Þyskalandsmarkaðinum.
EB spilar stórt hlutverk
Það sem knúði á um skjóta
afgreiðslu EFTA í þessu máli, og
er þáttur í sigri íslendinga , eru
áhrifin af þeirri þróun sem nú er
að gerast innan Evrópubanda-
lagsins. Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra kom inn á
þetta í samtali við Morgunblaðið
nýlega. Þar sagði hann m.a.
að...„EB hefur alltaf sagt að það
(afnám viðauka E, innskot blm.)
væri mikill áfangi að fullkominni
fríverslun með fisk í Evrópu."
Steingrímur gat þess einnig að
þetta atriði hefði mikla þýðingu
þegar EFTA-þjóðimar kæmu
sameiginlega fram gagnvart EB
og væri áfangi að fríverslun við
EB.
Félag matvörukaupmanna og
Félag kjötverslana:
Fáránlegar blekkingar
Neytendasamtakanna
„FULLYRÐINGAR formanns Neytendasamtakanna um að í þeim
verslunum sem urðu fyrir barðinu á könnun þessari sé viðhafður
sóðaskapur vísum við á bug sem fáránlegum blekkingum. Hann er
greinilega Qölmiðlahagur maður og veit að stóru orðin eru vel þeg-
in af fréttamönnum. En þarna var of langt gengið.“ Svo segir í
yfirlýsingu frá Félagi matvörukaupmanna og Félagi kjötverslana
um könnun Neytendasamtakanna á gerlafjölda í kjöthakki og kjöt-
farsi. Félögin vísa á bug að draga megi þá ályktun af niðurstöðum
könnunarinnar að sóðaskap í verslunum sé um að kenna þegar
mengun fannst í sýnunum.
Atriði úr myndinni „í ljósum Iogum“ sem Háskólabíó hefur tekið til
sýninga.
Háskólabíó sýnir „f ljósum logum4í
Félögin segja könnunina ekki
'marktæka vegna ófagmannlegra
vinnubragða og tiltaka eftirfarandi
ástæður:
— Hvorki sýnatökudagur né sá
dagur sem sýnið var rannsakað
komi fram í könnuninni.
— Sýnatökumenn hafi ekki haft
löggildingu.
. — Framleiðandi sýna komi ekki
fram, heldur eingöngu seljandi.
— Lokaniðurstaða sé mjög
ósanngjörn í garð verslana, enda
komi fram í máli Neytendasamta-
kanná að verslunum einum sé um
að kenna.
Félögin vísa á bug að draga
megi þá ályktun af niðurstöðum að
sóðaskap í verslunum sé einvörð-
ungu um að kenna þegar mengun
fannst í sýnum. Þau rekja önnur
og fyrri vinnslustig, sem líta beri
til, það er slátrun, geymslu kjöts í
sláturhúsi, meðhöndlun og flutning
kjöts frá sláturhúsi til afurðastöðv-
ar, kjötskurð í afurðastöð, flutning
frá afurðastöð til verslunar og loks
kjötvinnslu, vatn, krydd, hveiti og
svo framvegis.
„Utanaðkomandi mengun af
völdum gerla getur því átt sér stað
á öllu þessu ferli. Þess vegna geta
hvorki Neytendasamtökin né aðrir
aðilar dæmt þessar verslanir, sem
fara aðeins með lokastig ferilsins,
sekar. Vandamálið kann að hafa
komið upp í einhveijum áður-
nefndra liða, og verður aldrei sann-
að hvar óhappið gerðist," segir í
yfirlýsingunni.
Þar segir ennfremur að félögin
telji að „Neytendasamtökin hafi í
þessu máli tekið sér undarlegt vald
til sakfellingar. Minna vinnubrögð
sem þessi mjög á aðferðir grænfrið-
unga, þar sem tilgangurinn helgar
meðalið, bersýnilega gert 5 því skyni
að auglýsa samtökin."
Félögin óska „eindregið eftir því
að Neytendasamtökin viðurkenni
villu sína og biðji hlutaðeigandi
verslanir afsökunar á þessu frum-
hlaupi sínu.“
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið tU
sýninga myndina „í ljósum log-
um“. Með aðalhlutverk fara Gene
Hackman og Willem Dafoe. Leik-
sfjóri er Alan Parker.
Myndin hefst á því að þrír ungir
menn eru myrtir af hópi manna
skammt frá litlum bæ í Mississippi.
Þetta eru ungir hugsjónamenn, sem
beijast fyrir mannréttindum svert-
ingja, snemma á sjöunda áratugn-
um. Einn ungu mannanna er svart-
ur, en hinir eru hvítir.