Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 35 Metaðsókn á þorrablót í höfuðborg Bandaríkjanna Frá Sierurborgu Ragnarsdóttur, Washington. Laugardaginn 11. mars _sl. fór fram árlegt þorrablót íslend- ingafélagsins í Washington DC. Aðsókn hefur aldrei verið meiri þau 19 ár sem félagsmenn hafa blótað þorra, samtals komu 360 manns að þessu sinni. Undanfarin ár hefur stjórn fé- lagsins reynt að finna viðeigandi húsnæði fyrir þessa aðalskemmtun ársins. Það hefur ekki reynst auð- velt að finna stað, sem tekur inn harðsvíraða útilegumenn frá ísiandi og þeirra vini; fólk, sem vill helst ekkert annað borða en súrsaða hrútspunga og sviðakjamma. Lánið lék við stjórnarmenn að þessu sinni. Skemmtunin var haldin á Holiday Inn við Tysons Comer í Virgíníu. Hinum megin við götuna er nýbúið að reisa eina stærstu verslunarmið- stöð á austurströnd Bandaríkjanna. Eins og undanfarin ár kom fólk víða að og má til gamans geta þess að nokkrir komu alla leið frá Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna, Michigan, Suður-Karólínu og fleiri stöðum. Skemmtunin fór í alla staði vel fram. Gestum var boðið upp á kokteil frá kl. 5-7 og síðan var sest til borðs. Formaður félagsins flutti stutt ávarp og þakkaði þeim fjöl- mörgu er lögðu hönd á plóginn til að kvöldið heppnaðist sem best. Má þar fyrst nefna meðstjórnendur félagsins: Jónu Valdimarsdóttur varaformann, Stefaniu Nielson gjaldkera, Hjördísi Gunnarsdóttur ritara, Jan De Bruhl ritara og Sigur- veigu Víðisdóttur meðstjórnanda. Erlingur Ellertsson, sem stjórnaði félaginu á árunum 1979-1981, hef- ur löngum verið ósérhlífinn við að aðstoða. Að þessu sinni tók hann sér nokkurra daga frí frá störfum og ók til New York, 5-6 klst. vega- lengd (aðra leið) og náði í mat og hljómsveit, sem Flugleiðir fluttu ókeypis fyrir félagið. Erlingur sá síðan meira og minna um hljóm- sveitina á meðan á dvöl hennar stóð hér í Washington og skilaði henni til baka til New York að þorrablóti loknu. Björg Pétursdóttir er annað dæmi um ósérhlífni félagsmanna. Hún gerði sér lítið fyrir og bakaði ein allar flatkökur fyrir þorrablótið. Hópur galvaskra íslenskra kvenna kom saman viku fyrir blótið og bakaði allt laufabrauðið. Listinn yrði langur ef allt væri tínt til sem fólk gerir fyrir félagið. Veislustjóri þorrablótsins var Gunnar Guðjónsson frá Norfolk og Hringdansinn er alltaf vinsæll. Frá vinstri: Adda Schneider, Jóna Wheeler, Stella Day og aðalbjargvættur íslendingafélagsins í Was- hington D.C., Erlingur Ellertsson. Séð yfir hluta háborðsins. Talið frá vinstri: Stefania Nielson gjald- keri Islendingafélagsins, Magnús Friðgeirsson forstjóri Icelandic Seafood Co., Sigurborg Ragnarsdóttir formaður íslendingafélagsins í Washington D.C. og sendiherra íslands, Ingvi Ingvason. tókst honum að stjórna kvöldinu af miklum skörungsskap. Aðalræðu kvöldsins flutti íslenski sendiherrann í Washington DC, Ingvi Ingvason, við mikinn fögnuð áheyrenda. Borðhaldið stóð til kl. 9 um kvöldið og voru allir sammála um að Brynjari Eymundssyni mat- reiðslumanni hefði tekist snilldar- lega vel að undirbúa og senda allan matinn. Unnsteinn Hjörleifsson matreiðslumaður, búsettur á svæð- inu, sá til þess að hópur félags- manna, sem mætti kl. 8 að morgni þann 11. mars á Holiday Inn, bæri sig fagmannlega að við að sneiða matinn niður í trogin. Þegar gestir kvöldsins höfðu vætt kverkarnar með brennivíni og bjór frá sendiherra íslands, Ingva Jngvasyni, var engum að vanbúnaði að syngja íslensk þjóðlög undir stjórn Jakobs Magnússonar og co. Dansinn dunaði frá kl. 9-1.30 um nóttina og sparaði enginn sporin út á gólfið enda tókst Jakobi og Ragnhildi ásamt félögum með ein- dæmum vel að koma fólki í mikið stuð. Á meðan hljómsveitin tók sér hvíld stjórnaði Páll Pétursson for- stjóri Coldwater í Cambridge happ- drætti kvöldsins. Happdrættisvinn- ingarnir voru um 20 talsins og 4 aðalvinningar. Sendiherrafrúin, Hólmfríður G. Jónsdóttir, dró aðal- vinning kvöldsins, flugfarmiða fram og til baka til íslands, gjöf frá Flug- leiðum. Sú heppna var Debbie Crane, ung stúlka af íslenskum ættum. Annar aðalvinningur kvöldsins var fjögurra klst. lim- úsínuferðalag, sem Viking Lim- ousine-þjónusta á svæðinu gaf. ís- lensku fiskverksmiðjurnar, Cold- water í Cambridge og Icelandic Seafood Co. í Harrisburg, gáfu uppistöðu vinninga kvöldsins, þar sem minnsti vinningur var u.þ.b. 60-70 dollara virði. Flugleiðir gáfu ekki bara aðalvinning kvöldsins heldur fluttu ókeypis allan þorra- mat og hljómsveitina yfir Atlants- ála. Tilgangur íslendingafélagsins í Washington er að vinna að aukinni kynningu meðal íslendinga og ís- landsvina í Washington DC og ná- grenni; að auka tengsl íslendinga á svæðinu við ísland og viðhalda íslenskri tungu. Þorrablótin eru kjörin vettvangur fyrir íslendinga og þeirra vini til að hittast, tala saman, borða íslenskan mat og hlusta á íslenska tónlist um leið og tekist er í hendur í einum allsheijar hringdansi. Margir veislugestir gistu á hótel- inu alla helgina og var ánægjulegt að hitta nokkra þeirra að morgni 12. mars. Fólk virtist mjög ánægt með þorrablótið. Töluðu gestir sér- staklega um hvað hljómsveitin hefði skapað góða stemmningu og matur- inn verið einstaklega bragðgóður. Þegar gestir kvöddust í anddyri - hótelsins, sumir hveijir með fangið fullt af fiskvinningum frá kvöldinu áður, heyrðist glaðvær ómur radda: „Hittumst að ári!“ COSPER Toaóúv'-'' mJ4 -COSPER — Ég ætla að skjóta þetta kattaróféti áður en það vekur allt nágrennið. I DAG KL. 10-16 #Líflegt og manneskjulegt markaöstorg, sem allir taka þátt í. Sölubásar með allt milli himins og jarðar. Barnatívolí, helíum-blöðrur og veitingar - sannkölluð markaðsstemmning! I Sérstakt uppboðssvæði á neðri hæð. Nú geta allir komið með hluti og boðið þá upp með aðstoð hressasta sölumanns landsins. Uppboð á klukkutíma fresti - fyrst kl. 11. KOLAPORTIO ManKaÐStORT ... undir sedlabunkanum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.