Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 2
2 "C oor TAM V TTTTr» AnTTT/T/TTP riIlTA TqVTir>5JOW: MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAI 1989 JAFNRETTISBARATTA I RAUÐUM SOKKUM BJÖRG EINARSDÓTTIR SÚKAÚTGEFAHDI „Mér finnst nú eftir ó að verkalýðshreyfingin og stjórnmólaflokkarnir hafi verið líkust nótttröllum sem ekki skynjuðu sinn vitjunartíma og létu þessi umskipti <1 oð mestu from hjó sér fara. Aðspurð segir Björg að varast skuli að þakka Rauðsokkahreyfing- unni allar breytingar, sem voru gerðar í þágu kvenna. Ekki megi vanmeta störf eldri kvennasamtaka og minnast verði endurnýjunar þeirra þegar kom fram á 8. áratug- inn. „Starf rauðsokka kom til þar sem skarst í odda með lagalegum réttindum og viðteknum viðhorfum almennings. Áherslan var á breytt- viðhorf og vilja til að nýta þann rétt sem lögin veittu. Segja má að Rauðsokkahreyfíngin hafí stuðlað að athafnafrelsi kvenna og að þrá þeirra til mennta braust fram og leitaði í farveg. Mér finnst nú eftir á að verkalýðshreyfingin og stjóm- málaflokkamir hafi verið líkust nátttröllum sem ekki skynjuðu sinn vitjunartíma og létu þessi umskipti að mestu fram hjá sér fara. Vissulega sáu ýmsir í rauðsokk- um samstilltan hóp sem þeir gjarn- an vildu notfæra sér sínum málefn- um til framdráttar og aðrir sem Krafturinn og atorkan höfðaði til mín „Ég fann hljómgrunn fyrir mínar eigin skoðanir og áhugamál í Rauðsokkahreyfingunni. í mér bjó rík þörf fyrir að starfa sem einstaklingur en ekki ótilgreindur hluti tegundarinnar kona,“ segir Björg Einarsdóttir bókaútgefandi. Hún var að mestu útivinnandi frá árinu 1958 og segist hafa mætt töluverðri gagnrýni fyrir að vinna úti, gift kona og móðir. „Krafturinn og atorkan við að taka markvisst á málunum, sem einkenndi Rauðsokkahreyfinguna, höfðaði mjög til mín. Ég hef alltaf litið á kvennabaráttu sem mannréttindamál, jafnt fyrir konur og karla og enn frekar tækifæri fyrir þá til að nálgast börn sín. í hreyfingunni fengum við margs konar þjálfún, hugmyndir og þekking miðlaðist og þar var fjöldi dugmikilla kvenna sem ég tel að nú sjái víða stað í þjóðfélaginu.“ Björg talar um nýja tíma, konur hafi ekki viljað una hlutskipti sínu. „Allir gátu sameinast um þau markmið sem Rauðsokkahreyfingin setti sér í upphafi. Það voru ekki markmiðin sem fólk gagnrýndi, því éþau höfðu svipaðan grunntón og hjá fyrri samtökum um kven- réttindi, heldur voru það aðferðimar sem beitt var. Þær voru nýstárlegar, farið var beint í málin, ef til vill með dálitlum hávaða, og aðgerð- irnar voru lýsandi. Brugðið var upp mynd af ríkjandi aðstæðum og það kom við fólk. Áslátturinn var oftar á tilfinningar fólks en rökræna hugsun. Okkar stefna var að hver ein- staklingur ætti að geta séð sjálfum sér farborða og eiga þess kost, því forsenda sjálfstæðrar tilveru og jafnréttis einstaklinga væri efna- hagslegt sjálfstæði. Meðal þess sem við tókum í gegn, var tungutak fólks, túlkun íjölmiðla, fyrirvinnu- hugtakið, skatta- og skólamál og fóstureyðingalöggjöfin. Við reynd- um að vekja vitund kvenna í nýju ljósi á nýjum tíma og unnum að því að losa um viðjar hugans. reyndu að etja konum saman til að sundra samstöðu þeirra. Rauð- sokkahreyfingin var þverpólitísk allt fram á sumar 1974 en þá var markmiðum hennar breytt í þá átt að hún yrði ekki slitin úr samhengi við stéttabaráttu og skyldi háð með sömu vopnum. Ýmsar konur hættu þá í hreyfingunni en hún klofnaði ekki, eins og oft er haldið fram, því engin ný hreyfing kom þá til skjalanna." Björg hætti í Rauðsokkahreyf- ingunni, þegar stefnumálum hennar var breytt 1974. Hún hafði þá ásamt þremur konum öðrum verið eitt ár í miðstöð hreyfingarinnar. Björg segist ekki hafa viljað hætta afskiptum af kvenréttindamálum og hún gekk í Kvenréttindafélag íslands og varð varaformaður þess í nokkur ár. Hún átti sæti í stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna, í allmörg ár og var formaður þess um skeið. Nú er Björg í hópi fimm kvenna sem starfrækja bókaforlag- ið Bókrúnu, en það einbeitir sér að útgáfu bóka er fjalla um konur og viðfangsefni þeirra. VILBORG HARÐARDÓTTIR SKtttasTiftm „Það var körlum engin vitundarvakning að starfa í Rauðsokkabreyfingunni og mér finnst sem þeir hafi dempað niður eldmóðinn hjó okkur. Baráttumál okkar sígild „Ætlunin með Rauðsokkahreyfingunni var að koma af stað vitundarvakningu og það tókst okkur,“ segir Vilborg Harðardóttir, blaðamaður, skólastjóri og einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar. „Við beindum spjótum okkar aðallega að launamisréttinu, skorti á dagheimilisplássum og fóstureyðingalöggjöfinni. Þó að vissulega hafí nokkuð áunnist í þessum málaflokkum, þá eru tveir þeir fyrrnefiidu sígild mál, því miður. En breytingamár sem gerðar voru á fóstureyðingalöggjöfinni 1975 má að stórum hlutaþakka Rauðsokkahreyfingunni." Vilborg segir að árunum 1968-1970 hafi hún varla hitt konur, svo að ekki hafi borið á góma óánægju með stöðuna í vinnu og heima fyrir. Það hafí hlotið að koma að því að hreyfmg- in yrði stofnuð. Hún &hafí verið hluti af hreyfingunni sem reis upp ’68 þó að rauðsokkumar hafi ekki verið eins ung- ar. „Þetta var skemmtilegasti tími ævinnar, ég hef aldrei læri eins mikið. Við skiptum okkur af öllu og öllum og til þess urðum við að vita hvað lá að baki. Þá þurftum við oft að koma fram í nafni hreyfingarinn- ar og standa fyrir máli okkar og það var ómetanlegt. Við vorum hver annarri styrkur, það var gott að vinna með svona samstillt- um hóp. Konurnar, sem störfuðu í Rauðsokkahreyfingunni, breytt- ust og þroskuðust svo mikið. I byijun vorum við sammála um að rétt væri að hafa karla með í hreyfingunni en nú er ég ekki viss um að það hafi verið rétt. Það var þeim engin vitundarvakn- ing að starfa í Rauðsokkahreyf- ingunni og mér finnst sem þeir hafi dempað niður eldmóðinn hjá okkur. Hreyfingin hérlendis var í mörgu frábrugðin þeim erlendu. Við börðumst aðallega í atvinnu- og verkalýðsmálum á meðan t.d. danskar rauðsokkur voru meira í sjálfsskoðuninni. Mér fannst að sú hlið hefði mátt vera meira áber- andi hjá okkur, við ræddum t.d. ekki viðkvæm persónuleg mál. En það var miklu meiri slagkraft- ur í kjarabaráttunni hjá okkur. Barátta okkar fannst mér ná hámarki 1974-1975. Þá héldum við ráðstefnu á Skógum þar sem samþykkt var að taka virkari þátt í stéttabaráttunni. í janúar 1975 héldum við síðan láglaunaráð- stefnu, sem skipti sköpum. Þar komu fram konur, sem margar höfðu aldrei komið fram opin- berlega, og þama myndast mikil samstaða. Eftir stefnubreyting- una á ráðstefnunni á Skógum gengu fáeinar konur úr hreyfing- unni en þær fylltu vart tuginn." Vilborg var lengst af í Rauð- sokkahreyfingunni, hætti um 1979 en segist hafa fylgst með henni allt til loka. „Vissulega var Rauðsokkahreyfingin bam síns tíma. Hún var aldrei félag heldur hreyfing, sem fékk miklu áorkað. Allt hefur sinn tíma og ég sé ekki eftir henni, þó að margar konur hafi gert það. En hún var sjálf- dauð þegar Kvennaframboð og -listi komu til sögunnar. Það er skrýtið að hugsa sér hreyfinguna sem hluta af sögunni og því ákaf- lega erfitt að gera sér grein fyrir vægi hennar þar.“ RAUflSOKKUR - BLASflKKUR Rauðsokkaheitið er ekki íslenskt að uppmna, að sögn I væri tákn hennar. Rauðsokkanafnið mun vera andsvar við I hópi kvenna um bókmenntir í stað hinna venjulegu spila- Helgu Siguijónsdóttur kennara en hún er nú að skrá j Blásokkunum, orði, sem var notað í niðrandi merkingu um I og kjaftaklúbba. Maður að nafni Benjamin Stillingfleet sótti sögu Rauðsokkahreyfingarinnar. Það er fengið frá dönskum konur er áhuga höfðu á bókmenntum og listum. Blásokkuhei- nokkra fundi, ávallt kiæddur bláum ullarsokkum í stað hinna kvenréttindakonum en þær tóku sitt nafn upp eftir banda- | tið er rúmlega tveggja alda gamalt, en um miðja átjándu hefðbundnu svörtu silkisokka. Hlaut þessi tilraun nafn sitt rískum rauðsokkum. Helga sagði að nafnið hefði m.a. verið „öldjjpfðj J^lhsabett1Montagu tilraun til að kpma áfót umræðu-_ _ | .. .af SOkkuiTLStÍILÍOgflfets OgJiélst,.þdað hópurinnJegðist af,., vaTiðTiTáð vélqááfRýgirá'báfáftuhnirpáf séfn íáuÁur íitur T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.