Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 7
^QfiGU^BLA^IÐ, SUK.NUDAGU^ ?. ,jýL| ,1,98,9,
Aímæliskveðja:
Ragna Jónsdóttir
80 ára er í dag, 2. júlí, frú
Ragna Jónsdóttir, Dvalarheimilinu
Hlíð á ísafirði, lengst búsett í
Skólagötu 8, síðar á Litla-Býli við
Seljalandsveg.
Þegar ég leiði fram í hugann
minningar þær, sem ég á um
Rögnu Jónsdóttur vakna í sál
minni sumarhugsanir. Svo bjartar
eru þær og hlýjar. Ég kynntist
henni fyrst á ísafirði fyrir tæpum
40 árum, er hún giftist móðurbróð-
ur mínum Sigmundi Falssyni
skipasmið úr Barðsvík í
Grunnavíkurhreppi. Sigmundur
var mér einstaklega góður, kær
og hjartfólginn, sem ég fæ aldrei
fullþakkað. Hann hafði á mig góð
áhrif og innrætti góðar hugsanir,
sem höfðu göfgandi og styrkjandi
áhrif, er skapaði innri festu. Sig-
mundur var auðmjúkur og af
hjarta lítillátur. Allir litu upp til
hans og báru fullt traust til hans.
Heimilislíf Rögnu og Sigmundar
var farsælt og ástúðlegt samband
við fóstru Rögnu frú Önnu Bjöms-
dóttur handavinnukennara á
ísafirði, ekkju Vilhjálms gullsmiðs
á Seyðisfirði Marteinssonar. Frú
Anna lézt 6. september 1954.
Heimilið í Skólagötu 8 var sann-
kallað kærleiksheimili, sem vermdi
og lýsti upp. Sigmundur dó 14.
marz 1979.
Ragna er fædd austur á Seyðis-
firði 2. júlí 1909. Faðir hennar Jón
Erlendsson f. 1864 frá Hala í
Háfshverfi, Rangárvallasýslu og
kona hans Ragnhildur f. 1872 d.
1909 Marteinsdóttir á Klepps-
járnsstöðum á Völlum Vilhjálms-
sonar. Föðurættin er af hinni fjöl-
mennu Víkingslækjarætt, en móð-
urættin af hinni merku Hjartar-
staðaætt. Ragna er höfðinglynd
Bjöm Bjarnason
7$Umrdur Mugnússon
° f - - -• Hffnnmff
Jón Jónsson, tré-
smiður — Minning
Birting
afmælis-
ogminning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofii blaðsins I Hafnarstræti
85, Akureyri.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afinælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
rausnarkona og kann vel að fagna
gestum. Hún er trygglynd, frænd-
rækin og vinföst og nýtur þess að
fagna á fallega heimilinu sínu
frændum, góðvinum og gestum,
er að garði ber. Okkur nánustu
ættingjum Sigmundar hefur hún
verið framúrskarandi hlý og um-
hyggjusöm, nærgætin.
Fyrir hönd fjölskyldu Sigmund-
ar Falssonar vil ég við þetta tæki-
færi, þakka þér, Ragna mín, ynd-
istíð og unaðssumur á heimili þínu
og óska þér allrar blessunar á
þessum mæta merkisdegi.
Helgi Vigfusson
UTSAIA
ÍT LL
Hverfisgötu 39 S: 13069
TÆKIFÆRI
Gerni
Jallatte
Gen Set
Gen Set
CEA
TIL AÐ
KYNNAST
OG
PRÓFA
VÖRUR
OKKAR
Við eigum meira en þig grunar.
Háþrýstidælur
Öryggisskór
Rafstöðvar
Rafsuðuvélar
Rafsuðuvélar
Nocchi Pompe Vatnsdælur
Red Jacket Djúpvatnsdælur
CP Tannhjóladælur
Peltor Samskiptakerfi, heyrnar-
hlífar, -tól og tappar
SALA og Protecta Öryggisblakkir, -belti,
-línur og krókar
Stálhanskar og
öryggissvuntur
Andlitshlífar og
hlífðargleraugu
Öryggishjálmar
Öndunarbúnaður
Rykgrímur
Keðjusagir
Hanskar
Sölumenn okkar kynna þér þessar vörur
— þú verður ekki fyrir vonbrigðum.
ÁRATUGA GÓÐ ÞJÓNUSTA!
Niroflex
Pulsafe
Protector
Kennra
McCulloch
MAPA
Skeifan 3h - Sími 82670