Morgunblaðið - 02.07.1989, Qupperneq 24
24 Q
; MORPUNBLAÐIÐ , MIIMMINGAR ST3NNUDAGUR 2. JÚLÍ.1989
t
Elsku litla dóttir okkar,
ANNA ELÍSABET,
lést 30. júní í Landspítalanum.
Elísabet Halldórsdóttir Hjaltested,
Ólafur Hjalti Erlingsson.
t
Jarðarför bróður míns,
FINNBOGA HERMANNS SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
frá Sæbóli
í Aðalvík,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 3. júlí kl. 13.30.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
t
Útför móður minnar,
SOFFÍU E. INGÓLFSDÓTTUR,
Hringbraut 65,
Reykjavík,
fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 4. júlí nk. kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Sigvaldi Friðgeirsson.
t
Systir mín og frænka,
FANNEY GUÐMUNDSDÓTTIR CAMPHAUSEN,
Dvalarheimili aldraðra, Seljahlíð,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 4. júlí
kl. 10.30.
Þorgeir G. Guðmundsson,
Nina S. Hannesdóttir,
Guðmundur Hannesson,
Thor B. Eggertsson.
t
Elskuleg móðir okkar og dóttir,
ANNA SIGURBJÖRG LEÓPOLDSDÓTTIR,
Tunguseli 8,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. júlí.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á minningarsjóð
Landakotsspítala.
Maria Sif Gunnarsdóttir, Unnar Þór Gunnarsson,
Þórhallur Björnsson,
Maria Magnúsdóttir, Leópold Jóhannesson.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁRNI SIGURJÓN INGVARSSON,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
verður jarðsettur frá Akraneskirkju mánudaginn 3. júlí kl. 11.00.
Þeir sem vilja minnast hans vinsamlegast láti Dvalarheimilið
Höfða njóta þess.
Anna Guðmonsdóttir
og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför ástkærs sonar okkar og bróður,
RUNÓLFS SVEINS SVERRISSONAR,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til nemenda, kennara og starfsfólks Fjölbrautar-
skóla Breiðholts. Einnig til félaga í Bifhjólasamtökum lýðveldisins.
Björg Sveinsdóttir, Sverrir Runólfsson,
Brynja Katrin Sverrisdóttir,
Ragnheiður Elva Sverrisdóttir,
Borghildur Björk Sverrisdóttir.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður og afa,
INGJALDS JÓNSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Ingjaldsdóttir,
Margrét Ingjaldsdóttir,
Þuriður Ingjaldsdóttir,
Jón Ingjaldsson,
Ólafur Viðar Ingjaldsson,
Guðmann H. Ingjaidsson,
og barnabörn.
Valdimar Auðunsson,
Hrafnhildur Magnúsdóttir,
Ragnhildur ísleifsdóttir,
Eygló Þóra Guðmundsdóttir
Kristín H. Þórhalls-
dóttir — Minning
Fædd 17. janúar 1931 -
Dáin 26. júní 1989
Nú hefur hún Kristín Hallfríður
Þórhallsdóttir, Stína mágkona mín
lokið síðasta stríðinu sínu hér á jörð,
ef hægt er að kalla erfið veikindi
stríð þá háði hún svo sannarlega
mörg slík og var búin að sigra í
margri orustunni áður en yfir lauk.
Oft var hún búin að koma okkur
sem með henni fylgdumst á óvart,
hversu fljótt hún reis upp úr hverri
aðgerðinni eftir aðra og náði fyrri
reisn, svo að sá sem ekki vissi hvað
hún hafði gengið í gegnum hefði
vart trúað hvað á undan var geng-
ið. Ekki náðu þessi þungu veikindi
að buga áhuga hennar á lífinu og
því sem var að gerast í kringum
hana, og hugsunin um að geta ver-
ið sem lengst bömum og barnabörn-
um stoð dreif hana áfram.
Lífshlaup hennar var svo sannar-
lega ekki auðvelt eða verndað. Hún
missir móður sína þegar hún er á
ellefta ári og þarf þá að vera föður
sínum stoð við heimilishald og þátt-
takandi í uppeldi þriggja yngri
bræðra en hún átti ejnn eldri bróð-
ur.
Sem eina systirin hefur hún ör-
ugglega þurft að axla mikla ábyrgð
enda er þetta fyrir tíma jafnréttis-
ára.
Þessar aðstæður hafa eflaust
mótað" skaphöfn hennar, því ávallt
bar hún hag bræðra sinna fyrir
bijósti og kunna þeir henni bestu
þakkir fyrir, og erum við mág-
konurnar ekki óvanar að heyra þá
vitna í Stínu systur þegar æskuárin
eru rædd.
1947 missir Stína föður sinn og
varð það henni þungt áfall að horfa
á heimilið leyst upp og systkinunum
komið fyrir. Þetta er raun sem hefði
orðið mörgum unglingi ofraun og
held ég að hún hafi aldrei komist
yfir þetta. Eftir föðurmissinn fær
hún skjól hjá föðurömmu sinni
Dómhildi Jóhannsdóttur á Blöndu-
ósi, og talaði hún oft um að þaðan
hefði hún reynt að fylgjast með
afdrifum bræðra sinna.
Ung kemur hún til Reykjavíkur
og fer að vinna fyrir sér enda ekki
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Legstéinar
HARGAR GERÐIR
Mmorex/Gmít
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
8
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
GUÐLAUGS STEFÁNSSONAR.
Sólveig Guðlaugsdóttir, Árni Filippusson,
Hilmar Leósson, Sigríður Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SK&1MUVEGI 48-SÍMl 76677
f
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för móður okkar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR ELÍASDÓTTUR,
Heimalandi,
Grindavik.
Elías Guðmundsson, Eva Oddgeirsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, 1 Sveinfríður Ragnarsdóttir
og barnabörn.
óvön vinnu. Hún eignast soninn
Bjarna Þór og er ein með hann
fyrst um sinn, þangað til hún kynn-
ist eftirlifandi manni sínum Rögn-
valdi Sigurðssyni sem tók að sér
soninn og reyndist honum alla tíð
sem besti faðir, enda sýnir Bjarni
það í verki að hann kunni að meta
umhyggjuna sem Rögnvaldur veitti
honum í æsku og uppvexti, þeirra
samband er einstaklega gott.
Þau eignast svo dótturina Sigríði
Guðnýju, og eru barnabörnin orðin
þrjú, falleg og yndisleg börn sem
voru augasteinar ömmu sinnar og
voru það markmið sem hún hafði
til að ná heilsu.
Rögnvaldur og Stína bjuggu
fyrstu hjúskaparárin með móður
hans Guðnýju í Skipasundi 34 og
var alveg einstakt hvað samband
Guðnýjar og Stínu var gott alla tíð
og er missir Guðnýjar því mikill,
þær styrktu hvor aðra mikið.
Ég undirrituð er gift yngsta bróð-
ur Stínu og byijuðum við okkar
búskap í nágrenni við hana. Mörg
voru þau ráð sem ég sem ung sjó-
mannskona þáði frá bæði Guðnýju
og Stínu, ef eitthvað bjátaði á gat
ég alltaf komið yfir götuna, en þar
var leyst úr málunum með glöðu
geði. Þessar aðstæður gerðu það
að verkum að í mínum huga var
Stína oft í hlutverki tengdamóður-
innar sem ég hafði ekki átt.
Þegar ég lít til baka á lífsferil
Stínu hefur hlutskipti hennar orðið
allsérstakt, því það má segja að frá
tíu ára aldri hafi líf hennar snúist
um umhyggju fyrir öðrum og hefur
þá eigin velferð örugglega oft orðið
að víkja. Um það leyti sem bræður
hennar eru að hefja búskap eignast
hún soninn Bjarna Þór og þarf að
sjá sér og honum farborða af eigin
rammleik. Síðar ver hún stórum
hiuta ævi sinnar að annast annarra
manna börn, og síðast en ekki síst
annaðist hún barnabörnin til að
auðvelda börnum sínum að stunda
vinnu og var það henni ómetanlega
mikils virði. Þeir eru því ófáir sem
eiga henni mikið að þakka og eitt
er víst að þetri umhugsun gátu
börn ekki fengið því allt sem hún
tók að sér var gert af mikili sam-
viskusemi og myndarbrag. Hún
hafði alltaf mikinn áhuga á fjöl-
skyldunni og gladdist yfir bræðra-
börnunum eins og þau væru hennar
eigin, og í sjúkrahúslegunum spurði
hún alltaf frétta af þeim, og var
það kannski dæmigert fyrir hana.
Stína var stórbrotin kona í lund
og kom manni oft á óvart t.d. hvern-
ig hún virtist styrkjast við hveija
raun og var hvað sterkust þegar
erfiðast var.
Hún gekk sátt á vit örlaga sinna
og andaðist með frið og ró í sinni.
Fyrir hönd ijölskyldunnar þakka
ég henni allt sem hún var okkur
og vottum við Valda, börnunum,
tengdabömum og litlu barnabörn-
unum samúð okkar. Þau eiga minn-
inguna um svipmikla góða konu
sem átti þá ósk heitasta að hennar
nánustu vegnaði vel.
Það er huggun harmi gegn að
hún hélt reisn til hinstu stundar,
þannig hefði hún viljað hafa hlutina.
Hvíli Stína mín í friði.
Kristjana Sigurðardóttir
Jarðaförin fer fram fráÁskirkju
á morgun, mánudag, 3. júní kl. 15.
Blómastofa
Friófinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öllkvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.