Morgunblaðið - 04.10.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989
Ekki alvarlegar bil-
anir á símakerfinu
Hin nýja þjónustumiðstöð á mótum Vesturgötu og Garðastrætis.
Þjónustumiðstöð aldraðra
opnuð í Grjótaþorpinu
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar tók í gær i notkun þjónustu-
miðstöð fyrir aldraða í Grjótaþorpinu, nánar tiltekið á Vesturgötu
7. Húsið er hið glæsilegasta og þar eru bæði íbúðir, heilsugæsiustöð
og miðstöð þjónustu fyrir aldraða í miðbæ og vesturbæ, norðan
Hringbrautar.
ÞORVARÐUR Jónsson, fram-
kvæmdastjóri tæknideildar Pósts
og síma, segir að gengið hafi þol-
anlega að reka símakerfið þrátt
fyrir verkfall rafiðnaðarmanna í
Rafiðnaðarsambandi Islands, þar
sem engar alvarlega bilanir hafi
orðið á því ennþá.
Þorvarður sagði að símstöðin á
Minni-Borg í Grímsnesi hefði bilað á
föstudagskvöld og undanþága feng-
ist til að gera við hana. Viðgerð hefði
verið lokið seinnipart laugardagsins.
Þá hefðu 128 númer í Múlastöð í
Reykjavík bilað eftir helgina, en und-
anþága ekki fengist, þar sem bilun
í þéttbýli hefði ekki þótt eins mikið
öryggisatriði og í dreifbýlinu.
Bjarni Benediktsson
Minnisvarði
um Bjarna
Benediktsson
afhjúpaður
MINNISVARÐI um Bjama
Benediktsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og formann
Sjálfstæðisflokksins, verður
afhjúpaður við Valhöll næst-
komandi laugardag kl. 13.00.
Höggmyndina gerði Siguijón
Ólafsson, en hún hefur verið í
eigu Sjálfstæðisflokksins um
árabil. Höggmyndinni verður
komið fyrir á tæplega tveggja
metra háum stuðlabergsstöpli,
sem Ingimundur Sigfússon for-
stjóri Heklu gefur ásamt upp-
setningu. Sonarsonur Bjarna
Benediktssonar, Bjami Bene-
dikt Bjömsson, mun afhjúpa
minnisvarðann.
Að sögn Kjartans Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins hefur lengi
staðið til að reisa minnisvarðá
um Bjama Benediktsson við
Valhöll, en það er gert nú í
tengslum við 60 ára afmæli
Sjálfstæðisflokksins á þessu
ári.
Þessi númer væm ekki öll í notkun og
því væru notendurnir sem þetta bitn-
aði á færri en númerin. Heimild hefði
heldur ekki fengist til viðgerðar á
einkastöð í Þorlákshöfn, sem hefði
bilað.
Þorvarður sagði að þetta teldust
ekki alvarlegar bilanir. Aðspurður
sagðist hann ekki hafa fengið endan-
lega skýrslu um bilun í símstöð
Landsbankans, en það virtist sem
hún hefði aðeins lítil áhrif á það sem
stöðin ætti að gera.
fEufUnmlblabitií
Bilun í síma
VEGNA bilunar í símalínum,
sem Póstur og sími getur
ekki lagað vegna verkfalls,
reynist lesendum Morgun-
blaðsins erfitt eða ómögulegt
að ná sambandi við af-
greiðslu blaðsins í símanúm-
erinu 83033.
Morgunblaðið biður lesendur
sína velvirðingar á þessu og
bendir þeim, sem eiga erindi
við afgreiðslu blaðsins, að
hringja í símanúmerin 691140
eða 691141.
Gæsluvarð-
hald í kókaín-
máli framlengt
GÆSLUVARÐHALD yfir manni,
sem verið hefur í haldi frá því í
maí vegna rannsóknar á um-
fangsmesta kókaínsmygli hér-
lendis hefur verið framlengt allt
til 30. nóvember næstkomandi,
en þó ekki lengur en til uppk-
vaðningar dóms í málinu í Saka-
dómi.
Maðurinn hefur kært úrskurð
þennan til Hæstaréttar. Málið, sem
snýst um smygl á um það bil hálfu
kílói af kókaíni hingað frá Banda-
ríkjunum, er nú til ákærumeðferðar
hjá ríkissaksóknara. Alls eru 23
einstaklingar á kæruskrá vegna
þess.
LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
fiokksins hefst í Laugardalshöll-
inni á morgun, fimmtudag, kl.
17.30, en fúndinum lýkur á
sunnudagskvöldið. Að sögn
Kjartans Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks-
Davíð Oddsson, borgarstjóri í
Reykjavík, bauð til kaffisamsætis í
gær fyrir íbúa hússins, byggingar-
aðila, aldraða Reykvíkinga og borg-
aryfirvöld. í nýja húsinu eru 26
íbúðir fyrir aldraða, sem afhentar
voru eigendum 3. ágúst síðastliðinn,
þjónustumiðstöð, sem opnuð var í
gær, og heilsugæslustöð sem opnuð
verður síðar þegar búið verður að
kaupa búnað í hana. í kjallara húss-
ins eru bílageymslur fyrir 109 bif-
reiðir. Búist er við að þær verði
teknar til almennrar notkunar 1.
nóvember næstkomandi.
Verktakafyrirtækið ístak hefur
séð um byggingu hússins og skilaði
Páll Siguijónsson, framkvæmda-
stjóri ístaks, verkinu formlega fyrir
hönd fyrirtækisins í gær. Páll af-
henti einnig borgarstjóra málverk
að gjöf eftir Jón Engilberts sem
prýða mun matsal nýja hússins.
Eygló Stefánsdóttir, forstöðumaður
ins eiga 1.042 fulltrúar rétt til
setu á landsfundinum, og meðan
hann stendur yfir munu um 20
mismunandi nefodir starfa og
skila ályktunum til fúndarins.
Opið hús verður í Laugardalshöll
eftir hádegi á morgun áður en
þjónustumiðstöðvarinnar, veitti við-
töku bókagjöf frá starfsmönnum
ístaks sem ætlað er að verða vísir
að bókasafni.
í þjónustumiðstöðinni er matsal-
ur, eldhús, setustofa, og hreyfisal-
ur. í húsinu verður í framtíðinni
miðstöð félagsstarfs aldraðra í
hverfinu, hársnyrting, fótsnyrting,
hreyfiþjálfun, aðstoð við böðun,
miðstöð heimaþjónustu auk matar-
þjónustu. Þjónustumiðstöðin á
Vesturgötu 7 er hin áttunda sem
Reykjavíkurborg á og rekur á veg-
um öldrunardeildar Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar. Arki-
tektar Vesturgötu 7 eru Hjörleifur
Stefánsson og Stefán Örn Stefáns-
son. Húsið, sem var tvö ár í bygg-
ingu, er fjórar hæðir og_ bíla-
geymslukjallari er tvílyftur. Aætlað
er að heildarkostnaður við húsið
fullfrágengið verði 553 milljónir
króna á verðlagi 1. október.
landsfundurinn verður settur, og
verða fundargögn þá afhent. Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur létt lög í
eina klukkustund fyrir fundarsetn-
inguna, sem hefst með því að Karla-
kórinn Fóstbræður og óperusöngv-
ararnir Kristinn Hallsson og Sigrún
Hjálmtýsdóttir flytja nokkur söng-
lög við undirleik Jónasar Ingimund-
arsonar, en stjórnandi verður Ragn-
ar Björnsson. Að því loknu flytur
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins setningarræðu.
Sérstakir fundir ungra landsfundar-
fulltrúa og kvenna á landsfundinum
verða síðan haldnir kl. 19. Sérstök
dagskrá hefst á Hótel Sögu kl.
20.30, þar sem Björn Bjarnason,
aðstoðarritstjóri og Einar K. Guð-
finnsson útgerðarstjóri fjalla um
tengsl íslands við Evrópubandalag-
ið, Sigríður A. Þórðardóttir, for-
maður Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, og Lárus Jónsson fram-
kvæmdastjóri fjalla um hvert
stefnir í byggðamálum, og Matthías
Bjarnason alþingismaður fjallar um
kosningalög og kjördæmaskipan.
Fundurinn hefst kl. 9 á föstudag-
inn í Laugardalshöll með dagskrá
Morgunblaðið/Bjarni
Páll Sigurjónsson, framkvæmda-
stjóri Istaks, afhendir Davíð
Oddssyni borgarstjóra málverkið
Uppstillingu eftir Jón Engilberts
sem prýða á matsal nýrrar þjón-
ustumiðstöðvar aldraðra á Vest-
urgötu 7.
um starfsemi Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins flytur
skýrslu um flokksstarfið, og kynnt-
ar verða tillögur um breytingar á
skipulagsreglum. Að loknum um-
ræðum verður framsaga um stjórn-
málaályktun fundarins og umræður
um hana. Eftir hádegið mun Davíð
Oddsson borgarstjóri gera grein
fyrir álitsgerð nefndar um stefnu-
mörkun til framtíðar, og verða
umræður að því loknu. Starfshópar
á landsfundinum hefja störf kl. 17,
og frá kl. 21 til kl. 1 verður opið
hús í Valhöll.
Á laugardaginn munu starfs-
hópar starfa fyrir hádegi, en eftir
hádegi verða ályktanir afgreiddar
og umræður fara fram. Umræðum
og afgreiðslu ályktana verður síðan
haldið áfram á sunnudagsmorgun-
inn, og afgreiðsla stjórnmálaálykt-
unar hefst kl. 13. Kosningar for-
-manns, varaformanns og miðstjórn-
armanna hefjast kl. 15, og að þeim
loknum verður landsfundinum slit-
ið. Lokahóf verður síðan haldið á
Hótel íslandi, og hefst það kl. 20
á sunnudagskvöldið.
Tveir einþáttungar
Sveinbjöms Baldvins-
sonar settir upp í LA
BANDARÍSKUR leikhópur vinnur nú að uppsetningu tveggja ein-
þáttunga eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson og verða þeir sýndir í
Century City Playhouse í Los Angeles. Frumsýning verður 6. nóvem-
ber og áætlað að sýningar standi í 5-6 vikur. Fyrir annan einþátt-
unganna, „Visiting Hour“ hlaut Sveinbjöm verðlaun í samkeppni
vestra en hinn, „Stjömur Sesars", verður gefinn út í smásöguformi
í smásagnasafiii Sveinbjörns sem Almenna bókafélagið gefúr út í
haust.
I verðlaunasamkeppni, sem hald-
in var á vegum Suður-Kalifomíu-
háskóla, valdi dómnefnd sem meðal
annars var skipuð tveimur Óskars-
verðlaunahöfum, handritahöfund-
unum Julius J. Epstein, höfundi
„Casablanca“, og Edmund North,
„Visiting Hour“ til verðlauna.
Sveinbjöm sagði að ein leikkvenn-
anna, sem tekið hefði þátt í upp-
Sveinbjörn Baldvinsson
setningu verksins í tengslum við
samkeppnina, hefði komið verkinu
á framfæri við leikhópinn Quixotic,
sem síðan hefði falast eftir öðru
verki frá sér. Hann sagði að Quix-
otic-leikhópurinn hefði verið starf-
andi í borginni undanfarin 1-2 ár
og sett upp ýmis leikrit.
Landsfimdur Sjálfstæðisflokksins hefst á morgun;
1.042 fiilltrúar eiga rétt
til setu á landsfundi