Morgunblaðið - 02.07.1989, Qupperneq 3
MOJtGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1989
C 3
Hermdar-
verkamenn
gætubeitt
taugagasi
Hafi hryðjuverkamenn hug á því
einhvern tíma á næstunni að
standa fyrir stórkostlegum
fjöldamorðum er líklegra, að þeir
notist þá við efhavopn fremur en
lífefha- eða kjarnorkuvopn. Að
vísu er auðvelt að komast yfir
það, sem þarf í lífefnavopnin, en
þau verka hins vegar á lengri
tíma en efnavopnin og eru þess
vegna ekki eins áhrifarík. Kjarn-
orkuvopn kunna aftur á móti að
verða fyrir valinu siðar meir þeg-
ar auðveldara verður að ná í plú-
tón.
>
Astæða er til að hafa áhyggjur
af efnavopnum í höndum hryðju-
verkamanna því að það er tiltölulega
einfalt að búa til taugagas og verða
sér úti um nauðsunleg efni. Tabun,
taugagastegund, sem írakar notuðu
í Persaflóastyijöldinni, er auðveldust
í framleiðslu og því líklega ákjósanle-
gust fyrir hermdarverkamenn. Allar
nauðsynlegar upplýsingar um þetta
eitur er hægt fá næstum hvar sem
er og engum vandkvæðum bundið
að kaupa efnin, sem notuð eru.
Hryðjuverkamennirnir gætu jafnvel
búið þau til sjálfir.
Hermenn, sem árum saman hafa
leikið sér að eldinum, hafa þó gas-
grímur. Óbreyttir borgarar eru aft-
ur á móti berskjaldaðir.
Þeir, sem hafa einhverja efna-
fræðiþekkingu, geta búið til tabun
og það án mjög flókins búnaðar.
Fyrsta stigið er, að upplausnin er
soðin í nokkrar klukkustundir í klefa,
sem er fylltur með koltvísýringi, en
eimingin fer að nokkru fram í loft-
tómi. Efnið, sem út úr þessu kemur,
verður síðan að setja strax í innsi-
glaðar umbúðir. Allt er þetta á færi
sæmilegs efnafræðings og hryðju-
verkamenn, sem hefðu tabun undir
höndum, gætu deytt hundruð eða
þúsundir manna.
Hryðjuverkamenn þyrftu raunar
ekki að hafa mikið af eitrinu. Nokkr-
um mínútum eftir að menn komast
í snertingu við það hafa þeir orðið
fyrir alvarlegum skaða á taugakerf-
inu. Eru einkennin meðal annars
þau, að augasteinamir dragast sam-
an, sjónin daprast, óstöðvandi grát
setur að fólki, það finnur fyrir flökur-
leika, kastar upp og hefur stöðugt
þvaglát. Vökvi, sem safnast fyrir í
lungum, veldur áköfum öndunarerf-
iðleikum og brátt minnkar meðvit-
undin eða þar til fólk fellur í djúpt
dá og deyr.
Áhrifin af tabun stafa af því, að
það hindrar framleiðslu hvata, sem
flutja boð á milli tauga, þar á meðal
í heila. Banameinið er köfnun vegna
þess, að eitrið lamar öndunarfæra-
vöðva.
Örlítill dropi af taugagasi, sem
fólk andar að sér eða fær i gegnum
húð eða augu, er nógur til að drepa,
þarf jafnvel ekki meira en 0,01 milli-
gramm á hvert kíló. Aðeins brot úr
lítra gæti því orðið miklum mann-
fjökla að fjörtjóni.
Útilokað er að koma í veg fyrir,
að hryðjuverkamenn geti komist yfir
taugagas. Þeir þyrftu hins vegar að
dreifa því með einhvetjum hætti og
til þess eru ýmsar leiðir. Þeir gætu
búið til eða orðið sér úti um tæki,
sem úðaði því, til dæmis í neðanjarð-
arlestagöngum á mesta annatíman-
um.
Hryðjuverkamenn setja það ekki
lengur fyrir sig að drepa óbreytta
borgara. Örlög farþegaþotnanna frá
Air India og Pan Am sýna það. Það
er því alls ekki ólíklegt, að þeir grípi
næst til efnavopna.
ölskyldubáturinn frá
Bátasmiðju Gubmundar
verbur kynntur
um helgina í Þjónustu-
mibstöb Brimborgar,
Bíldshöfba 6.
Opib sunnudag
kl. 10-17.
Verib velkomin.
VÖLVÖ
PENTA
hÁTA
SMIÐJÆ
GUÐMUNDAR
Sími: (91) 65 12 88, Eyrartröö 13, Hafnarliröi
RETTU SUMARGRÆ JURIVAR
Sölusýning í Skipliolti 33, viö hliöina á Tónabíói
Opið virka daga frá kl. 11 til 18 og um helgar 13 til 18
alpen kreuzer TJALDVAGNAR
Vinsælustu tjaldvagnarnir í Evrópu, enda
sterkir, ríkulega útbúnir og á 13“ dekkjum.
í þeim er m.a. stálvaskur, 3ja hellna gaselda-
vél, eldhúsborð og skápar, matborð, hnífa-
paraskúffa, læst öryggishólf, gluggatjöld,
rúmgott farangursrými, varadekk, fortjald,
sóltjald. Mjög meðfærilegir og tjöldun tekur
á um 5 mínútur. 4 stærðir.
Verð frá kr. 214.000,- til kr. 278.600,-
IVA HJÓLHÝSI
Sterk og vel einangruð 12 feta hjólhýsi. Raf-
kerfi 12 og 220 volt. Eldhús, eldavél og renn-
andi vatn. Mikið skápapláss. Gluggar úr tvö-
földu, lituðu akrylgleri. Neyðarhjálpar- og
stöðuhemlar. Vindufjöðrun. 13“ dekk.
Svefnpláss fyrir 4-5. Verð kr. 324.000,- og
kr. 372.900,- með ísskáp og hitakerfi.
Fáanleg með fortjaldi.
KOOLATRON® KÆLIBOX
Frá stærsta framleiðanda heims á kælibox-
um, ætluðum til innstungu í vindlingakveik-
jara og með straumbreyti fyrir 220 volt.
Straumnotkun frá aðeins 2,5 amperum.
Nauðsynleg á ferðalögum fyrir matinn og
ölið. Rúmmál 7 til 34 lítrar. Breytt með einu
handtaki í hitabox. Verð frá aðeins kr.
7.480,- Takmarkaðar birgðir.
Sendum í póstkröfu.
Sölusýning í Skipholti 33, sími 678990
Skrifstofa í Skipholti 25, sími 629990
Ofangreint verð er miðað við tollgengi júnímánaðar 1989.
BERGLAND HF.