Morgunblaðið - 02.07.1989, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1989
ERLENT
INNLENT
Magnús Thor-
oddsen víki
úr embætti
BORGARDÓMUR ákvað í byijun
vikunnar að Magnús Thoroddsen
skyldi vílqa úr embætti hæstarétt-
ardómara, þar sem hann hafí með
kaupum á 2.160 flöskum af áfengi
á kostnaðarverði árin 1987 og 1988
rýrt svo álit sitt siðferðilega að
hann megi ekki gegna embætti.
Hins vegar taldi dómurinn að
dómsmálaráðherra hafí ekki verið
heimilt að víkja Magnúsi úr emb-
ætti um stundarsakir og skerða
laun hans um helming meðan dóms
var beðið. Var ríkissjóður því
dæmdur til þess að greiða þau laun
sem hann hefur misst frá brottvikn-
ingu, 388 þúsund krónur auk
vaxta. Magnús Thoroddsen hefur
þegar ákveðið að áfrýja málinu til
Hæstaréttar.
Forsætisráðherra Finna í
heimsókn
Harri Holkeri, forsætisráðherra
Finna, kom í opinbera heimsókn
til íslands á mánudag. Hann átti
viðræður við Steingrím Hermanns-
son, forsætisráðherra, snæddi há-
degisverð á Bessastöðum í boði
forseta íslands, frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, heimsótti Þingvelli,
Geysi og Gullfoss, auk annars.
Forsætisráðherrann fór héðan af
landi brott á fimmtudag.
Hagvirki opnað á ný
Skrifstofur
Hagvirkis voru
opnaðar seinni-
part þriðjudags-
ins eftir að hafa
verið lokaðar frá
því fyrir helgi
vegna meintra
söluskattsskulda.
Ólafur Ragnar
Grímsson, ijármálaráðherra, ákvað
að óska eftir að ríkisskattanefnd
flýtti úrskurði í máli Hagvirkis og
•tveggja annarra fyrirtækja sem
greindu á um söluskattsskuldir.
Urskurðarins er að vænta 14. júlí.
Loflti Kjarvalsstaða ekki
breytt
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
undirréttar í máli Reykjavíkurborg-
ar gegn Hannesi Kr. Davíðssyni,
arkitekt, um að lögbann við breyt-
ingum á lofti Kjarvalsstaða skuli
vera áfram í gildi. Stjóm Kjarvals-
staða hefur viljað breyta loftinu og
talið að það dragi athyglina frá
myndverkum í sýningarsölum og
hafi slæm áhrif á lýsingu.
Nýr samningur við Aldi
Sölustofnun lagmetis hefur gert
nýjan samning við vestur-þýsku
verslunarkeðjuna Aldi-Nord um
sölu á niðursoðinni rækju að verð-
mæti 230 milljónir króna. Viðskipti
við Aldi-Nord hafa aldrei lagst al-
veg af þrátt fyrir andóf grænfrið-
unga. Engin sala hefur hins vegar
verið til Aldi-Sod eftir mótmæli
grænfriðunga.
Farmenn boða
yfirvinnubann
Farmenn hafa boðað yfírvinnu-
bann frá og með miðvikudeginum
5. júlí, hafi kjarasamningar ekki
tekist fyrir þann tíma. Talsmenn
kaupskipaútgerðanna upplýsa að
ef yfirvinpubannið komi til fram-
kvæmda muni það hafa tafír og
kostnaðarauka í för með sér.
Kaup á Útvegsbankanum
formlega staðfest
Fimm hundnið
starfsmenn Út-
vegs-, Alþýðu-,
Verslunar-, og
Iðnaðarbanka
komu saman á
Kjarvalsstöðum á
fimmtudag og
. fögnuðu undirrit-
un samnings um
• kaup þriggja síðamefndu ban-
kanna á hlut ríkisins í Útvegs-
bankanum. Yfírskrift samkomunn-
ar var: „Við eigum samleið".
ERLENT
Bylting hers-
ins í Súdan
Her Súdans, stærsta ríkis
Afríku, steypti stjóm landsins af
stóli á aðfaranótt föstudags og
náði höfuðborginni Kartúm á sitt
vald. Herforingi, Omar Hassan
að nafni, kom fram fyrir hönd
hersins og sakaði stjómvöld um
að bregðast þjóðinni. Mánuðum
saman hefur mikil ókyrrð verið í
Súdan og her og ríkisstjóm hafa
deilt um hvemig binda ætti enda
á borgarastyijöldina í suðurhluta
landsins.
Málamiðlun um
EB-gjaldmiðil
Á leiðtogafundi Evrópubanda-
lagsins náðist á þriðjudag mála-
miðlun um að stíga fyrsta skrefið
í átt til sameiginlegs seðlabanka
og gjaldmiðils fyrir öll EB-ríkin.
Margaret
Thatcher, for-
sætisráðherra
Bretlands, hef-
ur lagst gegn
einu peninga-
kerfí í banda-
laginu og kom
til nokkurra
orðahnippinga
milli hennar og
Francois Mitterrands Frakk-
landsforseta á leiðtogafundinum.
Er niðurstaða fundarins túlkuð
sem sigur fyrir sameinaða Evr-
ópu.
Nýr flokksleiðtogi í Kína
Jiang Zemin, borgarstjóri
Shanghai, var kosinn aðalritari
kínverska kommúnistaflokksins á
fundi miðstjórnar um síðustu
helgi. Um leið var tilkynnt opin-
berlega að Zhao Ziyang, fyrrum
aðalritari, hefði verið sviptur nær
öllum vegtyllum. Zhao sást síðast
á almannafæri 19. maí síðastlið-
inn þegar hann reyndi að fá náms-
menn til að láta af andófsaðgerð-
um á Torgi hins himneska friðar.
Síðar í vikunni bárust þær fréttir
frá Kína að hafin væri mikil per-
sónudýrkun á Deng Xioping, hin-
um aldna leiðtoga Kína, svo
minnti á upphafningu Maos Ze-
dongs forðum.
Kviknar í sovéskum
kjarnorkukafbáti
Aðfaranótt mánudags kviknaði
í sovéskum kjamorkukafbáti
skammt norður af Noregi. Sovét-
menn viður-
kenndu að
kjamavopn
hefðu verið um
borð í kafbátn-
um en engrar
óeðlilegrar
geislavirkni
hefur orðið
vart á slysstað.
Orsök slyssins
er talin sú að
kælivatnspípa
hafí brostið í öðmm kjamakljúf
bátsins. Kafbáturinn sem er af
gerðinni Echo-2 var dreginn til
hafnar í Severomosk á Kólaskaga.
Er þetta þriðja sovéska sjóslysið
við Noregsstrendur á jafn mörg-
um mánuðum.
Austurríki sækir um aðild
að EB
Þing Austurríkis samþykkti á
fimmtudag að landið sækti um
aðild að EB. Langur tími getur
liðið áður en umsóknin verður
tekin fyrir en verði hún samþykkt
þá fer fram þjóðaratkvæða-
greiðsla í Austurríki um aðildina.
Valdaránið í Súdan:
Dregnr úr neyðarhjálp
Kairó. Abu Dhabi. Reuter.
DREGIÐ hefur úr flutningi hjálp-
argagna til suðurhluta Súdans eft-
ir valdarán hersins á föstudag
vegna þess m.a. að flugumferð er
bönnuð, að sögn starfsmanna Sam-
einuðu þjóðanna í Nairobi í Kenýa.
Ekki hafa borist fregnir um átök
í stríðshijáðum héruðum Suður-
Súdans frá því 1. maí er súdansk-
ir skæruliðar lýstu yfir vopnahléi
í átökum við stjórnarherinn til að
greiða fyrir neyðarflutningum.
Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
hafa áður spáð því að hungur-
dauði vofði yfir 100.000 manns ef
matvælaflutningar stöðvuðust til
landshlutans.
Stjómmálaskýrendur eru ekki á
einu máli um hver framvinda
mála í Súdan verði og hveijum aug-
um eigi að líta valdaránið sem fór
fram án blóðsúthellinga. Sendimenn
vestrænn ríkja sem fréttaritari Reut-
ers-fréttastofunnar talaði við spá því
að hermenn í stjórnarhemum hlið-
hollir Sadeq al-Mahdi, fyrrum for-
sætisráðherra, snúist gegn Omar
Hassan al-Bashir og hans mönnum.
Aðrir benda á að ráðherrann hafí
sýnt undanfarin ár að hann sé gjör-
samlega ófær um að glíma við hin
fjölþættu vandamál landsins. Bylt-
ingarforinginn Omar hljóti því að
njóta víðtæks stuðnings.
„Bróðir minn verður varla lengi
við völd því hann er laus við alla
pólitíska metorðagimd," sagði Mo-
hammed Hassan al-Bashir í samtali
við Reuter um bróður sinn, Omar,
sem leiddi byltinguna á föstudag.
Omar studdi að hans sögn valdarán
hersins árið 1985 og er mikill aðdá-
andi Abduls Swareddahabs hers-
höfðingja sem tók þá við völdum og
hélt þeim í eitt ár. „Bróðir minn
hefur ekki nein tengsl við nokkum
flokk né nokkurt erlent ríki. Hann
vildi einungis bjarga landinu frá
efnahagslegu og pólitísku hmni,“
sagði Mohammed ennfremur. Omar
er fæddur árið 1944 í þorpi í norður-
hluta Súdans.
Reuter
Torgið opnað fyrir útvalda
Hermenn rölta um Torg hins himneska friðar í Peking. Rauðir
fánar blakta við hún í tilefiii 68 ára afmælis kínverska kommmúni-
staflokksins, sem var í gær. Torgið hefur verið lokað almenningi
undanfarnar vikur en var opnað útvöldum hópum ft'á og með
gærdeginum.
Urslit EB-kosninganna í Danmörku:
Osigur Ihaldsflokksins getur
reynst Schliiter afdrifaríkur
•• i/ o •
EINSTAKLEGA léleg kjörsókn og afliroð íhaldsflokksins er það
sem helst vekur eftirtekt þegar úrsiit dönsku kosninganna til
þings Evrópubandalagsins (EB) eru metin. Kjörsóknin var aðeins
um 46%, mun lélegri en í EB-kosningunum 1984. Danir hafa 16
sæti á þinginu. Stuðningsmönnum aðildar Danmerkur að EB fjölg-
aði um einn í þingliðinu og Berlingske Tidende sló því föstu í
forystugrein að raunveruleg andstaða væri úr sögunni. Blaðið
var hins vegar ekki í vafa um mikilvægustu ályktunina sem draga
mætti af kosningaúrslitunum og fádæma lélegri kjörsókn. Blaðið
sagði þingmenn EB sjálfa bera ábyrgð á litlum áhuga kjósenda
í Danmörku og fleiri aðildarríkjum.
Iforystugrein Berlingske Tid-
ende sagði að lengi hefði það
verið svo að áhugi EB-þingmanna
virtist því meiri á málefnum sem
mikilvægið væri minna. „Ef Evr-
ópuþinginu á að takast að breyta
þeirri ímynd sem það hefur skap-
að sér sjálft verður það að takast
í meira mæli á við grundvallarmál
Evrópusamstarfsins. Það verður
að ýta til hliðar smærri atrið-
um ... Þingið er mikilvægara en
svo að kjósendur geti leyft sér að
nota Evrópu-
kosningarnar til
að veita sitjandi
ríkisstjórnum
aðvörun án þess
að þurfa að ótt-
ast afleiðingarn-
ar,“ sagði í forystugreininni.
Að þessu sinni fengu íhalds-
menn Pouls Schliiters forsætis-
ráðherra aðeins tvö sæti, höfðu
flögur. Venstre, flokkur Uffe Elle-
manns-Jensens utanríkisráð-
herra, fékk flest atkvæði borgara-
flokkanna og þijú þingsæti. Þjóð-
arhreyfingunni gegn EB hafði
verið spáð hruni en það fór á
annan veg; hreyfingin hélt fjórum
þingsætum sínum. Helsti sigur-
vegari kosninganna var flokkur
Mið-demókrata sem fékk tvo
þingmenn, hafði einn. Jafnaðar-
menn bættu mjög hlut sinn frá
kosningunum 1984 og fengu nú
fjögur þingsæti en höfðu þijú. Það
hefur vakið athygli að þeir flokkar
sem unnu á eiga það sameiginlegt
að styðja eindregið Evrópusam-
starfíð eða hafa dregið úr and-
stöðu sinni. íhaldsmenn þóttu, að
dómi Evrópusinna, beina athygl-
inni um of að innanlandsmálum
Dana í kosningabaráttunni.
„Við gerðum okkur vonir um
vinsamlegt klapp á bakið frá kjós-
endum en fengum í staðinn löðr-
ung,“ sagði Hans Engell, talsmað-
ur íhaldsmanna á þingi. Poul
Schluter, formaður flokksins og
forsætisráðherra minnihluta-
stjómar íhaldsflokksins, Venstre
og Radíkala, sagði fyrir kosning-
amar að nú gætu kjósendur sýnt
hug sinn til stefnu stjómarinnar,
á sama hátt og í
sveitarstjórnar-
kosningum.
Schliiter hefur
ástæðu til að iðr-
ast þessara um-
mæla.
SkattatiIIögur stjómarinnar
vom þemað í kosningaslagorðum
íhaldsmanna, herópið var: „Kjósið
lægri skatta!“ Ljóst er að þetta
hreif ekki kjósendur og Schliiter
viðurkenndi að úrslitin væm ósig-
ur fyrir flokkinn. „Það getur ver-
ið að við höfum sýnt of mikla
varkámi í umræðunni um samein-
ingarmál EB og öðmm stórmál-
um. En árangurinn var einnig lé-
legur vegna slakrar kosningabar-
áttu og röðunar á lista. Frambjóð-
endurnir vom hvorki nógu sterkir
né þekktir," sagði Schluter.
Leiðtogar íhaldsmanna líta
málið alvarlegum augum. Flokk-
urinn hefur misst fylgi í tveim
síðustu þjóðþingskosningum og
eftir fímm mánuði verða sveitar-
stjórnarkosningar. Stjórn Schlut-
ers á nú í samningaviðræðum við
stjórnarandstöðuna, fyrst og
fremst jafnaðarmenn, og helstu
hagsmunasamtök landsins um
aðgerðir í efnahagsmálum og hef-
ur hún lagt fram byltingarkennd-
ar tillögur. Boðuð er umf angsmik-
il lækkun ríkisútgjalda ásamt
skattalækkunum, ekki síst handa
fyrirtækjum. Svend Auken, for-
maður Jafnaðarmannaflokksins,
segir að Schluter standi nú mun
verr að vígi en fyrir áfallið í EB-
kosningunum. Innan stjómarinn-
ar er samvinnan auk þess ekki
traustari en svo að Radikalar voru
í kosningabandalagi með jafnað-
armönnum í EB-kosningunum.
Uppskeran var engin til handa
Radikölum en atkvæði þeirra voru
Auken og félögum hans nokkur
búbót.
Venstre hefur nú styrkt stöðu
sína f baráttunni við íhaldsmenn
um forystu borgaraflokkanna.
Talið er að samningamenn Vens-
tre vilji harða stefnu og litlar til-
slakanir gagnvart jafnaðarmönn-
um í samningunum um efnahags-
umbætumar. Margt getur því orð-
ið til að bregða fæti fyrir umbylt-
ingarhugmyndirnar og renni þær
út í sandinn getur það merkt
endalpkin á valdaferli Schluter-
stjórnarinnar.
BAKSVID
Kristján Jónsson