Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 Halldór Ásgrímsson dómsmálaráðherra og Har- aldur Johannessen forsljóri Fangelsismálastofn- unar fyrir utan hið nýja fangelsi. Á innfelldu myndinni sést hvemig vistarverur fanganna líta út. Nýtt kvennafangelsi tek- ið í notkun í Kópavogi NYTT kvennafangelsi, að Kópa- vogsbraut 17 í Kópavogi, var formlega opnað í gær af Hall- dóri Ásgrímssyni dómsmálaráð- herra. Þar var áður til húsa upptökuheimili fyrir unglinga. Fangelsið rúmar 10 fanga, en síðar munu 12 fangar geta dvalið þar í einu. Haraldur Johannessen, forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að ætlunin væri að reka hið nýja fangelsi sem nokkurs konar „hálfopið" fangelsi. „1 þessu fangelsi verða vistaðir allir kvenfangar, hvort sem þeir eru að afplána langa vist eða stutta. Einnig verða þarna valdir karlfangar sem treystandi er til þess að stunda vinnu eða nám sam- hliða afplánuninni, en þeir verða að hafa afplánað lágmark tvö ár af refsingu sinni. Fangamir munu stunda sína vinnu og sitt nám án gæslu og lögreglufylgdar, það hef- ur verið reynt með góðum árangri í Hegningarhúsinu við Skólavörð- ustíg,“ sagði Haraldur. Halldór Ásgrímsson dómsmála- ráðherra sagði við opnun hins nýja fangelsis, að fangelsismál á íslandi væri í ólestri, bæði væri aðbúnaður og húsnæði fyrir neðan allar hellur í Síðumúla og við Skólavörðustíg. Hann sagði að fangelsismálin væru til skammar og stefnt væri að því að leggja niður þau fangelsi sem hafa verið í notkun. Hins vegar kom fram í máli hans að slíkar breytingar væru ekki á dagskrá aiveg á næstunni. Kjarasamningar BSRB samþykktir með þorra atkvæða KJARASAMNINGAR Bandalags starfsmanna ríkis og bæja voru samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í almennum at- kvæðagreiðslum í tíu aðildarfélögum. Mest voru þeir samþykktir með 92,5% greiddra atkvæðá og minnst með 71,2% atkvæða. At- kvæðagreiðslu er ólokið i einu félagi, Félagi flugmálastarfsmanna, en niðurstöðu er þar að vænta á mánudag. „Mér finnst þessi niðurstaða sýna tvennt,“ sagði Ógmundur Jónasson, formaður BSRB í samtali við Morg- unblaðið. „Mér finnst hún sýna ákveðinn félagslegan þroska, þar sem það er samið um hlutfallslega mun hærri kjarabætur fyrir þá sem þurfa mest á þeim að halda, nokkuð sem oft er talað um hátíðarræðum en síður sýnt í verki. í annan stað finnst mér þetta sýna vilja til sam- stöðu innan BSRB í kjarabaráttunni og nú ríður á að stjómvöld standi við þau fyrirheit sem þau gáfu varð- andi verðlagsmál og annað sem snertir kjörin. Við munum halda þeim við efnið,“ sagði hann enn- fremur. „Þessi niðurstaða hlýtur að styrkja þá skyldu stjórnvalda gagn- vart öllum aðilum að gera ekki aðra samninga nema í takt við þessa og semja þvi ekki um meira við aðra,“ sagði Indriði H. Þorláksson, for- maður Samninganefndar ríkisins. „Þessi niðurstaða breytir engu fyrir okkur,“ sagði Wincie Jóhanns- dóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags, aðspurð um þessa niðurstöðu í atkvæðagreiðslu BSRB. „Þetta verður ekkert meira spennandi fyrir það að BSRB hafi samþykkt það. Þetta er jafn mikil kjararýrnun fyrir því. Við erum sjálfstæðir samningsaðilar og höf- um sett okkur það markmið að beijast á móti þeirri kjararýmun Úrslit atkvæðagreiðsl- uniiar með ólíkindum - segir Einar Ólafsson, formaður Starfsmannafélags ríkisstoftiana VEÐURYFIRLIT Á HÁDEGI í DAG ÞETTA kort er byggt á veðurlýsingu gærdagsins, sent frá Englandi í gegn um gervihnött og tekið af veðurkortarita hjá Radíómiðun, Grandagarði Reykjavík. Vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúru- fræðinga em ekki gerðar veðurspár hjá Veðurstofu Íslands og verða lesendur Morgunblaðsins því sjálfir að spá í veðrið, eins og þeim er lagið. Staöur hiti veður 10 rigning 8 rigning VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í Staöur Genf Hamborg Kaíró Kanari London Madrid Malaga Mallorca Marseille Moskva París Prag Róm Varsjá Vin Zurich Akureyri kl.18 -2 skýjað Reykjavík kl.18 2 léttskýjað Bergen Helsinki Kaupmannah. Narssarssuaq Nuuk Osló Stokkhólmur Þórshöfn Aþena Amsterdam Berlín Belgrad Brussel Frankfurt 8 rigning 22 heiðskírt 4 rigning 8 skúr 19 skýjað 5 rigning gær að ísl. tíma hiti veður 10 rigning 7 skúr 27 léttskýjáð 20 skýjað 5 skúr 12 skúr 15 skýjað 16 skúr 14 skúr 10 rigning 10 skúr 12 skúr 15 skúr 10 skúr 13 skúr 8 skúr „Þessi úrslit eru með ólíkind- um, þó þau komi mér að vísu ekki á óvart,“ sagði Einar Ólafs- son, formaður Starfsmannafélag ríkisstofiiana, stærsta aðildarfé- lags BSRB, um niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar. SFR lagði fyrst fram hugmyndir um krónu- töluhækkun í stað prósentu- hækkunar í samningunum, en sú leið varð síðan ofan á. „Strax um áramót vomm við farin að vinna að kröfugerð. Þegar við könnuðum viðhorf félaganna, sem dreifast um allt landið, gerðum við okkur grein fyrir hvert viðhorf þeirra væri. Þess vegna lögðum við fram þessa hugmynd um að leið- rétta Iaun öðm vísi en gert hefur verið áður og nota til þess krónu- tölureglu. Flytja miðað við fyrra verklag hagsmuni til þeirra verst Afinælishá- tíðKFUMogK KFUM OG KFUK halda upp á 90 ára aftnæli æskulýðsstarfs félaganna í dag, laugardag. Safnast verður saman í Lækjar- götu klukkan 13 við styttu sr. Frið- riks Friðrikssonar og hlýtt á ávarp og lúðrablástur. Að því loknu verð- ur gengið að Háskólabíói þar sem hátíðarsamvera hefst klukkan 14. Á dagskrá verður fjölbreytt efni. Biskup Islands, hr. Pétur Sigur- geirsson, flytur ávarp, krakkar í KFUM og KFUK flytja leikþátt, stelpur úr KFUK syngja og leika, leiðtogar úr KFUM sýna skemmti- atriði og fleira. settu. Að því leyti er það dálítið merkilegt að þetta skuli samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í BSRB,“ sagði Einar ennfremur. „Síðan mega allir lesa út úr þess- ari afgreiðslu. Ég tel hafa skapast góða samstöðu innan BSRB. Síðan er ég sannfærður um að þetta er einnig almennt viðhorf í þjóðfélag- inu og ég segi ekkert annað en það, að almættið hjálpi þeim sem ætla að fara að næra þá sem lifa á verðbólgu eftir þetta.“ sem við höfum orðið fyrir,“ sagði hún ennfremur. Úrslit urðu þau að í stærsta fé- laginu, Starfsmannafélagi ríkis- stofnana, sögðu 3.118 þeirra sem kusu já eða 82,5%. Nei sögðu 583 eða 15,4% og auðir seðlar og ógild- ir vom 81 eða 2,1%. Á kjörskrá vom 4.844 og af þeim kusu 3.782 eða 78,07%. Hjá Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar fóm leikar þannig að 760 sögðu já eða 85,5%, nei sögðu 121 eða 13,6% og auðir seðlar vom 8 eða 0,9%. Á kjörskrá vom 2.614 manns og atkvæði greiddu 889 eða 34%. Á kjörskrá hjá Félagi íslenskra símamanna vom 895 og atkvæði greiddu 697 eða 77,87%. Já sögðu 603 eða 86,5%, nei 82 eða 11,75% og auðir og ógildir vom 12 eða 1,75%. Á kjörskrá hjá Póstmannafélagi íslands vom 1.001 og greiddu 797 atkvæði. Já sögðu 705 eða 88,4%, nei sögðu 85 eða 10,6% og auðir vom sjö eða 0,8% eða 79,9%. Á kjörskrá hjá Starfsmannafé- lagi stjórnarráðsins voru 267 og atkvæði greiddu 240 eða 89,88%. Já sögðu 171 eða 71,2%, nei sögðu 53 eða 22,1% og auðir og ógildir seðlar vom 16 eða 6,7%. Hjá Starfsmannafélagi Ríkisút- varpsins vom 98 á kjörskrá og greiddu 84 atkvæði eða 85,7%. Já sögðu 70 eða 83,3%, nei sögðu 13 eða 15,5% og einn seðill var auður eða 1,7%. Hjá Starfsmannafélagi sjón- varpsins sögðu 62 já eða 92,5% og nei sögðu 5 eða 7,5%. Á kjörskrá voru 84 og kjörsóknin var 80%. Hjá Ljósmæðrafélagi íslands voru 123 á kjörskrá og kusu 80 eða 65,04%. Já sögðu 67 eða 83,75%, nei sögðu 12 eða 15,00% og auður seðill var einn eða 1,25%. Tollvarðafélag íslands samþykkti samningana með 70 atkvæðum eða 92,1% greiddra atkvæða. Nei sögðu fimm eða 6,6% og einn seðill var auður eða 1,3%. Á kjörskrá vom 112 og kusu 76 eða 67,8%. Hjá starfsmannafélagi Sjúkra- samlags Reykjavíkur vom 28 á kjörskrá og greiddu allir atkvæði. 24 sögðu já eða 85,7%, einn sagði nei eða 3,6% og 3 seðlar voru auð- ir eða 10,7%. Leikfélag Akureyrar: Virginía Woolf fer ekki í Þjóðleikhúsið EKKERT verður úr því að Leikfélag Akureyrar fari í sýningar- ferð með leikritið Hver er hræddur við Virginiu Woolf? og sýni það m.a. í Þjóðleikhúsinu. Eftir viðræður við Þjóðleikhúsráð ákvað sljórn LA að fara hvergi. „Við vomm búin að ræða við Þjóðleikhúsráð og fengum þau svör að þetta kæmi til greina, en þá settumst við niður og skoðuðum dæmið. Það má segja að við höfum hætt við af fleiri ástæðum en einni. Til dæmis var helst að við gætum sýnt verkið í lok maí eða byijun júní. Það er ekki góður tími. Þá hefðum við orðið að æfa verkið upp og nota auk þess hluta leik- myndar sem við eram með í gangi í verkinu Sólarferð um þessar mundir. Þegar allt kom til alls sýndist okkur því kostnaður vera of mikill," sagði Valgerður Bjarna- dóttir formaður Leikfélags Akur- eyrar í samtali við Morgunblaðið. Gísli Alfreðsson Þjóðleikhússtjóri sagði að Þjóðleikhúsráð hefði kom- ist að þeirri niðurstöðu að sýning LA í Þjóðleikhúsinu væri hugsan- legur möguleiki og það hefði að- eins tekið fáeinar mínútur að kom- ast að þeirri niðurstöðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.