Morgunblaðið - 02.07.1989, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.07.1989, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JULI 1989 Vegir og vegleysur Bættar samgöngTir valda byltingnm. Samgöngnbætur breyta fleiru en menn órar fyrir áður en þær komast í framkvæmd. Það sannar reynslan. BorgarQarðarbrúin, sem Vestlendingar kostuðu einir af vegafé kjördæmisins fyrstu framkvæmdaárin, styttir ekki aðeins leið allra þeirra sem fara vestur og norður, heldur heíur hún breytt grundvallarviðhorfúm til fjarlægða til dæmis milli Akraness og Borg- arness. Annars er þetta undarlegt með fjarlægðir. Flestum Reykvíkingum þykir það ærið ferðalag að fara upp í Borgar- nes. Borgnesingum er það hinsveg- ar lítið mál að skjótasttil Reykjavík- ur. Það tekur svona klukkustund og fimmtán til tuttugu mínútur með því að halda sig á bærilega lögleg- um hraða. Það er eins og alltaf sé lengra frá Reykjavík út á land; en utan af landi til Reylqavíkur! Þótt okkur þyki hægt miða í vegamálum og bundnu slitlögin mættu lengjast töluvert meira á ári hveiju, þá hefur samt mikið áunn- ist. Því neitar enginn. Nú eru þrír malarspottar eftir á leiðinni til Borgamess, sá lengsti, við Eyri, eða Hvalfjarðareyri, er nú í endurbygg- ingu og fær væntanlega bundið slit- lag áður en langt um líður. Hinic spottarnir tveir „sitt hvoru megin við Miðsand, eða Olíustöðina í Hval- firði, em í sjónmáli. Hinsvegar þyk- ir okkur þingmönnum Vestlendinga hart að ekki skuli miða betur vega- bótum á Mýranum en raun ber vitni. Kostnaður við endurbyggingu og slitlag á þeim köflum sem eftir eru að Vegamótum á Snæfellsnesi er um þijú hundrað milljónir króna og ætlunin er að ljúka því verki, eða því sem næst, á næstu íjórum árum, á gildistíma þeirrar vegaá- ætlunar, sem Alþingi samþykkti á vordögum. Það verður mikil bragar- bót fyrir Snæfellinga og aðra þá sem um Mýrar þurfa að fara. Æski- legt væri auðvitað að ljúka þessu verki fyrr, en ekki verður á allt kosið í þeim efnum, því miður. Breytt flutningatækni veldur því að fiskflutningur frá sjávarbyggð- unum á Nesinu fara nú í auknum mæli fram með bílum, sem í vax- andi mæli leysa sjóflutninga af hólmi. Meðal annars og ekki síst þess vegna er brýnt að hraða þess- um samgöngubótum. Fyrir síðustu kosn- ingar fór einn stjórn- málaflokkanna, Borg- araflokkurinn, fram með það að malbika ætti hringveginn eins og hann legði sig og gera það fljótt. Það er auðvitað góðra gjalda vert, en lýsir þó um leið furðulegri vanþekkingu ekki bara á vegakerfinu, heldur lífi fólks í landinu, til dæmis þeirra sem byggja Snæfellsnes. Það átti sem sé að malbika Möðradalsöræfin á undan Mýrunum! Því er hér hugsað upphátt um samgöngumál að þau eru lands- byggðarfólki mál málanna én það gengur íbúum höfuðborgarsvæðis- ins stundum illa að skilja. Þeir eru nefnilega ótrúlega margir sem sjá ekki suður fyrir Straum eða upp fyrir Elliðaár. Hvalfjörðurinn var lengi vegar- tálmi. Mér er í barnsminni að talað var um það sem allt að því hálf- gerða háskaför að fara fyrir Hval- Ijörð. Leiðin þótt löng og leiðinleg, menn urðu bílveikir og vegurinn hrikalegur á köflum, til dæmis við Fossá .jafnvel lífshættulegri“. Víst getur Hvalfjörðurinn verið viðsjáll og þar getur verið veðravíti með ólíkindum. En erfitt á ég með að hugsa mér fallegri leið en að aka fyrir Hvalfjörð í blæjalogni á bjartri sumarnóttu. Það er engu líkt. Fjöll- in sýna á sér nýjar hliðar í hverri ferð, leikur ljóss og skugga kallar fram nýjar myndir, nýtt landslag. en á vetram getur hann sannarlega sýnt á sér aðra hlið þegar særinn rýkur upp í miðjar hlíðar við Hvammsvíkina og strokur standa af fjöilum og skekja far- kostinn. Þess vegna held ég að brú á fjörð- inn sé ekki heppilegur kostur til að stytta leiðina fyrir Fjörð. Henni yrði hreinlega að loka í verstu veðr- um, og þau koma býsna oft í Hvalfirðinum eins og kunnugir geta vottað, enda þótt þau standi sjaldnast ýkja lengi. Það er því að vonum að menn ræða nú mjög þann kost að gera göng undir Hvalfjörð, utarlega, við Hnausasker eða Laufagrann. Lofs- vert er það frumkvæði sem forvígis- menn Sementsverksmiðjunnar og íslenska járnblendifélagsins hafa tekið til að hrinda þessu máli af stað, enda eiga bæði fyrirtækin þarna veralegra hagsmuna að gæta, samanber greinargerð frá fyrirtækjunumj sem Morgunblaðið nýlega birti. Ahugi fyrirtækjanna HUGSAÐ vpphAtt 7 dag skrifar Eidur Gudnason, þingmadur Alþýóuflokksins. TILBOÐ ÓSKAST í Chevrolet Blazer S-10 Tahoe 4x4, árgerð ’86 (ekinn 27 þús. mílur), Ford Mustang LX, árgerð '86 (ekinn 26 þús. mílur), Jeep CJ-7 H.T. 6 cyl. (með spili), árgerð ’85, ásamt öðrum bifreiðum er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 4. júlí kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA Eigum á lager hesta-, fólksbíla-, jeppa- og bátakerrur. Sjón er sögu ríkari. Kerruhásingar fyrir tjaldvagna, hestakerrur o.fl. Burðarþol 500 kg til 6 tonn. 5-8 manna vinnuskúrar á hjólum. Dráttarbeisli í allar gerðir bíla. Verið velkomin í sýningarsal okkar. A VÍKURVAGNAR hf. VIKURVAGNAR M w Laufbrekku 2, (Dalbrekkumegin), Kópavogi, símar 45270 og 43911. Dömur! SUMARUTSALAN HEFST A MORGUN * Maidenform undirfatnaður * Chaslyn toppar og buxur * Bitte peysur-buxur-pils * Gina skór og veski Opió frá kl. I 0-l 8. Lokað laugardaga. 30 - 40% afsláttur Pósthússtræti 13, sími 22477. Búðin ykkar í miðbænum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.