Morgunblaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989
43
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN í TÉKKÓSLÓVAKÍU 1990
Island mætir Júgóslavíu,
Spáni og Ameríkuþjóð
„Við eigum erfitt verkefni fyrir höndum," segir Kristján Arason. „Við þurfum aðfara erfiðari
leiðina," segir Bogdan, landsliðsþjálfari um dráttinn í Prag
„HVAÐ segirðu. Drógumst við
aftur í riðil með Júgóslövum,11
sagði Kristján Arason, lands-
liðsmaður í handknattleik, þeg-
ar Morgunblaðið sagði honum
hverjir væru mótherjar íslend-
inga íheimsmeistarakeppninni
íTékkóslóvakíu. í gær var dreg-
iðíriðlaíPrag.
Islenska liðið leikur í C-riðli með
Júgóslövum, Spánvetjum og
Bandaríkjamönnum eða Kúbu-
mönnum. Leikið verður í Gott-
waldov. Þijú efstu liðin í riðlinum
komast í milliriðil, þar sem leikið
verður með þremur þjóðum úr D-
riðli í Bratislava. Þjóðirnar í D-riðli
eru: Sovétríkin, A-Þýskaland, Pól-
land og Japan.
Sterkasti riðilinn í HM er eflaust
B-riðilinn. í honum leika S-Kóreu-
menn, Tékkar, Rúmenar og Sviss-
lendingar.
„Hefði viljað vera laus
við Sovétmenn"
„Það er ljóst að við eigum erfitt
verkefni fyrir höndum. Ég hefði
viljað vera laus við að leika gegn
Sovétmönnum. Milliriðillinn verður
geysilega strembinn,. en það má
reikna með að hann verði skipaður
þessum löndum: íslandi, Sovétríkj-
unum, Póllandi, Spáni, Austur-
Þýskalandi og Júgóslavíu,“ sagði
Kristján.
„Sovétmenn eru með yfirburðar-
lið í dag. Júgóslavar eru alltaf erfið-
ir og einnig Spánveijar. Þjálfari
minn hjá Teka hefur verið ráðinn
landsliðsþjálfari Spánar og hann
ætlar ekki að gera miklar breyting-
ar á landsliðinu frá B-keppninni í
Frakklandi. Austur-Þjóðveijar eru
alltaf erfiðir og þá eru Pólveijar
stórt spumingamerki,“ sagði Kristj-
án, sem sagði að hann vildi frekar
leika gegn Bandaríkjunum en Kúbu
í riðlakeppninni. „Kúbumenn eru
hávaxnir og erfiðir viðureignar,“
sagði Kristján.
„Erfiðari leiðin11
Bogdan, landsliðsþjálfari, sagði
að hann væri öllu vanur með
; íslenska liðinu. „Óneitanlega þurf-
um við að fara erfiðari leiðina. Þetta
hefði þó getað orðið verra,“ sagði
Bogdan og bætti við: „ísland verður
að tefla fram óbreyttu liði frá B-
keppninni. Það er slæmt ef miklar
breytingar verða gerðar á liðinu
| fyrir keppnina í Tékkóslóvakíu.“
■Þijú efstu liðin úr A og B-riðli mætast í milliriðli.
■Þijú efstu liðin úr C og D-riðli mætast í milliriðli
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐÍÐ
Æfingaleikur við Nantes
Islenska landsliðið f knattspymu
spilar æfingaleik gegn franska
1. deildariiðinu Nantes ytra á
miðvikudag. Þessi leikur ei liður
í undirbúningi islenska liðsins fyr-
ir HM leikina gegn Sovétrikjunum
31. maí og Austurriki 14. júní.
Knattspymusamband Islands
hefur reynt að fá leiki fyrir
íslenska liðið bæði í Hollandi og
Englandi að undanfómu en án
árangurs. KSÍ ieitaði til Atberts
Guðmundssonar, nýráðins sendi-
herra íslands í Frakklandi, og bað
hann um að athuga með lið. Al-
bert gekk í málið og í gær var
frá því gengið að isienska iiðið
gæti fengið teik gegn Nantes á
miðvikudagskx'öld.
Liðið verðut skipað eftirtöktum
leikmönnum:
Markverdin
Bjarai Siguróssofi, Vat
Guðmunclur Hreiðarsson, Víkingi
Adrir leikmcun:
Atli Eðvaldsson, Val
Áplst Már Jðnssou, Hácken
Ásgetr Sigurvinsson, Stuttgart
Guðni Bergsson, Tottenham
Óroar Torfason, Fram
CWafur Þðrðarson, Brann
(Vtur Antþórssori, l>am
Pétur Pótursson. KR
SjguiAtr Grétarsson, Luzem
Sigurður' Jónsson, Sheffietó Wednesday
Saevar Jónsson. Val
Margeirsson, Fram
Ytðar Ivrketsson. Fram
Þorvaldur Öriygsson, Peterbont
Gunnar Gíslason, Amðr Guðjo-
hnsen og Frirðik Friðriksson gáfu
ekki kcet á sér vegna meiðsla.
Eúss er ekki öruggt að Ásgeir
^gurvinsson verði með. Halldör
Áskelsson, Val, er varamaður og
kemur inn í hópinn ef einhver
forfallast.
VIÐAVANGSHLAUP IR
lUlár hljóp frá
keppinaut-
um sínum
Morgunblaðið/Sverrir
Már Hermannsson sést hér (nr. 65) í upphafi hlaupsins.
Eg er í góðri æfingu, líklega
betri en nokkru sinni. Hef æft
vel og skipulega undir leiðsögn
mjög góðs þjálfara, Eyjólfs Magn-
ússonar. Það munar öllu að hafa
góðan þjálfara," sagði Már Her-
mannsson, 23 ára bankamaður úr
Keflavík, eftir glæsilegan sigur sinn
í 74. Víðavangshlaupi ÍR. Már hef-
ur verið bezti langhlaupari landsins
í nokkur ár og sigraði nú öðru sinni
í hlaupinu; vann 1987 og varð ann-
ar í fyrra. Martha Emstdóttir ÍR
kom fyrst kvenna í mark annað
árið í röð en það gerði hún einnig
1986. Rúmlega eitthundrað voru
skráðir en mættu ekki allir til leiks
og 91 kom hlaupari í mark.
„Ég átti von á meiri keppni,“
sagði Már en hann var um hundrað
metrum á undan Guðmundi Skúla-
syni, sem varð annar en hann tók
þátt í Víðavangshlaupi ÍR í fyrsta
sinn. Frímann Hreinsson FH varð
þriðji og í fyrsta sinn á verðlauna-
palli í hlaupinu.
í sveinaflokki varð sigurvegari
Orri Pétursson, efnilegur hlaupari
úr UMSK, og í meyjaflokki Þor-
björg Jensdóttir, 14 ára stúlka úr
ÍR. Fríða Bjarnadóttir UMSK 'varð
fyrst 14 kvenna 30 ára og eldri í
mark og Sighvatur Dýri Guðmunds-
son ÍR fyrstur 25 karla eldri en 30
ára.
Keppt var í átta sveitum og gaf
Morgunblaðið alla bikara sem keppt
var um. FH-ingar unnu í þriggja
manna sveitkeppni karla, áttu 2.-5.
mann í mark. Hlutu þeir 9 stig en
ÍR-sveitin 22 stig. ÍR-ingar unnu 6
bikara, urðu hlutskarpastir í keppni
5 og 10 manna sveita í karla-
flokki, áttu fyrstu þriggja manna
sveit öldunga, þriggja manna sveit
sveina, þriggja meyja sveit og
þriggja kvenna sveit. Hinar dug-
miklu húsmæður úr Trimmklúbbi
Seltjarnarness, sem tóku þátt í
hlaupinu sér til ánægju og settu
mikinn svip á hlaupið, unnu bikar
þriggja kvenna sveit 30 ára og eldri.
■ Úrslit veröa birt í
þriðjudagsblaði
ÍÞRÚm
FOLK
■ BJÖRN Einarsson skoradi
tvö mörk fyrir Víking er liðið sigr-
aði Leikni, 8:1, í Reykjavíkurmót-
inu í gærkvöldi. Aðalsteinn Aðal-
steinsson skoraði þriðja mark
Víkings og Jóhannes Sævarsson
svaraði fýrir Leikni. Staðan í hálf-
leik var 1:0 fyrir Víking.
■ JÚGÓSLA VNESKI iandsliðs-
maðurinn Semir Tuce, sem er
framheiji, hefur skrifað undir
þriggja ára samning við svissneska
liðið Luzern en með því leikur Sig-
urður Grétarsson. Tuce, leikur
nú með Velez Mostar.
■ UPPSELT er á leik Chelsea
og Leeds í 2. deild ensku knatt-
spvmunnar á Stamford Bridge í
dag; Sigri Chelsea í leiknum hefur
liðið tryggt sér sæti í 1. deild. Allir
leikir í ensku knattspymunni hefj-
ast með mínútu þögn í minningu
þeirra er fórast á Hillsborough.
Þá munu allir leikmenn leika með
sorgarbönd.
KORFUBOLTI
Globetrotters:
Þrjár
sýningar
Körfuknattleikslið Harlem
Globetrotters heldur þijár sýn-
ingar hér á landi um helgina. Liðið
kom til landsins í gær .og heldur
fyrstu sýninguna í dag í Laugar-
dalshöllinni kl. 15. í kvöld mun lið-
ið fara til Akureyrar og sýna í
Höllinni kl. 20.30.
Þriðja og síðasta sýningin verður
svo á morgun í Laugardalshöllinni
kl. 15. Forsala fyrir leikina í
Reykjavík verður í Laugardalshöll-
inni og í Kringlunni.