Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
-I-'
AKUREYRI
Fjölnýtikatlar
Dæmi: C.T.C TOTAL
til kyndingar með raf-
magni, olíu eða timbri,
margar gerðir.
Mjög góð hitanýting og
möguleiki á stýrikerfum,
til að fá jafnara hitastig,
C.T.C. Total er öflugur nýr
ketill fyrir rafmagn, timbur
og olíu með innbyggðu
álagsstýrikerfi, sem nýtir
vel rafmagnið fyrir þá sem
kaupa árskílóvött.
kW
Rafmagn..............15.75
Viöur...................15
Olía....................15
eiií6:
UOSGJAFINN HF.
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 49 • SÍMI 23723 • 600 AKUREYRI
FYRIRTÆKISNÚMER 6148-9843
26
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Færíflestan sjó
Hjá Slippstöðinni hf. á AJkureyri er nú unnið að stórfelldum endur-
bótum á togaranum Bjarti frá Neskaupsstað, en þetta verke&ii
er eitt það stærsta sem unnið er að í Slippstöðinni um þessar
mundir. Skipið verður allt sandblásið, skipt um rafala og ýmis-
legf fleira. Bjartur er einn af Japanstogurunum svokölluðu, en
hann var ekki sendur utan til Póllands til endurbóta á sínum tíma.
Um sextíu manns vinna nú að þessu verke&ú og er áætlað að
taki um tvo og hálfan mánuð að ljúka því. Að því loknu ætti
Bjartur að vera fær í flestan sjó.
4. sýning laugardaginn
22/4 kl. 20.30
Cjuimuoá Sle-'nSSon
5. sýning föstudaginn
28/4 kl. 20.30
leiKFÉUVG AKURGYRAR
sími 96-24073
Kirkjulistaviku lýkur:
66 milljóna tilboði í bygg-
ingu stúdentagarða tekið
Á FUNDI stjórnar Félagssto&iunar stúdenta á Akureyri á þriðju-
dag var ákveðið að taka sameiginlegu tilboði, frá fyrirtækjunum
. SS-Byggir og Möl og Sandur hf., í byggingu stúdentagarða við
Skarðshlíð. Tilboðið hljóðaði upp á tæpar 66 milljónir, en að við-
bættum gjöldum ýmisskonar er áætlaður byggingarkostnaður um
70 milljónir.
Fyrirtækin tvö sendu sameigin-
lega inn fjögur tilboð í verkið, en
auk þess bárust tilboð frá Aðal-
geiri Finnssyni hf. á Akureyri, upp
á um 66.5 milljónir og ístak hf. í
Reykjavík, upp á 89 milljónir.
Stjórn Félagsstofnunar hefur
síðustu daga verið að yfirfara til-
boðin og var ákveðið að taka
lægsta tilboðinu, frá SS-byggi og
Möl og Sandi hf.
. Tilboðið, sem hljóðar upp á tæp-
ar 66 milljónir króna, þótti hag-
stæðast af þeim sem bárust, en
húsið sem reisa á er 1.483 fermetr-
ar að stærð, sem þýðir að bygging-
arkostnaður á fermetra er rúmar
44 þúsund krónur.
Sigurður P. Sigmundsson, form-
aður stjórnar Félagsstofnunar,
sagði að málið yrði kynnt bygging-
arnefnd Akureyrar, rætt yrði við
verktaka og síðan væri ætlunin að
hefjast handa hið fyrsta. Áætlað
er að fyrstu íbúarnir flytji inn í
húsið fullbúið þann 1. október
næstkomandi, sem þýðir að bygg-
ingartími hússins er nokkuð
skammur.
í stúdentagörðunum er gert ráð
fyrir 34 íbúum, 14 einstaklings-
herbergjum, 4 paríbúðum, 4
tveggja herbergja íbúðum og
tveimur þriggja herbergja, auk
sameiginlegs rýmis.
Stúdentagarðar þeir sem rísa
við Skarðshlíð eru einungis fyrsti
áfangi í byggingu slíkra garða, en
Sigurður sagði að fljótlega yrði
farið að huga að öðrum áfanga,
sem ekki yrði ósvipaður þeim
fyrsta, en menn myndu gefa sér
betri tíma til að skoða fleiri mögu-
leika.
Vortónleikar
söngdeildar
Á SUNNUDAG, 22. apríl, verða
árlegir vortónleikar söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri, í sal
skólans og hefjast þeir kl. 20.30.
Þar koma margir nemendur fram
og flytja einsöngslög og dúetta við
píanóundirleik. Aðgangur að tón-
leikunum verður ókeypis.
Félagsstofhun stúdenta:
„Litla orgelmessan“ eftir
Haydn í Akureyrarkirkju
Lygaflækia
er sniðin eftir því formi sem tíðkað-
ist í Austurríki og Suður-Þýska-
landi um miðbik 18. aldar. Hljóð-
færaSkipan við þennan flutning er
sú sama og var á tímum Haydn og
hljóðfærin sem leikið er á samskon-
ar og þá.
Flytjendur eru Kirkjukór Akur-
eyrarkirkju, Margrét Bóasdóttir,
sópran, Lilja Hjaltadóttir, fiðla, Rut
Ingólfsdóttir, fiðla, Richard Korn,
bassafiðla og Dorota Manczyk, org-
el, stjórnandi er Bjöm Steinar Sól-
bergsson.
Kirkjukórnum hefur verið boðið
að flytja verkið á kirkjulistaviku
sem haldin verður í Hallgrímskirkju
þann 7. maí næstkomandi.
Myndlistarsýning Kristínar G.
Gunnlaugsdóttur sem haldin er í
kapellu kirkjunnar verður opin um
helgina, frá kl. 15.00-20.00, en þar
eru sýnd málverk og svokallaðar
íkonamyndir. Kristín stundar nú
framhaldsnám í íkonamálun við
ríkisakademíuna í Flórens.
\ p*
cs*
Kirkjulistaviku lýkur á Akureyri
á morgun, sunnudag, með hátíðar-
messu í Akureyrarkirkju og hefst
hún kl. 14.00. Sr. Birgir Snæbjörns-
son þjónar fyrir altari, en sr. Þór-
hallur Höskuldsson predikar.
Við messuna verður „Litla orgel-
messan“ eftir Haydn flutt, en hún
MYNDLISTASKÓLINN
Á AKUREYRI
UMSÓKNIR
um skólavist veturinn 1989-1990 þurfa að
hafa borist skólanum fyrir 16. maí.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu skól-
ans, Kaupvangsstræti 16, sími 96-24958.
nyjar
bækur
Allt stakar sögur
Askriftarsími
96-24966