Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 23. MARZ 1989
57
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Alfred hetja
KR-inga
- skoraði sigurmarkið þegar 2 sek voru eftir
ALFREÐ Gíslason, sýndi mikið
harðfylgi er hann skoraði sigur-
mark KR gegn FH er aðeins
tvær sekúndur voru eftir af leik
liðanna í Haf narfirði í gær-
kvöldi. Valsmenn fylgdust
spenntir með leiknum því ef
FH hefði sigrað væri íslands-
meistaratitilinn þeirra. Vals-
menn verða því að bíða enn
eina umferðina.
Leikurinn var bráðskemmtilegur
og mikil barátta á báða bóga.
KR-ingar byijuðu betur og höfðu
lengst af forystu í fyrri hálfleik og
leiddu með tveimur
ValurB. mörkum, 10:12. í
Jónatansson leikhléi.
skrífar FH-ingar náðu að
jafna, 13:13, þegar
fimm mínútur voru liðnar af síðari
hálfleik. KR hafði síðan frumkvæð-
ið en munurinn var aldrei meiri en
FH — KR
26 : 27
íþróttahúsið í Hafnarfirði, íslandsmótið
í handknattleik - 1. deild, miðvikudag-
inn 22. mars 1989.
Gangur leiksins: 1:0, 3:5, 5:6, 8:8,
8:10, 10:11, 10:12, 13:13, 15:17,
18:20, 20:20, 21:22, 23:22, 24:22,
25:24, 25:26, 26:26, 26:27.
FH: Héðinn Gilsson 9, Óskar Ármanns-
son 5/4, Guðjón Ámason 4, Óskar
Helgason 4, Gunnar Beinteinsson 3,
Þorgils Óttar Mathiesen 1, Ólafur
Magnússon, Halfdán Þórðarson, Knút-
ur Siguðrsson, Stefán Stephensen.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
11/1, Magnús Amason 8/3.
Utan valiar: 4 minútur.
KR: Alfreð Gíslason 9/4, Stefán Kristj-
ánsson 4, Sigurður Sveinsson 4, Jó-
hannes Stefánsson 3, Guðmundur Al-
bertsson 3, Guðmundur Páisson 2, Ein-
varður Jóhannsson 1, Konráð Olavson
1, Þorsteinn Guðjónsson.
Varin skot: Leifur Dagfínnsson 13.
Utan vallar: 10 mínútur. Guðmundur
Karlsson, liðsstóri, fékk rauða spjaldið.
Áhorfendur: 500.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og
Guðjón L. Sigurðsson og dæmdu vel.
tvö mörk. FH náði forystunni í
fyrsta sinn í síðari hálfleik, 23:22,
og síðan 25:24 þegar 4 mínútur
vour eftir.
Bráðskemmtilegt
Lokamínútumar voru mjög
spennandi og mikil stemmning með-
al áhorfenda. KR skoraði næstu tvö
mörk en Óskar Ármannsson jafnaði
úr víti, 26:26, þegar tvær mínútur
voru eftir. Magnús varði þá frá
Guðmundi Pálmasyni og FH fékk
tækifæri á að komast yfir, en Leif-
ur varði frá Gunnari Beinteinssyni
af línu. KR-ingar hófu sókn þegar
30 sek voru eftir og fengu au-
kakast þegar fímm sek voru eftir.
Stillt var upp fyrir Alfreð sem reif
sig í gegnum vömina af sinni al-
kunnu snild og skoraði 27. markið
eins og áður er lýst.
„Ekkert annað hægt“
„Það var ekkert annað hægt að
gera en að rifa sig í gegn því FH-
ingar komu á móti mér,“ sagði Al-
freð eftir leikinn. „Þetta var góður
leikur þrátt fyrir taugastríð á báða
bóga. Við spiluðu langar sóknir og
vömin var góð í fyrri hálfleik en
vildi opnast í síðari hálfleik."
Leikurinn í heild var góður. FH-
ingar átti á brattann að sækja nér
allan leikinn en gáfust aldrei upp.
Héðinn var besti leikmaður liðsins,
sérstaklega í síðari hálfleik, gerði
þá sex mörk. Eins varði Magnús
vel undir lokin er hann fékk tæki-
færi.
Alflerð var bestur KR-inga. Hann
var tekinn úr umferð nær allan
síðari hálfleik og þá losnaði um
Jóhannes á línunni og Sigurð
Sveinsson í hominu. Stefán gerði
falleg mörk í fyrri hálfleik en fékk
minna að njóta sín í þeim síðari þar
sem hann var í strangri gæslu eins
og Alfreð.
Þriðji Gróttu-
sigurinn í röð
| FRAMARAR urðu fórnarlömb
Gróttumanna, sem héldu sig-
urgöngu sinni áfram - unnu
sinn þriðja leik í röð. Gróttu-
menn mættu ákveðnir til leiks
og tóku leikinn strax í sínar
hendur. Þeir skoruðu fjögur
fyrstu mörk leiksins og höfðu
yfir, 7:17, þegar f lautað var tíl
leikshlé.
Gróttumenn léku geysilegan
sterkan vamarleik — „a la
Ámi“ - í fyrri hálfleik og Sigtrygg-
ur Albertsson varði þá mjög vel.
Það er greinilegt að
Guömundur Árni Indriðason,
Jóhannsson þjálfari Gróttu-
sknfar manna, hefur kennt
mönnum sínum
galdra varnarleiksins. Gróttumenn
slökuðu síðan á í seinni hálfleik og
við það gengu Framarar á lagið og
náðu að minnka muninn í eitt mark.
Það munaði þó ekki miklu að þeim
tækist að jafna á elleftu stundu.
Jens Einarsson, markvörður Fram,
varði skot þegar tvær sek. vom til
leiksloka og kastaði knettinum fram
til Birgirs Sigurðssonar, sem stóð
fyrir opnu þegar hann fékk knött-
inn. En áður en hann náði að skjóta
gall flautan og tilkynnti leikslok.
Fram - Grótta
28 : 29 (7:17)
Laugardalshöll. íslandsmótið I hand-
knattleik, miðvikudagur 22. mars
1989.
Gangur leiksins: 0:4, 1:4, 3:7, 4:10,
5:16, 7:17. 10:18, 13:20, 17:21, 18:23,
21:26, 22:27, 24:29, 28:29.
Fram: Dagur Jónasson 9/2, Tryggvi
Tryggvason 6, Júlfus Gunnarsson 5,
Birgir Sigurðsson 4, Bjöm Eiríksson
2, Gunnar Andresson 1, Sigurður
Rúnarsson 1.
Varin skot: Jens Einarsson 8/1, Þór
Bjömsson 3/2.
Utan vallar: Tvœr mín. Gústaf Bjöms-
son, þjálfari Fram, var útilokaður frá
leiknum rétt fyrir leikslok.
Grótta: Halidór lngólfsson 10/1, Will-
um Þór Þórsson 6/5, Páll Bjömsson
6, Stefán Amarsson 4, Davíð Gíslason
2, Svafar magnússon 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
12/1, Stefán öm Stefánsson 3.
Utan vallar: Fjórar mín.
Áhorfendur. 103.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Kristj-
án Sveinsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óskar Ármannsson sést hér
sækja að marki KR-inga og skora eitt
af fímm mörkum sínum i leiknum.
Ólafur Benediktsson og Sigurður
Sveinsson, Val. Alfreð Gíslason, KR.
Héðinn Gilsson, FH.
P
Valdimar Grímsson, Júlíus Jónasson
og Jakob Sigurðsson, Val. Guðmundur
Guðmundsson, Víkingi. Halldór Ing-
og Páll Bjömsson. Gróttu.
Dagur Jónasson, Fram. óskar Ár-
mannsson, Guðjón Ámason, óskar
Helgason, FH. Stefán Kristjánsson,
Sigurður Sveinsson, Einvarður J6-
hannsson, KR.
SKÍÐI / SKÍÐAMÓT ÍSLANDS
Keppni hefsl í dag
ef veður leyfir
SKÍÐAMÓT íslands var sett í
Siglufjarðarkirkju í gærkvöldl.
Samgönguerfiðieikar ollu því
að aðeins keppendur fé
ísafirði, Reykjavík og Fljótum
auk heimamanna voru við-
staddir setninguna. Fyrirhugað
er þó að keppni geti hafist í
dag svo framarlega að veður
leyfi.
Keppendur frá Akureyri og
Dalvík voru á leiðinni akandi
til Siglufjarðar seint í gærkvöldi og
fór snjóruðningstæki á undan bíla-
lestinni. Síðast er fréttist í gær-
kvöldi var búist við að bílamir
kæmu til Siglufjarðar undir morg-
un. Ólafsfiðringar ætluðu að leggja
af stað akandi yfir til Siglufjarðar
snemma í morgun.
Að sögn Birgis Sigmundssonar,
starfsmanns mótstjómar, er búist
við að keppni geti hafist í dag kl.
13.00 þ.e.a.s. ef allir keppendur
verða komnir á mótsstað.
Alls eru 75 keppendur skráðir til
leiks frá Reykjavík, ísafirði, Dalvík,
Ólafsfirði, Akureyri, Fljótum og
Siglufirði. Keppnin í göngu og
stökki fer fram við íþróttamiðstöð-
ina að Hóli, og í alpagreinum fer
keppnin fram á hinu nýja skíða-
svæði Siglfirðinga í Skarðsdal, en
þar hafa í haust og vetur staðið
yfir miklar framkvæmdir við að
setja upp tvær skíðalyftur alls um
2.000 metra langar.
HANDKNATTLEIKUR / KONUR
Framstúlkur nær öruggar
Framstúlkur eru nær öruggar um að endurheimta íslandsmeistaratitil-
inn í 1. deild kvenna eftir sigur á Haukum, 14:17, í Hafnarfíðri í
gærkvöldi.
Tveir aðrir leikir fóru fram í gærkvöldi. Valur sigraði FH í Hafnar-
firði, 17:18 og Stjaman sigraði Þór á Akureyri, 16:25.
Ólafur gaf
réfta
tóninn
Sigurður Sveinsson f
með 11 mörk
ÓLAFUR Benediktsson gaf
Valsmönnum rétta tóninn, þeg-
ar hann fór í markið eftir sjö
mínútna leik. Þá var staðan 4:3
fyrir Víking og hafði sóknarnýt-
ing gestanna verið 100%. En
Ólafur var þeim sem þyrnir í
augum, vörn heimamanna með
Júlíus Jónasson fremstan í
flokki tvíefldist og Sigurður
Sveinsson sýndi enn einu sinni
hvers hann er megnugur í
sókninni. Sigur Vals var í höfn
í hálfleik, Sigurður gerði alls
11 mörk í leiknum og só var
munurinn f lokin, 31:20.
MT
Olafur varði 10 skot, þar sem
Valsmenn fengu boltann, en
auk þess hálfvarði hann níu skot.
Þessi markvarsla setti að því er ^
•■■ virtist æfingalitla
Steinþór Víkinga út af laginu
Guöbjartsson og þeir áttu sér
skrífar aldrei viðreisnar
von. Vörn þeirra var
sem gatasigti, markverðimir vörðu
sitt skotið hvor í fyrri hálfleik, en
Sigurður Jensson varði vel eftir hlé
og bjargaði í raun liði sínu frá enn
stærra tapi ásamt með baráttu
Guðmundar Guðmundssonar, sem
gerði fjögur síðustu mörk Víkings.
Sigurður Sveinsson gerði fimm
mörk í fyrri hálfleik og átti þrjár
stoðsendingar, en fákk á sig „yfír- '
frakka" í þeim seinni. Hann lét slíkt
ekki á sig fá og bætti um betur
eftir hlé — skoraði þá sex sinnum.
Engin furða að stuðningsmenn
Vals vilja ekki missa þennan vinsæl-
asta handknattleiksmann landsins,
enda sungu þeir „Siggi ekki fara,
Siggi ekki fara...“
Valur-Víkingur
31 : 20
íþróttahúsið að Hliðarenda, íslands-
mótið i handknattleik — 1. deild karla,
miðvikudaginn 22. mars 1989.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 2:2, 3:3,
4:4, 6:4, 7:6, 9:6, 10:8, 12:8, 12:9,
14:9, 14:11, 17:11, 18:12, 20:14,
24:14, 26:16, 26:18, 31:18, 31:20.
Valur: Sigurður Sveinsson 11/3, Valdi-
mar Grímsson 7, Jakob Sigurðsson 5,
Júlíus Jónasson 3, Geir Sveinsson 2,
Jén Kristjánsson 2, Theódór Guðfmns-
son 1, Gisli Óskarsson, Þorbjöm Jens-
son, Sigurður Sævarsson.
Varin skot: Ólafur Benediktsson 10,
Páll Guðnason 1/1.
Utan valiar: Tvær minútur og eitt
rautt spjald.
Vikingur: Guðmundur Guðmundsson
7/3, Karl Þráinsson 4/2, Siggeir Magn-
ússon 3, Ámi Friðleifsson 2, Jóhann
Samúelsson 2, Sigurður Ragnarsson
1, Bjarki Sigurðsson 1, Einar Jóhanns-
son, Brynjar Stefánsson, Ingi Þór Guð-
mundsson.
Varin skot: Sigurður Jensson 7/1,
Heiðar Gunnlaugsson 1.
Utan vallar: Átta mínútur.
Áhorfendur: Um 120.
Dómarar: Ámi Sverrisson og Egill
Már Markússon.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Fögnuður á Carrow Road
Norwich leikur í undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar í
fyrsta sinn í 30 ár — mætir Ever-
ton á Villa Park 15. apríl. Liðið
vann West Ham 3:1
FráBob í aukaleik í Norwich
Hennessy að viðstöddum fleiri
iEnglandi áhorfendum á
Carrow Road en
nokkru sinni fyrr í fimm ár. Mal-
colm Allen skoraði tvívegis í fyrri
hálfleik, Paul Ince minnkaði muninn
á 75. mínútu, en Dale Gordon átti
síðasta orðið fjórum mínútum fyrir
leikslok.
í fyrstu deild fóru fram þrír leik-
ir. Meistarar Liverpool voru með
sýningu í Coventry, unnu 3:1 og
eru nú átta stigum á eftir Arsenal,
en eiga tvo leiki til góða. John
Bames og John Aldridge skoruðu
fyrir Liverpool f fyrri hálfieik og
Gary Bannister fyrir Coventry, en
Ronnie Whelan innsiglaði sigur
gestanna eftir hlé.
Tottenham gerði góða ferð til
Nottingham og vann Forest 2:1.
Gary Parker kom heimamönnum á
bragðið á 49. mínútu, en David
Howells jafnaði á 80. mlnútu og »
annar varaliðsmaður, Winnie Sam-
ways, gerði sigurmarkið tveimur ,
mínútum fyrir leikslok. Þetta var '
fyrsta tap Nottingham Forest í 19
leikjum í röð.
Þá bætti Newcastle stöðu sína á
botninum með 2:0 sigri gegn Ever- ,
ton. Mirandinha gerði fyra markið
en Liam O’Brian það seinna.