Morgunblaðið - 22.04.1989, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
41
J(i vfso.
ZN ti W/NN
eösm..
V5LHND ERSTÖHWJVI
KRUR9LAND «NO-
STÆDN&NNR)
i
I
f
I
I
.1
Þessir hringdu .. ,
Skíði í misgripum
130 sm skíði voru tekin í mis-
gripum fyrir alveg eins 150 sm
fyrir utan innganginn í kjallarann
í skálanum í Bláfjöllum á sunnu-
daginn. Nánari upplýsingar í síma
641517.
Páfagaukur í óskilum
Sigríður Ragna hringdi:
Lítill grænn páfagaukur fannst
fyrir utan Einarsnes 16 í Skeija-
fírði mánudaginn 17. apríl. Ef ein-
hver í nágrenninu saknar páfa-
gauksins síns getur hann hringt í
sima 27608.
Smekkleysa
Jóhann Guðmundsson
hringdi.
Ég vil lýsa undrun minni á
stjórn Ingólfs Hannessonar á
íþróttaþætti á laugardaginn var.
Mér fannst alger óþarfí að rjúfa
beinu útsendinguna frá Sheffield.
Sjónvarpsefni á rétt á sér þótt
ekki sé að því nein skemmtun.
Það var líkt og að fá blautan vettl-
ing framan í sig þegar byrjað var
að sýna barnadans í staðinn. Mér
finnst alger smekkleysa að koma
með slíkt efni þegar áhorfendur
voru með öndina í hálsinum vegna
hinna hörmulegu atburða á knatt-
spyrnuvellinum. Þess má geta að
beinu útsendingunni var haldið
áfram í Englandi þar sem hún
kom þó mest við menn.
Taska á Hótel íslandi
Svört aflöng leðurtaska tapað-
ist á Hótel íslandi á laugardags-
kvöld. í henni voru skór. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma
667010.
Þakklæti til Pizza Hússins
Kolbrún hringdi.
Mig langar að koma þakklæti
á framfæri ekki síst vegna þess
að alltaf er verið að kvarta og
skammast í fjölmiðlum. Ég er
utan af landi og fór út að borða
á Pizza Húsinu við Grensásveg
þegar ég kom síðast í bæinn. Þjón-
ustan og maturinn var hreint til
fyrirmyndar. Þarna var hægt að
fá fína máltíð fyrir tæpar sex
hundruð krónur og þykir mér það
ekki mikið. Ég vil bara benda
fólki á þennan stað sem selur
margt fleira girnilegt. en pizzur.
Óætar kartöflur og
vondar agúrkur
Reið húsmóðir hringdi:
Kartöflurnar sem maður kaupir
út úr búð á annað hundrað krónur
kílóið eru meira og minna óætar.
Þegar búið er að sjóða þær er helm-
ingurinn ónýtur og innan í þeim
eru stór brún æxli. Þetta er ekki
mannamatur. Ég hef farið á tvo
staði í borginni þar sem hægt er
að fá kartöflurnar helmingi ódýrari
úr gámum, en það þarf að skera
utan af þeim hýðið svo helmingur-
inn af kartöflunni fer til spillis.
Neytendasamtökin sem nú hafa
skorið upp herör gegn kjúklinga-
bændum ættu frekar að snúa sér
að kartöflubændum. Kjúklingarnir
eru þó ætir, en við komumst ekki
af án kartaflanna.
Mig langar líka til að fá skýringu
á því af hveiju það er lýsisbragð
af agúrkunum. Erlendu gúrkurnar
sem hafa verið til í vetur hafa ang-
að af lýsi og nú er sama óbragðið
af nýju íslensku agúrkunum.
Mastrið horfið
Auður hringdi.
Mér til mikillar armæðu hvarf
mastrið mitt úr húsi Siglingafé-
lags Reykjavíkur Brokeyjar senni-
lega síðast í mars. Mastrið mitt
er blágrænt á lit og hvorki merkt
mér né framleiðanda þess. An
masturs get ég ekki siglt segl-
brettinu mínu og þar sem ég er
bláfátækur námsmaður hef ég
varla efni á að kaupa mér nýtt.
Ef einhver hefur tekið blágrænt
mastur úr Brokey í kringum mars
síðastliðinn þá vil ég biðja þann
hinn sama að athuga hvort það
sé örugglega hans, það gæti
nefnilega verið mitt. Ég vil biðja
þann sem tók mastrið mitt að
skila því sem fyrst á þann stað
sem hann tók það af eða hringja
í síma 53513.
Leikfóngin týnd
Guttormur hringdi.
Sonur minn er æði gjarn á að
týna hlutunum. Fyrir skemmstu
týndi hann plastpoka með „trans-
former“-leikföngum. I honum var
einn vörubíll, tvö mótorhjól og
alls kyns fígúrur. Við búum neðst
á Frakkastíg og pokinn hefur
týnst einhvers staðar á milli
Frakkastígs, Lpkastígs og Aust-
urbæjarskóla. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 13101. Ef
einhver kynni að hafa séð græna
salómon-skíðahanska í hverfinu
mætti hann líka hafa samband.
Kannast einhver við
kvæðið?
Sigríður Eyjólfsdóttir hringdi:
Ég er hér með brot úr kvæði
með mörgum vísum sem mig lang-
ar að fá birt, ef einhver gæti gefið
upplýsingar um hvaðan það er og
eftir hvem.
Degi hallar húma tekur
heim þá snýr að Skálholtsstað
skógarmaður, samt ósekur
svipast þarf hann mörgu að.
Hér er eflaust margt til minja
meistaranna dögum frá.
Ber það allt að skoða og skynja
skal hér engu vikið hjá.
Endirinn á kvæðinu er svona:
Honum að nú hryggð nú setur
hann má varla dylja það.
Stígur á bak og blakkinn hvetur,
blessar í anda Skálholtsstað.
BMX-hjóli stolið
Rósa hringdi.
Nýju gulllituðu BMX-hjóli var
stolið eða það tekið í misgripum
að Miðleiti 12, rétt hjá Kringl-
unni, fimmtudagskvöldið 13.
apríl. Finnandi vinsamlegast snúi
sér til lögreglu eða hringi í síma
30610. Foreldrar athugið vel að
börn ykkar séu ekki á stolnum
hjólum!
mr
Rockfonj*
Karlmanna ■■
snyrtivörurnar
eru komnar aftur
í allar verslanir.
i Dugguvogi 2
S. 91 - 68 63 34.