Morgunblaðið - 22.04.1989, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
~----------------------------------------------------------TTl TT—: • • I , ■ ' ( • -T-1: ■ I 1 J—■ H * ' M. ' I ! '■ I
Mæling á geislamengnn
eftir Braga Árnason,
Guðmund S. Jónsson
ogPál Theodórsson
Fyrir skömmu sökk kjarnorku-
knúinn kafbátur undan ströndum
Norður-Noregs. íslendingar fyllast
eðlilega óhug við frétt sem þessa
því jafnvel lítil geislamengun sjávar
getur skaðað grundvallaratvinnu-
veg okkar og jafnvel valdið hruni
hans, ef alvarleg geislamengun
verður. Brýn nauðsyn er að koma
á hið fyrsta trausta kerfi til að fylgj-
ast nákvæmlega með geislamengun
í hafínu umhverfis landið. Þessi
nauðsyn er ljósari nú en nokkru
sinni áður. í umræðum á Alþingi
13. þessa mánaðar kom fram að
Geislavamir ríkisins hefðu ekki þau
mælitæki, sem væru nauðsynleg til
þessara mælinga. Aðstaða til slíkra
mælinga er hinsvegar fyrir hendi
bæði á Raunvísindastofnun Háskól-
ans og Landspítala. Á vegum þess-
ara tveggja stofnana var geisla-
mengun mæld hér á landi sl. sumar
og ekkert er því til fyrirstöðu að
Kvenfélags-
dagnr í Selja-
kirkju
SÚ HEFÐ hefur skapast í Selja-
kirkju að kvenfélag kirkjunnar
hefur einn dag á vorinu helgað
sér sérstakan dag í kirkjunni, þar
sem þær konur koma og taka
■Jjátt í guðsþjónustunni. Kvenfé-
lagið hefiir frá stofnun safnaðar-
ins unnið ötullega að safhaðar-
málum öllum og verið þar i farar-
broddi um það starf, sem unnið
hefur verið.
Sunnudaginn 23. apríl næstkom-
andi verður kvenfélagsdagurinn í
kirkjunni. Við guðsþjónustuna, sem
hefst kl. 14, mun Jón Þorsteinsson
óperusöngvari syngja með kirkju-
kór Seljakirkju. Að lokinni guðs-
þjónustu munu kvenfélagskonur
bera fram kaffi og kökur af hlað-
borði. Allur ágóði af því rennur til
taka upp skipulegar mælingar nú
þegar.
Þegar tilraunir með kjarnorku-
vopn stóðu sem hæst á árunum
1958-62 var geislamengun hér á
landi mæld skipulega við Háskóla
íslands. Árið 1962 undirrituðu
Bandaríkin og Sovétríkin sam-
komulag um að hætta tilraunum
með kjarnorkuvopn í andrúmsloft-
inu, og upp úr því dró jafnt og
þétt úr geislamenguninni og 1972
voru mælingar lagðar niður þar sem
talið var að hætta af völdum meng-
unarinnar væri liðin hjá.
Síðar kom hinsvegar fram hætta
á nýrri geislamengun, nú frá kjam-
orkukafbátum og hreinsistöðvum
kjarnorkuvera. 1985 tók því einn
greinarhöfunda (PT) að kanna
möguleika á að heija á ný mæling-
ar á geislamengun, sem í þetta
skipti skyldu einkum beinast að
hafínu vegna þess að jafnvel lítil
mengun þar gæti haft afdrifaríkar
afleiðingar fyrir sjávarútveg okkar.
í þessum undirbúningi var haft
náið samstarf við A. Aarkrog, sem
stjórnar geislamengunarmælingum
á dönsku rannsóknastöðinni á Risö,
styrktar safnaðarstarfínu í Selja-
kirkju.
Þær hafa reynt það kvenfélags-
konumar í Seljasókn, að það er
gott að koma til kirkjunnar sinnar
og eiga þar helga stund með fjöl-
skyldu sinni. Það er líka reynt, að
gott er að eiga þar góða stund í
safnaðarsölunum og fá sér kaffi-
sopa á sunnudagseftirmiðdegi. Það
„Það er okkur íslend-
ingum knýjandi nauð-
syn að þekkja á hverj-
um tíma geislamengun
í hafínu umhverfis
landið og í fiski sem þar
lifir. Þetta ætti okkur
að vera enn ljósara nú
eftir slysið fyrr í þess-
um mánuði.“
en Aarkrog er helsti sérfræðingur
heims á þessu sviði. í samvinnu við
Þráin Þorvaldsson, sem þá var
framkvæmdastjóri Útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins, var kannað
hvort framleiðslusamtök í sjávarút-
vegi vildu leggja til fé til siíkra
mælinga, en þær kölluðu á nokkra
endumýjun á tækjabúnaði Raunví-
sindastofnunar Háskólans. Undir-
tektir voru jákvæðar og var tekið
að leita tilboða í það tæki sem end-
urnýja þurfti og vom góðar horfur
á að mælingarnar gætu hafíst
sumarið 1986. Rétt eftir þetta dundi
verður þess vegna nokkur hátíð í
Seljakirkju á sunnudaginn. Þess
vegna skulu bæði kvenfélagskonur
og aðrir hvattir til þess að koma
til kirkjunnar á sunnudaginn, taka
þátt í guðsþjónustunni og njóta
þess sem fram verður borið á báðum
stöðum.
Valgeir Ástráðsson
Tsjernóbylslysið yfir og næstu mán-
uði voru miklar annir við mælingar
á geislamengun, en þær fóru fram
á Eðlisfræðistofu Raunvísinda-
stofnunar Háskólans. Var geislam-
engun mæld í lofti, vatni, úrkomu
og kjöti, en við Landspítalann var
að auki leitað að geislajoði í miólk
fyrstu vikurnar eftir slysið. Við
þessar mælingar kom í ljós að
mælitæki Raunvísindastofnunar
skiluðu fyllilega því næmi og þeirri
nákvæmni sem nauðsynleg var.
Eftir Tsjernóbylslysið munu
stjórnvöld hafa ákveðið að koma
upp aðstöðu hjá Geislavörnum ríkis-
ins til mælinga á geislamengun.
Tsjernóbylslysið sýndi að æskilegt
er að geta gripið til mælinga á
geislamengun á ýmsum stofnunum,
sem eru búnar nauðsynlegum tækj-
um, þegar alvarleg geislamengun
er yfirvofandi. Til að unnt sé að
nýta þessa aðstöðu með Iitlum fyrir-
vara er nauðsynlegt að undirbúa
mælingar vandlega, meðal annars
til að vitað sé hvernig auðveldast
sé að standa að þeim. Eðlisfræði-
stofa Raunvísindastofnunar og Eðl-
isfræðideild Landspítalans hafa því
síðustu misseri unnið skipulega að
þessum undirbúningi og er hann
nú langt kominn.
Þessar tvær stofnanir gerðu sl.
sumar nokkrar mælingar á geisla-
mengun. Cs-137, sem er alvarleg-
asti þáttur geislamengunarinnar,
var mælt í kjöti, mjólk, þara og
jarðvegi og voru sýnin tekin
víðsvegar á landinu. Þessar mæl-
ingar má gera án efnagreiningar.
Þá voru nokkur sýni tekin af sjó
til mælinga á Cs-137 og mjólk til
að mæla Sr-90, en þessi sýni þarf
að mæla eftir efnagreiningu. í
þessu starfi kom í ljós að búnaður
Raunvísindastofnunar og Landspít-
alans, sem er hluti af almennum
tækjabúnaði stofnananna, réð vel
við að mæla hin veiku geislameng-
un. Vissulega væri hinn dýri Ge-
kristall, sem í ráði er að fá til
Geislavarna, góð viðbót, en langt
má þó komast án hans. Innan tíðar
verður gerð grein fyrir niðurstöðum
mælinganna.
Það er okkur íslendingum knýj-
andi nauðsyn að þekkja á hveijum
tíma geislamengun í hafinu um-
hverfís landið og í fiski sem þar
lifir. Þetta ætti okkur að vera enn
ljósara nú eftir slysið fyrr í þessum
mánuði. Þessar mælingar hefði átt
að taka upp í beinu framhaldi af
mengunarmælingum eftir Tsjernó-
bylslysið. Fram til þessa hefur
þekking okkar á geislamengun í
íslensku hafsvæði öll komið frá er-
lendum mælingum, einkum mæl-
ingum danskra vísindamanna.
Þessar mælingar eru mjög stijálar
og langt frá því nægilegar fyrir
okkur.
í umræðum á Alþingi 13. þ.m.
upplýsti heilbrigðisráðherra að hjá
Geislavörnum ríkisins væri ekki
aðstaða til mælinga á geislameng-
un. Af orðum ráðherra mætti ráða
að af þeim sökum sé ekki mögulegt
að hefja strax reglubundnar mæh
ingar á geislamengun í hafinu. í
sömu umræðu var talið nauðsynlegt
að bæta upplýsingastreymi milli
innlendra aðila, því dregist hefði
að tilkynna Almannavörnum um
slysið við Bjarnarey. Upplýsinga-
streymið þarf þó að bæta víðar, því
svo er sem stjórnvöldum hafi ekki
verið gerð grein fyrir því að mögu-
legt er að mæla mengunina nú þeg-
ar hér á landi, ekki einungis á einni
stofnun heldur tveimur og að mæl-
ingar af þessu tagi voru gerðar á
Raunvísindastofnun haustið 1986
fyrir Geislavarnir ríkisins og í enn
ríkara mæli á vegum Raunvísinda-
stofnunar og Landspítalans síðast-
liðið sumar.
Það er því tillaga okkar að áætl-
un um mælingar á geislamengun
verði endurskoðuð og verði þá reynt
að koma á nauðsynlegum mæling-
um sem allra fyrst og á sem hag-
kvæmastan hátt með því að nýta
til fullnustu þekkingu, reynslu og
þann tækjabúnað, sem fyrir hendi
er hér á landi.
Höfundar: Bragi er efnafræðing-
ur og er prófessor við raunvís-
indadeild Háskóla íslands. Guð-
mundur er eðlisfræðingur og
læknir og er dósent við lækna-
deild HI og erjafnframt forstöðu-
maður eðlisfræðideildar Landspít-
idans. Páll er eðlisfræðingur við
Raunvísindastofnun Háskólans.
Höfundar hafa unniðað mæling-
um á geislamengun á liðnum
Áirum. Á árunum 1958—72 voru
skipulegár mælingar á geisla-
tnengun gerðar á vegum Háskóla
íslands og sáu Páll og Bragi um
framkvæmd mælinganna. Síðari
árin voru þær undir stjórn Geisla-
varna ríkisins og var Guðmumlur
þá forstöðumaðurþeirra. Eftir
Tsjernóbylslysið hafa þeir allir
unnið að mælingum á geislameng-
un.
Hljómsveitin í GEGNUM TÍÐINA,
ásamt okkar frábæru söngkonu
ÖNNU VILHJÁLMS,
leika fyrir dansi í kvöld.
Opið frá kl. 22.00 til 03.00. Rúllugjald 700,- kr.
Helgin 22.-23. apríl:
Spookey blues band
niðri í kvöld. Opið frá 18.00-03.00.
Sunnudagur:
Spookey blues band uppi.
Opið frá 18.00-01.00.
Bigfoot og D.J. Steel þeyta skífur
á milli atriða.
Opið í hádeginu laugardaga og sunnudaga
frá 12.00-14.30.
Starfsfólk Abra.
GOMLU DAIMSARIUIR
íkvöldfrákl. 22.00-03.00.
Hljómsveitin DANSSPORIÐ ásamt söngvurunum Örnu Þor>
steins og Grétari.
_ DansstuðiðeríÁRTÚNI.
^rUÍslEfQ
Húsgðmludsnsaniu
Vagnhöfða 11, Reykjavík, sími 685090.
Guðmundur
Haukur
leikur í kvöld
ÖHOTELÖ
LÚDÓ SEXTETT OG STEFÁN
Dansinn dunar við undirleik hinna fjörugu félaga í Lúdó sextett
ásamt Stefáni Jónssyni fram á rauða nótt.
Áhersla er lögð á vandaðan tónlistarflutning
- án hávaða.
HUSIÐOPNAÐ FYRIR MATARGESTI KL. 19.00
TPEIR FALKOSTIR:
— Þríréttaöur veislumatsedill kvöldsins i danssal.
Restaurant a la carte, þarsem bodid er upp á vandaöan sérréttasedil
og okkar vinscelu fimtn ogsjö rétta stjömumatsedla.
BRAUTARHOLTI 20. SÍMI 29098.
(GENGIÐ INN FRÁ HORNI BRAUTARHOLTS OG NÓATÚNS)