Morgunblaðið - 22.04.1989, Page 1
48 SIÐUR B OG LESBOK
90. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins
bana í óeirðum
Salt. Reuter.
Mótmælin í Tíflis í Georgíu:
Reuter
Kínverskir námsmenn við minnismerkið um hetjur alþýðunnar í
Peking, þar sem þeir hafa komið fyrir stórri mynd af Hu Yaobang,
fyrrum leiðtoga kommúnistaflokksins. Talið er að um 100.000 manns
hafí safnast saman á Torgi hins himneska friðar til að minnast andl-
áts Hus og kreQast umbóta í átt til lýðræðis.
Um 100.000 manns
mótmæla í Peking
••
Oryggissveitir sendar á vettvang
Peking. Reuter.
KÍNVERSKAR öryggissveitir
voru í gærkvöldi sendar á Torg
Höfrungar
til að gæta
kafbátanna
Tókýó. Daily Telegraph.
Bandariski flotinn hefur
keypt tvo höfrunga af Japön-
um og verða þeir þjálfaðir til
þess að gæta kafbátalægisins
í Bangor í Washington-ríki,
heimahöfn Trident-kjarnorku-
kafbátanna.
Japanir hafa veitt Ieyfi fyrir
sölu sex höfrunga til bandaríska
flotans, sem hyggst kaupa 16 dýr
og þjálfa þau til að gæta kaf-
báta. Talið er að höfrungamir
hafi orðið fyrir valinu vegna
greindar þeirra, sundhraða og
getu til að kafa niður á 1.000
metra dýpi.
Með höfrungakaupunum er
talið að draga muni úr gagnrýni
bandarískra yfirvalda á hvalveið-
ar Japana.
Jórdanía;
8 manns bíða
hins himneska friðar í Peking,
þar sem um 100.000 manns
höfðu safnast saman til að
kreflast umbóta í lýðræðisátt.
Fréttamenn sögðu að svo virtist
sem öryggissveitunum væri ætl-
að að binda enda á mótmælin,
sem eiga sér engin fordæmi
síðan kínverski kommúnista-
flokkurinn komst til valda fyrir
40 árum.
Ljósmyndarar Reuters- frétta-
stofunnar sögðu að um 2.000
manna lið hefði verið sent til torgs-
ins. Öryggissveitirnar komu þang-
að nokkrum klukkustundum áður
en fyrirhugað var að loka torginu
vegna útfarar Hus Yaobangs, fyrr-
um leiðtoga kommúnistaflokksins.
Harðlínumenn innan flokksins,
sem voru á móti umbótastefnu
Hus, neyddu hann til að segja af
sér árið 1987 og líta námsmenn-
irnir nú á hann sem tákn fyrir þær
umbætur sem þeir betjast fyrir.
Kínverskir fjölmiðlar hafa ekki
minnst á mótmælin. Stjórnvöld
hafa hins vegar fordæmt þau og
sagt að „minnihluti þjóðarinnar“
notfæri sér andlát Hus til að skapa
uppnám í landinu. Þau hafa enn-
fremur varað námsmennina við
því að mótmælin geti haft alvar-
legar afleiðingar.
Iran;
Hreinsanir
innan hersins
Nikosíu. Reuter.
ÍRANIR sögðust í gær hafa
handtekið Qölmarga útsend-
ara Bandaríkjanna í Iransher.
Ali Akbar Hashemi Rafsanjani,
forseti íransþings og yfirmað-
ur hersins, sagði að háttsettir
herforingjar, sem hefðu játað
njósnir fyrir Bandaríkjamenn,
væru enn á lífi og að myndir
yrðu sýndar af þeim í sjón-
varpi.
„Njósnaramir, sem hafa verið
handteknir, veittu Bandaríkja-
mönnum upplýsingar um sigling-
ar skipa okkar þegar við börð-
umst við Bandaríkjamenn á
Persaflóa,“ sagði Rafsanjani í
samtali við útvarpið í Teheran.
Rafsanjani, sem er talinn líklegur
til að verða kjörinn næsti forseti
írans í ágúst, var fyrsti embættis-
maðurinn sem staðfesti fréttir um
handtökurnar. Enginn hefur ver-
ið tilnefndur sem arftaki Khom-
einis, trúarleiðtoga írana, og er-
lendir fréttaskýrendur telja að
mikil valdabarátta eigi sér stað í
íran.
íranskir heimildarmenn í Mið-
Austurlöndum hafa eftir embætt-
ismönnum í Teheran að í það
minnsta þrír flotaforingjar hafi
verið skotnir og fleiri háttsettir
herforingjar hafi verið handteknir
og sakaðir um undirróður gegn
ríkinu. Rafsanjani sagði að
Bandaríkjamenn hefðu komið af
stað orðrómi um að valdarán
væri í undirbúningi í íran eftir
að hafa frétt að handtaka ætti
njósnara þeirra.
Rannsaka hvort beitt
hafi verið eiturgasi
Alvarlegar ásakanir á hendur sovéskum hermönnum
ÓEIRÐIR í Jórdaníu, sem staðið
hafa í fjóra daga, hafa kostað að
minnsta kosti átta manns lífið.
Þær breiddust í gær út til borgar-
innar Salt, 29 km austan við Am-
man, höfuðborg landsins.
Óeirðirnar brutust út vegna verð-
hækkana í landinu. Lögreglan beitti
táragasi gegn mótmælendunum í
Salt, sem réðust á fjármálafyrirtæki,
kveiktu í strætisvagni og köstuðu
gijóti á lögreglubíla.
Hassan krónprins sagði að átta
manns hefðu beðið bana og allt að
þrjátíu hefðu slasast í óeirðunum
síðan á þriðjudag. Hann sagði að
stjórn landsins myndi efna til ráð-
stefnu þar sem efnahagsaðgerðir
hennar yrðu skýrðar og almenningur
fengi einnig að viðra skoðanir sínar
á þeim. Hussein konungur, sem hef-
ur verið í heimsókn í Bandaríkjunum,
hætti við heimsókn til Bretlands, sem
hefjast átti í dag.
Moskvu. Reuter, Daily Telegfraph.
SOVÉSKIR hermenn beittu eit-
urgasi og skóflum til að brjóta á
bak aftur mótmæli í Tíflis, höf-
uðborg Georgíu, fyrir tveimur
vikum, að því er málgagn sov-
ésku sljórnarinnar, Izvestía,
| skýrði frá í gær. 20 manns létust
i í mótmælunum og rúmlega 200
særðust. Hefur stjórnmálaráð
Sovétrílyanna fyrirskipað rann-
sókn á því hvort hermennimir
hafi gerst sekir um glæpsamlegt
atferli.
„Rannsóknir lækna sanna að
margir [mótmælendanna] létust af
völdum beittra jafnt sem bitlausra
tóla, svo og af völdum eiturgass,“
segir í grein í dagblaðinu Ízvestíu.
Greinin staðfestir frásagnir sjónar-
votta um að hermennirnir hafi beitt
skóflum jafnt sem kylfum gegn mót-
mælendunum.
Talsmaður sovéska utanríkisráðu-
neytisins sagði á fimmtudag að her-
mennirnir hefðu beitt efni, sem væri
„svipað því táragasi sem beitt er í
mörgum löndum til að brjóta á bak
aftur óeirðir". Talsmaður heilbrigðis-
ráðuneytis Georgíu sagði hins vegar
að sannanir væru fyrir því að eitur-
gas hefði verið notað til að dreifa
mótmælendunum. Sex þingmenn á
fulltrúaþingi Sovétríkjanna hafa enn-
fremur sagt að mótmælin hafi farið
friðsamlega fram og þátttakendurnir
hafi verið að fara með faðirvorið er
hermennirnir hafi ráðist á þá.
Sovéskur kvikmyndaframleiðandi
og þingmaður sagði að sovésk stjórn-
völd hefðu reynt að halda atburðinum
leyndum. Á fundi samtaka sovéskra
kvikmyndaframleiðenda var sýnd
myndbandsupptaka af atburðinum
og bendir hún til þess að ekkert sé
hæft í þeim staðhæfingum stjórn-
valda að hermennirnir hafi sýnt full-
komna stillingu og ekki gripið til
aðgerða fyrr en á þá hafi verið ráð-
ist. í myndbandsupptökunni sjást
skriðdrekar og brynvarðar bifreiðar
umkringja mótmælenduma, sem
fóru með faðirvorið og sungu. Her-
menn sjást síðan beija á mótmælend-
unum með kylfum og skjóta síðan
gashylkjum yfir mannfjöldann. Fólk
sést reyna að hylja augu og nef til
að veijast gasinu og sýnd eru lík,
sem mörg hver eru með stór, djúp
sár.
Sovéski andófsmaðurinn Edúard
Gudava sagði að hermennirnir hefðu
orðið að minnsta kosti 102 mótmæl-
endum að bana og sært rúmlega
300. Hann sagði að flest fórnarlamb-
anna hefðu verið kæfð með eiturgasi
og síðan barin með skóflum. Hann
hvatti Bush Bandaríkjaforseta til að
mótmæla atburðinum harðlega.
Fórnarlamb
** ** ^ ** ** f" harmleiksins
borið tilgrafar
<K Æl Kista eins af fórnarlömbum
gjHl'' NL jmEm ! |H Jfiu harmleiksins á Hillsborough-
uiw wrs leikvanginum í Sheffield á Eng-
mm mm 1™ h landi á laugardag er hér borin
inn í kaþólska kirkju í Liver-
■. V JS? pool. Starfsbræður fórnar-
lambsins úr slökkviliði Lund-
Reuter únaborgar báru kistuna.