Morgunblaðið - 02.07.1989, Síða 6

Morgunblaðið - 02.07.1989, Síða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUÚBLÁÐÍÐ buNNUDAÓ'tíá' 'Í. Svipmynd eftirHjört Gíslason er drengur góður og góður til samstarfs á öllum sviðum." Guðjón er fæddur að Stakka- nesi við ísafjarðarkaupstað árið 1944 og ólst hann upp við störf GUÐJÓN A. Kristjánsson er einn þeirra, sem mest ber á í íslenzk- um sjávarútvegi. Hann er fengsæll og farsæll skipsljóri á skuttog- aranum Páli Pálssyni frá Hnífsdal, hann er sömuleiðis áberandi sem forseti Farmanna- og fiskimannasambands Islands og hann er einn þeirra, sem deilir hvað mest á kvótakerfið, þó hann hafi á sínum tíma samþykkt að beygja sig undir það. Guðjón er mik- ill baráttumaður, en jafiiframt góður samningamaður. Þó hann hafi ákveðnar skoðanir og frelsi til athafiia sé honum heilagt fer hann að staðreyndum og nauðsynlegum takmörkunum. En honum þykir það sárt. Kristján Ragnarsson, fram- ^■■■■■■■^^■■■■■B kvæmdastjóri LÍÚ, er gjör- kunnugur Guðjóni: „Við höfum tekizt á í kjarasamningum milli sjómanna og útgerðarmanna, ver- ið samheijar við fiskverðsákvarð- anir og unnið saman í nefnd um mótun fiskveiðistefnunnar," segir Kristján. „í kjarasamningum er hann eindreginn talsmaður um- bjóðenda sinna. Hann gjörþekkir aðstæður þeirra af eigin starfí sem skipstjóri, er kjarkmikill og þorir að taka ákvarðanir og standa og falla með þeim. Það er hægt að treysta því, sem hann segir, hvort sem það er í formlegum eða óformlegum viðræð- um og það skiptir miklu máli. Það sama má segja, um starf hans innan Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Hann á auðvelt með að átta sig á reikn- ingslegum stærðum og er tilbúinn til að taka ákvarðanir á þeim grunni. Hann skýtur sér ekki und- an ábyrgð, þó það geti kostað hann töluvert stríð. Hvað varðar mótun fisk- veiðistefnunnar, finnst mér hann markast um of af sjónarmiðum skipstjórans. Hann segir að fisk- veiðamar séu ekkert skemmtileg- ar lengur, manni sé ekki aðeins skammtaður heildarafli, heldur einnig afli í hverri veiðiferð. Guð- jón hefur vegna þessa lagt of mikla áherzlu á sóknarmarkið og ráðið þar of miklu. Ánægja hans af fiskveiðunum, aflamannseðlið ræður þama of miklu, en hann Guðjón kann vel við sig við stjomvölmn, hvort sem það er á láði eða legi. til sjávar og sveita enda segist hann vera mikið náttúrabam. Sjó- mennsku hóf hann á handfæram 15 ára gamall og við sjóinn hefur hann haldið sig til þessa þó félags- málin taki æ meiri tíma. 1975 varð hann formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunn- ar á Vestfjörðum, 1983 varð hann forseti FFSÍ og á þessum áram hefur hann setið á Fiskiþingi og í ráðgjafamefnd um stjómun físk- veiða. Guðjón sat á Fiskiþingi, þegar kvótakerfið var samþykkt, og var honum það óljúft í meira lagi að taka þátt í þeirri sam- þykkt, en taldi sig, miðað við að- stæður, ekki geta skorazt undan því að reyna þessa leið til að bæta stjómun fiskveiða. Þorsk- stofninn var þá að hruni kominn. Guðjón hefur reynt fyrir sér í pólitíkinni, en náði takmörkuðum árangri í prófkjöri sjálfstæðis- manna á Vestfjörðum fyrir síðustu alþingiskosningar. Ýmsir telja að Guðjón eigi eftir að fara á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í V estíj arðakjördæmi. Einn „andstæðinga“ Guðjóns innan fískvinnslunnar ber honum líka vel söguna. Hann segir Guð- jón koma sér fyrir sjónir sem mikill veiðimaður. Hann horfí gjarnan á málin út frá því sjónar- miði að grípa beri gæsina, þegar hún gefst. Þess vegna hætti hon- um til að vilja afgreiða málin full hratt, sé eiginlega um of markað- ur af skiþstjórninni og vilji á stundum ráða of miklu. Hann virki sem mjög harður baráttumaður, en sé í reynd mun Iunknari samn- ingamaður en margir telji. Hann sé ágætlega greindur og komist vel frá verkefnum sínum. Umfram allt sé hann hreinskiptinn. „Ég tel engan vafa á því að Guðjón eigi eftir að fara út í pólitík og ná árangri á því sviði. Honum er farin að leiðast sjómennskan í kvótakerfinu og blóðlangar í pólitíkina. Eiginleikar hans ættu að nýtast vel á þessu sviði og hann verður vafalaust skeleggur baráttumaður byggðarlags síns og sjómannastéttarinnar," segir þessi maður. Guðjón er vel liðinn innan sjó- mannastéttarinnar enda nýtur hann óskoraðs trausts félaga sinna innan FFSÍ. Undirmenn hans lýsa honum sem kappsöm- um, en vandvirkum yfirmanni. Hann velti hlutunum meira fyrir sér en margir aðrir og hafi kynnt sér aflasögu síðustu áratuga út í hörgul. Á þeirri þekkingu, meðal annars, byggi hann þá skoðun sína að kvótakerfið sé ónauðsyn- legt. Andúð hans á kerfínu ský- rist ekki engöngu af veiðimann- seðlinu, sem markar þó svo mikið. Frá einni útihátíðanna í fyrra. Fáar útihátíðir um verzlunar- mannahelgina ÓVÍST er hvort nokkur skipulögð útihátíð verður um Verzlun- armannahelgina, þar sem leyfilegt verður að hafa áfengi um hönd, nema þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Samkvæmt upplýs- ingum frá sýslumannsembættum víðs vegar um landið hefiir nú, mánuði fyrir verzlunarmannahelgi, ekki verið veitt leyfi fyrir neinum útihátíðum nema bindindismótinu í Galtalækjar- skógi og þjóðhátíð í Eyjum. Ifyrra voru unglingahátíðir á Melgerðismelum í Eyjafirði og í Atlavík, sem hvorag gekk vel og hefur ekki verið sótt um leyfi fyr- ir hátíðum á þessum stöðum í ár. I Bjarkalundi var fjölskylduhátíð í fyrra en að sögn Stefáns Skarp- héðinssonar sýslumanns hefur embættið ekki heyrt af því að áform séu um að endurtaka hana. í Vík í Mýrdal hefur verið haldin fjölskylduhátíðin Vík og er enn ekki ljóst hvort af henni verður í ár. Leitað hefur verið til sýslu- mannsembættisins í Snæfells- og Hnappadalssýslu um leyfi til að halda útihátíð á Kaldármelum, en ekki verður fjallað um það mál fyrr en eftir helgi. „Það er alveg óvíst að það verði nokkur hátíð Félag skólaslgóra og yfirkennara: Mótmælir skert- um framlögum til menntamála Sljórnarfúndur Félags skóla- stjóra og yfirkennara hefnr mót- mælt niðurskurði á framlögum til menntamála sem samþykktur var við gerð síðustu fiárlaga. > - r - Ifréttatilkynmngu fra stjórii FSY er bént á að tvö síðustu áratugi hafi um 15% ríkisútgjalda, farið til menntamála. Aukin útgjöld sem nemi aukningu þjóðatekna hafi Öll farið til framhaldsskóla óg háskóla. Jafn niðurskurður á öll ríkisútgjöld sé því sérstaklega ósanngjam gagn- vart grannskólunum. Stjórn FSY lýsir ábyrgð á hendur Alþingismönnum vegna þeirra af- leiðinga sem þessi niðurskúrður kann að hafa í för með séf. Hann sé í algerri mótsögn við boðaða stefnu núverandi menntamálráð- herra í skólamálum og vandseð hvemig ná megi settum markmið- um þegar þannig er staðið að mál- MorgnnDiaoio/ HorKcn VERÐIR LAGANNA Lögreglunni í Reykjavík barst óvæntur liðsauki þeg- ar Leðurblökumaðurinn svokallaði birtist á Lækjart- orgi. Hann mun eiga uppruna sinn í bandarískum teikriirrivndasögum og rekur menn ekki minni til þess að hann hafi birst hér á landi áður. Hann rab- baði stuttlega við íslenskan lögregluþjón og án efa hefur umræðuefnið verið barátta gegn glæpum. hér,“ sagði Jón Magnússon, settur sýslumaður. Jón Jósafat Bjömsson, annar útgefandi bæklingsins „Verzlun- armannahelgin - hvað er að ger- ast?“, sem gefinn hefur verið út undanfarin sumur ferðalöngum til fróðleiks, sagði að það liti út fyrir að lítið yrði að gerast um þessa mestu ferðahelgi ársins hvað úti- hátíðir varðaði. „Þróunin virðist vera sú, að stórar útihátíðir virð- ast vera að leggjast af, en í stað- inn era smærri fjölskylduhátíðir og einnig eru hljómsveitir víða með böll þessa helgi,“ sagði Jósa- fat. „Hins vegar hljóta þessi 20- 25.000 ungmenni, sem hafa sótt útihátíðir um verzlunarmanna- helgar að ætla að skemmta sér núna líka, og ég veit ekki hvernig það fer ef allur fjöldinn fer að fjöl- menna í Þórsmörk, á Laugárvatn eða aðra staði, þar sem er engin skipulögð gæzla.“ Fulltrúi bæjarfógeta í Vest- mannaeyjum, Jóhann Pétursson, var spurður hvað það þýddi fyrir löggæzlumenn í Eyjum ef allur straumurinn myndi liggja þangað. „Þegar hér vora 12.000 manns á þjóðhátíð 1986 fór allt sæmilega fram, af því að veðrið brást ekki,“ sagði Jóhann. „Út frá löggæzlu- sjónarmiðum kemur þetta til með að standa og falla með veðrinu. Ef veðrið verður slæmt, má búast við að skapið verði verra og í margmenni geta alltaf skapazt vandamál.“ Jóhann sagfíi að ef órói yrði, væra fangaklefar á nýju lögreglustöðinni ef til vill í það fæsta, aðeins þrír. Sex eða sjö hefðu verið á gömlu stÖðinni. Vestmannaeyj alögreglan hefur á hverri þjóðhátíð fengið liðsauka frá lögreglunni í Keflavík og frá fíkniefnalögreglunni í Reykjavík. Jóhann sagði að einnig væri mikil gæzla á hátíðarsvæðinu á vegum hátíðarhaldara, sem í ár er Knatt- spyrnufélagið Týr. Jóhann sagði að þjóðhátíð í Eyjum væri hátíð, sem varla væri hægt að banna áfengisneyzlu á vegna mjög gam- allar hefðar. „Ég er anzi hræddur um að það yrði erfitt að fram- fylgja slíku banni,“ sagði,hann. Guðjón A. Kristjánsson: Veiðimaður að upplagi og lipur samningamaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.