Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 17 Samvinnufélögin eru að öðrum þræði félagsmálahreyfing. Með því að gerast félagsmenn í samvinnufé- lögum taka menn höndum saman til þess að leysa sameiginlega verkefni er varða hagsmuni félagsmanna. Félagsmannavitundin þarf að vera til staðar. Hana verður að efla. Nýta verður fjölmiðlatæknina til þess að vekja áhuga og metnað félagsmanna fyrir_ framgangi samvinnustefnunn- ar. Eg held að í dag sé sérstakur jarðvegur fyrir aukinn áhuga félags- manna, vegna þess að starfsemi sam- vinnufélaganna úti á landsbyggðinni er ein megin forsenda byggðar í flest- um héruðum. Það er hins vegar aiveg Ijós, að rekstur samvinnufélaganna verður að geta staðist samkeppni keppinaut- anna. Öflugt félagsmáiastarf getur þess vegna, ef vel er á haldið, styrkt stöðu samvinnufélaganna á við- skiptasviðinu. Kaupfélag Skagfirðinga hefur ver- ið í hópi stærstu kaupfélaga lands- ins. Félagið hefur haft með höndum margþætta starfsemi, sem lagt hefur grundvöll að eflingu byggðar á fé- lagssvæði sínu, og þá ekkki síst í þéttbýliskjörnum. Nú þegar hallað hefur undan fæti í efnahagsmálunum hefur komið betur í ljós að áður, hversu þýðingarmiklu hlutverki kaupfélögin gegna í efnahagslífi okk- ar Islendinga. Þau eru víðast hvar sannir burðarásar byggðanna. Nú mega samvinnumenn ekki missa móðinn þótt á móti blási. Hin neikvæða umræða um efnhagsmálin má ekki verða verða til þess að draga kjark úr mönnum. Þjóðin er að ganga í gengum hreinsunareld efnahags- lega, eftir að þenslubólan sem mest gerði vart við sig á höfuðborgarsvæð- inu er sprungin. Nú ríður á því að vel sé haldið um stjórnvöl í sam- vinnuhreyfingunni svo menn komi skipum sínum heilum í höfn. Eg óska Kaupfélagi Skagfirðinga til hamingju með aldarstarfið. Megi það á nýrri öld halda áfram að vera Skagfirðingum stoð og stytta, sann- ur burðarás í byggðum Skagafjarðar. > HöíUndur er fyrrv. forstjóri Sam- bands ísl. samvinnufélaga. KIRKJUSANDI Skrifstofur Sambands íslenskra samvinnufélaga í Reykjavík hafa nú verið fluttar af Sölvhólsgötu 4 í nýja Sambandshúsið á Kirkjusandi. Deildirnar sem um er að ræða eru: Búvörudeild 3. næð Fjárhagsdeild 4. hæð Sjávarafurðadeild 4. hæð Forstjóraskrifstofa 5. hæð í næsta mánuði flyturSkipadeild frá Lindargötu 9a og verður á 1. og 2. hæð Sambandshússins. Verslunardeild er áfram í Holtagörðum og Búnaðardeild í Ármúta 3. Símanúmer skiptiborðs Sambandsins er60 81 00. Sérstakt símanúmer Sjávarafurðadeildar er60 82 00. @ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI 105 REYKJAVÍK Við óskum þeim 100 íslendingum sem hafa unnið milljón króna eða meira í Lottóinu hjartanlega til hamingju. Hundraðasti millj- ónamæringurinn var einstæð móðir í Bol- ungarvík, Guðmunda Sævarsdóttir. Því horfa hún og dætur hennar, Hrund og Brynja Ruth Karlsdætur, brosmildar mót nýju sumri. Þú gætir orðið sá næsti, en ... Það verður enginn LOTTO-milli án þess að vera með! Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.