Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 Rekstur samvimuifélaga er ekki bara kaupsýsla — hann er að öðrum þræði félagsmálastarf eftir Erlend Einarsson Aldarafmæli Kaupfélags Skag- firðinga hefur gefið mér tilefni til þess að setja niður á blað nokkrar hugleiðingar á þessum tímamótum. Verður mér þá fyrst hugsað til upp- hafs samvinnustarfs hér á landi. Nokkrum áratugum áður en fyrstu kaupfélögin hófu göngu sína orti skagfirska skáldið Hjálmar í Bólu kvæði í tilefni stofnunar Jarðabótafé- lags á Norðurlandi. Þar er að finna þetta erindi: Mikið sá vann, sem vonarísinn braut með súrum sveita; hægra mun síðan að halda þíðri heilla veiðivök. En það var einnig brotinn vonarís á níunda áratug aldarinnar sem leið, þegar samvinnufélögin hófu starf- semi sína. Þingeyingar riðu á vaðið og stofnuðu Kaupfélag Þingeyinga árið 1882. Þar næst kom Kaupfélag Eyfirðinga árið 1886 og síðan Kaup- félag Skagfirðinga árið 1889. Fleiri kaupfélög fylgdu á eftir og um alda- mótin 1900 höfðu 10 kaupfélög ver- ið stofnuð. Það urðu því orð að sönnu að „hægra reyndist síðan að halda þíðri heilla veiðivök", þegar vonarísinn hafði verið brotinn. Samvinnuhreyf- ingin átti síðan eftir að verða einn af máttarstólpum íslensku þjóðarinn- ar á efnhagssviðinu og sterkur burð- arás velferðarþjóðfélagsins. En brautryðjendastarfið var ekki tekið út með sældinni. Fátæktin hafði bundið margan manninn á klafa hins erlenda kaupmannavalds, sem hreiðrað hafði um sig á verslunar- stöðunum víðs vegar um landið. Það létti þó róðurinn að þjóðin var að byija að vakna til meðvitundar um þýðingu þess að taka málin í sínar eigin hendur. Og samvinnuhreyfing- in festi smám saman rætur. Sam- starf og samvinna skapaði aukna trú þjóðarinnar á mátt sinn og megin. Með því að vinna saman mátti leysa margan vanda sem hver og einn sér megnaði ekki. Hið skipulagða sam-^ vinnufélagsform ól líka upp forystu- menn til leiðsagnar í samvinnustarf- inu. „Miklu fá áorkað í mannvina- höndum samlynd tryggðartök", svo aftur sé vitnað í kvæði Bólu-Hjálm- ars. Og nýjar hugsjónir fæddust. Menn sáu birtu við dagsbrún nýrrar aldar og menn sá nýjar leiðir til að bijótast undan oki fátæktar og van- máttar. íslenskir kaupmenn komu líka til sögunnar og smám saman færðist verslunin í hendur Islendinga sjálfra. Ekki er meiningin að fara að rekja hér samvinnusöguna, heldur minna á upphafið sem var mikill örlagavald- ur í þjóðar-sögu okkar Islendinga. En svo er það staða samvinnu- hreyfingarinnar í dag sem er manni ofarlega í huga. Um hana langar mig að fara nokkrum orðum, verandi þess meðvitandi að á hveijum tíma er það framtíðin sem skiptir öllu máli. Það verður því miður að segjast, að á vordögum ársins 1989 er staða samvinnuhreyfingarinnar á íslandi vægast sagt ótrygg, þegar á heildina er litið. Hafandi í huga áðurnefnt erindi úr kvæði Bólu-Hjálmars, þá hvarflar að manni að sumar heilla- vakir samvinnustarfsins séu nú farn- ar að fijósa. Og sú spurning verður áleitin hvort almenningur í landinu sé í vaxandi mæli að missa trú á samvinnuhreyfingunni. Það er ljós að mikil röskun hefur átt sér stað í starfsemi kaupfélag- anna og Sambandsins undanfarið. Þróun efnahagsmála hefur verið óhagstæð. Mikil breyting hefur orðið í landbúnaði, hár fjármagnskostnað- ur hefur lagst þungt á allan rekstur. Þá hefur það valdið miklum von- brigðum hve mörg fyrirtæki sam- vinnumanna í sjávarútvegi hafa lent í alvarlegum rekstarerfiðleikum. Bundnar voru miklar vonir við þessi fyrirtæki hvað varðar þátt þeirra í uppbyggingu atvinnulífsins vítt og breitt um' landið. Þá má ekki gleyma hinum mikla rekstrarhalla Sam- bandsins. Hann hlýtur að vera sam- vinnumönnum mikið áhyggjuefni. Það þolir reyndar litla bið að rekstri Sambandsins verður komið í rétt horf. Þetta er sagt ekki bara Sam- bandsins vegna heldur einnig vegna sjálfrar samvinnuhreyfingarinnar. Slíku lykilhlutverki gegnir Samband- ið í samvinnuhreyfingunni. Það er ekki ofsagt að Sambandið sé fjöregg hreyfingarinnar. En hvað er þá til ráða svo rétta megi við hlut samvinnuhreyfingar- innar? — Ég held að engar einfaldar lausnir séu tilkippilegar til að leysa vandann, enda staða hinna einstöku samvinnufélaga mjög misjöfn. Það liggur hins vegar alveg Ijóst fyrir að mikillar aðlögunar er nú þörf innan samvinnuhreyfingarihnar, aðlögunar að síbreytilegri þjóðfélagsþróun. Nýj- ar kröfur verður að gera um skil- virka stjórnun. Skipulag starfsgreina verður að aðlaga hinum breytta markaði. Aðlögunin er margþætt og hún verður að vera markviss, gerð eftir vel undirbúnum áætlunum, í hveiju kaupfélagi, samstarfsfyrir- tækjum þeirra og einnig og ekki síður í Sambandinu og dótturfyrirtækjum þess. Taka verður fjármagnsupp- byggingu samvinnufélaganna til gagngerðrar skoðunar með það fyrir augum að opna samvinnufélaganna til gagngerðrar skoðunar með það fyrir augum að opna fyrir innstreymi áhættufjármagns inn í kaupfélögin og Sambandið. Slíkt gæti gegnt tvö- földu hlutverki; hjálpað til að efla eiginfjárstöðu félaganna og það með bæta lausaijárstöðuna og svo jafn- framt að gefa félagsmönnum kost á nýjum valkosti ávöxtunar á sparifé. Þá kæmi líka þriðja atriðið inn í myndina; innstreymi áhættufjár- magns myndi veita aukið aðhald við stjórnun á rekstrinum. Beinast liggur við að gefin væru út samvinnustofnbréf sem gætu gengið kaupum og sölu. Bréfunum fylgdi enginn atkvæðisréttur. Ég tel það ekki neitt vandamál að finna heppilegt form fyrir'samvinnustofn- bréfin, þannig að þau röskuðu ekki grundvallarreglum samvinnufélaga. En um leið og framkvæmd er að- lögun samvinnustarfsins að síbreyti- legum þjóðfélagsháttum, verða sam- vinnumenn að gera sér grein fyrir því, að samvinnustarf er ekki bara kaupsýsla, enda þótt að á þeim vett- vangi verði í samvinnufélögin að standa keppinautum sínum á sporði. Samfélag fyiii' alla - hvað er nú það? eftirÁstuB. Þorsteinsdóttur I síðastliðinni viku gerðist sá at- burður að móður var vísað úr kvik- myndahúsi með 8 ára gamlan þroskaheftan son sinn, og var lög- reglan kvödd á vettvang. Frá þessu atviki var greint í fréttum sjón- varps, og af því tilefni bauðst eig- andi kvikmyndahússins til að efna til sérsýningar á myndinni „Regn- maðurinn" fyrir alla þroskahefta. Konan hafði ætlað sér, móður sinni og syni sínum að njóta sam- veru og skemmtunar líkt og aðrar fjölskyldur gera. Það skal tekið fram að þrátt fyrir þroskaskerðingu fer þessi drengur líkt og mörg önn- ur böm og fullorðnir pft á manna- mót. Nú brá svo við að það sótti grát að drengnum við upphaf bíó- ferðarinnar, og í stað þess að gefa móðurinni ráðrúm til að hugga hann, voru þau tæpast sest er þeim var vísað á dyr. Móðirin bað um örlítið svigrúm til að hugga barnið, en því var ekki sinnt. Auðvitað þurfa fatlaðir og að- standendur þeirra að taka tillit til annarra, en þeim hlýtur að vera treystandi til að meta aðstæður hveiju sinni. Stingur þessi hegðun starfs- manns nokkuð í stúf við það um- burðarlyndi sem kvikmyndahúsa- gestum öllu jöfnu er sýnt, og fjallað var m.a. um í fréttatíma ríkissjón- varpsins í byijun vikunnar. Þessari „skemmtun" fjölskyld- unnar lauk því með andlegri meið- ingu. Því miður er viðmót af þessu tagi ekki einsdæmi, þótt lögreglu sé sjaldnast blandað í slík mál. Flestir sem hafa tjáð sig um þetta atvik eru furðu lostnir og reiðir. En það sýnir vel að viðbrögð af þessu tagi eiga sér sem betur fer ekki mikla málsvörn meðal almenn- ings. Atvik sem þetta hlýtur að vekja ýmsar spurningar hjá þeim sem láta sig samskipti og réttindi ein- staklingsins á opinberum vettvangi varða. Svör við slíkum spurningum eru ekki einföld né einhlít en um- Ásta B. Þorsteinsdóttir „Reynslan hefur sýnt okkur að hið mikla verndunarsjónarmið sem var ríkjandi áður er óþarft. Fatlað fólk þarf hjálp og umburð- arlyndi, en ekki vernd sem felst í einangrun. Samfélagið þarf alls ekki að vernda fyrir fötluðum.“ fjöllun er af hinú góða og leiðir vonandi til frekari skilnings og umburðarlyndis manna á meðal. Áður fyrr var sú stefna ríkjandi að fötluðu fólki, hvort sem það var andlega eða líkamlega fatlað, væri best borgið ef því væri haldið að- skildu frá öðru fólki. Þeim var oft búið heimili fjarri alfaraleið og þörf- um þeirra mætt innan veggja þess- ara stofnana. Þannig voru þeir sem mótuðu þessa stefnu að vernda fatl- aða frá samfélaginu eða samfélagið fyrir fötluðu fólki. Ný sjónarmið hafa sem betur fer TIL ÖKUMANNA Gledilegt sumar SUMARDEKKIN UNDIR BIFREIÐINA Sparið naglana, bensínið og malbikið. Eindaginn er 1. maí. Gatnamálastjóri Erlendur Einarsson „Það liggnr hins vegar alveg ljóst fyrir að mik- illar aðlögunar er nú þörf innan samvinnu- hreyfingarinnar, aðlög- unar að síbreytilegri þjóðfélagsþróun. Nýjar kröfur verður að gera um skilvirka stjórnun. Skipulag starfsgreina verður að aðlaga hinum breytta markaði. Að- lögunin er margþætt og hún verður að vera markviss, gerð eftir vel undirbúnum áætlunum, í hverju kaupfélagi, samstarfsfyrirtækjum þeirra og einnig og ekki síður í Sambandinu og dótturfyrirtækjum þess“ rutt sér til rúms undanfarna ára- tugi. Þau setja manninn í brenni- depil, einnig þann sem víkur frá því sem eðlilegt er talið. Þessi sjónarmið byggja á því grundvallaratriði kristins siðgæðis og kristins mannskilnings, að allir menn séu jafn réttháir og samfélag- ið sé fyrir okkur öll. Þar sé rými fyrir okkur öll með öllum þeim margbreytileika sem einkenna manneskjur. Þau segja okkur ennfremur að fötluðu fólki vegnar best ef það fær að hasla sér völl í samfélaginu, meðal annarra. En til þess að geta það þarf t.d. þroskaheft fólk að fá tækifæri og tíma. Reynsján hefur sýnt okkur að hið mikla verndunarsjónarmið sem var ríkjandi áður er óþarft. Fatlað fólk þarf hjálp og umburðarlyndi, en ekki vernd sem felst í einangr- un. Samfélagið þarf alls ekki að vernda fyrir fötluðum. Það gefur því augaleið að sérsýn- ing af því tagi sem kvikmyndahús- eigandinn býður þroskaheftu fólki að sækja er í andstöðu við þessi sjónarmið, og að auki allsendis óþörf. í þessu boði felast fordómar sem án efa eru sprottnir af van- kunnáttu þess sem býður, fordómar sem aðeins verður eytt með umræðu og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Þeirri þróun sem hefur leitt fatlað fólk á nýjan leik á vit annarra manna er ekki nærri lokið. Eigin- lega má segja að hún sé rétt að hefjast hér á landi. Ékki er ólíklegt að hún eigi eftir að setja sín spor á þá sem í henni taka þátt og skilja eftir skrámur á sálarlífi þeira. En sú þróun setur einnig gildis- mat fólks á vogarskálina. Hún er prófsteinn á siðferðisþrek, því hún krefst þess að við setjum mann- virðingu í öndvegi hver sem í hlut á. Þetta reynir á gagnkvæman vilja, skilning og umburðarlyndi okkar allra. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og formaður Landssamtakanna Þroskalyálpar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.