Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAI1989 Stærsta ráni sögunnar lokið Líklega verður aldrei alveg ljóst hve miklu var stolið í Oryggishólfamiðstöðinni í Knightsbridge en þó er talið víst, að ránsfengurinn hafi verið miklu meiri en fyrra metið, nærri 2,4 milljarðar ísl. kr. í gullstöngum, sem Brink’s-Mat-ræningjarnir komust yfír fyrir fimm árum. M. .argir þeirra, sem leigðu, öryggishólfin í Knightsbridge, gáfu sig aldrei fram og höfðu fyrir því „sína eigin ástæðu“ eins og dómarinn komst að orði en þeir, sem höfðu sam- band við lögregluna, söknuðu verðmæta fyrir nærri hálfan annan milljarð. Valerio Viccei telur hins vegar sjálfur, að verðmæti þýfisins hafi verið nálægt 3,6 milljörðum króna. Viccei og samstarfsmaður hans, Stephen Mann, sögðu við réttarhöldin, að bara pen- ingarnir úr öryggishólfunum 200 hefðu fyllt baðkar í íbúð- inni, sem þeir voru með í Lon- don, og Viccei sagði, að þegar hann hefði vaknað daginn eft- ir og gengið fram í stofuna hefði hann blindast af sólar- ljósinu, sem endurkastaðist af gimsteinunum á gólfinu. Auk gimsteinanna voru á gólfinu margar raðir af Rolex- og Cartier-úrum, hálsfestum Skjótvirkur stíflueyðir Fródleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Shell- og Esso -stöðvar Tilbúinn stíflu eyðir og helstu byggingavöru- verslanir. Dreifing: Hringás hf. S. 77878, 985-29797. „Þú lagðir mikið undir, en tapaðir“ Valerio Viccei, glaumgosinn, sem skipulagði og stjómaði stórráninu í Oryggishólfamiðstöðinni í Knightsbridge í Englandi, var dæmdur í 22 ára fangelsi í Old Bailey í janúarmánuði sl. „Þú lagðir mikið undir en tapaðir. Nú verður þú að gjalda glæpsins," sagði dómarinn en Viccei, sem er 33 ára að aldri og ítalskur að þjóðerni, fékk í sinn hlut megnið af ránsfengnum, sem var einhvers staðar á bilinu 1,5 - 3,6 milljarðar ísl. kr. í peningum, gimsteinum, skartgripum, eiturlyfj- um, suður-afrískum gullpeningum og öðmm verðmætum. til J? egar Valerio Viccei kom Bretlands snemma árs 1986 var hann á flótta undan ítölsku lögregl- unni, sem vildi koma honum á bak við lás og slá vegna margra rána. Hann kom til landsins á fölsuðu vegabréfi og lét það verða sitt fyrsta verk eftir að hafa komið sér vel fyrir í glæsiíbúð í Mayfair að hafa samband við nokkra landa sína í London. Að því búnu tók hann aft- ur til við glæpina og starfsmenn Scotland Yard telja, að hann hafi komist yfir um 45 milljónir ísl. kr. í fimm bankaránum í borginni áður en hann var tekinn höndum. I gegnum kynni sín af glaum- VIÐ LÖGUM OKKUR AÐ BREYTTUM AÐSTÆÐUM Þann 12. maí 1989 verður útibú Verslunarbankans í Umferðarmiðstöðinni lagt niður. Ástæður pess eru fyrst og fremst þær að húsnæði og aðstaða viðskiptavina og starfsfólks í útibúinu hefur verið ófullnægjandi um nokkurn tíma og að breytingar á umferðarmannvirkjum í nágrenni Umferðarmiðstöðvarinnar virðast hafa í för með sér einangrun útibúsins. Fimm afgreiðslustaðir í Reykjavík tii að veija um. Verslunarbankinn er staðsettur á fimm stöðum í Reykjavík, auk útibúa í Keflavík og Mosfellsbæ. Starfsfóík bankans mun aðstoða við val á því útibúi sem hentar best, en 12. maí munu öll önnur viðskipti flytjast sjálfkrafa í útibú bankans í Bankastræti 5. Við vonum að þessi hagræðing í rekstri bankans valdi viðskipta- vinum ekki óþægindum og munum, hér eftir sem hingað til, kappkosta að veita víðtæka og persónulega pjónustu á öllum sviðum bankaviðskipta. V€RSLUNRRBRNKINN -uúuuct (tteð fi&i! Bankastræti 5, sími 27200 Laugavegi 172, sími 20120 Grensásvegi 13, sími 84466 Þarabakka 3, sími 74600 Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, sími 687200 gosaliðinu, sem heldur til í Mayfa- ir, komst Viccei í samband við Parvez Latif, pakistanskan eiganda Öryggishólfamiðstöðvarinnar í Knightsbridge. Latif var skuldunum vafinn eins og skrattinn skömmun- um, með yfirdrátt upp á tugi millj- óna króna, og fyrirtækið var rúm- lega 40 millj. kr. í mínus. Viccei sá strax, að hér var komið gullið tækifæri til að fremja það, sem hann hreykti sér af við lögregl- una og kallaði „stórkostlegasta giæp“ fyrr og síðar. Hann taldi Latif á að taka þátt í að setja á svið rán, sem myndi gera þá báða að milljónamæringum. Viccei og annar maður komu í Öryggishólfamiðstöðina sunnudag- inn 12. júlí árið 1987 og þóttust vera væntanlegir viðskiptamenn. Fyrr en varði höfðu þeir þó yfirbug- að báða öryggisverðina og Latif, sem reyndi að fara sem best hann gat með hlutverk fórnarlambsins. Að því búnu réðust þeir til atlögu við öryggishólfin með bor og sleggju. Það var þá, sem Viccei urðu á afdrifarík mistök. Þegar öll djásnin blöstu við varð hann svo æstur, að hann gætti sín ekki, skar sig á fingri og skildi eftir sig full- komið fingrafar í sínu eigin blóði. Fingraförin hans Vicceis voru á skrá hjá Scotland Yard enda hafði Interpol dreift þeim um alla Evrópu og lögreglan var einnig með lista yfir kunningja hans í London. Hafði Valerio nýtur hins ljúfa lífs áður en hann „lagði allt undir“ og tapaði svo um munaði. ítalska lögreglan gefið upplýsingar um þá og nú var fylgst með þeim nótt sem dag. Einn þeirra var Isra- el Pinkas, sem viðurkenndi síðar að hafa selt sumt af þýfinu. Þetta eftirlit leiddi lögregluna mánuði eft- ir ránið að White’s-hótelinu í Ma- yfair þar sem Pinkas ætlaði að hitta einn gestanna, mann að nafni Rai- man. Það reyndist vera Viccei sjálf- ur. Fyrir utan hótelið stóð Ferrari Testarossa-bifreið, sem var skráð á Viccei og hafði kostað hátt í átta milljónir ísl. kr. Hann hafði borgað hana út í hönd hálfum mánuði eftir ránið. í baksæti bifreiðarinnar fannst skjalataska með skartgrip- um, sem metnir voru á níu milljón- ir króna og þar voru einnig kvittan- ir fyrir miklu fé, sem Viccei hafði lagt inn í banka víða um Evrópu. Það var ekki aðeins, að Viccei játaði á sig glæpinn, heldur var hann hinn kotrosknasti og hreykti Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rouða kross islands í heimsóknariijónustH Fundur verður haldinn í Múlabæ, Ármúla 34, mánudaginn 8. maí kl. 17.00. 1. Venjulegt fundarefni. 2. Elínborg Lárusdóttir, félagsráðgjafi og Brynja Arthúrs- dóttir, aðstoðarmaður félagsráðgjafa koma á fundinn og ræða um aðstoð við blinda og sjónskerta. Þær konur sem vilja kynna sér starfið eru velkomnar. Stjórnin. Rauöi Kross Islands BJÓÐUM Rowonla og GAGGEKAU 15% HEIMILISTÆKI MEÐ KYNNINGARAFSLÆTTI GILDIR 5 — 20 MAÍ '89 Vörumarkaðurinn KRINGLUNNIS. 685440 OG UMBOÐSMENN ob

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.