Morgunblaðið - 04.10.1989, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.10.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1989 15 Kelduhverfí: Innan við helmingnr tekur fé í hús að nviu Hraunbrún, Kelduhverfi. ÞEIR bændur í Kelduhverfi, sem skáru niður fé sitt vegna riðuveiki haustið 1986, geta nú að afiokinni hreinsun og þriggja ára umsömdu fjárleysi tekið fé í Ijárhús sín á ný. Það eru þó einungis fimm bændur, af þeim þrettán sem lógað hafa fé sínu, sem taka fé að nýju í haust. Þeir taka á bilinu tíu til hundrað og fimmtíu lömb. Þeir sem ekki taka fé nú eru aldraðir bændur og menn sem komnir eru í aðra vinnu. Þetta eru viss tímamót hér í sveit Mikla endurskipulagningu þurfti á og ánægjuefni fyrir þá tólf bændur sem ekki þurftu að lóga fé sínu. Riða hefur ekki komið upp hjá þeim á þessum tíma en tveir hafa reyndar hætt fjárbúskap af öðrum ástæðum. Margt breytist í lítilli sveit þegar rúmlega helmingur bænda þarf að leggja niður búskap sama haustið. göngum því þær eru lagðar á eftir fjártölu og því ekki lagðar á fjár- lausa menn. í haust hafa miklar rigningar og þoka tafið að hægt væri að ljúka ijallskilum, en nú hefur loks tekist að ganga seinni göngur. Inga Mannfjöldi á Morgunblaðssýningu MILLI fjögur og fimm þúsund manns sáu sýningu um grein í Morgun- blaðinu síðastliðinn sunnudag, sem fjallaði um leitir á Landmannaf- rétti. Liðlega 200 myndir og gögn um vinnslu greinarinnar voru til sýnis aðeins þennan eina dag á Kjarvalsstöðum. Ragnar Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins tók þorra myndanna í greininni og Arni Johnsen blaðamaður skrifaði hana. Vill rækta jafii mörg tré og hann hefiir sundur sagað um ævina Skógræktarfélagi Reykjavíkur fékk í gær að gjöf eina og hálfa milljón króna í tilefni 70 ára afmælis Sveinbjarnar Sigurðssonar, byggingameistara, en afmælið var í gær. Sveinbjörn er mikill áhuga- maður um skógrækt í gegnum tíðina. Gjöfin er frá 52 aðilum, fyrir- tækjum, einstaklingum, samstarfsmönnum og vinum afmælisbarnsins. Víglundur Þorsteinsson, formað- henti Þorvaldi S. Þorvaldssyni, ur Félags íslenskra iðnrekenda, af- formanni Skógræktarfélags Reykjavíkur, gjöfina í landi Korp- úlfsstaða í gær, en þar er meining- in að byggja upp næsta útivistar- svæði Reykjavíkurborgar. Aftir af- hendinguna gróðursetti afmælis- barnið nokkur tré ásamt nokkrum 'fiðstöddum gestum. Víglundur sagði að vinir, velúnn- arar, samstarfsmenn og viðskipta- fyrirtæki í marga áratugi hefðu ákveðið að styðja við og heiðra sér- staklega það áhugamál Sveinbjarn- ar sem honum hefði verið hvað hugleiknast síðustu árin, en það væri skógrækt. Þetta hefði auðvitað verið gert vitandi það að Sveinbjörn væri ekkert gefin fyrir veraidleg gæði, en afmælisbarnið hefði látið þau orð falla að hann vilji nú rækta eins mörg tré og hann hefur sundur sagað um ævina í starfi sínu sem byggingameistari. Það kom fram við afhendinguna að Sveinbjörn hefur unnið mikið þrekvirki á sviði skógræktar í sum- arbústaðalandi sínu í Grafningi austan við Þrastarlund. íslandsdeild ESTA: Námskeið haldin fyr- ir strengjaleikara Islandsdeild ESTA, sem er samband strengjakennara í Evrópu, stendur fyrir námskeiðum fyrir kennara og strengjanemendur, dag- ana 7. til 9. október. Kennarar á námskeiðunum verða hjónin Alm- ita og Roland Vamos, sem kölluð hafa verið „foreldrar strengjaleikar- anna,“ þar sem stór hópur af nemendum þeirra er búinn að slá í gegn. Meðal íslenskra nemenda sem hafa stundað nám hjá þeim um árabil eru Sigrún Eðvaldsdóttir og Auður Hafsteinsdóttir. Þau hjónin verða með tvö nám- daginn 9. október og er þegar full- skeið hér á landi. Annað er aðeins ætlað strengjakennurum og stendur yfir laugardaginn 7. október og sunnudaginn 8. október. Hið seinna er fyrir nemendur sem eru komnir vel á veg í námi sínu, eða á 7. til 8. stig. Það námskeið verður mánu- bókað á það. Bæði námskeiðin verða haldin í sal Félags íslenskra hljómlistarmanna í Rauðagerði 27. Nánari upplýsingar um nám- skeiðin gefur Haukur F. Hannesson hjá Tónlistarskóla íslenska Suzuki- sambandsins. Morgunblaðið/RAX Sveinbjörn Sigurðsson(með skófluna) ásamt eiginkonu sinni Helgu Kristinsdóttur og fjöiskyldu þeirra. Stórgjöf til skógræktar á afínæli Sveinbjarnar Sigurðssonar: MorgunblaOiO/bvernr Á myndinni sést Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Plastprents hf., afhenda Höskuldi Jónssyni, for- stjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ávísun að Qárhæð 1,3 milljónir króna, sem er ágóðinn af auglýsingum á burðarpokum ÁTVR frá 1. mars síðastliðnum. Höskuldur afhenti síðan Sveini Runólfs- syni landgræðslustjóra ávísunina. Plastprent og ÁTVR: Landgræðslunni gefin rúm milljón EYSTEINN Helgason, fram- kvæmdastjóri Plastprents hf., af- henti í gær Höskuldi Jónssyni, forstjóra Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins, ávísun að fjárhæð 1,3 milljónir króna, sem er ágóð- inn af auglýsingum á burðarpok- um ÁTVR frá 1. mars síðastliðn- um. Höskuldur aflienti síðan Sveini Runólfssyni landgræðslu- stjóra ávísunina. „Þessir íjármun- ir eru vel þegnir og þeir verða notaðir til að græða upp friðuð landsvæði á nokkrum stöðum á landinu," sagði Sveinn. Plastprent hf. hefur annast gerð allra burðarpoka fyrir ÁTVR frá því að sala bjórs hófst hérlendis 1. mars síðastliðinn. í samkomulagi Plast- prents og ÁTVR var gert ráð fyrir að Plastprent hefði heimild til að selja auglýsingar á burðarpokana og ákvað ÁTVR að andvirði auglýs- inganna rynni óskipt til Landgræðslu ríkisins. „Það er fullur vilji allra að- ila að halda áfram að styrkja Land- græðsluna með þessum hætti,‘‘ sagði Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR. Jaftit hjá Margeiri og Yijöla Skák Gunnar Finnlaugsson AUKAKEPPNI Skákþings Norð- urlanda var fram haldið í Holst- erbro í Danmörku í gær. Mar- geir Pétursson og Finninn Yijöla gerðu jafntefli. Eru þeir nú efst- ir og jafnir í keppninni með 2 vinninga hvor. Bent Larsen er líklega úr leik eftir að hafa tapað bæði fyrir Margeiri og Yrjöla. Margeir tefiir með hvítu gegn Larsen í dag og á morgun mæt- ast Larsen og Yrjöla. Larsen reyndi allt sem hann gat til að knýja fram vinning gegn Ytjöla í fyrradag. Hann náði sókn sem leit vel út en Yijöla varðist vel. Larsen átti margar leiðir til 1 jafnteflis en forsmáði þær allar og varð svo að gefast upp eftir 69 leiki. Ef Larsen hefði þegið jafn- tefli hefði staða Margeirs verið mjög vænleg. Skákin í gær tefldist þannig: Hvítt: Juha Yrjöla. Svart: Margeir Pétursson. Griinfeld-vörn. 1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. g3 - Bg7, 4. Bg2 - c6. (Hér gat Margeir valið hvassara afbrigði að hætti Kasparovs með 4. — 0-0 til dæmis, 5. RiJ3 — d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7. 0-0 — Rb6.) 5. Rf3 — d5, 6. cxd5 — cxd5, 7. Rc3 - 0-0, 8. Re5 - e6, 9. Bg5 - Db6, 10. Dd2 - Rfd7!? Athyglisverður leikur. Svartur er nú búinn að jafna taflið. 11. Be3 - Rc6, 12. Rf3 - Db4. (Rýmir b6 fyrir riddarann og þrýstir á d4. 13. a3 er einfaldlega svarað með 13. — Db3.) 13. 0-0 - Rb6, 14. b3 - Bd7, 15. Hfdl - Hfc8, 16. Hacl - Bf8. (Svartur stendur vel en þessi leikur sýnir að erfitt er að finna góða áætlun.) 17. Re5?! (Vafasamur leikur sem færir svörtum frumkvæðið. Vænlegra til árangurs fyrir hvítan er 17. h4 eða 17. Bh6.) 17. - Rxe5, 18. dxe5 - Hc6, 19. Rbl — Hac8, 20. Hxc6 — Dxd2, 21. Bxd2 - bxc6. (Hvassara og vænlegra til ár- angurs en 21. — Hxc6.) 22. e3 - c5, 23. Bfl - Bc6, 24. f4 - d4?! (Margeir leggur of mikið í stöð- una og leikur nú nokkrum óná- kvæmum leikjum. Betra var að bíða átekta með 24. — Bb7 eða 24. - Kg7.) 25. Hcl - Be4,26. Bg2 - Bxbl. (Traustara var 26. — Bxg2.) 27. Hxbl - d3, 28. Bb7! (Góður leikur. Leiknum 28. Be4 svarar svartur með 28. — c4. Nú eru möguleikarnir hvíts megin.) 28. - Hd8, 29. Ba6 - Rd5, 30. Hdl. (Að sjálfsögðu ekki 30. Bxd3? vegna 30. — Rb6 og hvítur vinnur mann.) 30. — Rb4, 31. Bxb4 — cxb4, 32. Hxd3 - Hxd3. (Þótt hvítur sé með peði meira er staðan jafntefli vegna mislitu biskupanna.) 33. Bxd3 - h5, 34. Kf2 - Bc5, 35. Kf3 - Kf8, 36. h3 - Ke7, 37. g4 — hxg4, 38. hxg4 — Bb6, 39. Ke4 - Bc5, 40. Bc4 - Bb6, 41. Kd3 - Bc5, 42. Ba6 - Bb6, 43. e4 - Bf2, 44. f5 - Bg3, 45. Kd4 - Bf2, 46. Kc4 - Bg3, 47. ficg6 - fxg6, 48. Kxb4 — Bxe5, 49. Bc4 - Bd4, 50. Kb5 - Kd6, 51. Ka6 — e5, 52. b4 — KcV, 53. a4 - g5, 54. Bb3 - Be3, 55. Kb5 - B12, 56. a5 jafntefli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.