Morgunblaðið - 22.04.1989, Page 33
gei JIJ14A .SS HUOAOflAOUAJ QIQAJaHUOaOM ____________________________Nt
MÖRGUNbLÁÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989 33
Hjónaminning:
Sigurður Þorkelsson
Sigurlína Stefansdóttir
Ungur vissi ég af föðursystur
minni, Sigurlínu á Sauðárkróki.
Seinna urðu þau Lína og maður
hennar, Sigurður Þorkelsson, þeir
klettar í lífi mínu og skyldfólks
okkar sem alltaf breiddu faðminn
móti okkur gestum sínum hvenær
sem var.
Á heimilinu að Lindargötu 17 á
Sauðárkróki var engin sýndar-
mennska. Á því heimili réðu kær-
leikurinn, ættræknin og ástin. Sig-
urður og Lína voru einstakir klettar
sem við vissu alltaf af og til þeirra
var gott að leita, hvemig sem á stóð.
Þessi góðu hjón voru bundin þeim
tryggðaböndum að útilokað var, að
þau gætu lifað án hvors annars.
Sú varð og raunin — þau létust
með nokkurra daga millibili.
Sigurður Þorkelsson fæddist 5.
desember 1904 og lést 17. mars sl.
Sigurlína Stefánsdóttir fæddist 1.
október 1901 og lést 11. apríl sl.
Ég og mitt fólk áttum margar
góðar stundir á Lindargötu 17 á
Sauðárkróki. Þar var tekið á móti
manni með útbreiddan faðm á
tröppunum. Við vorum leidd í stofu
og sýndar ljósmyndir af fjölskyldum
niðjanna, Helga, Önnu, Stefáns
Þrastar og Bússa, sem öll voru
þeirra börn. Það var sama um hvern
var talað, aldrei var á neinn hallað
hjá húsbændunum að Lindargötu
17. Þar ríkti sannarlega mann-
gæska, ást og hamingja, sem reynd-
ist órjúfandi, þeim báðum og þeim
sem þau þekktu. Okkur, sem lifum
í svokölluðu nútímaþjóðfélagi,
finnst það kannske einkennilegt,
að tvær persónur bindist þeim
tryggðaböndum, að án hvors annars
sé til lítils lifað, en Sigurður og
Lina eru dæmi um það. Svo fór,
sem betur fer, að skammur tími
leið miili andláts þeirra. Og nú eru
þau komin yfir landamærin sem við
öll verðum að ganga yfir, fyrr eða
seinna.
Nú er brostinn stór hlekkur í
ættingja- og vinahópnum. Sigurður
og Lina standa ekki lengur með
útbreiddan faðminn á tröppunum
að Lindargötu 17. Líf þessara hjóna
varð langt og lánsamt. Þau fundu
hvort annað fyrir löngu síðan. Þau
eru ennþá saman og við getum
ekki hugsað um þau öðruvísi. Þau
voru eitt, Sigurður og Lína á Krókn-
um.
Það eru alltaf tímamót, þegar líf
og dauði mætast. Okkur finnst þau
timamót stundum eðlileg og það
sem koma skal, stundum ekki. En
þau eru einstök í minningunni, Sig-
urður og Lína á Króknum.
Ég og niðjar Valdimars, bróður
Línu, þökkum þessum einstöku
mannvinum allt það sem þau voru
okkur.
Hörður Valdimarsson
Jónas Jónsson
Hagan — Minning
Fæddur 21. apríl 1900
Dáinn 17. apríl 1989
í dag verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju elskulegur afi
minn, Jónas Jónsson Hagan. Mig
langar til að minnast hans með
nokkrum orðum um leið og ég
þakka honum allt það góða sem
hann gaf mér í lífinu. Afi Jónas
fæddist á Stöng í Mývatnssveit í
apríl 1900 og var því vorsins barn,
bjartsýnn og léttur í lund. Afi ólst
upp í Mývatnssveit og þar liggja
sporin hans mörg um sveitina hans
fallegu sem alltaf var efst í huga
hans hvar sem hann fór. Afi byij-
aði ungur að keyra. vörubíla og
keyrði lengst af flutningabíla fyrir
Kaupfélag Þingeyinga á Húsavík.
Það voru margar ferðirnar sem ég
fór með afa á milli Húsavíkur og
Reykjavíkur þegar ég var stelpa og
Loks er vor í lofti eftir erfiðan
vetur, ekki síst til sjávar þar sem
Ægir konungur hefur höggvið
skarð í raðir sjóm.anna.
En mikill vill meira því á miðviku-
daginn sl. drukknaði Guðmundur
Jón Magnússon skipstjóri er bátur
hans sökk við Hafnarfjörð. Með
fátæklegum orðum minnist ég
þessa vinar míns, manns sem byij-
aði að stunda sjóinn sem drengur
vestur á Súgandafirði og sjórinn
varð hans starfsvettvangur alla tíð
síðan. Lengst af var Guðmundur
skipstjóri á eigin bátum en tvo báta
átti hann sem báðir báru nafnið
Aldan enda var hann oft kenndur
við bát sinn og kallaður Guðmundur
á Öldunni.
Um 25 ár eru liðin síðan ég
kynntist Önnu dóttur Guðmundar
og í framhaldi af því eignaðist ég
þann besta tengdaföður og vin sem
nokkur maður getur látið sig
dreyma um. Eftir að við Anna slit-
um samvistum hélst vinskapur okk-
ar Guðmundar áfram og alltaf var
ég aufúsugestur á Nesveginum hjá
þeim Guðmundi og Guðfinnu hve-
nær sem var.
Sé það svo að örlög okaar allra
séu ráðin á æðri stöðum og tími
Guðmundar hafi verið kominn þá
tel ég hann sjálfan sáttari við þessi
endalok frekar en önnur.
Á giftusömum sjómannsferli hef-
ur Ægir konungur ætíð þurft að
lúta í lægra haldi en að lokum
stendur hann þó uppi sem sigurveg-
ari. Guðfinna kveður nú lífsföru-
naut sinn, Anna föður sem hefur
allt framá unglingsár. Þá kynntist
ég landinu mínu vel og lærði þá
landafræði sem ég hef aldrei
gleymt. Afi vissi nöfn á öllu sem
fyrir augu bar, bæjum, hólum,
hæðum, ám og fjöllum og var dug-
legur að miðla okkur sem með hon-
um ferðuðumst af þekkingu sinni.
Afi var vel þekktur á þessari leið
og átti þar marga góða vini og allt-
af var hann tilbúinn að gera öllum
greiða ef hann gat. Afi hafði þann
sið að ganga með stráhatt og ég
veit að það eru margir sem muna
eftir gráhærða, brosmilda kallinum
með stráhattinn.
Það var yndislegt að alast upp í
nálægð afa míns, hlusta á söng
hans, þulur og skemmtilegar sögur.
Nú er hann horfinn á braut og til
betra lífs. Ég sendi kveðju mína og
þakka honum fyrir samfylgdina og
kveð hann með þessum orðum.
verið henni stoð og stytta gegn um
lífið, synir mínir, Guðmundur og
Jóhann, kveðja afann sem þeir
mátu svo mikils og treystu á og
aðeins Finnur litli skilur ekki að afi
kemur ekki aftur. Það er aðeins
minningin sem lifir. Bið ég Guð að
veita þeim styrk í sorg sinni og vini
mínum, Guðmundi Jóni Magnús-
syni, þakka ég ógleymanlega sam-
fylgd. Guð blessi minningu hans.
Friðrik Guðmundsson
Og vertu nú sæll.
Það fer vel um þig nú,
og vorgyðjan oná þig breiði,
og sætt er það þreyttum,
að sofa eins og þú,
með sólskin og minning á leiði.
(Þorst. Erl.)
Ásdís Sigurðardóttir,
Hafiiarfirði.
t
Bróðir okkar og mógur,
SVERRIR KRISTINN SVERRISSON
fyrrverandi skólastjóri
Iðnskóla Akraness,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 24. apríl kl.
13.30.
Guðlaug Sverrisdóttir,
Gunnlaug Sverrisdóttir, Sigurður Þ. Gústafsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA LARSEN
bóndi á Engi,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 25. apríl kl.
14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Sjálfsbjörg.
Ingibjörg Larsen, Helga Fanney Bergmann,
Ketill Larsen, Ólöf Benediktsdóttir,
Hólmfríður Þ. Ketilsdóttir, Sólveig D. Ketilsdóttir,
ívar Helgi Larsen.
Minning
Guðmundur Jón
Magnússon skipstjóri
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug vegna fráfalls móður
minnar, ömmu og langömmu,
ÞETRÍNU JÓNSDÓTTUR,
áður Grettisgötu 53,
Æsufelli 4.
Auður Filippusdóttir,
börn, tengdadóttir og barnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur vinsemd
og samúð við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar,
REYNIS Þ. HÖRGDAL,
Skarðshlíð 17,
Akureyri.
Guðrún Þ. Hörgdal,
Þorsteínn Hörgdal,
Jónína Hörgdal.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför föður okkar, fósturföður, tengdaföður og afa,
ÞORSTEINS VILHJÁLMSSONAR
fyrrverandi bónda,
Syðri-Hömrum,
Ásahreppi.
Jón Þorsteinsson,
Vigdis Þorsteinsdóttir, Björn Guðjónsson,
Sölvi Magnússon, Karla M. Sigurjónsdóttir
og barnabörn hins látna.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
LIUU SIGFÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkirtil starfsfólks deilda 11G og 13D á Landspítalanum.
Sigurður Pátur Guðjónsson,
Sigríður Hrefna Sigurðardóttir, Hilmar J. Kristinsson,
Hulda Júlía Sigurðardóttir, Þórir Jökull Helgason,
Sigfús Örn Sigurðsson,
Ingi Einar Sigurðsson,
Hanna Björg Sigurðardóttir,
Þórunn Lilja Hilmarsdóttir.
t
Alúðar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur stuðning
og hlýhug á erfiðri stundu við fráfall elskulegs unnusta míns,
föður, sonar og bróður,
GUNNARS BJARKA VESTFJÖRÐ,
Hafnargötu 122,
Bolungarvfk,
sem lóst af slysförum á Óshlíð hinn 8. mars.
Sérstakar þakkir færum við björgunarsveitarmönnum og öllum
sem tóku þátt i leitinni. Sendum ykkur öllum hlýjar kveðjur.
Vilborg Arnarsdóttir,
Ragnar Freyr Vestfjörð, Sindri Vestfjörð,
Ragna Aðalsteinsdóttir,
Bella Vestfjörð, Garðar Vestf jörð.