Morgunblaðið - 07.05.1989, Síða 39

Morgunblaðið - 07.05.1989, Síða 39
e88f ÍAM .T aÚ0A(ÍUVIMU8 GII4RA3MA2 GlGAJaHUDfloV MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989 3 88 # C 39 Þeir láta veðrið ekki á sig fá þessir trillukarlar enda verður að gera að aflanum hvað sem raular og tautar. Kolin sekkjuð með brosi á vör. símtalið ... ER FIÐ ÞÓREYJUPÁLSDÓTTUR BANKASTARFSMANN Kaupi ósköp vettjulegan mat 98-22177 „Samvinnubankinn.“ - Góðan dag. Er Þórey Páls- dóttir við? „Augnablik." „Þórey.“ - Komdu sæl. Friðrika Benónýs heiti ég, blaðamaður á Morgun- blaðinu, ég sá það í spjalli við þig í blaðinu um daginn að þú eyddir um tíu þúsund krónum á mánuði í mat. Hvernig í ósköpunum er það hægt? „Það er nú ekki alveg að marka þetta, ég er eiginlega aldrei heima...“ - Maður þarf nú að borða fyrir það... „Já, já, en í hádeginu borðar sonur minn á dagheimilinu og sambýlismaðurinn er ekki heima svo ég fer oftast í mat til mömmu, ég nenni ekki að elda fyrir mig eina.“ - En á kvöldin? „Ég kaupi bara ósköp venjuleg- an mat, fæ reyndar mikið af fiski ókeypis, á slátur tunni síðan í haust og kaupi kjöt í heilum skrokkum..." - Sem sagt hin dæ- migerða hagsýna hús- móðir... „Ég reyni að vera hagsýn já, það er allt orðið svo dýrt. Svo hef ég líka verið að skúra á kvöldin þrisvar í viku á heimili fyrir þroska- hefta héma uppi í sveit og oft fengið að borða þar.“ — Einhvers staðar hef ég heyrt að Sel- fyssingar taki rútuna í bæinn einu sinni í viku til að gera hagstæð- ari innkaup. Ert þú ein af þeim? „Nei, ég versla allt sem ég þarf á Selfossi." - Fyrir þennan pening hefurðu nú varla efni á að hafa sunnudag- asteik um hveija helgi... „Nei, það geri ég ekki enda er ég oftast lítið heima um helgar. Mér finnst miklu skemmtilegra að gera sér einhvern dagamun í mat í miðri viku.“ - Annað sem ég rak augun í var að þú segist borga fjórtán þúsund á mánuði í húsaleigu, er það gangverð á tveggja herbergja ’ íbúðum á Selfossi? „Nei, nei, nei. Ég bý í íbúð sem amma mín átti og fæ hana þess vegna svona ódýrt. Gangverð á tveggja herbergja íbúð hér er svona tuttugu og tvö til tuttugu og fimm þúsund.“ - Jæja Þórey, hvað viltu ráð- leggja fólki sem er að reyna að lækka hjá sér matarreikninginn? „Ég er nú enginn sérfræðingur, en mér l hefur reynst best að eiga ekki of mikið til í skápunum og nýta það sem til er áður en maður kaupir meira. Það er allt í lagi að lifa á gijónagraut og brauði inn á milli.“ - Ég þakka þá bara fyrir spjallið. „Já, sömuleiðis. Bless.“ - Bless. Þórey Pálsdóttir bankastarfsmaður í 500 MOKKDHBLADID 48 RtyVjjTH. 8. i JTL, ll. O. O. F. 9;ii?9 - m [ Hvernig á eiginmaöui inn að vera? Rititi6ri: VilhjálmÐi Finien. 1 Wold.” mm Brlendar simtregnir Fréttir af Vilhjálmi Stefánssyni KUJn 7. nto. U. i. 'mn I vctrarutu i Htnul- Bibliufyi Sunnodag 9. s Efoi: Hvtrnif, •r Jyrirtifn iþim tnfa Of prawjr. u-rmwwi n.p. Hvcrnig á eigin I Mexikúþra ■ 3 ,c — inn að vers Svar nr. 46. *era Góður eiginmxöur Svar nr. 12, ur, skeroúlegur, lag < Góflur eiginmaflur crsi sem , * aöur. Hann i « afl gera þlkoQU sero iJnrogVvaUflsér,sv;haiIJi öhenm getr mlafl vifl hann 1 T. ' ! aður. slna seu. i-—=■ ac, svo .hamingjusama a« h.u I jö berameðhenm geti talað vifl haun um alf’afl hún að svo rorklu fiutii as hdu i bar sannaú ^ i er unt. Hann A ski|ur haua rétt, og afl hún a'h'” I og cinlægur, og um lr*rasti félagiun. Þi verflur I konu slna. H b|art þo erfiðleiltar mæti. I Svar nr. 4. linraaður i ai ‘11 hafa hann. I roaður og ræk 1 u.nn 4 afl veta u- 1 ^ mltnleea gefinn fyrir skcmtamr. | Og mitulega g elska konul Svar nr. 5. ^onu sinna; ia elflri - Svar nr. 4Í GlaÖur, frlÖur, Ri góflur, bUflur, isti falslaus, þýður, fri flestri prýti svei Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 19. Af þeim istæflum, að flest af svör- um þeim, hvernig eiginmaðurinn i afl vera, virðast vera oí heimtuírek, og fæstar mundu verðskulda svo göf- uga eiginleika, þi finst mér heppi- legast að stinga upp i að eiginmað- urinn sé eftir verðleikum konu sinnar. Rtttsýnn. Z °gs Hann ' »« eras um sjálfan sig ,gS‘ haDn Hfufrarat ura tuuu, elski hana og virðT góður eiginmaður. G- J H. F. D. Hvernig á eiginmaðurinn að vera? 10 kr. gefur Morgun- blaðið þeim sem bezt svarar þess- ari spurningu. Allir geta tekið þátt í þessari samkepni. Hinn 8. dag nóvembermánaðar árið 1913 leitaði Morgunblaðið svara við þessari spurningu hjá les- endum sínum. „Munum vér velja 3 óvilhalla menn til að vera dómara, einn úr ritstjórn Morgunblaðsins og hina tvo utan ritstjórnar.“ Þátt- takendum var heitið fullri nafn- leynd. Svörin skyldu send til rit- stjóra. uii'4,i i, lo i,, «, Viðtökur almennings voru mjög góðar; í Morgunblaðinu hinn 9. nóvember sagði: „Áhugi manna — einkum kvenfólksins — er afarmik- ill.“ Blaðinu bárust svo mörg svör að ekki var hægt að birta nema helming þeirra, — nánar tiltekið 47 úrlausnir. Af svörunum mátti ráða að eig- inmaðurinn varð að vera margví- slegum eiginleikum gættur. Fríðleiki, bindindissemi og reglu- semi voru ofarlega á blaði. „Sigríð- ur stórráða" vildi eiginmann sem léti konuna geyma bæði budduna og forstofulykilinn, bæði leyfis kon- FRÉTTALIÓS ÚR FORTÍÐ Ó,aðeg fengi eiginmann Samkeppni Morgun- bladsins 1913 unnar til að fara út eftir að skyggja tæki og væri kominn aftur þegar þyrfti að hátta krakkana. Svar nr. 8 var stutt. „Eiginmaðurinn á að vera höfuð konunnar, en konan hálsinn, sem snýr höfðinu." Nokkrar úrlausnir voru í bundnu mál, t.d. nr. 10: Eg vil fríðan eiga mann, ungan, bliðan, hraustan, glaðan, þýðan, gáfaðan, guði hlýðinn dygðugan. „Gamalmenni" taldi m.a. eigin- manni til gildis: „Sótthreinsar sál og líkama einusinni á mánuði, með því að drekka sig útúr fullan, því þá verður hann kátur og fjörugur það sem eftir er mánaðarins, eins og eg og ritstjóri Morgunblaðsins sem ekki er Good-Templar.“ Enginn var skrifaður fyrir svari nr. 16 og verða lesendur sjálfir að geta sér til um hvort hér haldi karl eða kona á penna; „Góðureig- inmaður er sá sem gerir konuna ekki heilsulausa af of miklu eftir- læti... sá sem ekki gefur konunni silki í svuntu, fyr en hann hefir séð, hvernig hún fer með hin- ar...“ „Gamla konan“ aftur á móti vildi m.a: „Efnilegur iðjusam- ur, leggur ekki á konuna of miklar bameignir, fyndinn og vel hag- mæltur, en morgunsvæfur á sunnu- dögum. — Svona er maðurinn minn . . .“ „Hörgrún" kvað: Ó, að eg fengi eiginmann ástargjaman, brosleitan, friðan, ungan, ftjálslyndan og fram úr lagi ástríkan, já, ástríkan. Á mig horfi’ hann eina bara og ekki faðmlög sín má hann spara, og augunum hann skjóti’ á ská, ó, skemtilegur væri’ hann þá. Nr. 32. var ákveðin: „Nákvæm- lega eins og minn eiginmaður er — ... Nafn hans er „enginn". „Pipar- mey“ var skrifuð fyrir þessu svari. Svar nr. 38: „Góður eiginmaður er sá sem les Morgunblaðið því þar getur hann séð hvernig hann á að breyta- -gagnvart- -konu - smni- -og hvaða eiginleikum hann á að vera gæddur til þess að vera góður eig- inmaður.“ (Kona sem les Morgun- blaðið). Svar nr. 43. mat öryggið mik- ils:„l. Andlega og líkamlega hei- brigður. 2. Líftrygður . . . að hann í hugsunum, orðum og gjörðum greiði fult iðgjald eilífrar líftrygg- ingar . ..“ Næsta svar var stutt og laggott, góður eiginmaður átti að vera: „Við hæfi konnunnar." Eins og fyrr var sagt valdi Morg- unblaðið þijá óvilhalla dómara og þeir voru: „Jungfr. Ragna Stephen- sen, doktor Guðm. Finnbogason og Ólafur ritstjóri Bjömsson.“ Ætlun- in hafði verið að birta dóm nefndar- innar 16. desember en störf nefnd- arinnar töfðust vegna veikinda eins dómnefndarmannsins. Dómsorðið kom að lokum 24. janúar 1914. Svar nr. 12. undir merkinu 7-12 hlaut verðlaunin: „Góður eigin- maður er sá sem auðnast að gera þá konu sem hann hefir valið sér, svo hamingjusama, að hún geti talað við hann um alt; að hún finni að hún á þar sannan vin, sem skil- ur hana rétt, og að hún sé honum kærasti félaginn. Þá verður lífið bjart þó erfiðleikar mæti.“ «»-■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.