Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.07.1989, Blaðsíða 30
30 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚIÍ 1989 Þeir máluðu kálfinn ÆSKUMYNDIN... ER AFHELGA PÉTURSSYNI grænan ÚR MYND AS AFNINU ÚR MYNDASAFNINU/ÓLAFUR K. MAGNÚUSSON Söngur og tíska fráfyrri tíð Konur og dægurmál eru við- fangsefný ljósmyndarans að þessu sinni. Á þremur myndanna eru þekktar konur frá fyrr tíð, sem allar eiga það sameiginlegt að hafa sungið dægurtón- list opinberlega. Þær eru Soffía Karlsdóttir, Helena Eyjólfsdóttir og Sigríður Geirsdóttir, en sú síðastnefnda starfaði um árabil við kvikmyndaleik í Holly- wood og stundaði þar nám í söng. Á þessari mynd er hún þó ekki í hlutverki söngkonunnar eða leik- konunnar heldur við sýningarstörf hér heima á íslandi. Myndin af Soffíu Karlsdóttur er hins vegar tekin að tjaldabaki í Sjálfstæðishúsinu gamla við Austurvöll einhvern tíma fyrir 1960 og myndin af Helenu er tekin skömmu áður en hún kom fram í útvarpi, en hún var þá aðeins þrett- án ára. Fjórða myndin er svo af ónafngreindum tískusýningardöm- um á sjötta áratugnum. STARFID GARÐAR KJARTANSSON RÁÐHERRABÍLSTJÓRI Ráðherra- bílstjóri Garðar Kjartansson hefur þann starfa að aka menntamálaráð- herra, Svavari Gestssyni, á milli staða, innan sem utan bæjarmarka. Hann hóf störf hjá utanríkisráðu- neytinu fyrir um 19 árum og var Einar Ágústsson heitinn fyrsti ráð- herrann sem hann starfaði fyrir. Þeir eru orðnir æði margir ráðherr- amir og aðrir háttsettir embættis- menn sem hann hefur ekið um dag- ana, en starfið felst í fleiru en akstrL MYNDIN ÍTÆKINU Helgi Pétursson hefúr verið áberandi í þjóðlífinu um langt árabil, þekktur sem einn af Ríó tríóinu og nú síðustu ár sem fréttamaður og dagskrár- gerðarmaður á Stöð 2. Helgi þykir taka létt og skemmtilega á hlutunum, hvort sem er í orði eða söng og varla hefur barnæskan runnið sitt skeið á enda án þess að eitthvað spaugilegt hafi komið upp á. Hjá Ijósmyndara Brosað sínu blíðasta hjá ljósmyndaran- um, bræðurnir Helgi (t.v.) og Isleifur. Helgi Pétursson fæddist í Reykjavík 28. maí árið 1949 og er því nýorðinn fertugur. Sonur Péturs Kristjónssonar og Kristínar ísleifsdóttur. Helgi er annar í röð fjögurra bræðra, en þeir eru ísleif- ur, Kristinn og Gissur. Allt upp á skápana Helgi mun hafa byijað ævina í pappakassa. Samkvæmt heimildum fór móðir Helga með hann nýfædd- an til ömmu hans og afa sem bjuggu að Læk í Ölfusi og þar sem ekki var neinni vöggu til að dreifa var búið um krílið í pappakassa. Helgi ólst upp í föðurhúsum við Digranes- veg í Kópavogi og þótti snemma uppátækjasamur. Prakkarastrik hans og eldri bróður hans, ísleifs, voru að sögn heimildarmanna ótelj- andi. Heimildir segja að þegar móð- ir þeirra bræðra ætlaði að fara með þá í heimsókn til systur sinnar hafi hún hringt á undan sér til að láta vita að þeir væru með í för og því ráðlegt að hún kæmi öllum lausa- munum fyrir á staði þar sem þeir næðu ekki til. Ef hún fylgdi ekki þessum ráðleggingum mátti búast við að ekki stæði steinn yfir steini eftir heimsóknina. Mikið var sungið á heimilinu, Helgi tók sinn þátt í því og þótti syngja vel og rösklega. Helgi byij- aði að læra á gítar ellefu ára gam- all en leiddist það hins vegar mjög og hætti eftir fáa tíma. Það var ekki fyrr en Ríóið var stofnað löngu síðar að honum var skipað að kaupa kontrabassa sem hefur fylgt honum síðan. Helgi þótti snjall skopmynda- teiknari og eru til margar myndir eftir hann frá yngri árum. í sveitinni í fríum fóru bræðurnir í sveit til ömmu sinnar og afa á Læk. Þar var að sjálfsögðu margt brallað og segir ein sagan að Helgi hafi eitt sinn tekið sig til ásamt félaga sínum og málað einn kálfinn á bænum grænan. Helgi gegndi venjulegum sveitastörfum, var kúasmali og bar fólki hádegismatinn út á engjar ásamt vini sínum. Á bænum mun hafa verið gömul rakstrarvél sem dregin var af hesti. Helgi átti það til að setjast við stjómvölinn og til- kynna ábúðarfullur að hann væri á leið til Majorka. Heigi er sagður hafa hugsað vel um yngri bræður sína, passað þá og skipt um bleiur eftir þörfum. Samkvæmt heimildum mun hann ekki hafa verið mikill fótbolta- áhugamaður en spilaði þó með fé- lögunum og er sagður hafa farið stundum í fýlu er illa gekk. Hann þótti nokkuð hörundsár og tók það stundum mjög nærri sér ef honum var strítt. I skólanum var skipað í bekki eftir einkunnum og var Helgi ávallt í efsta bekknum. í byijun hvers skóladags söfnuðust nokkrir vinir saman í þvottahúsinu heima hjá Helga áður en lagt var í hann. Þeirra á meðal var Olafur Þórðar- son, einn Ríómanna. Helgi þótti einkar skemmtilegur og tryggur félagi og var lífið og sálin í fé- lagslífi skólans. Margir heimilda- manna sögðu Helga snemma hafa sýnt leiðtogahæfileika, sérstaklega þó í efri bekkjum grunnskóla. Til er mynd af Helga þar sem hann er ellefu ára að leika kóng í skóla- leikriti. Einn viðmælenda sagði að strákur hefði notið sín vel í því hlut- verki. „Maður gerir fleira en að keyra ráðherra. Ýmislegt kemur til og það þarf að fara marga snúningana. Yfir- leitt byijar vinnudagurinn klukkan átta á morgnana og oft er mikil helg- arvinna, sérstaklega í menntamála- ráðuneytinu, en annars er vinnudag- urinn mislangur og frí þegar ráð- herra er erlendis." Garðar sagði það vel geta verið að hann heyrði mörg leyndarmálin en aldrei segði hann öðrum neitt. „Það heyrist aldrei orð frá mér.“ Hann sagðist alla tíð hafa verið ákaf- Iega heppinn með ráðherra. Þetta hafi allt verið alveg skínandi menn. „Þetta er skemmtileg vinna og ég hef ekki yfir neinu að kvarta. En maður lifir ekki af dagvinnunni einni saman.“ ÞETTA SÖGDU ÞAU ÞÁ . . . BÓIiIN ÁNÁTTBORÐINU PLATAN Á FÓNINUM Bjarni Benedikts- son, fram- leiðslustjóri Það er óralangt síðan ég hef horft á myndband. Ætli það séu ekki eitt eða tvö ár síðan, þá var það James Bond myndin, A View to a Kill. Bond er alltaf góð- ur. Ég horfi mjög sjaldan á mynd- bönd, fer frekar á hestbak, í göngutúra eða í sund. Helst vildi ég horfa á fræðandi myndir, en það vantar alveg hér. Bentína Jónsdóttir, dagmamma og ræstir. A Eg hef verið að hlusta á nýjustu plötuna hans Paul McCartney Flowers in the Dirt. Ég er ánægður með hana, hún kom mér á óvart. Þetta er sönn plata hjá honum, ólíkt því sem hann hefur gert áður. Það er ekki verið að stíla upp á popp- markaðinn heldur kemur hún beint frá hjartanu, finnst mér. á sárasjaldan sem ég vel mér myndir til að horfa á þá vel ég einna helst hryllingsmyndir. Síðast horfði ég til dæmis á myndina Fright Night, en það er nokkuð langt síðan. Ég nota tækið yfirleitt ekki mikið, tek til dæmis aldrei upp úr dagskrá sjónvarpsins. Svo vinn ég líka á kvöldin þannig að ég hef ekki tíma til að vera að horfa á myndbönd. Sigríður Geirsdótt- ir við sýn- ingarstörf um eða eft- . ir 1960. Garðar Kjartansson Árni Samúels- son, Verslunareig- andi, veitingamað- ur og bíóstjóri í Kcflavík, um framtíðaráform sín í samtali við Morg- unblaðið, 10. fcbrú- ar1979. Ætli þetta dugi ekki, ég held að ekki sé meira að gera að sinni, annað en að vinna að því að bæta það sem komið Birgir H. Sigurðsson skipulagsstjóri Það er ekki um auðugan garð að gresja á náttborðinu hjá mér þessa dagana. Síðast var ég að lesa fyrir son minn bókina Víst kann Lotta að hjóla eftir Astrid Lind- gren. Að vísu liggur þarna líka tímaritið Arkitektúr og Skipulag sem ég hef verið að glugga í. Rúnar Vil- hjálmsson félagsfræð- ingur A Anáttborðinu er yfirleitt alltaf bók- bókanna, Bíblían sjálf. Ég les oft í henni fyrir svefninn. Ein bók er búin að vera lengi á borðinu en það er Ást og Skuggar eftir Isa- belle Alliende en af leshraða að dæma er hún greinilega ekki nógu spennandi. Svo er ég að lesa fræði- bók sem heitir Health Behaviour en það er safn ritgerða um heil- brigðishætti. Sigurður Rúnar Jóns- son hljómlist- armaður Síðast var ég að hlusta á plötu sem heitir Utan Sans með sænsku vísnahljómsveitinni Gro- upa. Ég var á tónleikum með þeim . og fékk plötuna senda frá Svíþjóð. Sigurður Dagbjarts- son gítarvið- gerðarmaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.