Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 Minning: Gróa Björnsdóttir Fædd 30. ágúst 19Q6 Dáin 16. apríl 1989 Mig langar með örfáum orðum að minnast ömmu minnar, Gróa Bjömsdóttur frá Helgafelli. Amma fæddist á Rangá í Hró- arstungu, dóttir hjónanna Björns Hallssonar og Hólmfríðar Eiríks- dóttur. Eg man eiginlega fyrst eftir ömmu þegar ég var 6 ára og við nýflutt heim frá Danmörku. Ég fór ein austur til að vera við sauð- burðinn hjá afa og ömmu. Þau tóku afskaplega vel á móti mér og fékk ég að sofa í hjónarúminu hjá ömmu og sýnir það hversu vel hún skildi að erfitt var að fara frá mömmu og pabba í fyrsta sinn. Vorin fyrir austan voru yndislegur tími og liðu fljótt við leik og störf. Amma vildi allt fyrir okkur bamabörnin gera og gætti okkar vel. Síðasta vorið mitt fyrir austan var ég orðin 13 ára gömul og taldi mig vera orðna nokkuð fullorðna, en amma bless- unin var nú á annarri skoðun og hélt áfram að hugsa um mig sem litlu stúlkuna sína, sem ég kann vel að meta núna og er þakklát fyrir. Amma var greind kona, fróð og mikil félagsvera og hafði gaman af að fá í heimsókn gesti sem hún gat setið og spjallað við. Enda fannst mér stundum Helgafell líkjast hóteli á sumrin, alltaf gestir að koma og eitthvað að ske, sem stelpukrakka fannst skemmtilegt. Hún var afar söngelsk og spilaði á orgel, og man ég eftir mörgum kóræfingum heima í stofunni hjá afa og ömmu. Amma kom alltaf suður til okkar annað slagið og var gott að fá hana í heimsókn og sjá hvaða gott hún væri nú með í veskinu. Hún heim- sótti þá vini og ættingja, keypti sér nýjan kjól, því hún hafði afskaplega gaman af að punta sig og vera fín og fannst mér alltaf gaman að sjá þegar hún hafði búið sig upp á. Ég man sérstaklega eftir því á fermingardaginn minn hvað ég var stolt af henni í íslenska búningnum sínum, hvað hún var falleg og fín og sómdi sér vel innan um gestina. Eftir því sem á leið fækkaði stundunum sem við áttum saman. Ég hætti að fara austur í sauð- burðinn og ferðum ömmu fækkaði suður þegar heilsu hennar fór að hraka. Mikil var þó gleði mín, er þau bæði, amma og afi, komu suð- ur þegar ég brautskráðist sem stúd- ent fyrir tæpum tveim árum. Var það hennar síðasta heimsókn til okkar, því eftir það kom hún aðeins hingað suðurtil að fara á sjúkrahús. Amma var skynsöm og framsýn kona og var alltaf dugleg við að hvetja mig til náms, því hún skildi vel mikilvægi menntunar fyrir ein- staklinginn, og ekki síst fyrir sjálf- stæði kvenna og lýðræði lítillar þjóðar. Hún kvaddi þennan heim lasburða og södd lífdaga. Ég kveð ömmu mína með þakk- læti og trega. Megi hún hvíla í friði. Bylgja Björnsdóttir Tíminn líður og áður en varir er maður orðinn gamall. Og tíminn er svoleiðis skepna sem ekki dugar að deila við. Hann keyrir áfram veginn og maður ekur með honum hvort sem manni er það ljúft eða leitt. En tíminn er að því leyti góður ökumaður að margt sem fyrir verð- ur á veginum sáldrast burt og gleymist, er ekki lengur. Og þegar maður lítur til baka standa eftir tilteknar vörður, kannski það sem maður vill helst muna. Og þegar árin færast yfír lítur maður til baka og staldrar við tilteknar vörður. Svona hugsar gamall héraðsmað- ur, útfellingur sem verið hefur í kaupstaðarferð sem fer nú að verða nokkuð löng. Úr þeim kauphöndlun- arstað sem hann hefur gist um sinn sér hann Útfellin fyrir sér eins og þau voru fyrir löngu; minnist þess hvemig Rangá niðaði á eyrum og Fljótið var hvítur breiður flötur milli grænna ása, hvemig leiðin lá innmeð Urriðavatni, um túnfótinn hjá Einari í Seli inn að Helgafelli. Maður fór þessa leið gangandi að utan. Stundum kom maður keyr- andi að innap, austan eða norðan. En hvaðan sem maður kom var áfangi ævinlega á Helgafelli því þar var sá punktur sem var í miðdepli. Og í þessum miðdepli var Gróa á Helgafelli. Þar sem vegir skerast er jafnan mikil umferð. Þar er ys og þys. Bílar þjóta framhjá. Sumir stansa til að taka bensín og flýta síðan för. Aðrir dvelja lengur. Ég á niinn- ingu um Gróu á Helgafelli þar sem hún stendur við gamla Sjelltankinn og dælir með handafli bensíni á bíla. Hún stendur þama, vel í með- allagi há, grannvaxin, fölleit með dökkt hár, í pilsi og blússu. En þessi tími leið og bensíntank- urinn er löngu horfinn. Það var settur blóma- og tijágarður þar sem hann stóð í tungu milli tveggja þjóð- vega. Gróa hafði yndi af þessum garði og dvaldi þar marga stund að hlú að gróðri. Steinsnar niður að Fljótinu sem breiðir úr sér, hvítt og slétt, með Ekkjufellshólmana dómollandi á víkinni. En þessi tími er líka liðinn. Gróa á Helgafelli hugsar ekki lengur um garðinn sinn á Fljótsbakkanum. Hún er horfin yfir það ókunna fljót sem við eigum öll eftir að kanna. Gróa á Helgafelli var af Njarðvík- urætt þeirri sem rakin er frá Bimi sem nefndur var skafinn. í þeirri ætt hafa verið mikilhæfir menn á Héraði. Björn Hallsson á Rangá, faðir Gróu, var einn af þeim. Hólm- fríður, móðir hennar, var dóttir Eiríks bónda í Bót. Það er Vefara- ætt. Og fyrst þegar ég man eftir Gróu á Helgafelli hét hún Gróa á Rangá, var ein af heimasætunum þar. Og það var litið upp til þeirra enda vom þær vænar konur og vel menntaðar. Og enn á ég í barns- minni geymda mynd af Gróu, úngri stúlku sitjandi á hesti sem mig minnir væri hvítur. Hún var að fara eitthvað inn í Fell með öðm úngu fólki og stansaði í hlaðinu heima og brosti. Og ég var afskaplega feiminn. Seinna varð ég svo gæfusamur að verða eins konar uppölsludreng- ur hjá Gróu á Helgafelli. Þá var hún gift Helga bróður mínum og þau höfðu reist sér nýbýli inn við Lagarfljótsbrú þar sem vegir úr mörgum áttum koma saman. Helgi var um árabil barnakennari í Fellum og skólinn vár stundum hafður á Helgafelli. Þar voru þá flestir krakkarnir til húsa. Þama var ég í læri, ekki síður hjá húsfreyjunni en kennaranum, og eftir að við tók skólaganga í fjarlægum stöðum var ég oftast á summm í vegagerð sem stóð frá mánudegi framá föstudags- kvöld. Helgarnar vom svo nýttar á ýmsa vegu. Ég man svo langt að ráðsettir verkstjórar kölluðu það „hringl". Já, maður var að hringla eitthvað um helgar. Það vom hald- in böll og það var ekki alltaf hátt á manni risið þegar maður kom af þeim. En sama var. Alltaf var manni tekið sem sérstökum vildarmanni þegar maður settist inní eldhúsið á Helgafelli á sunnudagseftirmiðdegi í þeim erindum að fara aftur að vinna sér inn peninga á mánudags- morgni. Gróa á Helgafelli var aðal- persónan í þessu eldhúsi, róleg og æðmlaus. Hún var aldrei með pré- dikanir, skaut inn orði og orði og sussaði á mannskapinn ef henni þótti keyra úr hófí. Því alltaf vom margir gestir kringum eldhúsborðið á sunnudagskvöldum. En þó Gróa á Helgafelli segði ekki mörg orð t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, EBENEZER GUÐJÓNSSON, lést að kvöldi 19. apríl. Ásgerður Leifsdóttir, börn, tengda börn og barnabörn. Eiginkona mín, SVANHVÍT RÚTSDÓTTIR frá Hörgslandi á Sfðu, lést á heimili okkar aðfaranótt 21. apríl. Bjarni Loftsson. Móðursystir okkar, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Fosskoti, Miðflrðl, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 20. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Jónsdóttir, Baldur Jónsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR RÓSINKARSSON, Lundarbrekku 10, Kópavogi, lést miðvikudaginn 19. apríl. Sigurlfna Sigurðardóttir, Hreinn Guðmundsson, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson, Sigurborg S. Guðmundsdóttir, Auðun Már Guðmundsson, Guðmundur Freyr Aðalsteinsson. Kveðjuorð: Karl Gunnlaugsson Fæddur 17. desember 1915 Dáinn 10. apríl 1989 Karl Gunnlaugsson lést þ. 10. apríl sl. Mig langar til að minnast hans í nokkmm orðum, því þar er genginn sérstakur öðlingur. Karl var einstaklega ljúfur og elskulegur maður, gæddur mikilli hlýju og ríkri kímnigáfu. Við vom vinnufélagar í átján ár og ég mun sakna viðræðustund- anna er við spjölluðum um allt mögulegt, innleggs hans í fjörugu umræðumar í eldhúsinu, flautsins hans og raulsins við vinnu sína, hlýjunnar og glaðlega viðmótsins. Eg sendi samúðarkveðjur til fjölskyldunnar, sérstaklega Bjarg- ar, Barkar og Kalla yngri, sem var lífssól afa síns. Dóra Thoroddsen Karl Gunnlaugsson lést mánu- daginn 10. apríl sl. á heimili sínu á Lynghaga 28. Við sem urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynn- ast honum, og áttum í honum tryggan vin, syrgjum hann sárt. Kalli á Lynghaga, eins og hann var oftast kallaður, var stoð og stytta sonar síns Barkar og sonar- sonar Karls Trausta. Karl giftist Soffíu Jónsdóttur fyrir nokkmm ámm eftir margra ára vináttu, en samvistir þeirra urðu ekki langar þar sem hún lést um aldur fram eftir aðeins tveggja ára hjónaband. Sonur minn, Karl Trausti, bamabarn Karls Gunnlaugssonar, átti alla tíð sitt annað heimili hjá afa á Lynghaga. Afi veitti honum alltaf stuðning og þeir vom ótrú- lega samrýndir. Karl fylgdist alltaf mjög náið með nafna sínum og hittust þeir helst daglega. Það var sama hvað á bjátaði, alltaf var hægt að leita til afa. Söknuður hans og okkar allra er mikill og vil ég með þessum örfáu línum segja takk. Karl Gunnlaugsson var jarðsett- ur í gær, föstudaginn 21. apríl. Guðmunda Kristinsdóttir Karl Gunnlaugsson er dáinn. Mánudaginn 10. apríl flugu þessi orð manna á milli í Bústaðabóka- safni, vinnustað Kalla. Undarleg orð og óskiljanleg þegar þess er gætt að næstliðinn föstudag gekk hann hér að störfum ljúfur og brosandi eins og venjulega. En enginn staldrar við þegar stunda- glasið er tæmt. Kalli hóf störf á Borgarbóka- safni Reykjavíkur í ágúst 1971. Öll átján árin vann hann í bókabílnum ásamt öðmm störfum hér. Þegar hann í síðustu viku mætti ekki á sína venjulega bókabílsvakt veittu lánþegar og þá sérstaklega börnin því athygli að hér vantaði einhvern og spurðu: var þó afstaða hennar ljós. Maður gekk ekki að því gruflandi hvernig hún vildi hafa hlutina. Og maður vildi allt til þess vinna að hlutirnir væru eins og Gróa á Helgafelli vildi hafa þá. Ég man ekki til þess hún tíundaði ávirðingar manna. Hún var sú kona að í návist hennar vissi maður nákvæmlega hveijar ávirð- ingar manns vom og vildi vera annar og betri maður. Maður skynj- aði að hún vildi öllum vel. En þessi tími er liðinn. Fyr en varði var maður kominn á annað Iandshorn að hafa ofanaf fyrir sér; kom sem gestur stundum á sumrum austurá Hérað. En áfram var mað- ur eins og heimamaður hjá Gróu á Helgafelli. Þar var manni ævinlega tekið eins og týndum syni. Og ævin- lega fannst manni maður vera kom- inn heim. Ég held það hafi verið mikil gæfa fyrir mína ætt þegar Gróa á Rangá tengdist henni. Við systkinin frá Skógargerði getum öll borið vitni um það. Vera má að hlutverk hennar hafi að einhveiju leyti ráðist af því að hún var gift elsta bróðurnum. Hitt ætla ég þó sanni nær að drengskapur hennar og mannkostir hafí mestu ráðið um það að hún varð okkur átrúnaðar- goð og hjálparhella sem aldrei brást. Heimili Gróu og Helga á Helga- felli var svo í sveit sett að þar hlaut að vera gestkvæmt. Fellamenn komu þar löngum við, enda hús- bóndinn oddviti hreppsins um ára- bil. Margir voru lengra að reknir, af Héraði eða úr fjarlægum lands- hlutum. Oft hefur mér orðið hugsað til þess í seinni tíð hve erfitt hlut- verk húsfreyjunnar hefur verið, þegar stofan var líkari ferðamiðstöð en heimili. En öllum gestum tók hún af sömu hógværu alúðinni og borð voru hlaðin rausnarlegum veit- ingum. Og nú er þessi tími líka liðinn og það er svo komið að Gróa á Helgafelli mun ekki oftar taka á móti gestum í húsi sínu. Minning um þann fagnað sem þar var mun þó ekki fyrnast þeim sem nutu þar svo_ fágætrar gestrisni. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa notið vináttu Gróu á Helgafelli, hlýju hennar og drengskapar í blíðu og stríðu. Fjöl- skyldu hennar færi ég samúðar- kveðjur. Indriði Gíslason „Hvar er maðurinn sem er alltaf hérna?“ Þess sama spyijum við, því nú er stóllinn hans Kalla auður. Við vinnufélagarnir söknum Kalla, ekki bara sem vinnufélaga heldur einnig sem vinar. Víst er að um- ræður á kaffistofunni verða fá- tæklegri því Kalla var ekkert óvið- komandi, hvort sem rætt var um andleg eða veraldleg efni. Honum fylgdi glaðværð og kímni sem hann beindi oftar en ekki gegn sjálfum sér. Við þökkum Kalla samveruna og sendum fjölskyldu hans samúð- arkveðjur. Vinnufélagar í Bústaða- bókasafni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.