Morgunblaðið - 04.10.1989, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989
3
FLUGLEIDIR
OFAROGOFAR
NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • OKTÓBER 1989
Nú skákar
landsbyggðin
skammdeginu.
Þessi nýjung er sniðin fyrir
hrausta og fjöruga íslend-
inga - sanna víkinga og er
kölluð: Helgarupplyfting í höfuð-
borginni.
Nútímavíkingarnir fljúga báðar
leiðir með Flugleiðum og geta valið
að gista í tvær nætur (með
morgunverði) á Hótel Loftleiðum
eða Hótel Esju. I „pakkanum" er
innifalin glæsileg stórsýning;
Rokkópera á Hótel íslandi á
laugardagskvöldi og þríréttaður
kvöldverður.
Síðan er aukadagskrá ef þrek og
tími leyfir. Föstudagskvöld í
Hollywood að hætti sannra
víkinga, snæða t.d. harðfisk, logandi
iamb og jökulís sem rennt er niður
með tilheyrandi miði. Síðan er
tilvalið að fagna laugardagsmorgni
með baði og „brunch" í Bláa lóninu.
Nánari upplýsingar og kynn-
ingarbæklingur hjá Flugleiðum um
land allt.
Et, drekk ok ver glaðr um helgi
í Reykjavík!
Kraftmikið
innanlandsflug í
vetur.
Vetraráætlun innanlandsflugs
tók gildi í september. Það
eru ekki eins skörp skil milli
sumars og vetrar í innanlandsflugi
Flugleiða og hjá veðurguðunum.
I vetur verða um 100 brottfarir
á viku frá Reykjavík, á móti rúmlega
120 yfir suniartímann. Það munar
ekki meiru.
Öll flugáætlunin í vetur byggir á
endurbótum sem gerðar voru
síðari hluta síðasta vetrar og þóttu
takast vel að mati viðskiptavina.
Hornafjörður, Patreksfjörður,
Þingeyri og Akureyri eru meðal
áfangastaða sem njóta aukinnar
þjónustu í nýju áætluninni.
P.s. Aðaláhugamál allra flug-
farþega. Á fyrstu átta mánuðum
ársins hefur verið 84% stundvísi að
meðaltali í innanlandsflugi Flugleiða.
90
Helgaðu þér Evrópu um helgar!
Sól, sól skín á
Kanarí.
Kanaríeyjar eru vetrardvalar-
staður þar sem íslendingar
geta verið alveg öruggir um
sól og hita. Þetta er staðreynd
alveg eins og nótt fylgir alltaf degi.
Flugleiðir bjóða Kanaríeyjaferðir
um London í nóvember en fyrsta
beina flugið frá íslandi verður
18. desember, jólaferðin alkunna.
Síðan verður beint flug milli Kanarí
og íslands á þriggja vikna fresti fram
yfir páska. íslensk fararstjórn.
Þegar er byrjað að taka á móti
pöntunum í gríð og erg hjá
Flugleiðum og ferðaskrifstofunum.
I vetur verða bein flug frá íslandi
til Kanaríeyja sem hér segir: 18. des.,
8. jan., 29. jan., 19. feb., 12. mars., 2.
apr., 16. apr.
Ekki er ráð nema í tíma sé
tekið. Örugg sól.
leiðarbók
fyrir Lúx-farþega.
Góðir íslendingar á leið til
Mið-Evrópu! Nú er komin
út vönduð 124 síðna íslensk
bók sem leiðbeinir ykkur um fimm
lönd: Lúxemborg, Belgíu, Þýska-
land, Frakkiand og Sviss. Þetta er
fyrsta íslenska bókin sem
uppfræðir ferðalanga um hjarta
Evrópu á skipulegan hátt.
Að sjálfsögðu fljúga höfundar
bókarinnar, Sigmar B. Hauksson
og Helga Thorberg, til Lúxem-
borgar með Flugleiðum, þaðan
sem þau hefja fimm landa ferðina á
jörðu niðri. Bókin, Flug og bíll
Lúxemborg, fæst hjá bóksölum og
er full ástæða að hafa hana í
farteskinu þegar lagt er í flug-
og bílferð um M.-Evrópu.
í haust og allan vetur gildir
sértilboðið Flug og bíll til
Lúxemborgar. Frá kr. 28.510
(þriggja daga helgarferð).
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
Á SAGA CLASS!
Flugleiðir eru meðal fyrstu
flugfélaga í heimi sem eru
þess heiðurs aðnjótandi að
geta boðið Saga Class farþegum
einkamyndbandstæki.
Þessi nýjung er enn ein rós í
hnappagat Saga Class þjónustu
Flugleiða um borð í DC.8 þotum á
milli íslands og Bandaríkjanna.
Farþegar á Saga Class fá Sony
Walkman myndbandstæki
endurgjaldslaust til eigin afnota
meðan á fiugi stendur. Lítil nett tæki
með sérdeilis skýrum skjá.
Hjá öðrum flugfélögum verða
allir farþegar um borð að horfa á
einu og sömu kvikmyndina, á
fáeinum skjám, sem flugfélögin sjálf
velja fyrir farþegana, en á Saga
Class í Bandaríkjaflugi Flugleiða
eru farþegarnir sjálfir sýninga-
stjórar. Þeir geta valið úr
kvikmyndum og von er á
heimsþekktum golf- og
viðskiptaþáttum.
Nú er líka hægt að gleðja
augað í Bandaríkjaflugi
Flugleiða!
Nú í haust geta íslendingar
lagt Evrópu að fótum sér
um helgar eins og oft áður á
þessum árstíma fyrir lítið fé.
Flugleiðir bjóða nú tveggja og
þriggja daga helgarferðir til allra
áfangastaða sinna í Evrópu
Fjölmargir landsmenn þekkja'
þennan hagstæða og skemmti-
lega ferðamöguleika af eigin raun -
og ætla aftur í haust og vetur.
Glænýjar, hljóðlátar og
þægilegar Boeing 737-400 þotur
flytja helgarfarþega á vit ævintýra
Evrópu. Hefurðu reynt nýju
Flugleiðaþoturnar?
Odýrasti ferðamöguleikinn í
Evrópusyrpunni að þessu sinni er
þriggja daga ferð til Glasgow fyrir
kr. 24.450,— (flug og hótel) miðað
við að tveir ferðist saman. í hverri
borg má velja um a.m.k. 3-5 hótel.
Hvernig hljómar 199 kr. á klst. fýrir Flórída og sportbfl?
Flugleiðirogferða-
skrifstofurnar gefa góð ráð
og upplýsingar um verð.
Mannlíf, matur, listir,
skemmtanir og verslanir er það
sem bíður í stórborgum Evrópu.
Annars eru möguleikarnir
ótæmandi. T.d. Flugleiðaflug til
Lúxemborgar og þaðan stuttan spöl
til Trier eða Saarbrucken sem báðar
eru mjög hagstæðar verslunarborgir.
Tilbreytingaríkar ferðir.
Hagstætt verð. Óteljandi
möguleikar.
r
Ioktóber gefst tækifæri á að láta
drauminn um ódýrt frí á
Flórída verða að veruleika.
Hvernig? Jú, Flugleiðir bjóða
sértilboð í nokkrar tíu daga ferðir
til Orlandó.
Til marks um hagstætt verð
draumaferðarinnar má nefna að hún
kostar aðeins' 199 kr. á klukku-
stund - líkt verðlag og t.d. á bíómiða
hér á íslandi. Heildarverð: kr.
47.610,- miðað við að tveir ferðist
saman. Flugleiðir og ferðaskrifstof-
urnar eefa frekari uDDlvsinaar.
Til að gera gott betra. Innifalið
í sértilboðinu er vikuleiga á nýlegum
kraftmiklum Ford Thunderbird
sportbíl (án söluskatts og bensíns).
Minnum á: Disney World og Epcot,
Sea World, Kennedy-geimstöðina,
fjölleikahús og Villta vatns-
skemmtigarðinn.
■
ZOÞ-86POUM VjSOmV